
Skotárásir í Bandaríkjunum

Skaut átta manns til bana í verslunarmiðstöð
Maður skaut átta manns til bana og særði að minnsta kosti sjö til viðbótar í verslunarmiðstöð nærri borginni Dallas í Texas-ríki í nótt. Talið er að skotmaðurinn sé einnig látinn.

Skólayfirvöld í Flint banna bakpoka í skólum vegna skotárása
Skólayfirvöld í Flint í Michigan í Bandaríkjunum hafa ákveðið að banna bakpoka í skólum til að koma í veg fyrir að nemendur komi með vopn eða aðra bannaða hluti í skólann.

Skaut konu og fimm börn til bana og svipti sig svo lífi
Dæmdur kynferðisbrotamaður sem sleppt var snemma úr fangelsi, skaut eiginkonu sína, þrjú börn hennar og tvær táningsstúlkur sem voru í heimsókn öll til bana í Oklahoma á dögunum. Hann beindi síðan byssu sinni að sjálfum sér en spurningar hafa vaknað um af hverju maðurinn gekk laus.

Handtaka fólk sem hylmdi yfir með fjöldamorðingjanum í Texas
Lögreglan í Texas handtók í dag nokkra einstaklinga sem eru grunaðir um hjálpa karlmanni sem skaut fimm nágranna sína til bana á föstudag að komast undir réttvísinni í fjóra sólarhringa. Maðurinn var handtekinn í heimahúsi þar sem hann faldi sig undir þvotti.

Maður handtekinn vegna fjöldamorðsins í Texas
Lögregla í Texas í Bandaríkjunum hefur handtekið 38 ára karlmann vegna gruns um að hafa skotið fimm nágranna sína til bana norður af Houston, á föstudaginn.

Leituðu tveggja stúlkna en fundu sjö lík
Lögregluþjónar í Oklahoma í Bandaríkjunum fundu sjö lík er þeir voru að leita tveggja táningsstúlkna sem talið er að séu meðal hinna látnu. Leitin að stúlkunum, Ivy Webster (14) og Brittany Brewer (16) hófst í gærmorgun en þær höfðu síðast sést í Henryetta í Oklahoma með Jesse L. McFadden, dæmdum kynferðisbrotamanni.

Missti konu sína og son í skotárás óðs nágranna
Wilson Garcia og fjölskylda hans hringdu fimm sinnum eftir aðstoð lögreglu þegar nágranni þeirra í Cleveland í Texas í Bandaríkjunum, neitaði að hætta að skjóta úr byssu í garði sínum. Þeim var tjáð að hjálp væri á leiðinni en stuttu síðar skaut umræddur nágranni fimm manns til bana, þar af konu og son Garcia.

Morðinginn í Texas ófundinn og gæti verið hvar sem er
Maðurinn sem grunaður er um að hafa myrt fimm nágranna sína í bænum Cleveland í Texas í gær er enn ófundinn. Lögreglan hefur varað við að hann sé vopnaður og gæti verið í felum hvar sem er.

Myrti fimm eftir að hafa verið beðinn um að hætta að skjóta úr byssu
Karlmaður í Cleveland í Texasfylki í Bandaríkjunum er grunaður um að hafa myrt fimm hondúrska nágranna sína, þar á meðal átta ára gamalt barn, eftir að hann hafði verið beðinn um að hætta að skjóta úr riffli í bakgarði sínum. Tvö fórnarlambanna fundust örend ofan á tveimur börnum, sem lifðu árásina af.

Tvær klappstýrur skotnar eftir að hafa sest upp í vitlausan bíl
Tvær klappstýrur voru skotnar af manni eftir að önnur þeirra settist óvart upp í bílinn hans. Var hann handtekinn og hefur verið kærður af lögreglu.

Sakaður um að hafa skotið sex ára stúlku út af körfubolta
Lögreglan í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum leitar nú að manni sem grunaður er um að hafa skotið sex ára stúlku eftir að körfubolti hennar rúllaði yfir í garð hans. Hann er sagður hafa farið inn í hús sitt, sótt byssu og skotið stúlkuna og föður hennar. Nágranni segir málið skelfilegt.

Maður á níræðisaldri ákærður fyrir að skjóta ungling sem fór húsavillt
Lögreglan í Kansas-borg í Missouri í Bandaríkjunum hefur ákært 84 ára gamlan hvítan karlmann fyrir að skjóta svartan unglingsdreng sem fór húsavillt þegar hann ætlaði að sækja yngri bræður sína. Drengurinn var meðal annars skotinn í höfuðið en hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi.

Unglingur skotinn í höfuðið þegar hann fór húsavillt
Lögreglan í Kansas-borg í Missouri í Bandaríkjunum rannsakar nú hvort að kynþáttur svarts unglingsdrengs hafi haft eitthvað með það að gera að húsráðandi skaut hann þegar drengurinn fór húsavillt. Áverkar drengsins eru sagðir lífshættulegir.

Fjöldaskotárás í afmælisveislu í Alabama
Fjórir eru látnir og allt að tuttugu særðir vegna fjöldaskotárásar í borginni Dadeville í Alabama. Skotárásin átti sér stað klukkan um hálf ellefu að staðartíma í gærkvöldi. Flest þeirra sem urðu fyrir skotárásinni eru sögð vera á táningsaldri.

Sat fyrir lögregluþjónum eftir að hann skaut samstarfsmenn sína
Lögreglan í Louisville í Kentucky hefur birt myndband sem sýnir hvernig fyrstu tveir lögregluþjónarnir sem mættu á vettvang mannskæðar skotárásar í banka í borginni voru særðir af árásarmanninum, sem lét skothríðina dynja á þeim. Fimm dóu og átta særðust í árásinni sem framin var af fyrrverandi starfsmanni bankans.

Samstarfsmennirnir voru skotmark árásarinnar
Bankastarfsmaður sem skaut fimm manns til bana í Louisville í Kentucky á öðrum degi páska ætlaði sér að myrða samstarfsfélaga sína sérstaklega, að sögn lögreglu. Lögreglumenn felldu byssumanninn.

Ákæra gefin út á hendur móður barnsins sem skaut kennarann sinn
Kviðdómur í Virginíu í Bandaríkjunum hefur gefið út ákæru á hendur móður sex ára barns sem skaut kennarann sinn með skotvopni. Hún verður meðal annars ákærð fyrir alvarlega vanrækslu barns og brot á skotvopnalögum.

Árásarmaðurinn fyrrverandi starfsmaður bankans
Lögreglan í borginni Louisville í Kentucky fylki hefur staðfest að „fjöldi manns“ hafi fallið í skotárás. Búið er að loka af götunni East Main í miðborg Louisville og fólk beðið að halda sig fjarri. En árásin átti sér stað í banka nálægt Slugger Field hafnaboltavellinum og Kentucky International ráðstefnuhöllinni.

Ætla að reka þingmenn sem mótmæltu skotvopnum
Repúblikanar á ríkisþingi Tennessee í Bandaríkjunum tóku fyrstu skrefin að því að reka þrjá þingmenn demókrata af þingi eftir að þeir tóku þátt í mótmælum gegn skotvopnum í þinginu í síðustu viku. Fáheyrt er að þingmönnum sé vísað af þingi með þessum hætti.

Krefst tæplega sex milljarða eftir að barn skaut hana
Abigail Zwerner, kennari í Virginíu í Bandaríkjunum, hefur krafið skólastjórnendur um fjörutíu milljónir Bandaríkjadala, ríflega 5,5 milljarða króna, eftir að sex ára nemandi skaut hana í höndina og brjóstið í janúar. Hún sakar stjórnendur um alvarlegt gáleysi með því að hafa hundsað fjölda viðvarana um að nemandinn væri vopnaður og í „vígahug“.

Fimm ára skaut sextán mánaða bróður sinn til bana
Sextán mánaða drengur var skotinn til bana af fimm ára systkini sínu í Indiana í Bandaríkjunum á þriðjudaginn. Eldra barnið mun hafa komist í skammbyssu sem var á heimili þeirra og notaði hana til að skjóta ungabarnið til bana.

„Óþægilegt þegar eitthvað svona gerist nálægt manni“
Íslenskur námsmaður sem býr í næsta nágrenni við skotárásina sem varð þremur níu ára börnum að bana í Nashville í gær segir atburðinn skelfilegan. Hún segist nær alltaf vör um sig í skólanum vegna þess hversu skotárásir séu algengar í Bandaríkjunum. Við vörum við myndefni sem fylgir þessari frétt.

Birtu myndband af lögregluþjónum fella árásarmanninn
Lögreglan í Nashville hefur birt myndband úr vestismyndavél lögregluþjónsins sem felldi Audrey E. Hale. Sá síðarnefndi skaut sex manns, þar af þrjú börn, til bana í Covenant School í Green Hills í Nashville í gær.

Árásin þaulskipulögð og skotmörkin mögulega fleiri
Hinn 28 ára Audrey E. Hale, sem réðist inn í Covenant School í Green Hills í Nashville í gær og skaut sex til bana skipulagði árásina í þaula og hugðist láta til skarar skríða á fleiri stöðum, að sögn lögreglu.

Kona skaut sex til bana í skóla í Nashville
Þrjú börn og þrír fullorðnir voru skotin til bana af konu sem hóf skothríð í kristnum einkaskóla í Nashville í Bandaríkjunum í dag. Konan var síðan skotin til bana af lögregluþjónum sem mættu á vettvang.

NBA hetja handtekin vegna skotárásar
Fyrrum NBA-stjarnan Shawn Kemp, sem lék lengst af með Seattle SuperSonics, var handtekinn í gær í tengslum við skotárás í Tacoma í Washington-fylki.

Ákæra ekki sex ára dreng sem skaut kennara
Saksóknari í Virginíu í Bandaríkjunums segir ósennilegt að sex ára drengur sem skaut kennara sinn í grunnskóla verði ákærður. Ákvörðun hefur enn ekki verið tekin um hvort fullorðinn einstaklingur verði ákærður vegna málsins.

Murdaugh dæmdur í lífstíðarfangelsi
Bandaríski lögmaðurinn Alex Murdaugh hefur verið dæmdur í tvöfallt lífstíðarfangelsi fyrir að myrða eiginkonu sína og son. Murdaugh var dæmdur sekur í nótt en dómskvaðning fór fram nú fyrir skömmu í Suður-Karólínu.

Katy Perry brast í grát: Missti vini sína í skotárás í framhaldsskóla
Katy Perry, söngkona og einn dómara Idol í Bandaríkjunum, brast í grát eftir að hinn 21 árs gamli Trey Louis mætti í áheyrnarprufu. Trey var nemandi í Santa Fe High School þegar byssumaður skaut þar tíu manns til bana árið 2018.

Dró mann út úr bíl fyrir að gleypa pillu og skaut hann
Lögregluþjónn dró hinn 32 ára gamla Richard Ward út úr bíl móður hans í fyrra og skaut hann þrisvar sinnum í bringuna. Tilefnið virðist hafa verið að Ward stakk upp í sig pillu eftir að hann lýsti því yfir að hann yrði stressaður í návígi við lögregluþjóna.