
Ástin og lífið

Rúrik í brúðkaupi Karius
Rúrik Gíslason, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta, var gestur í brúðkaupi fyrrverandi markvarðar Liverpool um helgina.

Fundu hvort annað hjá Val
Kristófer Acox leikmaður Vals í körfubolta og Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir leikmaður Vals í fótbolta eru nýjasta ofurpar landsins. Parið hefur svipt hulunni af sambandinu á samfélagsmiðlum.

Skoski hópdansinn endaði óvænt sem algjör hápunktur
„Það er svo lýsandi fyrir lífið í rauninni, það fer ekki endilega alltaf eins og maður heldur að það fari, en oftast rætist samt úr hlutunum og maður myndi ekki vilja hafa þá neitt öðruvísi,“ segja nýgiftu hjónin Anna Jia og Michael Wilkes, sem héldu draumabrúðkaup í Skotlandi í síðustu viku.

Tuttugu og sex pör „ganga í það óheilaga“ á einu bretti
Tuttugu og sex pör munu ganga í hjónaband á einu bretti í Ráðhúsinu í Reykjavík í dag. Veraldlega lífskoðunarfélagið Siðmennt sér um hjónavígslurnar sem eru ókeypis í tilefni alþjóðlegs dags húmanista sem fagnað er á sumarsólstöðum.

Ekki fyrir þá miklu athygli sem fylgir hjónabandinu
Bandaríski leikarinn Ben Affleck segist vera feiminn og að honum líði betur fyrir aftan myndavélina. Hann sé ekki fyrir mikla athygli, nóg sé þó búið að vera af henni síðan hann giftist Jennifer Lopez.

Allar líkur á því að eiginmaður Páls Óskars verði íslenskur ríkisborgari
Allar líkur eru á því að Edgar Antonio Lucena Angarita eiginmaður Páls Óskars Hjálmtýssonar, verði brátt íslenskur ríkisborgari. Þetta er ljóst eftir að allsherjar-og menntamálanefnd lagði til í dag að hann yrði meðal 23 sem fái íslenskt ríkisfang.

„Margoft verið haldið framhjá mér“
Maríanna Pálsdóttir eigandi Snyrtistofu Reykjavíkur segir gríðarlega mikilvægt að pör ræði eins fljótt og hægt er sín á milli um framhjáhald í upphafi sambandsins. Mikilvægt sé að gildin séu á hreinu en Maríanna segist sjálf hafa velt því fyrir sér um tíma hvort hún væri með mastersgráðu í að láta halda framhjá sér.

Kevin Costner opnar sig um slúðrið
Kevin Costner hefur opnað sig um þrálátan orðróm þess efnis að hann sé nú að hitta söngkonuna Jewel. Stutt er síðan leikarinn skildi að borði og sæng við tískuhönnuðinn Christine Baumgartner og hefur hann nokkrum sinnum sést á opinberum vettvangi með Jewel.

„Við hættum nú eiginlega ekkert saman“
Ásdís Rán Gunnarsdóttir, fyrrum forsetaframbjóðandi og fyrirsæta, og athafnamaðurinn Þórður Daníel Þórðarson eru enn saman. Ásdís segir að um misskilning hafi verið að ræða.

Stjörnubrúðkaup á Siglufirði: „Partý sem fór hálfpartinn úr böndunum“
Snorri Másson fjölmiðlamaður og Nadine Guðrún Yaghi samskiptastjóri Play giftu sig við hátíðlega athöfn á Siglufirði liðna helgi þar sem þjóðlegt þema einkenndi herlegheitin í ljósi áttatíu ára lýðveldisafmælisins. Um hundrað og fimmtíu gestir mættu í gleðskapinn. Lúðrasveit, skrúðganga og íslenski fáninn settu sterkan svip á daginn.

Stjörnulífið: Afmæli í sitthvoru lagi, 17. júní og brúðkaupsveislur
Liðin vika var með eindæmum hátíðleg. Þjóðhátíðardagur okkar Íslendinga, brúðkaup og útskriftir í blíðskaparveðri báru þar hæst. Myndir frá ferðalögum eru einnig áberandi þar sem Íslendingar virðast æstir í sleikja sólina hér á landi sem og erlendis.

Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins
Athafnakonan Inga Tinna Sigurðardóttir og handboltakempan Logi Geirsson eiga von á stúlku í ágúst.

Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par
Heiður Ósk Eggertsdóttir, förðunarfræðingur og eigandi Reykjavík Makeup School, og Davíð Rúnar Bjarnason, landsliðsþjálfari í hnefaleikum og skipuleggjandi IceBox, eru nýtt par.

Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner
Lengi lifir í gömlum glæðum. Slúðurmiðlar höfðu greint frá sambandsslitum þeirra Bad Bunny og Kendall Jenner en þau sáust á rómantísku stefnumóti í Púertó Ríkó, heimalandi Bad Bunny, fyrr í vikunni.

Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni
Leikkonan Aníta Briem og Hafþór Waldorff eiga von á sínu fyrsta barni saman. Samkvæmt heimildum fréttastofu á hún von á sér í nóvember.

Hætt við að skilja: „Framtíð okkar er best varið saman“
Kylfingurinn Rory McIlroy og eiginkona hans Erica eru hætt við að skilja eftir að hafa leyst ágreininginn sem vera að leiða til endaloka hjónabands þeirra.

„Örlögin leiddu okkur tvö alveg klárlega saman“
„Við erum sem sagt frekar klassískt nútíma par og kynnumst á Tinder í byrjun 2020,“ segir Fanney Dóra Veigarsdóttir, förðunarfræðingur og áhrifavaldur, um samband hennar og unnustans, Arons Ólafssonar rafvirkjanema. Saman eiga þau eina stúlku, Thalíu sem er þriggja ára, og von á sínu öðru barni í ágúst.

Jörundur og Magdalena eignuðust dreng: „Ég skil ekki hvað ég hef gert til að eiga hana skilið“
Leikarinn Jörundur Ragnarsson og kærastan hans Magdalena Björnsdóttir eignuðust dreng 2. maí síðastliðinn. Um er að ræða þeirra fyrsta barn saman en fyrir á Jörundur einn son, Ragnar sem fermdist í vor.

Katrín Edda og Markus opinbera kynið
Katrín Edda Þorsteinsdóttir, áhrifavaldur og verkfræðingur, og eiginmaður hennar Markus Wasserbaech eiga von á dreng. Fyrir eiga þau eina dóttur, Elísu Eyþóru sem er eins árs.

Greta Salóme og Elvar eiga von á sínu öðru barni
Hjónin Greta Salóme Stefánsdóttir tónlistarkona og Elvar Þór Karlsson eiga von á sínu öðru barni saman. Greta tilkynnti gleðitíðindin á samfélagsmiðlum.

Hækkandi sól, sumarfrí og Bríet á bossanum
Létt er yfir landanum þessa dagana þar sem sólin hefur heiðrað okkur Íslendinga með nærveru sinni. Samfélagsmiðlarnir eru skreyttir sólbrúnum kroppum, ferðalögum og öðrum herlegheitum hvort sem er innanlands eða erlendis.

„Ég hef aldrei horft á mig sem fórnarlamb“
„Þegar allt kemur til alls skiptir máli að ég sé ekki að bregðast sjálfri mér, það skiptir ekki máli hvað öðrum finnst,“ segir ofurhlauparinn Mari Järsk en hún er viðmælandi í nýjasta þætti af Einkalífinu.

Fjölgar í fjölskyldu Bjarna Ben
Margrét Bjarnadóttir, kokkur og bæjarfulltrúi í Garðabæ, og unnusti hennar Ísak Ernir Kristinsson viðskiptafræðingur, eiga von á sínu öðru barni saman. Fyrir eiga þau Bjarna Þór sem er þriggja ára.

Hjörtun stækkuðu hjá Benna Brynleifs og Evu
Benedikt Brynleifsson trommuleikari og Eva Brink fjármálastjóri eignuðust dreng 4. júní síðatliðinn. Þau segja soninn hafa stækkað hjörtu þeirra margfalt.

„Þegar ég vakna þá trúi ég því ekki að við séum saman“
„Það er ennþá þannig að þegar ég vakna þá trúi ég því ekki að við séum saman. Ég held að þetta sé sönn ást og ég vona innilega að við náum að vinna úr öllu sem verður á vegi okkar,“ segir ofurhlaupakonan og stjarnan Mari Järsk. Hún er viðmælandi í Einkalífinu þar sem hún ræðir um ástina, hlaupin, nýjasta Íslandsmeistaratitilinn, æskuna, uppeldið í SOS þorpinu, hugarfarið, ómetanlega vináttu og margt fleira.

Jón Daði og María Ósk nefndu drenginn
Jón Daði Böðvarsson knattspyrnumaður og unnusta hans María Ósk Skúladóttir viðskiptafræðingur nefndu son sinn um helgina. Drengurinn heitir Emil Atli.

Stjörnulífið: Hálsklútabyltingin, Gríman og brúðkaup í Boston
Nýliðin vika var mögulega sú stærsta hingað til og það fór ekki framhjá neinum að Íslendingar völdu sér nýjan forseta um helgina. Stuðið var mikið hjá forsetaframbjóðendum en eðli málsins samkvæmt langmest í Grósku þar sem Halla Tómasdóttir fagnaði glæsilegum sigri. Þetta var þó ekki eini viðburðurinn í vikunni, en Gríman og Sjómannadagurinn voru einnig haldin hátíðleg svo eitthvað sé nefnt.

McIlroy fékk löggu til að afhenda konu sinni skilnaðarpappírana
Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy fékk lögreglumann til að tilkynna eiginkonu sinni að hann vildi skilja við hana.

„Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“
„Það er svo skrýtin samblanda að vera glöð og hamingjusöm með börnin sín en á sama tíma vera ótrúlega þungur í sálinni,“ segir tónlistarkonan Salka Sól. Salka Sól skaust upp á stjörnuhimininn árið 2014 og fagnar nú áratugi í tónlistinni.

Hugsar vel um sig til að vera aðlaðandi fyrir Línu
Kírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason, Gummi kíró, og unnusta hans Lína Birgitta Sigurðardóttir athafnakona hafa verið nánast óaðskiljanleg frá fyrstu kynnum. Þau trúlofuðu sig í París í Frakklandi í október 2022 eftir að Gummi bað um hönd Línu í Tuileries Garden, rómantíkin uppmáluð.