Heilbrigðismál

Ekkert öðruvísi að eiga barn með Downs
Íris Lilja Þórðardóttir fagnar í dag í fyrsta sinn Alþjóðlegum degi Downs-heilkennis með dóttur sinni, Emblu Rún, sem er með Downs. Fjölskyldan klæddi sig öll upp í mislita sokka í morgun og ætlar seinna í dag að halda á hitting hjá Downs-félaginu sem haldinn er í Þróttaraheimilinu.

Starfsmaður Bláa lónsins á sjúkrahús vegna gaseitrunar
Starfsmaður Bláa lónsins leitaði á sjúkrahúsí gær í kjölfar eitrunareinkenna vegna gasmengunnar. Alvarleiki veikindanna liggur ekki fyrir en öryggisstjóri aðgerða í Grindavík fundar með forsvarsmönnum Bláa lónsins.

Svört skýrsla Ríkisendurskoðunar: Forystuleysi í málefnum er varða ópíóíðafíkn
Stefnu- og forystuleysi ríkir í málefnum er varða ópíóíðafíkn og fíknivanda almennt. Þannig hefur ekkert ráðuneyti skýra forystu í málaflokknum. Ótvírætt er að ópíóíðavandi er fyrst og fremst viðfangsefni heilbrigðisráðuneytis sem ber að taka skýra forystu.

Heilsugæslan tekur alfarið við svörun í númerinu 1700
Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú alfarið tekið yfir svörun í síma 1700, sem áður var sinnt af Læknavaktinni. Neyðarsíminn verður áfram 112 og er fólki bent á að hringja í það númer ef þörf krefur.

Af hverju eru næringarsnauð matvæli í forgrunni við íþróttaiðkun barna okkar?
Flestir sem stunda íþróttir vita að góð næring skiptir miklu máli fyrir bæði heilsu og árangur. Þegar kemur að ungmennum sem taka þátt í íþróttum er góð næring sérstaklega mikilvæg þar sem börn og unglingar ganga í gegnum miklar líkamlegar breytingar og er nauðsynlegt fyrir þau að mæta næringarþörf sinni.

„Við verðum að bregðast við þegar glugginn er opinn“
Síðustu mánuði hefur Drífa Jónasdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu, unnið að því að búa til samræmt verklag fyrir alla heilbrigðisstarfsmenn til að fylgja þegar til þeirra leita einstaklingar sem hafa sætt heimilisofbeldi. Verklagið er tilbúið en forritarar hanna nú rafrænt skráningarkerfi svo hægt sé að koma því í prófun og svo framkvæmd.

„Þetta var helvíti á jörðu fyrir mér“
Lára Björk Sigrúnardóttir, 51 árs íbúi í Sandgerði, var með vinum sínum erlendis í borginni Varna í Búlgaríu í febrúar þegar hún veiktist skyndilega og var flutt með sjúkrabíl á St. Martins spítala í borginni. Lára reyndist vera með sýklasótt, sem þróaðist út frá þvagfærasýkingu, og var byrjuð að fá drep í bæði fingur og tær.

Mars er mánuður árvekni um ristilkrabbamein
Mars er mánuður sem hefur alþjóðlega verið ætlað að vekja almenning til vitundar um ristil- og endaþarmskrabbamein (hér á eftir saman nefnt ristilkrabbamein). Nýgengi ristilkrabbameins hefur tvöfaldast á síðustu 60 árum og hefur nú tekið fram úr lungnakrabbameini sem næstalgengasta tegund krabbameina á Íslandi. Árlega greinast um 200 manns með ristilkrabbamein hér á landi og um 60 manns látast árlega vegna sjúkdómsins.

Ætlar aldrei að gefast upp
Líf Bjarnheiðar Hannesdóttur tók kollsteypu í desember árið 2012 þegar hún fékk skyndilegt hjartastopp sem varði í tuttugu mínútur. Henni var vart hugað líf en barðist ötullega og hafði loks betur. Hjartastoppið olli hins vegar gífurlegum heilaskaða og Bjarnheiður, eða Heiða eins og hún er alltaf kölluð, fór frá því að vera aktíf og fullfrísk þriggja barna móðir og fasteignasali yfir í að vera algjörlega ósjálfsbjarga.

Sigurbogi
Þann 9. mars síðastliðin varð sá gleðilegi atburður að veruleika að svokölluð regnhlífasamtök voru stofnuð og fengu þau nafnið Sigurbogi.

Ráðist á Árna Tómas á læknastofu hans
Árni Tómas Ragnarsson gigtarlæknir varð fyrir líkamsárás á læknastofu sinni í vikunni, þegar tveir menn mættu á stofuna og kröfðust þess að hann breytti læknisvottorði sem hann hafði skrifað fyrir móður annars þeirra.

Eigum við að splæsa í mannréttindabrot fyrir 5-7 milljarða árlega gagnvart eldri borgurum?
Ég sat málþing á vegum Læknafélags Íslands í gær um sóun í heilbrigðiskerfinu. Ég kom frekar seint og hafði áhyggjur af því að ég fengi ekki sæti. Það voru óþarfa áhyggjur því þarna voru fáir á staðnum. Amk engir embættismenn né fulltrúar kosnir af almenningi.

Fyrsti varaforsetinn til að heimsækja þungunarrofsþjónustu
Kamala Harris varð í gær fyrsti varaforsetinn í sögu Bandaríkjanna til að heimsækja heilsugæslu þar sem boðið er upp á þungunarrof. Enginn forseti hefur heimsótt miðstöð þar sem boðið er upp á úrræðið.

Börn á biðlistum, hvað er til ráða?
Almenn sátt er í samfélaginu um að velferð barna sé mikilvæg og því brýnt að bregðast skjótt við þegar vísbendingar eru um að velferð þeirra sé í hættu.

Gefur ekki fimm aura fyrir gagnrýni á Krónuna
Framkvæmdastjóri Krónunnar segir fjarstæðukennt að halda því fram að Krónan hafi fórnað hagsmunum viðskiptavina til að forðast mögulega skaðabótaskyldu. Fyrirtækið hafi strax brugðist við fréttum af matvælalager í Sóltúni, sem tengdist meðal annars veitingastaðnum Wok On. Þegar rökstuddur grunur um mansal og fleira ólöglegt athæfi hafi legið fyrir, hafi samningi Krónunnar við Wok On verið rift.

Völdu hættu á matareitrun frekar en skaðabætur
Ólafur Hauksson, almannatengill og hluthafi í Festi, gagnrýnir Krónuna harðlega fyrir að hafa metið hættu á skaðabótamáli æðri en þá hættu að selja viðskiptavinum sínum vafasaman mat í fjóra mánuði.

Brotnaði illa í sleðaferð
„Ég er búin að vera að hjúkra í þrjátíu ár og hef aldrei lent hinum megin við borðið. Það er ánægjulegt að upplifa það,“ segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, en hún lenti í slysi um helgina.

Framkvæmdastjóri Nýs Landspítala hafnar gagnrýni stjórnar
Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri Nýs Landspítala hafnar gagnrýni stjórnar Landspítalans og segir Landspítalann ekki hafa neitt fram að færa á meðan framkvæmdir eru „ofan í holunni.“

Tvíburarannsókn sýnir sterk tengsl milli áfalla í æsku og geðraskana
Rannsókn sem byggði á gögnum úr svokallaðri Tvíburaskrá Svíþjóðar hefur leitt í ljós að einstaklingar sem urðu fyrir áfalli í æsku voru 2,4 sinnum líklegri til að hafa verið greindir með geðsjúkdóm en þeir sem komust í gegnum æskuna áfallalaust.

Peningar ekki vandamál í næsta verkefni Björns Zoëga
Björn Zoëga verður framkvæmdastjóri á King Faisal Specialist Hospital and Research Centre í Sádi-Arabíu í apríl. Hann lætur senn af störfum sem forstjóri Karolinska-háskólasjúkrahússins í Stokkhólmi í Svíþjóð.

Heilaþveginn af því að peningar byggju til hamingjuna
Eyvindur Ágúst Runólfsson hafði lokið námi í lögfræði við Háskóla Íslands en fann á sér að hann var ekki á réttri hillu í lífinu. Röð atvika leiddi til þess að hann hóf störf sem aðstoðarmaður á bráðamóttöku Landspítalans og þar með var ekki aftur snúið. Í kjölfarið breytti Eyvindur algjörlega um kúrs, sagði skilið við lögfræðina og stefnir á að hefja nám í hjúkrunarfræði næsta haust.

Örplast tengt við hjartasjúkdóma, heilablóðföll og dauða í nýrri rannsókn
Ítölsk rannsókn hefur vakið athygli vegna þess að hún sýnir í fyrsta sinn tengsl milli örplasts og hjartasjúkdóma. Rannsóknin er ýmsum takmörkunum háð en vísindamenn sem rannsaka umhverfisáhrif á hjarta- og æðakefið segja hana marka tímamót.

Má ég kveðja á eigin forsendum?
Þetta er rosalega einfalt: Við bara bönnum það sem er hættulegt og leyfum það sem er öruggt.

Sjúklingasamtök fagna frumvarpi um Umboðsmann sjúklinga
Sjúklingasamtök og samtök heilbrigðisstarfsmanna fagna frumvarpi um Umboðsmann sjúklinga. Þau segja ekki vanþörf á því að sjúklingar á Íslandi geti leitað til utanaðkomandi aðila þegar þeir lenda á vegg í kerfinu og lýsa dæmum í umsögnum.

Rannsökuðu mann sem lét bólusetja sig 217 sinnum gegn Covid-19
Vísindamenn segja 62 ára mann frá Þýskalandi sem lét bólusetja sig 217 sinnum á 29 mánuðum gegn Covid-19 aldrei hafa smitast af SARS-CoV-2 né hafa upplifaðn neinar aukaverkanir af bóluefninu.

Aldrei fleiri lagðir inn á Englandi vegna matartengdra baktería
Aldrei hafa fleiri greinst með matvælatengdar sýkingar á Englandi heldur en í fyrra. Alls voru 1.468 lagðir inn vegna salmonellu frá apríl 2022 til mars 2023 og þá lögðust yfir 4.340 inn vegna kampýlóbakter-sýkingar.

Bein útsending: Getur barnið þitt beðið lengur?
„Getur barnið þitt beðið lengur?“ er yfirskrift málþings á vegum ÖBÍ réttindasamtaka sem fram fer í Nauthól og kefst klukkan 13 í dag. Snýr málþingið að biðlistum fyrir börn í heilbrigðiskerfinu.

Gæði íslenskrar heilbrigðisþjónustu árið 2024 samanborið við árin 2009 til 2012
Hefur eitthvað áunnist á þessum árum? Vonandi, en samanburðurinn við önnur vestræn lönd er okkur ekki hagstæður á þessu árabili.

Árinni kennir illur ræðari
Heilsugæslan og mönnun hennar hefur verið töluvert í umræðunni undanfarið. Meðal annars eru mál heimilislækna á Akureyri áberandi. Björn Valur Gíslason fyrrverandi varaformaður Vinstrihreyfingarinnar Græns Framboðs (VG) ritar grein á akureyri.net í síðustu viku og talar þar meðal annars um einkavæðingu heilbrigðiskerfisins.

Hvatning frá Reykjalundi: Nálgumst offitu með faglegum hætti
Í dag, 4. mars, er alþjóðadagur offitu. Algengi offitu hefur aukist mjög í hinum vestræna heimi síðustu áratugi, meðal annars hér á Íslandi. Er nú talið að tæp 30% fullorðinna og 7% barna hér á landi séu með offitu en til samanburðar voru það um 12% fyrir aðeins tuttugu árum síðan.