
Bítið

Vill breyta lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti
Þingflokksformaður Viðreisnar undirbýr nú tillögu að breytingu á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverkastarfsemi. Hún segir Ísland hafa gengið of langt í aðgerðunum og þær hafi oft áhrif á fólk, sem ætti ekki að vera á lista yfir fólk með stjórnmálaleg tengsl.

Byggð verið skipulögð án þess að huga að náttúruvá
Eldfjallafræðingur segir ekki hafa verið hugað nógu vel að náttúruvá þegar byggð og innviðir hafi verið byggð upp á undanförnum áratugum. Huga þurfi að vörnum áður en til neyðarástands komi.

„Leiðinlegasti maður Íslandssögunnar“ unir sér vel
Árni Guðmundsson, forvarnarsérfræðingur, segist ánægður með að hafa verið uppnefndur leiðinlegasti maður Íslandssögunnar í kjölfar þess að hafa kært eigin áfengiskaup til lögreglu.

Vill að ríkið kaupi íbúa Grindavíkur út
Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og íbúi í Grindavík, segir það allt of mikla svartsýnisspá að ekki verði búið aftur í Grindavík næstu árin eða áratugi. Það sé fullur hugur í eigendum fyrirtækja að halda starfsemi áfram, sem sé forsenda þess að hægt sé að byggja bæinn upp á nú. Hins vegar sé nauðsynlegt að grípa þá íbúa sem ekki geti hugsað sér að snúa til baka.

Jákvætt að sjá að varnargarðarnir virki
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir jákvætt að sjá að varnargarðarnir, sem byrjað var að reisa fyrir norðan Grindavík í byrjun mánaðar, hafi virkað og haldið mestöllu hrauninu frá bænum.

„Skattayfirvöld eru að mjólka okkur til blóðs“
Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins sem staðsett er á Bíldudal, segir skattayfirvöld mjólka fyrirtækið til blóðs. Skatturinn fari fram á hærri skatt en sem nemur hagnaði fyrirtækisins og segir Halldór írska fjárfesta þess steinhissa. Málið verður rekið fyrir dómstólum.

Gjaldskrárhækkanir hafi numið tugum og jafnvel hundruðum prósenta
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir vel hægt að komast hjá gjaldskrárhækkunum sem tóku gildi hjá borginni nú um áramót. Standa þurfi öðruvísi að rekstrinum svo fjölskyldur súpi ekki seyðið af hækkunum.

Segir „forkastanlegt“ að Sigurður Ingi virðist koma af fjöllum
„Að mínu mati er þetta bara forkastanlegt; að Sigurður Ingi virðist koma af fjöllum,“ segir Grindvíkingurinn Hilmar Gunnarsson um viðbrögð innviðaráðherra við viðtali við Gunnar í Bítínu á Bylgjunni í síðustu viku, þar sem hann sagði hluta Grindvíkinga á leið í þrot.

Enginn til aðstoðar Grindvíkingum sem komnir séu í þrot
Hilmar Gunnarsson, íbúi í Grindavík, segir marga Grindvíkinga komna í algjört þrot vegna reikninga. Sjálfur á hann skemmt hús en þarf samt að greiða af lánum, hita, rafmagn og fasteignagjöld.

Tekur undir með Ármanni: „Skynsamlegt að skoða fyrirbyggjandi aðgerðir“
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur tekur undir með kollega sínum Ármanni Höskuldssyni að byggja eigi upp eldgosavarnir við Hafnarfjörð. Hann kallar eftir því að gert verði nýtt og umfangsmikið hættumat fyrir stór-höfuðborgarsvæðið.

Jón segir ríkisstjórnina komna á endastöð
Helsti stjórnarandstæðingurinn á þingi núna kemur úr röðum stjórnarþingmanna. Jón Gunnarsson, fyrrverandi dómsmálaráðherra, er fulltrúi hundóánægðra þingmanna sem telja fráleitt að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tali um að nú þurfi að gera orkustefnu til framtíðar.

Sennilega spurning um tíma frekar en hvort
Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir stöðuna við Svartsengi vera óbreytta þar sem land hefur haldið áfram að rísa sem sé merki um að verið sé að safna í nýtt kvikuhlaup eða að nýtt gos sé yfirvofandi. „Það er því sennilega spurning um tíma frekar en hvort.“

Yrði líklega aflminna en gæti varað lengur
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir að landrisið hafi haldið áfram við Svartsengi og sé nú á svipað statt og það var fyrir 18. desember þegar síðast byrjaði að gjósa.

Vildi breyta til um jólin eftir andlát mömmu
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, segir fjölskylduna sína hafa viljað breyta til um jólin eftir andlát mömmu hennar.

„Getum ekki verið alls staðar í borginni á sama tíma“
Skrifstofustjóri skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg segir sorphirðumenn í borginni ekki geta verið alls staðar á sama tíma. Vinnudagar séu lengdir í kringum hátíðir til að flýta sorphirðu.

„Get ekki látið ykkur Íslendinga skrifa allskonar bull um mig“
Leoncie vinnur nú að nýrri ævisögu. Hún vill segja sögu sína sjálf. Hún er tónlistakona og skemmtikraftur og segist hafa nóg að gera.

Bíða betra veðurs til að geta kortlagt hraunið
Eldgosið á Reykjanesskaga hefur minnkað mjög frá því sem það var í upphafi á mánudagskvöld. Jarðeðlisfræðingur segir það farið að líkjast þeim eldgosum sem hafa orðið á Reykjanesskaga á síðustu árum.

Alls ekkert túristagos
Eldgosið norður af Grindavík er alls ekkert túristagos að sögn samskiptastjóra almannavarna. Eins og er stefnir hraunið ekki í átt að Grindavík en mögulega gæti það runnið yfir Grindavíkurveg.

Gætum allt eins gefið einkunn fyrir fituprósentu
Aron Gauti Laxdal, dósent í íþróttafræði við háskólann í Agder í Noregi, hefur áhyggjur af stöðu íþróttakennslu á Íslandi. Hann segir námið ekki kenna börnum hvernig best sé að hugsa um heilsuna og njóta þess að hreyfa sig.

Segir bók Þorvaldar rugl frá upphafi til enda
Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, mætti í Bítið í morgun til að ræða bók Þorvaldar Logasonar Eimreiðarelítuna – spillingarsögu. Jón Steinar sagði ekki eitt einasta atriði sem þar er um sig skrifað, í bók ef bók skyldi kalla, halda vatni.

Blönk í bænum með uppblásið sófasett í stofunni
Birgitta Haukdal, söngkona, rithöfundur og sjónvarpsstjarna, segist ekki hafa átt krónu þegar hún flutti átján ára gömul til Reykjavíkur til þess að elta drauminn um að verða söngkona. Hún átti engin húsgögn og lét uppblásið sófasett duga til að byrja með.

Býður mökum barna sinna að greiða þjónustugjald
Félagsráðgjafi segir það algengt að foreldrum líki ekki við tengdabörn sín. Hann segist sjálfur setja reglur á eigin heimili og býður mökum barna sinna að greiða þjónustugjald eða taka þátt í heimilisstörfum.

Skoða að sækja bætur til Isavia vegna verkfallsaðgerðanna
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að félagið muni skoða það hvort það geti sótt bætur til Isavia vegna verkfalls flugumferðarstjóra.

Segir ríkisstjórnina standa á brauðfótum
Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins var afar opinskár í Bítinu í morgun. Þar sagði hann brýn verkefni framundan og hann treysti einfaldlega ekki ríkisstjórninni til að koma þeim í hús.

„Erum í umtalsverðum breytingum á menntakerfinu“
Ásmundur Einar Daðason, mennta-og barnamálaráðherra, segir niðurstöður PISA könnunarinnar krefja stjórnvöld um að rýna í það sem verið sé að gera í menntamálum. Í undirbúningi séu töluverðar breytingar, meðal annars nýtt matskerfi.

Útilokar ekki að leita réttar síns: „Hafna því alfarið að hafa beitt eða hvatt til ofbeldis“
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segist ekki átta sig á hvers vegna forsvarsmenn Gildis lífeyrissjóðs hafi kvartað formlega undan framgöngu hans í mótmælum gagnvart stjórnendum og starfsmönnum lífeyrissjóðsins. Hann útilokar ekki að leita réttar síns vegna málsins.

Höfðu ekki orku í að halda áfram fyrr en í upphafi árs
Þingkona Flokks fólksins og eiginmaður hennar hafa stefnt sýslumanninum vegna fyrndra vaxta sem þau þurftu að greiða í tengslum við uppboð á heimili þeirra árið 2017. Málið á uppruna sinn að rekja til Hrunsins árið 2008. Ásthildur Lóa segir málið mikið réttlætismál og að sýslumaður hafi brotið á jafnræði. Það hafi ekki allir greitt þessa fyrndu vexti.

Komu Heimi á óvart í beinni í Bítinu
Heimi Hallgrímssyni, landsliðsþjálfara karlaliðs Jamaíka í fótbolta, var komið skemmtilega á óvart í beinni útsendingu í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem að hann var til viðtals frá Vestmannaeyjum. Umsjónarmenn Bítisins brustu í söng, Heimi til heiðurs, í upphafi viðtalsins.

Spyr hvort atlot séra Friðriks hafi verið eins og atlot ættingja
Formaður Miðflokksins segist hafa miklar áhyggjur af framgöngu almennings við séra Friðrik Friðriksson heitinn, en til stendur að taka niður styttu af honum sem stendur við Lækjargötu. Hann veltir fyrir sér hvort atlot séra Friðriks, við unga drengi, hafi verið sama eðlis og atlot ættingja við börn sem þeim þykir vænt um.

Allar líkur á að eitthvað finnist sem hefði aldrei valdið skaða
Læknar hafa töluverðar áhyggjur af nýrri rannsókn sem farið er að bjóða upp á, sem felur í sér segulómun alls líkamans. Þeir segja rangnefni að kalla rannsóknina „skimun“ og segja hana ekki munu gagnast þeim sem markaðssetningunni er miðað að.