Tímamót

Herra Hnetusmjör og Sara komin með nafn á soninn
Árni Páll Árnason, betur þekktur sem Herra Hnetusmjör, eignaðist sitt fyrsta barn 6. febrúar.

Katy Perry opinberar óléttu í nýju tónlistarmyndbandi
Tónlistarkonan Katy Perry tilkynnti í morgun að hún ætti von á barni með leikaranum Orlando Bloom, unnusta hennar.

Guðbjörg birtir fallegar myndir af tvíburunum
Landsliðsmarkvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir og unnusta hennar Mia Jalkerud eignuðust tvíbura 31. janúar.

Katrín Halldóra og Hallgrímur eiga von á dreng
Leik- og söngkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir og Hallgrímur Jón Hallgrímsson, trommuleikari Sólstafa, eiga von á dreng í júní. Katrín Halldóra greindi frá þessu á tónleikum í Hörpu í gær.

Síðustu Nóatúns-versluninni verður lokað í sumar
Verslun Nóatúns í Austurveri í Reykjavík lokar í sumar og mun eigandinn, Festi, opna Krónuverslun á sama stað í ágúst.

Sharapova hætti með ritgerð í Vogue og Vanity Fair
Tennisdrottningin Maria Sharapova tilkynnti í dag að hún væri hætt. Það gerði hún á afar sérstakan hátt.

Ætlar að leggja niður Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Nýsköpunarráðherra ætlar að leggja niður Nýsköpunarmiðstöð Íslands um næstu áramót og finna nýjan farveg þeim verkefnum sem haldið verður áfram. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir nýsköpunarráðherra tilkynnti þetta á fundi ríkisstjórnar í morgun.

Gengu í það heilaga á Bókasafni Kópavogs: „Okkur líður vel í kringum bækur“
"Við trúum augljóslega ekki á guð en okkur langaði að gifta okkur á stað sem er skemmtilegur.“

Harpa og Guðmundur eiga von á tvíburum
„Í dag erum við þrjú á heimilinu, bráðum verðum við fimm. Við Guðmundur Böðvar eigum von á eineggja tvíburum í sumar,“ segir förðunarmeistarinn Harpa Káradóttir í færslu á Instagram.

Staðfesta endurkomu „Vina“ í sérþætti á HBO
Sérþáttur með öllum leikurum upprunalegu þáttanna verður flaggskip nýrrar streymisþjónustu HBO Max í Bandaríkjunum.

Rooney spilar fimmhundruðasta leikinn sinn í Englandi í kvöld
Wayne Rooney verður í sviðsljósinu í kvöld og það í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. Ástæðan er tímamótaleikur hjá þessum fyrrum stórstjörnu og fyrirliða Manchester United.

Lína Birgitta nældi sér í hnykkjara
"Ég er ekki frá því að ég haldi mig við þennan! Allavegana í einhvern smá tíma.“

Stuðmenn fögnuðu hálfrar aldar afmæli
Hljómsveitin ástsæla Stuðmenn hélt upp á hálfrar aldar afmæli sveitarinnar með tvennum afmælistónleikum í Eldborgarsal Hörpu í gær.

Skallagrímur bikarmeistari í fyrsta skipti í sögunni
Skallagrímur vann öruggan sigur á KR í úrslitum Geysisbikar kvenna. Fyrsti bikarmeistaratitill Skallagríms í sögunni staðreynd eftir öruggan 17 stiga sigur, 66-49. Frekari umfjöllun og viðtöl væntanleg.

„Orð fá ekki lýst hvað ég elska Eddu Sif mikið eftir þetta“
„Eftir langa helgi á fæðingardeildinni kom strákurinn okkar í heiminn með keisaraskurði á mánudagsmorgunn,“ skrifar Vilhjálmur Siggeirsson á Face en hann og Edda Sif Pálsdóttir eignuðust sitt fyrsta barn á mánudaginn.

Brynhildur Guðjóns er nýr leikhússtjóri Borgarleikhússins
Tekur við af Kristínu Eysteinsdóttur sem óskað hefur eftir því að hætta.

KSÍ frumsýnir nýtt merki | Mynd
Merki KSÍ verða nú tvö. Merki sambandsins var frumsýnt í dag.

Sprengilægðin blés afmælisfagnað Bjarna út af kortinu
Fimmtíu ára afmælisfagnaði Bjarna Benediktssónar frestað.

Sóli gróf upp gamalt myndband fyrir afmæliskveðju sem hittir beint í mark
Leikstjórinn Allan Sigurðsson á afmæli í dag en hann hefur komið að fjölda þátta í íslensku sjónvarpi og mjög vinamargur drengur.

Hristu af sér hræðsluna og kynntu nýjan Royal-búðing til leiks
Í fyrsta sinn síðan sítrónubúðingurinn var kynntur leiks fyrir 55 árum hefur Royal kynnt nýja búðingabragðtegund til sölunnar.

Félag heyrnarlausra sextíu ára
Ég var 28 ára með fyrsta barnið innan við ársgamalt þegar stofan á heimili okkar Guðmundar K. Egilssonar fylltist af fólki. Heyrnarlausum vinum mínum.

Sverrir birtir einlæga færslu um nýfædda dóttur og Kristínu
Söngvarinn Sverrir Bergmann skrifar fallega færslu á Instagram þar sem hann segir frá því að dóttir hans og Kristínu Evu Geirsdóttur, lögfræðingi, hafi komið í heiminn 4. febrúar síðastliðinn.

Vaka hagsmunafélag stúdenta 85 ára
Fyrir 85 árum eða þann 4. febrúar árið 1935 tók hópur lýðræðissinnaðra stúdenta sig saman og stofnaði hagsmunafélag undir nafninu Vaka.

Ronaldo og Neymar halda báðir upp á afmælið sitt í dag
5. febrúar er stór dagur fyrir fótboltann því tveir af bestu knattspyrnumönnum heims undanfarin ár eru báðir fæddir þennan dag.

Danny McBride breytti lífi sínu eftir Íslandsferð
Leikarinn Danny McBride sem hefur vakið athygli fyrir hlutverk sín í Eastbound & Down, Vice Principals og The Righteous Gemstons segir í viðtali við Shortlist að Íslandsför hafi breytti lífi hans.

Anníe Mist og Frederik eiga von á barni
Crossfit-stjarnan Anníe Mist Þórisdóttir á von á barni með unnusta sínum, Frederik Aegidius, einnig crossfit-stjörnu.

208 nemendur brautskráðir úr HR
Brautskráðir voru 208 nemendur úr Háskólanum í Reykjavík við hátíðlega athöfn í Eldborgarsal Hörpu í gær. 153 nemendur voru brautskráðir úr grunnnámi, 54 úr meistaranámi og einn úr doktorsnámi.

Pamela Anderson skilin eftir aðeins 12 daga hjónaband sem var ekki alvöru hjónaband
Ofurfyrirsætan og leikkonan Pamela Anderson og kvikmyndaframleiðandinn Jon Peters hafa ákveðið að slíta samvistum, aðeins 12 dögum eftir að þau játuðust hvort öðru við hátíðlega athöfn í Mailbu í Kaliforníu í Bandaríkjunum.

Tíu ár síðan Strákarnir okkar unnu brons á EM
Þann 31. janúar 2010 vann Ísland Pólland, 29-26, í leiknum um 3. sætið á Evrópumótinu í Austurríki.

Þorbjörn og Ása eignuðust dreng
"Frumburður okkar Ásu, hraustur og fallegur drengur, fæddist á Landspítalanum í gærmorgun. Drengurinn, sem heldur hér um baugfingur föður síns.“