Reykjavík

Tvö börn til viðbótar lögð inn á spítala vegna E.coli
Tvö börn til viðbótar hafa verið lögð inn á Landspítala vegna E.coli sýkingar sem kom upp á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík í vikunni. Alls liggja sex börn inni á spítala og þar af eru tvö enn á gjörgæslu.

Voru að ganga yfir á grænu gönguljósi þegar ekið var á þær
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur rætt við vitni að árekstri þar sem bíl var ekið á tvær gangandi konur á Kringlumýrarbraut við gönguljós við gatnamótin við Hamrahlíð síðastliðinn mánudag.

Tæplega þrjátíu börn í virku eftirliti
Tæplega þrjátíu leikskólabörn eru í virku eftirliti vegna e. coli sýkingar sem kom upp á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík í vikunni. Alls liggja fjögur börn inni á spítala en tvö þeirra eru enn á gjörgæslu. Þetta staðfestir Andri Ólafsson, samskiptastjóri Landspítalans.

Gerir engar kröfur um ráðherrastól
Dagur B. Eggertsson kveðst spenntur fyrir komandi kosningabaráttu og vilja vera þingmaður fyrir alla landsmenn, fái hann þingsæti. Hann segir uppi mikla kröfu um nýja ríkisstjórn en gerir engar kröfur um ráðherrasæti myndi Samfylking nýja ríkisstjórn.

Gerði ekki kröfu um oddvitasæti og fær annað sætið
Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, gaf kost á sér í annað sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður í komandi kosningum. Hann taldi rétt að sækjast eftir því í stað oddvitasætis í ljósi þess að hann er að hefja nýjan kafla í stjórnmálaþátttöku sinni.

„Hættan af þessum mönnum var þekkt”
Afstaða, félag fanga, segir samtökin hafa ítrekað varað við því úrræðileysi sem tæki við manni sem nýlega losnaði úr fangelsi og er nú grunaður um að hafa myrt móður sína. Hættan hafi verið vel þekkt en ekkert gert til að koma í veg fyrir hana.

Hlaut dóm fyrir að ráðast á móðurina tveimur árum fyrir andlátið
Karlmaður á fertugsaldri sem er í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á andláti móður hans hlaut dóm fyrir tveimur árum vegna ofbeldis í garð móðurinnar. Samkvæmt heimildum fréttastofu fór hann úr fangelsi í haust, en þá hafði hann lokið afplánun. Hann hafði setið inni í fangelsi allan afplánunartímann.

Árásarmaðurinn á Dubliner fær ekki áheyrn í Hæstarétti
Tíu ára fangelsisdómur Fannars Daníels Guðmundssonar vegna skotárásar, frelsissviptingar og nauðgunar stendur. Hæstiréttur hefur hafnað málskotsbeiðni Fannars.

Geir Örn lést á Stuðlum
Geir Örn Jacobsen lést í eldsvoðanum á meðferðarheimilinu Stuðlum aðfaranótt laugardags í síðustu viku. Hann var sautján ára. Tveimur dögum áður en hann lést spurði hann í viðtali á Stöð 2 hvers vegna ætti ekki að bjarga börnunum á Stuðlum.

Loka Fjölskyldulandi í næstu viku
Innileikvellinum Fjölskyldulandi verður lokað í næstu viku. Innan við tvö ár eru frá því að leikvöllurinn var opnaður í Dugguvogi. Fjölskylduland er fyrir fjölskyldur með börn á leikskólaaldri og í fyrsta bekk í grunnskóla. Haldin hafa verið námskeið þar fyrir börn auk þess sem leikvöllurinn var opinn fólki gegn gjaldi.

Sonurinn áður stungið föður sinn í bakið
Karlmaður á fertugsaldri sem var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á andláti móður á sögu um ofbeldi í garð foreldra sinna. Hann var ákærður fyrir tilraun til manndráps fyrir að stinga föður sinn í bakið árið 2006 en var sýknaður vegna ósakhæfis.

Starfsfólk Mánagarðs í áfalli
Tvö börn af leikskólanum Mánagarði í Reykjavík eru á gjörgæslu vegna E. coli-sýkingar. Leikskólastjórinn segir alla starfsmenn skólans vera í áfalli vegna málsins.

Opið bréf til borgarstjórnar vegna málefna í Grafarvogi
Ágæta borgarstjórn. Ég vil minna ykkur á þá staðreynd sem rannsóknir hafa sýnt fram á, að andleg vellíðan er í beinu sambandi við aðgengi að náttúrunni. Á meðan geðheilbrigðismál eru mikið í umræðunni þessa dagana dúkkar upp hver embættismaðurinn á fætur öðrum og lýsir því yfir að það þurfi að bæta um betur.

Opið bréf til foreldra í Drafnarsteini
Kæru foreldrar. Svona byrja ég alla pósta til ykkar. Það eru ekki einungis innantóm orð, heldur eruð þið mér sannarlega kær. Samskipti okkar í skólanum eru mér afar mikilvæg og ég er mjög stolt af ykkur sem hóp og hve samfélagið okkar er fallegt.

Tveimur deildum á leikskóla í Hveragerði lokað vegna E.coli smits
Tvær deildir á leikskólanum Óskalandi í Hveragerði verða lokaðar á morgun eftir að barn á leikskólanum greindist með E.coli í dag. Fjallað er um málið á vef RÚV en þar kemur fram að barnið var í leikskólanum Mánagarði en hóf aðlögun í Óskalandi á mánudag.

Sonur hinnar látnu í gæsluvarðhald
Karlmaður um fertugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 1. nóvember næstkomandi vegna rannsóknar á andláti móður hans, konu á sjötugsaldri, sem fannst látin í íbúð fjölbýlishúss í Breiðholti í nótt.

Nú 27 börn veik vegna e.coli sýkingarinnar
Alls eru nú 27 börn á leikskólanum Mánagarði veik vegna e. coli sýkingar sem kom upp á leikskólanum. Af þeim eru fjögur inniliggjandi. Tvö þeirra sem eru inniliggjandi eru á gjörgæslu og þurfa bæði að öllum líkindum að fara í nýrnaskilun. Þetta staðfestir Andri Ólafsson samskiptastjóri Landspítalans.

Veikindi á fimm af sjö deildum leikskólans
Sóttvarnalæknir segir rannsókn á uppruna E.coli sýkingar á leikskólanum Mánagarði í fullum gangi og þar séu matvæli helst til skoðunar. Tvö börn liggja á gjörgæslu vegna veikindanna og fara að líkindum í nýrnaskilun.

Vopnaðir lögreglumenn og lokaðar götur í næstu viku
Umfangsmiklar götulokanir verða í Reykjavík í næstu viku, vegna þings Norðurlandaráðs, auk þess sem vopnaðir lögreglumenn munu sinna öryggisgæslu. Verulegar takmarkanir verða einnig á umferð um Þingvelli á mánudag.

Fjölgar í hópi alvarlega veikra barna
Af sjö börnum úr leikskólanum Mánagarði sem liggja inni á Barnaspítala Hringsins með staðfesta E.coli-sýkingu eru tvö alvarlega veik. Tíu eru með staðfesta sýkingu.

Með andlát konu á sjötugsaldri til rannsóknar
Einn hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á andláti konu á sjötugsaldri.

Öryggisverðir Kringlunnar með búkmyndavél
Öryggisverðir í Kringlunni bera nú búkmyndavél á meðan þeir sinna störfum sínum. Markmiðið er sagt vera að auka öryggi öryggisvarða, starfsmanna og viðskiptavina.

Ein meiriháttar og önnur minniháttar líkamsárás
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eða nótt vegna meiriháttar líkamsárásar í póstnúmerinu 109. Einn var handtekinn.

„Algjörlega óforsvaranlegt að borgarstjóri skuli gera lítið úr okkur”
Íbúar í Grafarvogi segja ummæli borgarstjóri í Bítinu á Bylgjunni í morgun hvorki honum né meirihluta borgarstjórnar til sóma. Einar Þorsteinsson borgarstjóri ræddi í Bítinu áform um uppbyggingu í Grafarvogi en íbúar eru margir afar óánægðir.

Meirihluti starfsfólks leikskólans í vinnu í verkfallinu
Þeim fjórum leikskólum þar sem boðað hefur verið til verkfalla í næstu viku verður lokað á meðan verkföllunum stendur. Af 38 starfsmönnum á leikskólanum Drafnarsteini fara 15 í verkfall og verða því 23 enn í vinnu. Þau mega ekki ganga í störf kennara á meðan verkfalli stendur.

Umræða um „ofurþéttingu“ sé leidd af Diljá og Guðlaugi Þór
Mikil óánægja er meðal íbúa Grafarvogs vegna áforma um uppbyggingu og meints samskiptaleysis borgarstjóra. Formaður íbúasamtaka Grafarvogs segir suma íbúa vilja láta kanna klofning frá Reykjavíkurborg. Borgarstjóri segir aldrei hafa verið farið í jafn ítarlegt samráð við íbúa og umræðan í Grafarvogi sé leidd af kjörnum fulltrúum Sjálfstæðisflokksins.

Eitt barnanna alvarlega veikt og óvissa fram yfir helgi
Eitt barn er alvarlega veikt eftir að E.coli sýking kom upp á leikskólanum Mánagarði, en tólf hafa leitað á spítala vegna hennar. Læknir á Barnaspítala Hringsins segir óvissuástand uppi um umfang smitsins, sem muni líklega vara fram yfir helgi. Óráðlegt sé að gefa börnum sýklalyf við þessar aðstæður, og mikilvægast að tryggja að þau fái nægan vökva.

Djúpir litatónar og sjarmi við Laugardalinn
Við Sporðagrunn í Reykjavík stendur reisulegt einbýlishús frá árinu 1961 sem hefur fengið sjarmerandi endurbætur. Húsið er á tveimur hæðum og telur 270 fermetra.

Greina matinn sem börnin á Mánagarði borðuðu
Mikil vinna stendur yfir hjá Matvælastofnun, embætti sóttvarnalæknis og heilbrigðiseftirlitinu við að leita að uppruna sýkingar sem leitt hefur til veikinda barna á leikskólanum Mánagarði. Þó nokkur börn hafa verið lögð inn á Landspítalann. Sterkar vísbendingar eru um orsök smitsins. Leikskólastjóri lítur málið alvarlegum augum en fyrsta barnið greindist síðdegis í gær.

Isavia sækir um leyfi til að færa flugvallargirðingu
Isavia undirbýr núna afhendingu flugvallarlands í Skerjafirði til Reykjavíkurborgar með færslu flugvallargirðingar í samræmi við tilmæli Svandísar Svavarsdóttur, þáverandi innviðaráðherra, frá því í síðasta mánuði.