Rússland

Þungir dómar vegna hryðjuverkasamtaka sem eru sögð tilbúningur
Dómstóll í Rússlandi dæmdi sjö menn fyrir að tilheyra hryðjuverkasamtökum sem mannréttindasamtök fullyrða að séu hugarburður rússnesku leyniþjónustunnar.

Kenna Ísraelum um að farþegaþota hafi næstum verið skotin niður
Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir stjórnarher Bashar al-Assad næstum því hafa skotið niður farþegaþotu með 172 farþega innanborðs í gær.

Setja upp sóttkví í Síberíu vegna veirunnar
Rússar sem voru fluttir frá Wuhan í Kína þurfa að dúsa í einangrun í Síberíu í tvær vikur.

Tyrkir og sýrlenski stjórnarherinn í hár saman
Herlið Tyrkja í Sýrlandi svaraði fyrir árásir sem felldu fjóra hermenn með stórskotaliðsárás á sýrlenska stjórnarherinn.

Gætu fellt niður morðákæru á hendur rússneskum systrum
Verjendur þriggja rússneskra systra sem drápu föður sinn segja líklegt að ákæruvaldið muni breyta morðákæru í að um "nauðsynlega sjálfsvörn“ hafi verið að ræða.

Rússar loka landamærunum að Kína
Rússar hafa lokað landamærum sínum að Kína í austri vegna útbreiðslu Wuhan-veirunnar.

Leiðtogi bandarískra nýnasistasamtaka sagður stjórna þeim frá Rússlandi
Öfgasamtökin Undirstaðan er sögð stefna að hruni Bandaríkjanna, kynþáttastríði og stofnun ríkis hvítra þjóðernissinna.

Dúman samþykkti drög að stjórnarskrárbreytingum eftir stuttar umræður
Þingmenn Rússlands samþykktu samhljóða í morgun drög að stjórnarskrárbreytingum Vladimir Pútín, forseta landsins, er fyrsta umræðan um breytingarnar fór fram.

Ellefu starfsmenn síberískrar sögunarverksmiðju létu lífið í bruna
Líkamsleifar ellefu manna hafa fundist í húsnæði sem varð eldi að bráð í grennd við sögunarverksmiðju í Síberíu í Rússlandi.

Rússa-sérfræðingi Hvíta hússins vísað á dyr
Sérfræðingi ríkisstjórnar Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, í málefnum Rússlands var fylgt úr Hvíta húsinu af öryggisvörðum og hefur verið settur í leyfi vegna rannsóknar.

Japanar stofna einnig geimher
Shinzo Abe, forsætisráðherra Japan, tilkynnti í morgun að ríkisstjórn hans ætli sér að stofna svokallaðan geimher eins og Bandaríkin.

Dýrin í Moskvu fengu að leika sér með óseld jólatré
Dýragarðurinn í Moskvu fer heldur óhefðbundna leið við að endurnýta jólatré. Eftir hátíðarnar hafa jólatrjáasölur sent garðinum um fimmtán hundruð tré. Pandabirnir, ljón, jakuxar og önnur dýr garðsins hafa síðan fengið ýmist að leika sér með trén eða einfaldlega tyggja þau.

Rússar fá nýjan forsætisráðherra
Rússneska þingið samþykkti skipan nýs forsætisráðherra í dag. Ríkisstjórn Dímítrís Medvedev sagði óvænt af sér í gær er Pútín forseti tilkynnti um tillögur sínar um stjórnarskrárbreytingar.

Úkraína biður FBI um aðstoð við rannsókn á tölvuinnbroti
Innbrot hakkara rússnesku leyniþjónustunnar í tölvukerfi gasfyrirtækisins Burisma og mögulegt ólöglegt eftirlit með sendiherra Bandaríkjanna í Kænugarði eru til rannsóknar í Úkraínu.

Stefnir í að Mishustin verði næsti forsætisráðherra Rússlands
Sameinað Rússland, stjórnarflokkur Rússlands, hefur samþykkt einróma framboð Mikhail Mishustin sem næsti forsætisráðherra landsins.

Ríkisstjórn Rússlands segir af sér
Dimitry Medvedev, forsætisráðherra, segist vilja veita Vladimir Pútín, forseta, svigrúm til að gera umfangsmiklar breytingar á stjórnarskrá Rússlands.

Rússar hökkuðu fyrirtæki sem tengist kæru þingsins gegn Trump
Trump Bandaríkjaforseti reyndi að fá úkraínsk stjórnvöld til að rannsaka gasfyrirtækið Burisma og pólitískan andstæðing sinn. Nú beina rússneskir hakkarar spjótum sínum að fyrirtækinu.

Erdogan og Pútín ræða spennu í Miðausturlöndum
Forsetarnir tveir eru einnig sagðir ætla að ræða frið í Líbíu þangað sem Tyrkir sendu herlið á dögunum.

Pútín heimsótti Sýrland og hitti Assad
Þetta er í annað skiptið sem forseti Rússlands heimsækir Sýrland þar sem rússneskir hermenn hafa tekið þátt í borgarastríðinu til að styðja Assad forseta frá árinu 2015.

Pútín við völd í tuttugu ár
Tuttugu ár eru liðin á morgun frá því Vladímír Pútín tók fyrst við embætti forseta Rússlands. Hann hefur stýrt landinu allar götur síðan þrátt fyrir stjórnarskrárákvæði um að forsetar megi ekki sitja lengur en tvö kjörtímabil í röð.

Flytja inn gervisnjó fyrir nýársfögnuð í Moskvu
Desembermánuður hefur verið einstaklega mildur í Moskvu og meira en 130 ára gamal hitamet féll um miðjan mánuðinn.

Mótmæli í Kænugarði þegar fangaskipti fóru fram
Alls skiptust stríðandi fylkingar á um 200 föngum. Samið var um skiptin á fundi úkraínskra og rússneskra stjórnvalda fyrr í þessum mánuði.

Myndir náðust af villtum Síberíutígrisdýrum
Þrír tígrishvolpar voru við leik þegar falin myndavél festi þá á filmu þann 2. nóvember síðastliðinn.

Fangaskipti í Úkraínu
Rússland og Úkraína skiptast nú á föngum en lengi hefur verið beðið eftir fangaskiptum á milli landanna tveggja.

Hundruð þúsunda flýja loftárásir Rússa í Sýrlandi
Borgin Maarat al-Numan er sögð því sem næst tóm vegna sóknar stjórnarhersins og Rússa.

Rússar segjast fyrstir til að taka hljóðfráar eldflaugar í notkun
Fyrsta herdeildin hafi tekið á móti eldflaugunum, sem eru af Avangard-gerð, eftir margra ára rannsókna- og tilraunaferli.

Alríkislögregla Rússlands leitar á skrifstofu Navalny
Rússnesk lögregluyfirvöld gerðu húsleit á skrifstofu Alexei Navalny, eins helsta leiðtoga stjórnarandstöðunnar þar í landi, í Moskvu í dag.

Rússneskum stjórnarandstæðingi rænt af hernum
Leiðtogi rússnesku stjórnarandstöðunnar, Alexei Navalny, hefur gagnrýnt rússnesk yfirvöld harðlega vegna fangelsunar eins samflokksmanns hans í herstöð við norðurhafsstrendur í Rússlandi.

Furða sig á að Trump hampi stuðningi Pútín
Sumir fyrrverandi ráðgjafar Trump Bandaríkjaforseta óttuðust að Pútín hefði komið að hjá honum samsæriskenningu um Úkraínu sem hefur nú orðið til þess að Trump var kærður fyrir embættisbrot í þinginu.

Opinbera nafn árásarmannsins í Moskvu
Yfirvöld Rússlands hafa nafngreint mann sem skaut tvo til bana í höfuðstöðvum FSB, leyniþjónustu Rússlands, í Moskvu í gær.