Fréttir
Ekki á svifdreka heldur með dráttarsegl
Maðurinn sem slasaðist í Svignaskarði í Borgarfirði í gær var ekki á svifdreka heldur með nokkurs konar dráttarsegl, sem meðal annars skíðamenn og sjóskíðamenn nota til þess að draga sig áfram í góðum byr. Þetta kemur fram á fréttavefnum Skessuhorni.
Útafakstur við Selfoss vatt upp á sig
Lögreglan á Selfossi handtók fjóra, yfirheyrði sex á staðnum, og lagði hald á nokkuð af fíkniefnum í þremur húsum í Árneshverfinu í uppsveitum Árnessýslu í gær.
Viðræðurnar út um þúfur
Viðræður Tyrkja við Evrópusambandið um stöðu Kýpur runnu í morgun út í sandinn vegna andstöðu þeirra við að aflétta hafnbanni sínu á kýpversk skip eins og ESB hafði krafist.
Þrír sendir í rannsókn vegna hugsanlegrar geislunar
Þrír hafa verið sendir á sérstaka rannsóknarstofu í Lundúnum vegna hugsanlegrar geislunar í kjölfar dauða Alexanders Litvinenkos, fyrrverandi njósnara hjá KGB. Frá þessu greindi talsmaður heilbrigðisyfirvalda í Bretlandi í dag.
Ólgan vex vegna morðsins
Mikil reiði ríkir á meðal þeldökkra Bandaríkjamanna eftir að óvopnaður blökkumaður var skotinn til bana fyrir utan næturklúbb í New York um helgina, nokkrum klukkustundum fyrir brúðkaup sitt.
Fjörtíu prósent starfsmanna af erlendu bergi brotin
Fjörtíu prósent þeirra sem starfa við fiskvinnslu hér á landi eru af erlendu bergi brotnir. Hæst er hlutfallið í Reykjavík þar sem áttatíu prósent starfsmanna fæddust annars staðar en á Íslandi.
Forsætisráðherra Tyrklands hittir páfa
Forsætisráðherra Tyrklands hefur breytt dagskrá sinni til þess að hitta Benedikt sextánda páfa, sem kemur í opinbera heimsókn til landsins á morgun.
Svifdrekamaður slasaðist alvarlega í Borgarfirði
Svifdrekamaður liggur á gjörgæsludeild Landspítalans eftir slys sem varð við Svignaskarð í Borgarfirði í gær. Eftir því sem fram kemur á vef Skessuhorns brotlenti svifdreki mannsins eftir að vindhviða feykti honum á skurðbakka af miklu afli og slasaðist maðurinn illa.
Vanskil aukast á þriðja ársfjórðungi
Vanskilahlutfall af útlánum innlánsstofnana jókst heldur á þriðja ársfjórðungi ársins eftir að hafa verið mjög lágt undanfarin misseri, að því er fram kemur á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins. Í heildina námu vanskil 0,7 prósentum af útlánum, en hlutur einstaklinga var heldur hærri en hlutur fyrirtækja.
Halda óbreyttum réttindum í tvö ár
Starfsmenn Ríkisútvarpsins munu halda lífeyrisréttindum sínum og öðrum réttindum opinberra starfsmanna í tvö ár eftir að stofnunin verður gerð að hlutafélagi, samkvæmt hugmyndum sem ræddar eru í menntamálanefnd Alþingis. Össur Skarphéðinsson, varamaður í nefndinni, segir að eftir það verði réttindi starfsmannanna nánast öll komin undir útvarpsstjóra.
Kona gæti í fyrsta sinn orðið bæjarstjóri á Akureyri
Kona gæti í fyrsta sinn orðið bæjarstjóri á Akureyri eftir að Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri hlaut örugga kosningu í fyrsta sæti lista sjálfstæðismanna fyrir alþingiskosningarnar í vor.
Neyðarfundur hjá COBRA vegna njósnaramáls
John Reid, innanríkisráðherra Bretlands, hefur boðað til neyðarfundar hjá svokallaðri COBRA-nefnd, sem fjallar um þjóðaröryggismál í í Bretlandi, vegna dauða Alexanders Litvinenkos, fyrrverandi njósnara hjá KGB og rússnesku öryggislögreglunni.
Vilja viðræður um lífeyrisréttindi vegna hlutafélagavæðingar
Formenn allra heildarsamtaka opinberra starfsmanna, BSRB, BHM og KÍ, hafa ritað fjármálaráðherra bréf og óskað eftir viðræðum um lífeyrisréttindi starfsfólks í stofnunum sem gerðar eru að hlutafélögum. Þetta kemur fram á vef BSRB.
Hlutafjárútboð í Icelandair hefst í dag
Almennt hlutafjárútboð í Icelandair Group Holding hf. hefst í dag. Í boði til almennings eru hlutabréf í félaginu fyrir einn milljarð króna að markaðsvirði á genginu 27 krónur á hlut.
Bretar ætla að fækka hermönnum í Írak um þúsundir
Breska ríkisstjórnin gerir ráð fyrir að kalla þúsundir hermanna heim frá Írak í lok næsta árs, að sögn varnarmálaráðherra Bretlands.
Starfsmaður Impregilo enn á gjörgæsludeild
Kínverskum starfsmanni Impregilo á Kárahnjúkum, sem slasaðist alvarlega við Kárahnjúkastíflu á laugardagskvöld, er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild og er líðan hans óbreytt að sögn læknis. Maðurinn dróst um 40-50 metra niður stífluvegginn með kaðli sem hann notaði til að stýra bómu á krana og hafnaði hann á steypustyrktarjárni.
Tilbúnir að sleppa mörgum Palestínumönnum
Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, segir að Ísraelar séu tilbúnir að láta lausa marga palestinska fanga, ef ísraelska hermanninum Gilad Shalit, verði sleppt.
Arðbær hryðjuverk
Hryðjuverkahópar í Írak þéna milljarða króna á mannránum, olíusmygli og peningafölsun, samkvæmt bandarískri skýrslu sem dagblaðið New York Times hefur komist yfir.
Hráolíuverð hækkaði
Heimsmarkaðsverð á framvirkum samningum á hráolíu hækkaði á markaði í Bandaríkjunum í dag í kjölfar fregna um að Samtök olíuútflutningsríkja, OPEC, muni hugsanlega tilkynna um samdrátt á olíuframleiðslukvóta í næsta mánuði.
Ruslpóstur hefur þrefaldast á hálfu ári
Umfang tölvu ruslpósts hefur þrefaldast síðan í júní og níu af hverjum tíu póstsendingum á heimsvísu eru nú ruslpóstur, að sögn bandaríska tölvufyrirtækisins Postini. Fyrirtækið segir að það séu glæpagengi sem séu á bakvið þetta.
Heiftarlegar deilur um samkynhneigða í Færeyjum
Þingmaður á lögþingi Færeyja lagði samkynhneigða að jöfnu við barnaníðinga, brennuvarga og stelsjúka, í viðtali við danskt blað, á dögunum.
Velta félagshagkerfisins yfir 500 milljarðar á Íslandi
Velta félagshagkerfisins á Íslandi, sem nær til þess hluta hagkerfisins sem ekki er rekinn í hagnaðarskyni og til frjálsra félagasamtaka, nemur rúmum 500 milljörðum króna, eða tæplega helmingi af landsframleiðslu. Þetta kemur fram í ritinu Félagshagkerfið á Íslandi eftir dr. Ívar Jónsson, prófessor við Háskólann á Bifröst.
Skipt um fjármálastjóra hjá Volkswagen
Stjórn þýsku bílaframleiðandanna hjá Volkswagen ætlar ekki að framlengja samning sinn við Hans Dieter Poetsch, fjármálastjóra fyrirtækisins, sem rennur út um áramótin. Ákvörðunin tengist uppsögn Bernd Pischetsrieders, forstjóra Volkswagen, sem ákveðið hefur að hætta um áramótin.
Kæra vegna meints vanhæfis tekin fyrir klukkan 15
Kæra fimm manna tengdum Baugi á hendur yfirmönnum efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra vegna meints vanhæfis þeirra í rannsókn á skattamálum Baugsmanna verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan þrjú í dag.
Rjúpnaveiðimenn ósáttir við veiðina
Næst síðasti veiðidagur rjúpaveiðitímabilsins var í gær en síðasti veiðidagurinn er á fimmtudaginn. Fréttavefur Skessuhorns hefur rætt við veiðimenn frá Akranesi og norður á Akureyri, sem allir eru sammála um að tíðarfarið hafi verið erfitt og menn því ekki náð nema nokkrum fuglum. Hugsanlega hafa aldrei færri rjúpur verið skotnar og líklega ekki fleiri en 40 þúsund fuglar í haust.
Varar við borgarastyrjöld í þremur löndum
Abdullah, konungur Jórdaníu, varar við því að borgarastyrjöld kunni að brjótast út í þremur ríkjum í Miðausturlöndum ef alþjóðasamfélagið grípi ekki inn í. Löndin sem um ræðir eru Líbanon, Írak og palestínsku sjálfsstjórnarsvæðin en þar hefur spenna magnast að undanförnu.
Upplýsingaskilti sett upp við veginn um Óshlíð
Vegagerðin hefur unnið að uppsetningu upplýsingarbúnaðar við veginn um Óshlíð. Hætta skapast oft í rigningarveðrum á haustin og vorin vegna grjóthruns í hlíðinni.
Wal-Mart nemur land á Indlandi
Bandaríska verslanakeðjan Wal-Mart hefur tilkynnt að hún muni opna verslanir á Indlandi á næstunni í samstarfi við indversku verslanasamstæðuna Bharti Enterprises. Verslanakeðjur á Vesturlöndum hafa lengi horft til þessa en möguleikinn opnaðist ekki fyrr en slitnaði upp úr viðræðum bresku verslanakeðjunnar Tesco við Bharti Enterprises fyrir helgi.
Flugfarþegar fundur reykjarlykt
Engin eldur eða bilun fundust í þotu Iceland Express á Akureyrarflugvelli síðdegis í gær, en farþegar töldu sig hafa fundið reykjarlykt í henni eftir lendingu.
Umferð tekin að flæða á ný um götur Bagdad
Þriggja daga útgöngubanni í Bagdad, höfuðborg Íraks, lauk í morgun. Umferð fór að flæða á ný um götur Bagdad en notkun ökutækja hefur verið bönnuð í borginni síðan á föstudaginn.