Viðskipti
190 191 192 193 194 195 196 197 198 … 223 ›
Gerir tilboð í Póllandi Björgólfur Thor Björgólfsson hefur, ásamt pólsku fyrirtæki, gert tilboð í símaleyfi í Póllandi fyrir fjórða GSM-kerfið þar í landi og þriðju kynslóð flutningskerfis. Tvö önnur erlend fyrirtæki gera tilboð í leyfið og er stefnt að því að velja tilboðsgjafann 9. maí næstkomandi. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:03
Hóparnir útiloka ekki samstarf Á fjórða þúsund einstaklingar hafa skráð sig fyrir á áttunda milljarð króna til kaupa á hlutabréfum í Símanum hjá tveimur hópum. Hóparnir tveir útiloka ekki samstarf. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:03
Hagnaður aukist um 78% Greiningardeild Landsbankans gerir ráð fyrir því að hagnaður sextán félaga í Kauphöll Íslands nemi samtals 31,2 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi og aukist um 78% frá því í fyrra. Þetta er gífurleg aukning á milli ára, eða um 13,7 milljarða króna, en að langmestu leyti er það tilkomið vegna mikillar hagnaðaraukningar hjá KB banka. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:03
Baugur tilbúinn að selja Baugur er tilbúinn að selja hlut sinn í stórverslanakeðjunni Iceland, takist þeim að festa kaup á Somerfield. Breska blaðið Financial Times greinir frá þessu. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:03
Níunda besta viðskiptaumhverfið Ísland er samkeppnishæfasta land Evrópu og í 9.-10. sæti á lista yfir þau lönd þar sem viðskiptaumhverfið er best í heiminum. Hér er til dæmis mjög auðvelt að stofna fyrirtæki og hagvöxtur er mikill. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:03
Síminn: 7-8 milljarðar komnir Þúsundir einstaklinga hafa skráð sig fyrir 7-8 milljörðum króna til kaupa á hlutabréfum í Símanum hjá tveimur hópum. Ingvar Guðmundsson, forsvarsmaður söfnunarinnar á bókhaldssíðunni logiledger, segir vel koma til greina að sameinast hópi Agnesar Bragadóttur þegar fram líða stundir. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:03
Olíuverð lækkar enn Olíuverð lækkaði enn í dag og fór í rétt rúma 50 dali á tunnuna. Hefur verðið ekki verið lægra í sjö vikur en það náði sögulegu hámarki í síðustu viku þegar það fór yfir 58 dali á tunnuna. Viðskipti erlent 13.10.2005 19:03
Síminn: Hátt í 4000 hafa skráð sig Á fjórða þúsund einstaklingar hafa skráð sig fyrir meira en tveimur milljörðum króna til kaupa á hlutabréfum í Símanum hjá tveimur hópum. Forsvarsmaður söfnunarinnar á bókhaldssíðunni logiledger segir vel koma til greina að sameinast hópi Agnesar Bragadóttur. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:03
Íslendingar eyði ekki um efni fram Krítarkortaeyðsla Íslendinga í útlöndum hefur aukist um 33 prósent á einu ári. Ingólfur Bender, sérfræðingur hjá Íslandsbanka, telur Íslendinga ekki vera eyða langt um efni fram. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:02
Vilja ekki spá verðhjöðnun strax Gríðarmikil olíuþörf sem valdið hefur mikilli verðhækkun undanfarið virðist nú í rénun. Sérfræðingar vilja þó ekki spá verðhjöðnun strax og er jafnvel búist við að verð hækki fram á sumar vegna ferðalaga fólks yfir sumartímann. Viðskipti erlent 13.10.2005 19:02
Viðskiptaumhverfið með því besta Ísland lenti í 9. til 10. sæti af 150 ríkjum þegar samanburður var gerður á viðskiptaumhverfi í löndunum í fyrra. Þetta kom fram á hádegisfundi Verslunaráðs Íslands og viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins í dag þar sem fjallað var um skýrslu Alþjóðabankans sem kallast <em>Doing business</em>. Skýrslan var unnin í samvinnu við Verslunarráð og viðskiptaþjónustuna. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:03
Og fjarskipti gæti jafnræðis Póst- og fjarskiptastofnun úrskurðaði í gær að Og fjarskiptum bæri að gæta jafnræðis í verði á samtengigjöldum á milli eigin deilda, Símans og erlendra fjarskiptafyrirtækja. Samtengigjöld eru gjöld sem fyrirtæki greiða hvert öðru fyrir að ljúka símtölum í þeirra kerfi. Innlent 13.10.2005 19:02
Jafnvægi að nást á olíumarkaði Sprenging í olíuþörf sem valdið hefur mikilli olíuverðshækkun undanfarið virðist nú í rénun. Sérfræðingar Alþjóðaorkumálastofnunarinnar segja allt benda til þess að olíuþörfin sé nú að jafnast út eftir að hafa aukist gríðarlega undanfarin tvö ár. Viðskipti erlent 13.10.2005 19:02
Gríðarlegur áhugi á bréfum Símans Gríðarlegur áhugi virðist vera meðal almennings að kaupa Landssímann, ef marka má fyrstu viðbrögð, en loforð upp á hundruð milljóna hafa borist. Forsætisráðherra lýsir ánægju með áhuga almennings. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:03
Óákveðið hvort krafist verði bóta Síminn hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann muni kerfjast bóta vegna þess að Og fjarskipti hafa ekki gætt jafnræðis í verðlagningu gagnvart Símanum samkvæmt úrskurði Póst- og fjarskiptastofnunar. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:02
Áfram spenna á húsnæðismarkaði Spennan á húsnæðismarkaði á höfuðborgarsvæðinu heldur áfram að magnast. Ef litið er fjórar vikur aftur í tímann hefur verð hækkað um fimm prósent sem er talsvert yfir meðallagi síðustu tólf mánaða. Þá var húsnæðisveltan á höfuðborgarsvæðinu tæpir fimm milljarðar í síðustu viku sem er nokkru yfir meðallagi. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:02
Eyða meiri peningum ytra Íslendingar virðast vera að nýta sér sterka stöðu krónunnar til mikilla viðskipta erlendis ef marka má aukningu á krítarkortaviðskiptum landans í útlöndum. Í febrúar straujuðu Íslendingar fyrir 2,1 milljarð króna í útlöndum og er það um þriðjungi meira en á sama tíma í fyrra. Þá voru íslenskir farþegar um Keflavíkurflugvöll 36 prósentum fleiri í febrúar í ár en í sama mánuði í fyrra samkvæmt morgunkorni Íslandsbanka. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:02
Kaupa fimm vélar í viðbót Stjórn Flugleiða, eða FL GROUP, samþykkti á fundi sínum í dag að undirrita samning við Boeing-flugvélaverksmiðjurnar í Bandaríkjunum um kaup á fimm Boeing 737-800 flugvélum til viðbótar við þær 10 sem samið var um í febrúar. Félagið fékk kauprétt á þessum fimm flugvélum sem hluta af samningnum sem undirritaður var í febrúar og hefur nú ákveðið að nýta þennan rétt. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:02
Samherji selur skip til Úrúgvæs Samherji hefur gengið frá sölusamningi á Margréti EA 710 við útgerðarfyrirtæki í Montevideo í Úrúgvæ. Frá þessu er greint á heimasíðu Samherja. Samningurinn er með fyrirvara um skoðun kaupanda á botni skipsins, en gera má ráð fyrir að sigli skipið frá Akureyri í næstu viku ef botnsskoðun stenst og á siglingin til Úrúgvæs að taka um mánuð. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:02
KredittBanken kaupir norskt félag KredittBanken, dótturfélag Íslandsbanka í Noregi, hefur vilyrði fyrir yfir 50% af hlutabréfum í fjármálafyrirtækinu FactoNor og mun í framhaldinu gera tilboð í öll hlutabréf í félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka. Viðskipti erlent 13.10.2005 19:02
Almenningur bjóði í Símann Fréttastjóri Morgunblaðsins telur raunhæfan möguleika á því að almenningur í landinu taki höndum saman og bjóði í Símann. Fólki sé einfaldlega nóg boðið og vilji fá að leysa til sín sína eigin eign. Orri Vigfússon er sannfærður um að hugmyndin geti orðið að veruleika og er reiðubúinn til að leiða hreyfingu almennings. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:02
Meirihluti Norðmanna hlynntur ESB Meirihluti Norðmanna er nú hlynntur aðild að Evrópusambandinu samkvæmt nýrri skoðanakönnum sem gerð var fyrir norska ríkissjónvarpið og dagblaðið <em>Aftenposten</em>. 58 prósent Norðmanna vilja ganga í ESB og hefur stuðningur við það ekki mælst meiri síðan í maí í fyrra. Norðmenn hafa sem kunngt er tvisvar hafnað inngöngu í Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslu, fyrst árið 1971 og svo aftur árið 1994. Erlent 13.10.2005 19:02
40 fyrirtæki með ólöglegt vinnuafl Um 40 íslensk fyrirtæki hafa frá áramótum tilkynnt um erlenda starfsmenn á sínum vegum, sem starfa á svokölluðum þjónustusamningum, án atvinnuleyfis. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir fæsta uppfylla skilyrði og hvetur fyrirtæki til að sækja einfaldlega um atvinnuleyfi í stað þess að reyna svona krókaleiðir. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:02
Fullbókað í ferð Fulltrúar 95 fyrirtækja, tæplega 200 manns, munu fylgja forseta Íslands í opinbera heimsókn til Kína 15.-22. maí. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:02
Útrásin er ekki flótti! Jón Steindór Valdimarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, telur að útrás fyrirtækjanna sé ekki flótti frá íslenskum vinnumarkaði eða velferðarkerfi. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:01
Vöruskiptahallinn rýkur upp Vöruskiptahallinn við útlönd hefur rokið upp í mars að mati greiningardeildar Landsbankans, þótt endanlegar tölur liggi ekki fyrir. Útlit er fyrir að hann hafi verið um fimm milljarðar króna sem bætast þá við þá 5,7 milljarða sem hann var óhagstæður fyrstu tvo mánuði ársins. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:01
Útrás eða flótti Forystumenn í verkalýðshreyfingunni velta fyrir sér hvort útrás íslenskra fyrirtækja, til dæmis til baltnesku landanna, sé í raun útrás eða kannski flótti frá íslenskum vinnumarkaði þar sem starfsmenn hafa góð kjör og verkalýðshreyfingin er sterk. </font /></b /> Viðskipti innlent 13.10.2005 19:01
Seldi hlutabréf í Og Vodafone Fyrirtæki í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar losuðu sig við hlutabréf sín í Og Vodafone skömmu áður en einkavæðingarnefnd kynnti fyrirkomulag á sölu Landssímans. Hlutabréfin hefðu gert Björgólf Thor vanhæfan til að bjóða í Símann. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:01
RARIK tók tilboði ÍAV RARIK hefur tekið tilboði Íslenskra aðalverktaka um stækkun Lagarfossvirkjunar. Tilboðið hljóðaði upp á rúmar 838 milljónir króna sem er um 75 prósent af kostnaðaráætlun RARIK. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:01
Morgan Stanley brotlegt Ráðgjafa- og fjármálafyrirtækið Morgan Stanley, sem er ráðgjafi íslensku ríkisstjórnarinnar við sölu á Landssímanum, hefur gerst brotlegt við reglur norrænu raforkukauphallarinnar Nord Pool. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:01