Reykjavík

Með skilaboð til Íslendinga: „Hjálpin sem þið hafið veitt okkur gleymist aldrei“
Vesturbæingar og fyrirtæki í nágrenninu hafa tekið höndum saman við að útvega úkraínskum flóttamönnum sem dvelja á Hótel Sögu ýmsar nauðsynjar, þar á meðal sundkort. Við hittum flóttamann sem var með skilaboð til íslensku þjóðarinnar.

Mikill hasar á lokaðri Sæbraut
Sæbraut var lokað í dag fyrir hádegi, sem er vel því mikill hasar skapaðist þar í dag við tökur á kvikmyndinni Heart of stone.

Líkamsárás í Kópavogi eldsnemma í morgun
Töluverður erill var hjá lögreglu í dag, til að mynda var tilkynnt um líkamsárás í Kópavogi klukkan fimm í morgun. Árásarþoli var fluttur á bráðamóttöku.

Hjálmar harmar skerta þjónustu strætó
Strætó skerðir í dag þjónustu sína við farþega með því að draga úr tíðni ferð á nokkrum leiðum og hætta akstri þeirra fyrr á kvöldin. Stjórnarformaður skilur ósætti farþega vel og vonast til að skert þjónusta verði aðeins tímabundin.

„Það stenst enginn þetta augnaráð“
Það mun vanta sjö leiðsöguhunda fyrir blinda og sjónskerta á landinu á næstu árum. Við hittum Kela, eiganda leiðsöguhunds, í miðbæ Reykjavíkur í gær sem lýsti afar nánu sambandi sínu við besta vin sinn - Gaur.

Fyrsta sinn sem einstaklingur vinnur Músíktilraunir
Tónlistarkonan Kolbrún Óskarsdóttir bar sigur úr bítum í Músíktilraunum 2022 sem fóru fram í Hörpu í gær. Þetta er fyrsta sinn sem einstaklingur sigrar keppnina, sem hefur verið haldin árlega í fjörutíu ár.

„Þetta er ekki bara vinna heldur líka það að vera innan um fólk“
Maður á áttræðisaldri sem fékk vinnu á veitingastað í miðbæ Reykjavíkur segir það ljótt af vinnuveitendum að segja fólki upp sökum aldurs. Hann segir mikinn félagsskap fólginn í vinnu og hlakkar til að takast á við ný verkefni.

Vesturbæingar sjá um hundrað flóttamönnum á Hótel Sögu fyrir nauðsynjum
Tæplega eitt hundrað úkraínskir flóttamenn, konur og börn, hafa fengið þak yfir höfuðið í Bændahöllinni, þar sem Hótel Saga var þar til nýlega. Svo virðist sem fólkið fái ekki mikið meira en þak yfir höfuðið enda hafa íbúar Vesturbæjar tekið það á sig að verða fólkinu úti um helstu nauðsynjar.

Úkraínsk börn dönsuðu þjóðdansa til fjáröflunar
Glatt var á hjalla í menningarmiðstöðinni í Gerðubergi í dag þar sem haldin var fjáröflun til styrktar fjölskyldum sem komnar eru hingað til lands frá Úkraínu.

Vonar að atvinnurekendur taki flóttafólkinu opnum örmum
Móttaka flóttamanna hér á landi fer vel af stað og hafa herbergi á Hótel Sögu meðal annars verið tekin undir þá.

Meinað að drekka kaffi, reykja og fara út
Samtökin Geðhjálp segja ljóst að daglega sé brotið á mannréttindum fólks inni á geðdeildum landsins. Fólki er sums staðar meinað að drekka kaffi, fara í símann, reykja sígarettu eða rölta út undir bert loft.

Breyta Strætóleiðum sem aka nú styttra eða með lengra millibili
Breytingar hafa verið gerðar á kvöldferðum Strætóleiða númer 7, 11, 12, 15, 19, 22, 23, 28, 35 og 36. Breytingarnar spara rúmlega 200 milljónir í rekstri Strætó sem hefur verið mjög þungur á tímum heimsfaraldurs.

Röskun á umferð í Reykjavík vegna Netflix-myndar
Víðtækar vegalokanir eru í Reykjavík um helgina, bæði fyrir akandi og gangandi vegfarendur, í tengslum við kvikmyndatökur á myndinni Heart of Stone. Gal Gadot, Jamie Dornan og fleiri stórstjörnur leika í Netflix-myndinni og verða við störf í miðbæ Reykjavíkur næstu daga.

Létu ekki duga að flýja lögreglu á bíl
Lögreglumenn hófu stutta eftirför á þriðja tímanum í nótt þegar ökumaður í miðbæ Reykjavíkur hlýddi ekki stöðvunarmerkjum lögreglu.

Söfnuðu stórfé þegar kvikmyndakempur í misgóðu formi tókust á
Íslenskir kvikmyndargerðarmenn tóku höndum saman við erlenda í dag og söfnuðu á fjórðu milljón króna fyrir kvikmyndargerðarmann sem slasaðist við tökur um árið. Farin var óhefðbundin leið; þeir spiluðu fótbolta til fjáröflunar.

Opna Sirkus á ný
Einn vinsælasti veitingastaður og bar Reykjavíkur til margra ára, Sirkus, hefur snúið aftur eftir fimmtán ára hlé.

„Þríeykið“ kiknaði undan álagi rétt fyrir meinta afhjúpun
Auglýst afhjúpun á styttu af „þríeykinu“ svokallaða í dag reyndist aprílgabb og heppnaðist með ágætum. En undirbúningur á vettvangi gekk ekki þrautalaust fyrir sig, eins og myndband hér neðar í fréttinni sýnir.

Vill húsnæðissáttmála á höfuðborgarsvæðinu
Borgarstjóri kallar eftir því að ríki og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu geri með sér sérstakan húsnæðissáttmála til að leysa stöðuna á húsnæðismarkaði. Borgin ætlar að tvöfalda árlegt lóðaframboð sitt næstu fimm árin.

Fluffy fannst eftir átta mánaða þrotlausa leit: „Hún verður í straffi næstu tvær vikur“
Læðan Fluffy kom í leitirnar í gær eftir að hafa verið týnd í rúma átta mánuði en eigandi hennar gafst aldrei upp á leitinni. Fluffy var í góðu atlæti hjá eldri manni í Elliðaárdalnum þegar hún fannst fyrir tilviljun en eigandi hennar segir að hún fái framvegis ekki að fara út án þess að vera með staðsetningaról.

Ótækt að innheimtufyrirtæki græði á skuldavanda borgarbúa
Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands, gagnrýnir harðlega að Reykjavíkurborg noti innheimtufyrirtæki til að innheimta reikninga og gjöld. Það sé ómanneskjuleg aðferð sem auki á vanda fólks í fátækt.

Tvöfalt fleiri lóðir næstu fimm árin
Reykjavíkurborg mun tvöfalda lóðaframboð sitt í ár og halda því þannig næstu fimm árin hið minnsta. Borgarstjóri segir stærsta uppbyggingarskeið í sögu borgarinnar gengið í garð.

Virkni er velferð
Reykjavík réðst í markvissar viðspyrnu aðgerðir í covid og einn liður í þeim voru aðgerðir til að bregðast við auknu atvinnuleysi og fjölgun fólks sem þurfti að reiða sig á fjárhagsaðstoð Reykjavíkur til framfærslu.

Bein útsending: Uppbygging íbúðarhúsnæðis í Reykjavík
Fundur um húsnæðismál í Reykjavík fer fram í dag þar sem Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, mun fara yfir nýjar áherslur og aukinn kraft í uppbyggingu íbúða.

Afhjúpuðu styttu af þríeykinu
Stytta af þríeykinu svokallaða, Ölmu Möller landlækni, Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni og Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni verður afhjúpuð við hátíðlega athöfn við Björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð í Reykjavík í dag. Afhjúpunin hefst klukkan 10 og er almenningi boðið að vera viðstaddur. Fyrir þá sem ekki komast verður beint streymi á Vísi og Stöð 2 Vísi.

Sögufrægt hús flutt af Laugavegi til Keflavíkur
Hús sem rataði í fréttir árið 2017 vegna rottumítla var flutt af Laugavegi alla leið til Keflavíkur í fyrrinótt. Húsið er friðað og því stóð eigendum ekki annað til boða en að einfaldlega flytja það í heild sinni.

Nemandi réðst á kennara í Reykjavík
Lögregla var kölluð að skóla í Reykjavík fyrr í dag eftir að nemandi réðst á kennara í skólanum og braut rúðu. Lögreglan segir að unnið verði að málinu í samráði við viðkomandi skóla og foreldra nemandans.

Óvæntar veðuraðstæður í Reykjavík í dag áttu sér skýringu
Veðrið lék við landsmenn á suður- og vesturhorni landsins í dag á þessum síðasta degi marsmánaðar.

Miklar tafir vegna áreksturs á Vesturlandsvegi
Nokkurra bíla árekstur varð á Vesturlandsvegi austan við Höfðabakka á sjötta tímanum í dag.

Heimavöllur Fram ekki tilbúinn fyrir fyrstu umferð Bestu-deildarinnar
Fram leikur Bestu-deild karla í knattspyrnu í sumar. Verður það í fyrsta skipti í átta ár sem liðið leikur í efstu deild. Heimavöllur liðsins verður hins vegar ekki klár þegar mótið hefst og því óvíst hvar leikurinn fer fram.

Þrettán nýir ærslabelgir í Reykjavík
Þrettán nýir ærslabelgir verða settir upp í Reykjavík í sumar. Ærslabelgirnir verða tveir í Grafarvogi, tveir í Háaleiti og Bústöðum, tveir í Árbæ og Norðlingaholti, þrír í Breiðholti og einn í Grafarholti og Úlfarsárdal, Kjalarnesi, Laugardal og Vesturbæ.