

Þingfundi lauk rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi og hafði fundur þá staðið í þrettán tíma.
Ríkisstjórnin sögð láta undan öllum kröfum Miðflokksins.
Forsætisráðherra bauð í dag formönnum stjórnarandstöðuflokkanna að fresta þrætumálum fram á sérstakt þing í ágúst. Stjórnarandstaðan er ósátt við sameiginlega niðurstöðu þar sem um sé að ræða sitt hvorar viðræðurnar.
Engin niðurstaða varð af fundi formanna flokka á Alþingi sem funduðu á þriðja tímanum í dag. Til umræðu var hvernig hátta ætti þingstörfum næstu daga.
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir að þriðji orkupakkinn sé áminning um að hlúa þurfi að grundvallaratriðunum.
Ítarlegt viðtal við Carl Baudenbacher um þróun EES-samstarfsins í víðu samhengi, Brexit, samband Sviss við Evrópusambandið og Icesave-málið.
Ekki tókst að komast að niðurstöðu um framhald þingstarfa á nýafstöðnum fundi formanna flokkanna á þingi.
Mikill fögnuður hefur brotist út í herbúðum Miðflokksins sem af stuðningsmönnum er talinn hafa komið í veg fyrir landráð.
Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, notaði kveðskap Einars Ben og söngtexta Bubba Morthens til að biðla til þingmanna um að misþyrma ekki orðinu í ræðustól Alþingis í dag. Guðmundur Andri beindi orðum sínum að öllum líkindum að þingmönnum Miðflokksins án þess að nefna þá á nafn.
Steingrímur kom þessari tilhögun þingfundarins á framfæri þegar umræðum um störf þingsins var lokið og umræða um þriðja orkupakkann átti að hefjast að nýju.
Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, beindi enn á ný þeim tilmælum til þingmanna Miðflokksins að ljúka umræðu um þriðja orkupakkann.
Þorsteinn Sæmundsson sagði Miðflokksmenn ekki hafa óskað eftir dagskrárvaldi.
Þingflokksformaður Vinstri grænna skaut föstum skotum á þingflokk Miðflokksins vegna málþófs þeirra í umræðum um þriðja orkupakkann í ræðu sinni í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í kvöld.
Segir tillöguna ekki leysa vanda, heldur fresta honum.
Fjórir stjórnarandstöðuflokkar leggja til að flokkarnir sem sæti eiga á þingi setjist nú að samningaborðinu og semji um afgreiðslu þeirra mála sem bíða á þingi.
Þingmaður Miðflokksins sagðist ætla að sleppa eldhúsdagsumræðum á Alþingi í kvöld til að geta undirbúið þingfund á föstudag undir lok rúmlega sólahrings langs þingfundar í morgun.
Þingfundi var slitið eftir rúmlega sólarhrings fundahöld. Miðflokksmenn hafa nú rætt um þriðja orkupakkann í rúmar 110 klukkustundir.
Miðflokksmenn hafa nú talað í á fimmta sólarhring um þriðja orkupakkann.
Samband Morgunblaðsins og Sjálfstæðisflokks sjaldan verið eins slæmt.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, segir að málþóf þingmanna Miðflokksins um þriðja orkupakkann hafi í reynd tekið þingræðið úr sambandi því þingið geti ekki látið vilja sinn í ljós með atkvæðagreiðslu.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sagðist upplifa vanlíðan yfir því að geta ekki unnið að málum kjósenda sinna. Miðflokksmenn hefðu tekið Alþingi Íslendinga í gíslingu.
Forseti Alþingis reyndi að höfða til samvisku þingmanna Miðflokksins til að koma í veg fyrir frekara tjón.
Málþóf Miðflokksmanna um þriðja orkupakkann hefur nú staðið yfir í rúmar níutíu klukkustundir.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, fór þess á leit við forsætisráðherra að Alþingi myndi taka fjórða orkupakkann til umfjöllunar.
Óskað hefur verið eftir því að Vinnueftirlitið og/eða lögreglan grípi til aðgerða vegna yfirstandandi brota á Alþingi á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
Edi Truell, breskur fjárfestir, krefst þess að yfirvöld Bretlands skilgreini fyrirtækið Atlantic Superconnection sem erlendan raforkuframleiðanda og samþykki lagningu sæstrengs til Íslands.
Formenn þingflokka bæði Vinstri græna og Sjálfstæðisflokksins telja ekki ástæðu til að breyta dagskrá þingsins vegna málþófs Miðflokksins um þriðja orkupakkann. Þingmaður Miðflokksins segir áhugavert að sjá hvort reynt verði að stöðva umræðuna með atkvæðagreiðslu en slíku ákvæði í þingsköpum hefur ekki verið beitt í meira en hálfa öld.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, tjáir sig um færslu sem hann birti til stuðnings þingmönnum Miðflokksins nú á dögunum.
Inga Sæland sakar Miðflokkinn um að halda þinginu í gíslingu með málþófi um þriðja orkupakkann, jafnvel þó að hún ætli sér að greiða atkvæði gegn samþykkt hans sjálf.
Þingmaður Miðflokksins nefndi þingkonu Framsóknarflokksins aðeins þingmann suður með sjó þegar langt var liðið á málþóf um þriðja orkupakkann á Alþingi í gærmorgun.