Ísrael
1 2 3 4 5 6 … 45 ›
Ríkisstjórnin fundar um vopnahlé Öryggisráð Ísrael hefur lagt til að ríkisstjórn og þing ríkisins samþykki vopnahléstillögu í átökum Ísraela við Hamas-samtökin á Gasaströndinni. Ríkisstjórnin tekur tillöguna næst fyrir og er vonast til þess að vopnahléið taki gildi á sunndag og yrði fyrstu gíslum Hamas sleppt þá. Erlent 17.1.2025 14:02
Hindranir úr vegi og vopnahlé yfirvofandi Skrifstofa forsætisráðherra Ísraels, Benjamíns Netanjahú, segir nú að samkomulag sé í höfn við Hamas samtökin um lausn þeirra gísla sem enn eru í haldi samtakanna. Erlent 17.1.2025 06:47
Segir samkomulagið standast og vopnahléið hefjist á sunnudag Vopnahléið á Gasa mun hefjast á sunnudag þótt svo að viðsemjendur þurfi að hnýta í lausa enda á síðustu stundu. Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði á blaðamannafundi að samkomulagði stæðist og tæki gildi á sunnudag. Erlent 16.1.2025 21:26
Deila um ákvæði um fangaskipti Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, hefur sakað leiðtoga Hamas-samtakanna um að skorast undan ákvæði um fangaskipti í vopnahléssamkomulagi sem samþykkt var í gær. Hann segist ekki ætla að boða til fundar öryggisráðs Ísrael þar sem greiða á atkvæði um samkomulagið fyrr en málið hafi verið leyst. Erlent 16.1.2025 09:25
Hamas og Ísrael komast að samkomulagi um vopnahlé Ísrael og Hamas hafa komist að samkomulagi um vopnahlé sem á að binda á enda á fimmtán mánaða átök á Gasa. Vopnahléið á að hefjast formlega á sunnudag. Erlent 15.1.2025 17:37
97 árásir á „örugga svæðið“ á Gasa Rannsókn BBC hefur leitt í ljós að á síðustu sjö mánuðum hafa 97 árásir átt sér stað á svæði á Gasa sem skilgreint var af Ísraelsher sem mannúðarsvæði. Hefur fólk verið hvatt til að leita þangað öryggis síns vegna. Erlent 15.1.2025 08:39
Hamas-liðar samþykktu drög að friðarsamkomulagi Samningamenn Hamas-samtakanna eru sagðir hafa samþykkt drög að samkomulagi um vopnahlé á Gasaströndinni í skiptum fyrir það að fjölda gísla verði sleppt úr haldi samtakanna. Samkomulagið myndi koma á friði yfir nokkurra vikna tímabil. Erlent 14.1.2025 15:50
Segist ítrekað hafa komið í veg fyrir frið á Gasa Ben Gvir, fjar-hægri sinnaður þjóðaröryggisráðherra Ísrael, viðurkenndi á myndbandi að hann hefði ítrekað komið í veg fyrir frið á Gasaströndinni á undanförnu ári. Í myndbandinu sagðist hann ætla að yfirgefa ríkisstjórn Ísraels, ef friðarsamkomulag yrði gert við Hamas-samtökin. Erlent 14.1.2025 10:52
Biden segir vopnahlésviðræður á lokametrunum Sáttasemjarar í Katar kynntu embættismönnum Ísraels og Hamas lokadrög að vopnahléstillögu í kvöld. Tillagan er sögð fela í sér endalok stríðsins á Gasa og Bandaríkjaforseti segir viðræður á lokametrunum. Erlent 14.1.2025 00:04
Stjórnmálamenn fá ekki að tjá sig á 80 ára afmæli frelsunar Auschwitz Forsetar, forsætisráðherrar og kóngafólk verður meðal viðstaddra þegar þess verður minnst síðar í mánuðinum að 80 ár eru frá því að Sovétmenn frelsuðu Auschwitz-útrýmingarbúðirnar. Erlent 13.1.2025 10:43
Vörpuðu fimmtíu sprengjum á þrjú skotmörk í Jemen Ísraelar vörpuðu í morgun sprengjum á Jemen. Eru þessar árásir sagðar viðbrögð við dróna- og eldflaugaárásum Húta á Ísrael á undanförnum vikum. Fyrr í vikunni vörpuðu Bandaríkjamenn sprengjum á skotmörk sem þeir segja í eigu Húta. Erlent 10.1.2025 16:29
Banna fjölmiðlum að nota full nöfn og myndir af hermönnum Hermálayfirvöld í Ísrael hafa sett nýjar reglur sem banna fjölmiðlum að nefna full nöfn hermanna eða sýna af þeim myndir þegar þeir taka við þá viðtöl. Ástæðan er áreiti sem hermenn hafa sætt erlendis. Erlent 9.1.2025 07:05
Enn segjast menn vongóðir um vopnahlé á Gasa Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagðist í gær nokkuð vongóður um að vopnahléssamkomulag myndi nást á milli Ísraelsmanna og Hamas, ef ekki á næstu tveimur vikum þá fljótlega eftir það. Erlent 7.1.2025 06:54
Biden hyggst senda hergögn að virði átta milljarða til Ísraels Joe Biden, fráfarandi Bandaríkjaforseti, hyggst senda Ísraelsríki ýmis hergögn sem eru samtals að virði um átta milljarða bandaríkjadala. Hann hefur tilkynnt þinginu um áform sín. Innlent 4.1.2025 16:41
Varnarmálaráðherrann sem Netanjahú rak hættir á þingi Yoav Gallant, fyrrverandi varnarmálaráðherra í ríkisstjórn Benjamíns Netanjahú í Ísrael, tilkynnti um afsögn sína sem þingmaður á nýársdag. Bæði Gallant og Netanjahú eiga handtökuskipun vegna stríðsglæpa í stríðinu við Hamas yfir höfði sér. Erlent 2.1.2025 09:12
Hóta Hútum sömu „aumu örlögum“ og Hamas og Hezbollah Hætti Hútar ekki að skjóta eldflaugum að Ísrael er hætt við því að þeir hljóti „sömu aumu örlög“ og Hamas, Hezbollah eða Bashar al-Assad. Þetta sagði sendiherra Ísrael hjá Sameinuðu þjóðunum í dag og kallaði hann það síðustu viðvörun Húta, sem stjórna stórum hluta Jemen og njóta stuðnings klerkastjórnarinnar í Íran. Erlent 30.12.2024 23:24
Forstjóri sjúkrahúss meðal 240 handtekinna Ísraelsher handtók meira en 240 Palestínumenn er hann gerði áhlaup á sjúkrahús í Gasa í gær. Forstjóri og tugir starfsmanna sjúkrahússins eru sagðir í haldi Ísraela eftir áhlaupið. Erlent 28.12.2024 23:58
Einkavæðingaráform gætu hrakið Ísrael úr Eurovision Stríðsrekstur Ísraela á Gasa og víðar fyrir botni Miðjarðarhafs leiddi til mikilla mótmæla þegar Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, fór fram í Malmö í Svíþjóð í maí síðastliðinn. Nú er hugsanlegt að Ísrael verði meinuð þátttaka í keppninni, þó af allt annarri ástæðu. Erlent 18.12.2024 08:38
Viðræður um vopnahlé sagðar á lokametrunum Embættismenn í bæði Palestínu og Ísrael hafa gefið til kynna að eftir margra mánaða viðræður sé vopnahlé á Gasaströndinni í sjónmáli. Viðræður um vopnahlé og mögulega frelsun þeirra gísla sem Hamas-liðar halda enn hafa virst frosnar um mánaða skeið. Erlent 17.12.2024 10:37
Vill tvöfalda fjölda fólks á Gólan-hæðum Ríkisstjórn Ísraels hefur samþykkt áætlun sem miðar að því að tvöfalda fjölda landtökufólks sem býr á Gólan-hæðum, svæðinu á milli Ísraels og Sýrlands. Erlent 16.12.2024 08:23
Lífið í Damaskus að færast í eðlilegt horf þrátt fyrir árásir Ísraela Ísraelsher gerði fjölda loftárása á Sýrland í nótt, þrátt fyrir yfirlýsingar uppreisnarleiðtogans þar í landi um að hann hyggist halda frið. Líf almennra borgara í Damaskus er að færast í eðlilegt horf, börn mættu í skóla í dag í fyrsta sinn eftir fall Assad-stjórnarinnar. Erlent 15.12.2024 19:51
Ísrael lokar sendiráði sínu á Írlandi Ísraelsk stjórnvöld hafa tilkynnt um að sendiráði Ísraels í Dyflinni á Írlandi verði lokað. Utanríkisráðuneytið segir það helst koma til vegna „öfgafullrar“ og „andsemitískrar“ stefnu írskra stjórnvalda í garð Ísraels. Erlent 15.12.2024 16:18
Draga tennurnar úr næstu ríkisstjórn Sýrlands Ísraelar hafa á undanförnum dögum, eða frá því ríkisstjórn Bashar al-Assads féll, gert hundruð loftárása í Sýrlandi. Markmið þessara árása virðist vera að draga tennurnar úr næstu ríkisstjórn Sýrlands takist yfir höfuð að mynda hana. Erlent 10.12.2024 13:02
Netanjahú ber vitni í spillingarmáli sínu Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, settist í vitnastúku í fyrsta skipti í réttarhöldum í spillingarmáli á hendur honum í morgun. Vitnisburði forsætisráðherrans hafði verið frestað vegna stríðsins gegn Hamas-samtökunum. Erlent 10.12.2024 08:52
Vörpuðu sprengjum á hergögn og efnavopn í Sýrlandi Ísraelar gerðu í nótt og í morgun þó nokkrar loftárásir í Sýrlandi, auk þess sem ísraelskir hermenn fór yfir landamæri ríkjanna við hinar hernumdu Gólanhæðir. Loftárásirnar voru að mestu gerðar við strandlengju Sýrlands og í suðurhluta landsins. Erlent 9.12.2024 14:32
Almennum borgurum útrýmt af ásetningi Ísraelar hafa framið hópmorð af ásettu ráði á Gasa samkvæmt nýrri skýrslu Amnesty International. Framkvæmdastjóri Íslandsdeildar samtakanna segir gögn og vitnisburði sýna ótvírætt fram á þetta og kallar eftir sterkum viðbrögðum alþjóðasamfélagsins og íslenskra stjórnvalda. Innlent 5.12.2024 12:02
Segja Ísraelsmenn fremja þjóðarmorð á Gaza Alþjóðlegu mannréttindasamtökin Amnesty International segja Ísraelsmenn hafa framið, og halda áfram að fremja, hópmorð gegn Palestínumönnum á Gaza. Hópmorð eru jafnan kölluð þjóðarmorð í daglegu tali. Samkvæmt nýrri skýrslu samtakanna hafa ísraelsk stjórnvöld gengið fram í þeim tilgangi að útrýma Palestínubúum á Gaza. Erlent 5.12.2024 07:53
Engin greinarmunur gerður á Líbanon og Hezbollah ef friðurinn heldur ekki Varnarmálaráðherra Ísrael segir að ef til þess kemur að vopnahléið við Hezbollah í Líbanon haldi ekki, muni stjórnvöld ekki gera greinarmun á Hezbollah annars vegar og Líbanon hins vegar. Erlent 3.12.2024 12:53
„Þessi aðgerð lukkaðist vel“ Íslensk og erlend náttúruverndarsamtök báðu, að sögn ísraelsks fjölmiðils, ísraelska njósnafyrirtækið Black Cube um að rannsaka mál sem varð tilefni til tálbeituaðgerðar fyrirtækisins sem beindist að Gunnari Bergmann Jónssyni, syni Jóns Gunnarssonar. Innlent 2.12.2024 17:23
Hvernig getur þú stutt þjóðarmorð? Öll vitum við að árangursríkasta leiðin til að styðja þjóðarmorð er ekki að segja beint út „ég styð þjóðarmorð“. Það sama á við um þá sem ætla að fremja þjóðarmorð. Þeir segja ekki „ég ætla að fremja þjóðarmorð“, þeir segja „við verðum að drepa alla þá sem ógna okkur og því miður munum við í leiðinni drepa öll börnin þeirra, frændur, frænkur, foreldra, afa og ömmur, en það er í raun þeim sem ógna okkur að kenna.“ Skoðun 27.11.2024 16:22