Skotsilfur

Skotsilfur Markaðarins: Eigendur Víðis hætta við að selja
Eigendur matvöruverslunarinnar Víðis, sem rekur fimm verslanir á höfuðborgarsvæðinu, eru nú sagðir hættir við að reyna fá fjárfesta til þess að kaupa allt hlutafé félagsins, líkt og áður stóð til.

Skotsilfur Markaðarins: Kynslóðaskipti í Húsi atvinnulífsins
Það er ekki ofsögum sagt að Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, og starfsmenn hans hafi nóg fyrir stafni um þessar mundir.

Skotsilfur: Skipar Guðjón, Ómar til Íslandsbanka, Kvika vildi ALDA
Starfshópur fjármálaráðherra kynnti í gær skýrslu þar sem útlistaðar eru þrjár mögulegar leiðir við að aðskilja fjárfestingarbanka- og viðskiptabankastarfsemi og lagt mat á kosti og galla hverrar leiðar.

Skotsilfur Markaðarins: Ráðherra á evrubolnum og bankaflótti
Benedikt Jóhannesson, sem taldi tímabært að skrifa minningargrein um krónuna í mars 2009, vakti athygli fyrir klæðnað sinn í viðtali um helgina á RÚV.

Skotsilfur Markaðarins: Mikill fengur af Marinó og vogunarsjóður vildi Keahótel
Kviku tókst það sem mörg önnur fjármálafyrirtæki höfðu um langt skeið reynt án árangurs – að fá Marinó Örn Tryggvason til liðs við sig þar sem hann mun taka við sem aðstoðarforstjóri. Marinó hafði starfað um árabil hjá Arion banka og forverum hans, síðast sem aðstoðarframkvæmdastjóri eignastýringar, og var einn af þeim sem Höskuldur Ólafsson treysti hvað best innan bankans.

Skotsilfur Markaðarins: Rak og réð Sigrúnu Rögnu
Það vakti athygli þegar tilkynnt var á dögunum að Sigrún Ragna Ólafsdóttir, fyrrverandi forstjóri VÍS, hefði tekið sæti í stjórn Creditinfo Group.

Skotsilfur Markaðarins: Bitlingum útbýtt hjá Isavia og óvissa hjá NSA
Huld Magnúsdóttir var í síðustu viku valin hæfust úr hópi 57 umsækjenda um starf framkvæmdastjóra Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins (NSA). Hún tekur við af Helgu Valfells sem sagði upp í desember í fyrra ásamt tveimur öðrum starfsmönnum NSA og stofnuðu þær þrjár sjóðinn Crowberry Capital.

Skotsilfur Markaðarins: Skákaði Herdísi og Ragnheiður Elín vildi í stjórn ISAVIA
Margir biðu spenntir eftir skýrslunni sem varpaði ljósi á þátt Hauck & Aufhäuser í kaupunum á Búnaðarbanka Íslands 2003 sem Kjartan Bjarni Björgvinsson kynnti í vikunni.

Skotsilfur Markaðarins: Spariféð í sveitina og sjóðirnir skoða næsta leik
Nokkrir nafntogaðir einstaklingar á höfuðborgarsvæðinu eru óánægðir með sölu á 30 prósentum í Arion banka og ætla að færa bankaviðskipti sín til þeirra fjögurra sparisjóða sem eftir eru.

Skotsilfur Markaðarins: Lokun Topshop og vendingar hjá GAMMA
Leitað var til Kristínar Pétursdóttur, stjórnarformanns verðbréfafyrirtækisins Virðingar, og hún beðin um að bjóða sig fram í stjórn Icelandair Group.

Skotsilfur Markaðarins: Ari Edwald með augun á formannsstól SA
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), þykir hafa komist vel frá sinni fyrstu alvöru prófraun í starfi eða sjómannaverkfallinu.

Skotsilfur Markaðarins: Katrín Olga kannar framboð til stjórnar Vodafone
Bandaríkjamaðurinn John P. Madden, framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi, hefur gegnt starfi stjórnarmanns hjá Arion banka frá 15. september á síðasta ári.

Skotsilfur Markaðarins: Fyrrverandi bankastjóri kaupir í Solid Clouds
Jakob Ásmundsson, fyrrverandi forstjóri Straums fjárfestingarbanka, hefur keypt sig inn í tölvuleikjaframleiðandann Solid Clouds á Eiðistorgi og settist hann í stjórn félagsins síðasta sumar.


Skotsilfur Markaðarins: Afnema bónusa, en hækka launin
Mikið er um mannabreytingar á bankamarkaði um þessar mundir. Þremenningarnir Jón Gunnar Sæmundsen og Jónas Guðmundsson, fyrrverandi starfsmenn Íslandsbanka, og Sigurður Hreiðar Jónsson, sem var síðast verðbréfamiðlari hjá Kviku banka, sögðu þannig allir upp störfum undir lok síðasta árs.

Skotsilfur Markaðarins: Heitt undir Höskuldi og Ragna Árna ekki á útleið
Tilkynnt verður um nýjan bankastjóra Landsbankans á allra næstu dögum. Björgvin Skúli Sigurðsson, framkvæmdastjóri markaðs- og viðskipta- þróunar Landsvirkjunar, er sterklega orðaður við bankastjórastólinn en hann var um þriggja ára skeið framkvæmdastjóri hjá Deutsche Bank í London.

Skotsilfur Markaðarins: Slagur um bankastjórastól og stefna Landsbankans
Landsbankinn tilkynnti fyrir skemmstu að hann hefði höfðað mál vegna umdeildrar sölu bankans á hlut sínum í Borgun. Það er Ólafur Eiríksson, hæstaréttarlögmaður og einn eigenda LOGOS, sem sér um málareksturinn.