
Suðurnesjabær

Hækkaði launin sín og lét fyrirtækið borga fyrir skilnaðinn
Alessandro Era, Ítali sem kom að stofnun gæludýrafóðursverksmiðju hér á landi, hefur verið dæmdur til að greiða félagi á fimmta tug milljóna. Hann hækkaði til að mynda eigin laun um hálfa milljón á mánuði án heimildar og lét félagið greiða lögmannskostnað vegna eigin hjónaskilnaðar.

Leigubílstjórar fá ekki árskort og kostnaður gæti margfaldast
Isavia hefur gert breytingar á gjaldheimtu á leigubílastæðinu við Leifsstöð. Stakt gjald fyrir innakstur á stæðið helst óbreytt en árskort standa ekki lengur til boða. Ljóst er að kostnaður leigubílstjóra sem vinna mikið við að aka fólki til og frá Keflavíkurflugvelli gæti margfaldast.

Hjón létust á Grindavíkurvegi
Fólkið sem lést í umferðarslysi á Grindavíkurvegi hét Frímann Grímsson og Margrét Á. Hrafnsdóttir. Þau voru hjón og láta eftir sig tvö uppkomin börn, tengdabörn og barnabörn.

Fjölskylduvænt samfélag
Þann 13. desember sl. var samþykkt á bæjarstjórnarfundi Suðurnesjabæjar fjárhagsáætlun fyrir árið 2024. Sjá má skýrt að áhersla er lögð á stuðning við barnafjölskyldur og er það í samræmi við þau markmið sem Framsókn hefur lagt upp með frá kosningum.

Einn í biluðum báti og björgunarsveitin á leiðinni
Viðbragðsaðilar hafa verið kallaðir út frá Garði, Sandgerði, og Reykjanesbæ vegna lítils báts sem er úti við Garðskagavita. Í bátnum er einn maður um borð.

Harma að ekki hafi fundist staður fyrir brennu
Ferða-, safna- og menningarráð Suðurnesjarbæjar harmar þá erfiðleika sem komið hafa upp við að finna áramótabrennu staðsetningu í Sandgerði sem uppfylli skilyrði fyrir slíkar brennur. Framtíðarfyrirkomulag verði skoðað betur að ári en í ár fái íbúar kyndla í boði bæjarins.

Spá fjölgun farþega og ferðamanna á næsta ári
Tæplega 8,5 milljónir farþega munu ferðast um Keflavíkurflugvöll á næsta ári samkvæmt farþegaspá flugvallarins fyrir árið 2024. Frá því er greint í tilkynningu. Farþegar hafa aðeins tvisvar verið fleiri. Þá er einnig gert ráð fyrir fjölgun ferðamanna og að fjöldinn verði meiri en þegar hann var mestur árið 2018.

Íbúar Suðurnesja léttir en þreyttir
Hljóðið í íbúum Suðurnesja sem fréttastofa náði tali af í dag var ágætt, þrátt fyrir að margir hafi verið þreyttir eftir að hafa fylgst með fréttum af eldgosi nánast í bakgarðinum fram eftir nóttu.

Skemmdarverk á golfvellinum í Sandgerði
Skemmdarverk voru unnin á golfvellinum í Sandgerði. Svo virðist sem að bíl hafi verið ekið þves og kruss yfir golfvöllinn og rifið upp talsvert af grasinu.

Rafmagni sló út í öllum Suðurnesjabæ
Rafmagni sló út í öllum Suðurnesjabæ um klukkan 07:30 í morgun. Rafmagn er nú komið á aftur.

Nafn mannsins sem lést í Reykjanesbæ
Maðurinn sem lést í vinnuslysi í Reykjanesbæ síðastliðinn fimmtudag hét Ólafur P. Hermannsson.

ChangeGroup leysir Arion banka af hólmi
Alþjóðlega fyrirtækið ChangeGroup átti hagkvæmasta tilboðið í samkeppni um fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli og snýr því aftur í flugstöðina í byrjun febrúar 2024. Fyrirtækið verður með tvær gjaldeyrisskiptastöðvar á flugvellinum, eitt rými fyrir endurgreiðslu virðisaukaskatts og gjaldeyrishraðbanka víða um flugstöðina eftir þörfum.

Samþykkja frumvarp um vernd innviða
Alþingi samþykkti skömmu fyrir miðnætti frumvarp forsætisráðherra um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga. Greiddu 57 þingmenn atkvæði með frumvarpinu.

Ekkert skutl upp að dyrum í Keflavík í næstu viku
Ekki verður hægt að keyra flugfarþega á leið úr landi um svokallaða brottfararrennu fyrir utan Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli í næstu viku. Framkvæmdir munu þar hefjast á mánudag, 6. nóvember, og er reiknað með að þær standi fram á sunnudaginn 12. nóvember.

Bergný og Elín ráðnar til Kadeco
Kadeco hefur ráðið til starfa þær Bergnýju Jónu Sævarsdóttur og Elínu R. Guðnadóttur. Bergný er nýr sjálfbærnistjóri Kadeco og Elín nýr yfirverkefnastjóri.

Tólf sóttu um embætti forstjóra HSS
Sveitarstjóri, núverandi starfsmenn og aðrir sérfræðingar eru meðal umsækjenda um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar HSS. Skipað verður í embættið í mars á næsta ári, til fimm ára. Fráfarandi forstjóri sækir ekki um starfið og hefur stefnt ríkinu og heilbrigðisráðherra.

Mikill kraftur og sókn í Suðurnesjabæ
Suðurnesjabær er ört vaxandi sveitarfélag á Suðurnesjum og íbúum fjölgar jafnt og þétt. Samkvæmt upplýsingum þjóðskrár er íbúafjöldi í Suðurnesjabæ kominn yfir 4.000, nánar tiltekið í alls 4.046. Þegar Suðurnesjabær varð til við sameiningu Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Garðs fyrir fimm árum var íbúafjöldinn um 3.400.

Fór heim í löngu frímínútum að sniffa lím
Bogi Jónsson frumkvöðull og þúsundþjalasmiður sniffaði lím daglega í tvö ár sem unglingur og segist stálheppinn að hafa komist lífs af úr neyslunni. Bogi, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar segir í þættinum sögu sína, meðal annars ótrúlegt tímabil á unglingsárunum þar sem hann sniffaði lím daglega.

Skútumaður kemur af fjöllum varðandi 157 kíló af hassi
Danskur karlmaður sem var handtekinn um borð í skútu við Garðskagavita í júní með 157 kíló af hassi segist ekki hafa haft hugmynd um að fíkniefni væru um borð. Hann man ekki hver millifærði á hann peningum til að kaupa skútuna og segist einfaldlega hafa farið í bátsferð til gamans.

Sameining sveitarfélaga á endanum ákvörðun íbúa
Sveitarfélagið Vogar útilokar ekki mögulega sameiningu við neinn að sögn bæjarstjóra. Nágrannasveitarfélögunum á Suðurnesjum verði sent formlegt erindi á næstu dögum um samtal en of snemmt sé að spá fyrir um það hvort samtalið muni leiða til breytinga.

Vogar vilja ræða sameiningu og hin sveitarfélögin jákvæð
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga samþykkti á fundi sínum á miðvikudag að hefja samtal við nágrannasveitarfélög til að ræða mögulega sameiningarkosti. Bæjarstjórar Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar hafa tekið vel í frumkvæði Vogamanna.

Staða sem íbúar Suðurnesjabæjar geti ekki sætt sig við
Formaður bæjarráðs Suðurnesjabæjar segir íbúa ekki geta beðið lengur eftir heilbrigðisþjónustu í heimabyggð. Um tíu kílómetra fjarlægð er í næstu heilsugæslu og að erfitt geti verið að komast þangað um hávetur. Einnig er kallað eftir aukinni þjónustu við aldraða.

Eitt sveitarfélag á Suðurnesjum skilið eftir í heilbrigðismálum
Suðurnesjabær er ört vaxandi sveitarfélag á suðurnesjum og íbúum fjölgar jafnt og þétt. Samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár er íbúafjöldi í Suðurnesjabæ kominn yfir 4.000, nánar tiltekið alls 4.011 nú í byrjun þessarar viku.

Örtröð í Leifsstöð vegna undirmönnunar
Miklar biðraðir mynduðust í Leifsstöð í morgun vegna tímabundinnar undirmönnunar. Röð í öryggisleit náði alla leið niður í komusal.

„Það hefði mátt koma í veg fyrir þetta“
Claudia Gockel býr á Nýlendu í Suðurnesjabæ, ekki langt fyrir utan Sandgerði. Mikill sjógangur var á svæðinu í gær og flæddi yfir sjóvarnargarða. Fór sem svo að sjór umlykti hús Claudiu og þurfti hún að vaða upp að hnjám til að komast út.

Töldu í fyrstu að kona væri í húsinu
Björgunarsveitir á Suðurnjesjum voru kallaðar út í gærkvöldi þegar varnargarður brast og sjór umlukkti íbúðarhús. Í fyrstu var talið að kona væri föst í húsinu en svo reyndist ekki vera.

Golfvöllurinn á kafi og manni bjargað úr húsi í Sandgerði
Björgunarsveitir á Suðurnesjum komu manni til bjargar eftir að sjór flæddi yfir sjóvarnargarða í Sandgerði. Sjórinn umlukti hús hans en það er sömuleiðis allt á floti á golfvelli bæjarins.

Góð stemning í Leifsstöð þegar ný töskufæribönd voru tekin í notkun
Nýr og rúmbetri töskusalur beið farþega sem lentu á Keflavíkurflugvelli upp úr hádegi í dag. Töskusalurinn er fyrsti áfanginn sem tekinn er í notkun í nýrri austurálmu flugstöðvarinnar.

Veitingastaðnum El Faro lokað
Eigendur veitingastaðarins El Faro, sem staðsettur er við Lighthouse Inn, nærri Garðskagavita í Garði á Suðurnesjum, hafa ákveðið að loka staðnum í næsta mánuði.

Íbúar Reykjaness geti gert ráð fyrir stærri skjálftum næstu árin
Jarðskjálfti sem varð seint í gærkvöldi á Reykjanesskaga var sá stærsti á svæðinu frá goslokum. Náttúruvársérfræðingur segir íbúa svæðisins geta gert ráð fyrir stærri skjálftum inn á milli næstu árin.