
HM 2018 í Rússlandi

Hannes Þór tæpur fyrir leikinn á móti Tyrklandi?
Landsliðsmarkvörðurinn þurfti að yfirgefa æfingu Íslanda í Antalya snemma í dag.

Bakslag hjá Aroni Einari
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska fótboltalandsliðsins, er ekki alltof bjartsýnn á að hann geti verið með liðinu í leiknum mikilvæga á móti Tyrkjum í undankeppni HM 2018.

Kálfi Bale áhrifavaldur í baráttu Wales fyrir sæti á HM 2018
Wales verður án síns besta leikmanns þegar liðið mætir Georgíu og Írlandi í mikilvægum leikjum í undankeppni HM 2018 á næstu dögum.

Marcus Rashford: Enska landsliðið getur orðið heimsmeistari næsta sumar
Marcus Rashford, leikmaður Manchester United og enska landsliðsins, hefur trú á því að enska landsliðið geti orðið heimsmeistari næsta sumar þegar heimsmeistaramótið fer fram í Rússlandi.

Strákarnir fögnuðu gríðarlega í leikslok þegar Marciniak dæmdi síðast hjá Íslandi
Szymon Marciniak, 36 ára Pólverji, mun dæma leikinn mikilvæga á föstudagskvöldið þegar Ísland mætir Tyrklandi í undankeppni HM 2018.

Gista í túristaparadís og æfa í hótelgarðinum | Myndir
Íslenska fótboltalandsliðið hefur það ansi gott í Antalya þar sem það verður fram á annað kvöld.

Hitinn of mikill fyrir hádegisæfingu hjá strákunum okkar
Íslenska landsliðið í fótbolta þurfti að fresta æfingu um sex klukkutíma vegna hitans í Antalya.

Rúnar Alex: Það verður líklega engin breyting á því
Rúnar Alex Rúnarsson kemur til móts við íslenska landsliðið í fótbolta í Tyrklandi í dag með mjög góða frammistöðu í bakpokanum.

Fauk í Lars Lagerbäck á blaðamannafundi í kvöld
Lars Lagerbäck, fyrrum þjálfari íslenska landsliðsins og núverandi landsliðsþjálfari Norðmanna, reiddist norskum blaðamanni í kvöld á blaðamannafundi norska fótboltalandsliðsins en framundan eru síðustu leikir norska landsliðsins í undankeppni HM 2018.

Lucescu búinn að velja hópinn fyrir leikinn gegn Íslandi
Mircea Lucescu, landsliðsþjálfari Tyrklands, hefur valið hópinn sem mætir Íslandi og Finnum í lokaumferðum undankeppni HM í Rússlandi.

Alli fékk eins leiks bann fyrir fokkmerkið
Enski landsliðsmaðurinn Dele Alli var í dag dæmdur í eins leiks bann fyrir fokkmerkið sem hann bauð heiminum upp á er England spilaði gegn Slóvakíu á dögunum.

Segir KSÍ eiga að borga laun Arons ef hann meiðist enn frekar í landsleikjunum
Neil Warnock, stjóri Cardiff City, er allt annað en sáttur við að Aron Einar Gunnarsson hafi verið valinn í íslenska landsliðið fyrir komandi leiki gegn Tyrkjum og Kosóvó.

Átta á hættusvæði
Átta leikmenn í íslenska landsliðshópnum sem mætir Tyrklandi og Kósovó í undankeppni HM 2018 eru á hættusvæði vegna gulra spjalda.

Heimir: Hrikalega gott fyrir strákana að þekkja lætin út í Tyrklandi
Heimir Hallgrímsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, er að fara með íslenska landsliðið inn í gríðarlega erfiðan og mikilvægan í undankeppni HM 2018.

Óvíst hvort Aron Einar verður með í leikjunum gegn Tyrklandi og Kósovó
Óvíst er hvort Aron Einar Gunnarsson verði með íslenska landsliðinu í síðustu tveimur leikjum þess í undankeppni HM.

Íslenska liðið mun fljúga heim frá Tyrklandi strax um nóttina
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta stoppar ekki lengi í Tyrklandi eftir leikinn við heimamenn í undankeppni HM 2018.

Heimir með Viðar Örn í hópnum á móti Tyrklandi og Kósóvó | Svona lítur hópurinn út
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, tilkynnti í dag hópinn fyrir síðustu tvo leiki Íslands í undankeppni HM í Rússlandi 2018.

Svona var blaðamannafundurinn hjá Heimi í Laugardalnum í dag
Vísir var með útsendingu frá blaðamannafundi KSÍ þar sem Heimir Hallgrímsson tilkynnti hópinn fyrir komandi leiki gegn Tyrkjum og Kosóvó.

Vardy ekki í enska landsliðshópnum
Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins, hefur valið hópinn fyrir leikina gegn Slóveníu og Litháen í undankeppni HM 2018.

Þurfa strákarnir okkar að taka eyrnatappa með til Tyrklands?
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta spilar næst út í Tyrklandi í undankeppni HM í Rússland 2018 og ef marka má hávaðann á leik í Tyrklandi í Meistaradeildinni í gærkvöldi þá eiga strákarnir okkar von á alvöru áreiti í þessum leik.

Þúsundir börðust um 4300 miða á Kósóvóleikinn
Styrktaraðilar fengu að kaupa tæplega tvö þúsund miða á leikinn áður en almenningur fékk að kaupa.

Norska ungstirnið áfram út í kuldanum hjá Lars Lagerbäck
Lars Lagerbäck, þjálfari norska karlalandsliðsins í fótbolta og fyrrum þjálfari íslenska karlalandsliðsins, velur enn ekki Martin Ödegaard í A-landsliðshópinn sinn.

Dregið í riðla í Þjóðardeildinni 25. janúar
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur nú endanlega ákveðið fyrirkomulag og tímasetningar í kringum nýju Þjóðardeild landsliða sem hefst í september á næsta ári.

Lars Lagerbäck hefur byrjað betur með Noreg en hann gerði með íslenska landsliðið
Það tekur sinn tíma að breyta leikstíl og venjum hjá landsliði. Íslenska landsliðið breyttist ekki strax í EM 2016 liðið eftir að Lars Lagerbäck tók við. Hann þurfti sinn tíma en tókst að breyta miklu.

Lagerbäck segir engan vera betri en hefur samt aldrei valið hann í landsliðið
Lars Lagerbäck, þjálfari norska landsliðsins í knattspyrnu, hefur hrósað norska undrabarninu Martin Ödegaard sem hefur verið að spila vel með hollenska liðinu Heerenveen í upphafi tímabilsins.

Elín Metta: Vil alltaf meira
Elín Metta Jensen fékk sæti í byrjunarliði íslenska landsliðsins í dag þegar liðið tók á móti Færeyjum á Laugardalsvelli í undankeppni Heimsmeistarmótsins 2019. Nýtti hún tækifærið vel, var komin með tvö mörk og stoðsendingu eftir hálftíma leik.

Ótrúlegt afrek ef íslenska landsliðið kemst á HM
Enski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Jonathan Wilson hefur fylgst grannt með uppgangi íslenska fótboltalandsliðsins á síðustu árum. Hann segir að það yrði risastórt afrek ef Ísland kæmist á HM en á endanum muni fámennið hér á landi væntanlega segja til sín.

Alli og Walker biðla til FIFA
Dele Alli og Kyle Walker hafa skrifað formlegt bréf til FIFA til þess að biðla fyrir minnkunn þeirrar refsingar sem Alþjóðaknattspyrnusambandið kann að veita Alli fyrir að veifa löngutöng í leik Englands og Slóvakíu.

Yfirburðir strákanna okkar á Norðurlöndunum staðfestir
Ísland er efst Norðurlandanna á styrkleikalista FIFA, enn á ný.

Alfreð: Eiður Smári er leikmaðurinn sem mín kynslóð leit upp til
Samkeppnin um stöðu framherja í íslenska landsliðinu er mikil en þó þarf ekki lengur að keppa um sæti við markahæsta landsliðsmanninn, Eið Smára Guðjohnsen.