

Nýbirt niðurstaða könnunar ASÍ og BSRB meðal félagsmanna vekur spurningar, bæði um aðferðafræði og notagildi til ályktana. Svo virðist sem 150.000 manns hafi verið gefinn kostur á að svara spurningalista og 6 prósent, 9.000 manns, hafi svarað.
Ég hef fengið álagningarseðil fyrir fasteignagjöld ársins 2019. Gjöldin hækka umfram verðbólgu tíunda árið í röð en þjónusta sveitarfélagsins við fasteign mína er óbreytt.
Mér er sagt að fasteignamat húss míns í Reykjavík sé nú 68 milljónir króna og verði 79 á næsta ári. Er ég þá orðinn 11 milljónum ríkari? Það er óvarlegt að treysta því.
Mörgum landsmönnum blöskraði nýlega frétt um að erfingjar Nóbelsskáldsins ættu að borga himinháan skatt af áætluðu virði höfundarréttar. Það er ekki að undra því þarna fara saman tvær hæpnar skattareglur.
Algeng skilgreining á kynbundnum launamun er að hann sé prósentutala unnin upp úr launakönnun þar sem borin eru saman laun karla og kvenna.
Svíinn Hans Rosling, sem sumir kölluðu meistara tölfræðinnar, er nýlátinn. Hann var læknir að mennt og áhugamaður um tölfræði. Hann varð frægur fyrir ábendingar um afbakanir fjölmiðla á talnagögnum og hafði þannig meiri áhrif en margir fræðimenn á sviðinu.
Á Íslandi er nýafstaðin kosningabarátta þar sem metnaðarfullir stjórnmálamenn kepptust um að skuldbinda ríkið til útgjalda. Það þurfa að vera skatttekjur á móti þessum útgjöldum og ber að reyna að afla þeirra tekna með sem skynsamlegustum hætti.
Geturðu lánað mér einn pakka af kaffi til 10 ára? Ég borga örugglega aftur. Síðan er pakkinn sem var keyptur í kjörbúð afhentur. Pakkarnir í kjörbúðinni eru allir af svipaðri stærð