

Hamas samtökin, sem fara með stjórn á Gaza svæðinu, eru sögð hafa tekið fimm Palestínumenn af lífi. Aftökurnar eru sagðar þær fyrstu sem vitað sé um frá apríl 2017.
Mahmoud Abbas, forseti Palestínsku heimastjórnarinnar (PA), heimsótti Þýskaland á dögunum. Heimsóknin var hluti af yfirstandandi ímyndarherferð hans í Evrópu. Í Berlín sat hann fyrir svörum á fundi með Olaf Scholz, kanslara Þýskalands.
Palestínumenn hafa fulla ástæðu til að hata Ísrael; Ísrael er aðskilnaðarríki landnema-nýlenda, reist á rústum heimalands Palestínumanna. En hvers vegna hata Ísraelar Palestínumenn svona mikið?
Í byrjun febrúar 2022 birtu alþjóðlegu mannréttindasamtökin Amnesty ítarlega skýrslu sem afhjúpar að í Ísrael ríkir aðskilnaðarstefna - Apartheid.
Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hefur vakið hörð viðbrögð og mikla reiði með ummælum sem hann lét falla á blaðamannafundi með Olaf Scholz, kanslara Þýskalands, á blaðamannafundi í Berlín í gær.
Heröfl Ísrael og Palestínu hafa samið um vopnahlé eftir þrjá daga af átökum en að minnsta kosti 43 eru látin vegna þeirra. Vopnahléið átti að hefjast klukkan hálf níu í kvöld á íslenskum tíma.
Þúsundir mættu til útfarar þeirra sem féllu í loftárásum Ísraela á borgina Rafah á Gaza í gær. Þegar hafa 29 palestínumenn fallið í átökunum sem hófust á föstudag, þar á meðal almennir borgarar og börn.
Enn berast fréttir af barnamorðum Ísraelshers á Gazaströnd. Undir yfirskini forvarna hefur eldflaugum og sprengjum verið látið rigna yfir íbúðahverfi á Gaza, bæði norður frá á Jabalia flóttamannabúðirnar og á Rafah, landamærabæinn syðst á Gaza.
Annar leiðtogi íslamistasamtakanna PIJ var drepinn í loftárásum Ísraelsmanna á Gaza í nótt. Liðsmenn PIJ hafa skotið eldflaugum í átt að Jerúsalem í hefndarskyni.
Ellefu létu lífið er ísraelski herinn skaut eldflaugum á Gaza-svæðið í gær. Herinn segir að skotmark sitt hafi verið íslamskur öfgahópur en einhverjir þeirra sem létu lífið voru óbreyttir borgarar.
Biden forseti Bandaríkjanna heimsótti fyrir skömmu Ísrael og Palestínu. Í tvo daga ræddi hann við stjórnvöld í Ísrael og dagpart skrapp hann yfir á Vesturbakkann og hitti Abbas forseta Palestínu.
Joe Biden Bandaríkjaforseti mun funda með leiðtogum Palestínumanna á Vesturbakkanum í dag, áður en hann heldur í afar umdeilda heimsókn til Sádi Arabíu um helgina.
Það verður seint sagt að almennir fjölmiðlar og alþjóðastofnanir hafi farið mjúkum höndum um Ísraelsríki upp á síðkastið. Andstæðingar Ísraels fara að vísu misvarlega í yfirlýsingum sínum. Sumir kveðast einungis vera andstæðingar stefnu stjórnvalda í Ísrael og frábiðja sér allt sem getur kallast Gyðingahatur.
Byssukúlan sem banaði Shireen Abu Akleh, fréttakonu al-Jazeera á Vesturbakkanum í síðasta mánuði kom frá stað þar sem ísraelskur herbílalest var stödd. Rannsókn New York Times bendir til að sérsveitarmaður hafi skotið hana til bana.
Í dag eru 78 ár liðin frá lýðveldisyfirlýsingunni á Þingvöllum. Sú yfirlýsing var í samræmi við sambandslögin frá 1918 og viðurkennd af alþjóðasamfélaginu. Lýðveldið Ísland var endurreisn forna þjóðveldisins sem leið undir lok þegar Íslendingar gengust Noregskonungi á hönd.
Ísraelskir lögreglumenn börðu syrgjendur með kylfum í útför blaðakonu al-Jazeera sem var skotin til bana á Vesturbakkanum á miðvikudag. Kistuberar misstu kistu hennar stuttlega vegna atgangsins.
Fréttakona frá Al Jazeera var skotin til bana af ísraelska hernum á Vesturbakkanum í nótt.
Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að hækka kjarnaframlög til þriggja Sameinuðu þjóða stofnana, UN Women, UNICEF og UNFPA. Á fundum utanríkisráðherra með framkvæmdastjórum stofnananna í gær var greint frá því að kjarnaframlög til UN Women hækki um 12 prósent, um 15 prósent til UNICEF og um rúmlega 70 prósent til UNFPA.
Ísraelskir hermenn réðust inn í flóttamannabúðir á Vesturbakkanum í morgun og í kjölfarið hófst skotbardagi á milli hersins og Palestínumanna í búðunum.
Hjálmtýr Heiðdal hefur, fyrir hönd stjórnar Félagsins Ísland – Palestína, sent bréf til Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra þar sem hann krefst svara við því hvers vegna RÚV þyki nú sjálfgefið að Rússum sé vísað úr Eurovision en fráleitt áður að stíga slíkt skref þegar Ísrael átti í hlut.
Enn og aftur situr Ísrael undir ásökunum um að viðhafa aðskilnaðarstefnu gagnvart þegnum sínum. Þessar ásakanir eru í raun fráleitar. Í nýlegri grein um þetta viðfangsefni benti ég meðal annars á þá staðreynd að fjöldi Araba hefur ríkisborgararétt í Ísrael og tekur þátt í samfélaginu á öllum stigum þess. Það er meira að segja arabískt flokkabandalag í núverandi ríkisstjórn Ísraels.
Íbúar á Gaza glíma enn við afleiðingar átakanna í maí á þessu ári.
Árið 2021 einkenndist af náttúruhamförum, pólitískum óstöðugleika, átökum og óánægju með sóttvarnaaðgerðir. Ekki bara hér á Íslandi heldur líka úti í heimi.
Táknrænar jólagjafir UN Women eru í formi fallegra gjafabréfa bæði á pappír og í rafrænu formi.
Ísraelskir fornleifafræðingar fundu nýverið rúmlega 2.700 ára gamalt einkaklósett í Jerúsalem. Slíkt var mjög sjaldgæft á þessum tíma og aðeins hinir ríkustu gátu verið með klósett heima hjá sér.
Eftirfarandi grein er svar við grein sem Stefán Einar Stefánsson, blaðamaður Morgunblaðsins, birti þar 6. maí síðastliðinn. Þar sem Morgunblaðið neitaði okkur um réttinn til andsvara í blaðinu birtum við svargrein okkar hér:
Ísframleiðandinn Ben & Jerry's hyggst hætta sölu á landtökusvæðum Ísraela á Vesturbakkanum og í austurhluta Jerúsalem. Forsætisráðherra Ísraels segist ætla bregðast við sölubanninu með hörðum aðgerðum.
Hundruð palestínskra mótmælenda særðust þegar Ísraelsher hóf skothríð á þá í gær. Mótmælendurnir höfðu safnast saman við ólöglega útvarðarstöð Ísraelsmanna á Vesturbakkanum til að mótmæla henni.
Annar Palestínumannanna sem lögregla handtók í húsnæði Útlendingastofnunar á þriðjudagsmorgun var fluttur á bráðadeild Landspítala með áverka eftir handtökuna, meðal annars á höfði. Hann fullyrðir sjálfur að hann hafi margoft verið sprautaður niður án samþykkis.
Tveir palestínskir flóttamenn voru handteknir í móttöku Útlendingastofnunar í gær eftir að þeir höfðu verið boðaðir þangað til að sækja bólusetningarvottorð sín. Þeir voru fluttir af staðnum með valdi og sendir úr landi í morgun. Sjónarvottur sakar lögreglu um að hafa tekið af sér símann og eytt myndbandi sem var tekið upp.