
Danski boltinn

Aron Elís og félagar komu til baka og sóttu stig
Aron Elís Þrándarson var í byrjunarliði OB sem tók á móti Brøndby í dönsku deildinni í knattspyrnu. Lokatölur 2-2, en Aron Elís og félagar voru 2-0 undir þegar flautað var til hálfleiks.

Elías hélt hreinu í sínum fyrsta leik er Midtjylland vann Íslendingaslaginn
Elías Rafn Ólafsson spilaði sinn fyrsta leik fyrir Midtjylland er liðið vann Silkeborg 3-0 í Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Segir tíma sinn hjá Esbjerg lyginni líkastan og að þjálfarateymið hafi ekki gert neitt rangt
Fyrrum styrktarþjálfari Íslendingaliðs Esbjerg segir tíma sinn hjá félaginu vera lyginni líkastan. Hann telur leikmenn hafa snúist gegn Peter Hyballa, þáverandi þjálfara, vegna eigin hagsmuna og ekkert til í ásökunum þeirra.

Mikið fjör í stúkunni og inn í klefa þegar sigurganga strákanna hans Freys hélt áfram
Freyr Alexandersson er að gera frábæra hluti með danska liðið Lyngby BK sem situr á toppi deildarinnar með fullt hús eftir 4-2 sigur í dönsku b-deildinni í gær.

Sævar Atli skoraði sitt fyrsta mark í enn einum sigri Lyngby
Lyngby vann 4-2 sigur á Fremad Amager í dönsku B-deildinni í fótbolta. Freyr Alexandersson stýrir liðinu en hann á enn eftir að tapa stigi við stjórnvölin.

Jón Dagur og félagar enn í leit að fyrsta sigrinum
Jón Dagur Þorsteinsson og félagar í AGF hafa ekki byrjað vel í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Jafnt í Íslendingaslag
Boðið var upp á Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag þegar OB fékk Silkeborg í heimsókn.

Barbára Sól lagði upp í sigri Brøndby
Barbára Sól Gísladóttir landsliðskona í knattspyrnu var í byrjunarliði Brøndby þegar liðið heimsótti Aalborg í þriðju umferð dönsku deildarinnar í dag.

Sævar Atli með stoðsendingar í enn einum sigrinum hjá Frey og Lyngby
Freyr Alexanderson og lærisveinar hans í Lyngby fögnuðu enn einum sigrinum í dönsku fyrstu deildinni rétt í þessu. Sævar Atli Magnússon lagði upp tvö mörk.

Mikael Anderson spilaði sinn fyrsta leik eftir að hafa fengið veiruna
Íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Anderson kom inn á sem varamaður í 2-0 útisigri Midtjylland gegn SønderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Mikael var að spila sinn fyrsta leik í tæpan mánuð eftir að hann greindist með kórónaveiruna.

Tap fyrir meisturunum í fyrsta byrjunarliðsleik Barbáru
Íslenska landsliðskonan Barbára Sól Gísladóttir var í fyrsta sinn í byrjunarliði Bröndby í Danmörku er liðið tapaði 2-0 fyrir ríkjandi meisturum HB Köge á útivelli í 2. umferð dönsku deildarinnar í kvöld.

Harðstjórinn hættur eftir aðeins sjö vikur hjá Íslendingaliði Esbjerg
Hinn þýski Peter Hyballa hefur látið af störfum sem þjálfari danska knattspyrnuliðsins Esbjerg. Hann tók við eftir að Ólafur Kristjánsson var látinn fara en entist aðeins sjö vikur.

Mikkelsen ekki lengi að finna sér nýtt lið
Framherjinn Thomas Mikkelsen var ekki lengi að finna sér lið í heimalandinu eftir að hafa yfirgefið Breiðablik á dögunum. C-deildarlið Kolding staðfesti komu Mikkelsen nú árla morguns.

Viðar Ari á skotskónum í Noregi
Viðar Ari Jónsson skoraði eina mark Sandefjord þegar liðið mætti Lilleström í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Aron á leið til Danmerkur
Aron Sigurðarson er á leið frá belgíska liðinu Union SG til Horsens í Danmörku. Aron hefur verið í eitt og hálft ár hjá belgíska liðinu.

Lærisveinar Freys með fullt hús eftir stórsigur á Esbjerg
Sigurganga Freys Alexanderssonar sem stjóri Lyngby hélt áfram í dag er liðið vann sannfærandi 5-0 sigur á Esbjerg í Íslendingaslag. Vandræði á Esbjerg utan vallar virðast fylgja því innan vallar.

Midtjylland vann góðan sigur án Mikaels
Mikael Anderson er enn fjarri góðu gamni eftir kórónuveirusmit og var ekki í leikmannahópi Midtjylland sem vann 4-1 sigur á Vejle í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Sterkur sigur Stefáns og félaga í Silkeborg
Silkeborg vann 4-1 sigur á Viborg í fyrsta leik fjórðu umferð úrvalsdeildar karla í fótbolta í Danmörku. Stefán Teitur Þórðarson var í byrjunarliði Silkeborgara.

Ísak Óli og félagar áfram í danska bikarnum eftir stórsigur
Ísak Óli Ólafsson og félagar hans í Esbjerg áttu ekki í neinum vandræðum þegar að liðið heimsótti Bolbro í danska bikarnum í dag. Lokatölur 5-1 sigur Esbjerg.

Sævar Atli: Ég kem með orku og kraft
Sævar Atli Magnússon var strax tekinn í viðtal á Youtube síðu Lungby og vill sjá brjálaða stuðningsmenn í fyrsta leik.

Farið að gjósa íslenskum framherjum hjá Lyngby: Staðfesta Sævar Atla
Danska b-deildarfélagið hefur staðfest komu íslenska framherjans Sævars Atla Magnússonar til félagsins.

Barbára lánuð til sigursælasta liðs Danmerkur: „Alltaf verið draumurinn minn að fara út í atvinnumennsku“
Selfoss hefur lánað Barbáru Sól Gísladóttur til danska úrvalsdeildarliðsins Brøndby.

Sævar Atli sagður á leið til liðs Freys í Danmörku
Sævar Atli Magnússon, leikmaður Leiknis frá Reykjavík, er sagður vera á leið til Lyngby í Danmörku. Lyngby muni kaupa Sævar Atla frá Leikni á næstu dögum.

Jón Dagur spilaði í tapi
Jón Dagur Þorsteinsson og félagar í AGF eru án sigurs í fyrstu þremur umferðum dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

Draumabyrjun Freys í Danmörku
Lærisveinar Freys Alexanderssonar í Lyngby eru með fullt hús stiga eftir tvær umferðir í dönsku B-deildinni í fótbolta.

Þakkaði mömmu sérstaklega eftir fyrsta leikinn með aðalliði FCK
Skagamaðurinn ungi Hákon Arnar Haraldsson lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið FC København í gær. Hann þakkaði móður sinni eftir frumraunina.

Íslendingaliðin áfram - Hákon lék sinn fyrsta leik fyrir FCK
Íslendingaliðin Molde og Hammarby komust bæði áfram í Sambandsdeild Evrópu í kvöld. 18 ára Íslendingur spilaði þá sinn fyrsta leik fyrir FC Kaupmannahöfn er danska liðið fór sömuleiðis áfram í keppninni.

Mikael greindist með Covid-19
Mikael Anderson, landsliðsmaður Íslands í fótbolta, var ekki í leikmannahópi liðs síns Midtjylland er það mætti Celtic í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í gærkvöld. Danska félagið hefur tilkynnt um að það sé vegna þess að Mikael hafi smitast af kórónuveirunni.

Hádramatískur sigur í fyrsta leik Freys
Lærisveinar Freys Alexanderssonar í Lyngby unnu nauman 2-1 sigur á Nyköbing í fyrstu umferð dönsku B-deildarinnar í fótbolta í dag. Sigurmarkið kom á ögurstundu.

Frestað hjá Ísak Óla og félögum vegna þrumuveðurs
Þónokkrir Íslendingar voru í eldlínunni í Danmörku og Þýskalandi í dag. Þrumuveður setti strik í reikninginn í Esbjerg.