
Framsóknarflokkurinn

„Þau hanga saman á óttanum við kjósendur“
Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingar segir óttann ráða för hjá ríkisstjórnarflokkunum, óttann við kosningar. Hann segir stjórnarkreppu ríkja í landinu.

Boða til blaðamannafundar
Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og innviðaráðherra boða til blaðamannafundar á morgun klukkan 11:00 í Eddu, húsi íslenskunnar.

Þingmennirnir mættir til Þingvalla
Stjórnarþingmenn og ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru mættir til Þingvalla. Þangað ferðuðust þeir í rútu á vinnufund. Forsætisráðherra segir fundinn hafa verið boðaðan fyrir löngu, ráðherraskipti verði ekki rædd þar.

Kemur vel til greina að Bjarni taki annan ráðherrastól
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknar, segir vel koma til greina að Bjarni Benediktsson taki að sér annan ráðherrastól. Hann segist virða ákvörðun Bjarna um að stíga til hliðar sem fjármálaráðherra.

Eiga ekki von á að ráðherramálin verði rædd
Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir fund stjórnarþingmanna sem fram fer á Þingvöllum í dag hafa verið skipulagðan fyrir nokkrum vikum síðan. Hún á ekki von á því að ráðherramálin verði rædd.

Stjórnarþingmenn funda á Þingvöllum í dag
Þingflokkar stjórnarflokkanna ætla að funda sameiginlega á Þingvöllum í dag. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í morgun. Áformaður er ríkisráðsfundur á Bessastöðum á morgun þar sem Bjarni Benediktsson mun hverfa úr embætti fjármálaráðherra.

Betri tíð í samgöngumálum
Þau sem fylgst hafa með umræðum um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu síðustu árin og áratugina hafa orðið vitni af stöðugum ágreiningi milli ríkis og sveitarfélaga og þá sérstaklega á milli ríkis og Reykjavíkurborgar.

Funduðu um „verklag og áherslur“ í Ráðherrabústaðnum
Fulltrúar stjórnarflokkanna þriggja funduðu í Ráðherrabústaðnum í Tjarnargötu í morgun. Meðal fundargesta voru formenn flokkanna þriggja og þingflokksformaður Sjálftstæðisflokksins.

Sjókvíeldi, með eða á móti
Það má segja að stormur ríki um þessar mundir í umræðu um sjókvíeldi. Stór orð látin falla og þá skal skunda á Austurvöll og hafa hátt.

Emmsjé Gauti og Davíð Oddsson fögnuðu fimmtugri Lilju
Lilja Dögg Alfreðsdóttir viðskipta- og menningarmálaráðherra varð fimmtug á miðvikudag og blés að því tilefni til stærðarinnar veislu í gömlu kartöflugeymslunum í Ártúnsbrekkunni í föstudagskvöld.

Faðir ráðherra og föðurbróðir svara fyrir sig á heimasíðunni Hrútar
Bræðurnir Daði og Valdimar Einarsson hafa komið á fót heimasíðunni Hrútar. Þar vilja þeir koma á framfærum sjónarmiðum sínum um áralangar fjölskyldudeilur sem hverfst hafa um jörðina Lambeyrar undanfarna mánuði.

Geðráð eflir notendur geðþjónustunnar
Það eru spennandi tímar framundan og tækifærin til að bæta geðþjónustu og upplifun notenda eru rík. Mikilvægt skref í framkvæmd aðgerðaáætlunar geðheilbrigðismála 2023-2027 var stigið í síðustu viku með stofnsetningu á Geðráði sem hefur það meginhlutverk að vera ráðgefandi fyrir ráðherra heilbrigðismála.

Skorar á ríkisstjórnina að takast á við hinn raunverulega „brennuvarg“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, gerði pistil Vilhjálms Birgissonar formann Starfsgreinasambandsins að umtalsefni í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag.

Hálfleikur
Í dag eru liðin slétt tvö ár frá Alþingiskosningum. Í þeim vann Framsókn frækinn kosningasigur sem skilaði flokknum 13 þingmönnum og tryggði áframhaldandi stjórnarsamstarf Framsóknar, Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs og Sjálfstæðisflokks. Á þeim sex árum sem liðin eru hefur mikið mætt á íslensku samfélagi en um leið hefur mikið áunnist.

Segir Sjálfstæðisflokk vilja blása báknið út
Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sendir Sjálfstæðisflokknum skeyti sem undan hlýtur að svíða. Hann segir flokkinn bara flokk hins opinbera sem líði vel að þenja kerfið út, leggja auknar álögur á fólk í stað þess að fara vel með og sækja fjármuni á þá staði þar sem þeir raunverulega eru.

Hvers vegna má ekki ræða hagræðingu?
Síðustu daga hefur sprottið upp mikil og ekki síður mikilvæg umræða um framtíð menntunar og menntastofnana. Menntamálaráðherra ákvað í lok apríl síðastliðnum að setja af stað könnun um aukið samstarf eða sameiningu nokkurra framhaldsskóla á landinu.

Heilbrigðisþjónusta í heimabyggð
Íbúar landsbyggðarinnar eru nánast farnir að taka því sem sjálfsögðum hlut að leggja land undir fót með tilheyrandi kostnaði og fyrirhöfn til þess að sækja sér sérfræðiþjónustu til Reykjavíkur.

Hugleiðingar við upphaf nýs löggjafarþings
Þróun umræðu í samfélaginu síðustu misseri hefur verið um margt umhugsunarverð, stundum byggir umræðan á staðreyndum en oftar en ekki er rangfærslum haldið á lofti. Það hefur sjaldan verið jafn mikilvægt og akkúrat nú á tímum falsfrétta að allar þær upplýsingar sem unnið er með hverju sinni sé réttar og sannar.

Samflokkskona ráðherra skorar á hann
Þingflokksformaður Framsóknar og oddviti í Norðausturkjördæmi skorar á menntamálaráðherra og samflokksmann sinn að endurskoða vinnu og markmið með sameiningu MA og VMA með það að leiðarljósi að efla nám framhaldsskólanna í breiðu samráði. Hún segir eina af forsendum þess að breyta áherslum sé sú að fá aukið fjármagn í málaflokkinn.

Katrín segir krefjandi að vera í „óvenjulegri ríkisstjórn“
Forsætisráðherra flutti stefnuræða sína í kvöld á þingi. Hún fór yfir stóru málin í vetur og þau verkefni sem framundan eru. Hún sagði ríkisstjórnina óvenjulega en að þeim gengi vel að vinna saman. Þau myndu halda því áfram.

Sigurður Ingi kominn með nýja mjöðm
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra missti aldrei þessu vant af réttunum í ár þar sem hann er fastagestur. Ástæðan er sú að hann gekkst undir mjaðmaskiptaaðgerð í liðinni viku.

Dagforeldrum heldur áfram að fækka þrátt fyrir átak borgarinnar
Aðeins einn hefur sótt um rekstrarleyfi sem dagforeldri í Reykjavík þrátt fyrir átak borgarinnar og heldur dagforeldrum áfram að fækka. Oddviti Framsóknar segir átakið tilraunarinnar virði.

„Staðan er að sjálfsögðu ekki jafn góð og við hefðum viljað vona“
Barnafjölskyldur í borginni eru farnar að finna fyrir uppsafnaðri viðhaldsþörf leikskólahúsnæðis í borginni en ekki er hægt að nýta hátt í fjögur hundruð pláss vegna framkvæmda. Oddviti framsóknar í borginni segir stöðuna ekki jafn góða og vonir stóðu til.

Rafmagnsleysi
Rafmagn er grundvallarorkugjafi okkar. Það lýsir upp heimili okkar og án þess gæti verið flókið að elda kvöldmatinn, þvo þvott og geyma matvæli. Þá er rafmagn mikilvægt í heilbrigðisþjónustu þar sem það knýr áfram lífsnauðsynleg lækningatæki. Sífellt fleiri rafmagnsbílar koma á göturnar, jafnvel rafmagnsflutningabílar.

Bankarnir geta gert betur fyrir fólkið í landinu
Í öllum þjóðfélögum er mikilvægt að allir standi neytendavaktina, ekki síst á verðbólgutímum. Nýverið var kynnt skýrsla um gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna sem er afrakstur vinnu starfshóps sem ég skipaði til þess að skoða stöðu neytenda og samkeppnisaðstæður á innlendum bankamarkaði þar sem m.a. yrði litið til gagnsæi þóknana, vaxtakostnaðar, gjaldtöku og annarra kostnaðarliða sem neytendur bera.

Framsókn tapar mestu samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi
Litlar breytingar urðu á fylgi stjórnmálaflokkanna milli júlí og ágúst. Mestar breytingar urðu á fylgi Framsóknarflokksins, sem fór úr 8,9 prósent í 7,5 prósent.

„Svona hús fer ekki í sölu á hverjum degi“
Hús Framsóknarflokksins að Hverfisgötu 33 hefur verið skráð á ný til sölu. Húsið, sem er í meirihlutaeigu flokksins, hefur verið falt í rúm fjögur ár.

Stjórnarflokkarnir undirbúa hrókeringar í fastanefndum þingsins
Hrist verður upp í fastanefndum Alþingis fljótlega eftir að þing kemur saman þann 12. september þar sem nefndarformennska í einstaka nefndum mun flytjast á milli stjórnarflokka. Þannig mun formennska í fjárlaganefnd samkvæmt heimildum fréttastofu færast til Framsóknarmanna og Sjálfstæðismenn taka við formennsku í utanríkismálanefnd.

Eins og óhamingjusöm hjón sem rífast alltaf úti á svölum
Þingmaður Viðreisnar líkir stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokksins, Vinstri grænna og Framsóknarflokksins við afar óhamingjusöm hjón. Ráðherrar þurfi að hætta að rífast og fara að hugsa um fólkið í landinu.

Þingflokksformaður vill geta horft í spegil
Þingflokksformenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar virðast ekki útiloka stuðning við vantrauststillögu á hendur matvælaráðherra, komi hún fram. Bæjarstjóri segir hvalveiðibannið risastórt mál í huga Sjálfstæðismanna og gerir fastlega ráð fyrir því að tillagan verði lögð fram ef athugun leiðir í ljós að stjórnsýslulög hafi verið brotin.