Anne-Elisabeth Hagen

Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar
Saksóknarar í Noregi hafa fellt niður rannsókn á Tom Hagen, auðkýfingi, sem var sakaður um að myrða eiginkonu sína, Anne-Elisabeth Hagen. Engar sannanir hafi komið fram um að Hagen hafi borið ábyrgð á hvarfi hennar fyrir sex árum.

Auðkennisþjófnaður gæti afhjúpað þá seku í Hagen-málinu
Norska lögreglan heldur ótrauð áfram rannsókninni á máli Önnu-Elísabetar Hagen, sem hvarf sporlaust fyrir réttum þremur árum. Eiginmaður Önnu-Elísabetar, auðkýfingurinn Tom Hagen, er grunaður um að hafa myrt hana, en neitar staðfastlega sök.

Veitti sitt fyrsta viðtal eftir hvarfið og sagðist saklaus
Tvö ár eru liðin frá hvarfi Anne-Elisabeth Hagen, eiginkonu norska auðkýfingsins Tom Hagen, sem hvarf af heimili þeirra í Lorenskógi í Noregi þann 31. október árið 2018.

Lýsa eftir dularfullum bíl á ferð morguninn sem Anne-Elisabeth hvarf
Lögregla í Noregi lýsir nú eftir dularfullum bíl sem ekið var eftir göngustíg í grennd við heimili Anne-Elisabeth Hagen og eiginmanns hennar stuttu áður en hún hvarf.

Ættingi Tom Hagen ákærður fyrir afskipti af framburði vitnis
Lögreglan í Lørenskog hefur grun um að ættingi norska auðkýfingsins Tom Hagen hafi reynt að hafa áhrif á vitnisburð eins vitnis í rannsókn lögreglunnar á hvarfi Anne-Elisabeth Hagen.

Lögregla sneri aftur að heimili Hagen-hjónanna
Lögregla í Noregi hélt áfram rannsókn á heimili hjónanna Tom og Anne-Elisabeth Hagen í Lørenskog í morgun.

Á hreyfingu í 51 mínútu og fjögur ósvöruð símtöl
Farsími Anne-Elisabeth Hagen mældist á hreyfingu í 51 mínútu eftir að hún sleit símtali við son sinn að morgni 31. október 2018.

Leita nýs vitnis í Hagen-málinu
Lögregla í Noregi vill nú ná tali af manni sem sást á upptökum öryggismyndavéla í Lørenskógi þann 31. október 2018, daginn sem Anne-Elisabeth Hagen hvarf.

Síðasta símtalið var við soninn
Anne-Elisabeth Hagen hringdi í son sinn að morgni 31. október 2018.

Varð hræddur og skráði húsið á sig
Norski auðkýfingurinn Tom Hagen kveðst hafa orðið hræddur um að honum yrði úthýst af heimili sínu og eiginkonu sinnar, Anne-Elisabeth Hagen, á tíunda áratug síðustu aldar.

Skilnaðarpappírar undirritaðir af Anne-Elisabeth fundust á heimili hjónanna
Norska lögreglan fann skilnaðarpappíra við rannsókn á heimili Anne-Elisabeth Hagen og eiginmanns hennar, Tom Hagen, sem sú fyrrnefnda hafði ritað nafn sitt undir.

Heitir 140 milljónum til þess sem veitt getur upplýsingar um hvar Anne-Elisabeth er niðurkomin
Tom Hagen hefur heitið því að greiða þeim sem veitt getur upplýsingar sem leiða til þess að Anne Elisabeth Hagen, eiginkona hans, finnist tíu milljónir norskar krónur, um 140 milljónir íslenskra króna.

Telja ný sönnunargögn renna stoðum undir að Anne-Elisabeth hafi verið myrt
Norska lögreglan segist hafa uppgötvað ný sönnunargögn í máli Tom Hagen síðan hann var handtekinn 28. apríl síðastliðinn sem renni stoðum undir þá kenningu að Anne-Elisabeth Hagen, eiginkona hans, hafi verið myrt.

Birta hótunarbréfið í fyrsta sinn
Norska dagblaðið VG birti í dag hótunarbréf sem auðjöfurinn Tom Hagen segir að hann hafi fengið sent eftir að eiginkona hans, Anne-Elisabeth Hagen, hvarf af heimili þeirra hjóna í Lorenskógi árið 2018.

Heldur áfram samningaviðræðum við meinta mannræningja
Norski auðkýfingurinn Tom Hagen, sem grunaður er um morðið á eiginkonu sinni Anne-Elisabeth Hagen, hefur ekki látið af samningaviðræðum við meinta mannræningja konu sinnar.

Telja líklegast að Anne-Elisabeth hafi verið kyrkt og líkinu ekið brott
Lögregla í Noregi telur að Anne-Elisabeth Hagen, sem saknað hefur verið síðan í lok október árið 2018, hafi verið myrt inni á heimili hennar og eiginmannsins, auðkýfingsins Tom Hagen.

Sagði lögreglu frá „stráknum“ strax eftir hvarfið
Tom Hagen, sem grunaður er um morð eða aðild að morði á eiginkonu sinni, Anne-Elisabeth Hagen, minntist á mann, sérfræðing á sviði rafmynta sem nú er grunaður um aðild að málinu, í yfirheyrslum skömmu eftir að Anne-Elisabeth hvarf í október 2018.

Hagen sleppt úr gæsluvarðhaldi
Tom Hagen hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi eftir að Hæstiréttur Noregs úrskurðaði gegn lögreglunni um framlengingu.

Annar maður handtekinn vegna Hagen-málsins
Lögregla í Noregi handtók í gærkvöldi mann í tengslum við rannsóknina á hvarfi Anne-Elisabeth Hagen, eiginkonu auðjöfursins Tom Hagen.

Systkini Hagen telja Anne-Elisabeth vera enn á lífi
Systkini auðjöfursins Tom Hagen, sem grunaður er um að hafa orðið eiginkonu sinni að bana, segjast sannfærð um sakleysi bróður síns.

Lögmannsréttur vill sleppa Hagen úr gæsluvarðhaldi
Lögregla hefur nú áfrýjað úrskurði lögmannsréttarins sem þýðir að Hagen verður áfram í varðhaldi þar til að Hæstiréttur landsins hefur tekið málið til meðferðar.

Lögregla rannsakar fjallakofa Tom Hagen
Fjöldi lögreglumanna mættu í morgun að fjallakofa norska auðjöfursins Tom Hagen við Kvitfjell.

Lögregla girðir af svæði við heimili Hagen-hjónanna
Lögreglan í Noregi girti í morgun af svæði við heimili Tom Hagen í Lørenskog í suðausturhluta landsins. Hagen er grunaður um morð á eiginkonu sinni, Anne-Elisabeth Hagen.

Tom Hagen áfrýjar gæsluvarðhaldsúrskurðinum
Þetta staðfestir Svein Holden verjandi Hagen í samtali við norska miðilinn Dagbladet.

Tom Hagen í fjögurra vikna gæsluvarðhald
Norski auðjöfurinn Tom Hagen hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald, grunaður um að hafa orðið eiginkonu sinni Anne-Elisabeth Hagen að bana í október 2018.

Konan sem hvarf og hægláti auðjöfurinn sem saknaði hennar
„Mannránið“ sem skók Noreg, hvarf Anne-Elisabeth Hagen, náði óvæntum vendipunkti í gær. Hér verður reynt að varpa ljósi á feril þessa merkilega máls og vendingar átján mánaða lögreglurannsóknar.

Tom Hagen neitar sök
Norski milljarðamæringurinn Tom Hagen, sem handtekinn var í morgun grunaður um morðið á eiginkonu sinni Anne-Elisabeth Hagen, neitar sök.

Tom Hagen grunaður um morðið á Anne-Elisabeth
Tom Hagen, eiginmaður Anne-Elisabeth Hagen sem ekkert hefur spurst til síðan í október 2018, er grunaður um morð, eða að eiga hlut að morði, á eiginkonu sinni.

Eiginmaður Anne-Elisabeth handtekinn
Tom Hagen, eiginmaður Anne Elisabeth Hagen sem hvarf af heimili sínu í október 2018, var handtekinn við heimili sitt í Lorenskógi á leið til vinnu í morgun.

„Tom, ertu tilbúinn að semja?“
Tom Hagen, eiginmaður Anne-Elisabeth Hagen sem hvarf frá heimili þeirra hjóna í Noregi haustið 2018, fór á svig við ráðleggingar lögreglu og greiddi meintum mannræningjum konu sinnar 1,3 milljónir evra í fyrra.