
Ásthildur Lóa Þórsdóttir

Döpur vegna „hetjunnar“ Ástu og „ómaklegrar aðfarar“ RÚV
„Ég er bara rosalega sorgmædd og mjög döpur. Sendi Ástu bara kærleikskveðjur,“ segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og félags- og húsnæðismálaráðherra.

Langþreyttir kjósendur hafa tækifæri til breytinga
Það hefur vakið athygli mína og áhyggjur hversu marga ég hef hitt á þeim stutta tíma síðan ég bauð mig fyrst fram til Alþingis, sem nenna ekki að kjósa lengur því það „breytist hvort eð er aldrei neitt“. Þetta var sérstaklega áberandi fyrir síðustu kosningar en minna nú, enda liggja breytingar í loftinu, hvort sem þær verða raunverulegar þegar á reynir eða ekki.

Það byrjaði sem gola en brátt var komið rok
Í dag hefjast verkföll í nokkrum skólum og þeirra á meðal er Árbæjarskóli, skólinn sem ég kenndi í þar til ég var kjörin á þing.

Er 0,145% bankaskattur virkilega nóg?
Umræður um banka á Íslandi eru um margt áhugaverðar. Árið 2023 var metár fyrir stóru viðskiptabankana þrjá, en alls högnuðust þeir um 83,5 milljarða. Samanlagður hagnaður hefur ekki náð hærri hæðum frá fjármálakreppunni árið 2008, að undanskildu árinu 2015, en þá seldi Arion banki hlut sinn í Bakkavör Group sem útskýrir óvenju háa hagnaðinn það ár.

27-faldur hagnaður!?
Það vakti mikla athygli í fyrra þegar fréttir bárust af því að sýslumaður hafi selt á nauðungaruppboði einbýlishús í Reykjanesbæ fyrir aðeins þrjár milljónir króna. Um var að ræða hús með fasteignamat upp á 57 milljónir.

Óréttlát lög sem þarf að lagfæra
Eftir hrunið 2008 lentu þúsundir fjölskyldna í skuldavandræðum vegna atburðarrásar sem hafði ekkert með þeirra eigin ákvarðanir að gera. Gengistryggð lán tvöfölduðust á svo gott sem einni nóttu og verðtryggð lán heimilanna hækkuðu ört svo eigið fé heimilanna þurrkaðist upp.

Viðskiptaráð myndi ekki ráða við starf kennara
Enn og aftur hefur Viðskiptaráð riðið fram á sviðið með yfirlýsingar um störf kennara og skólahald almennt.

Blekkingar og gaslýsingar núverandi forsætisráðherra
Fésbókin minnir mann oft á liðna tíð og í vikunni minnti hún mig á „Sérstaka umræðu“ sem ég stóð fyrir á Alþingi, fyrir nákvæmlega tveimur árum, þann 27. september 2022.

Við mótmælum…
Einstæð móðir á örorkubótum hefur með harðfylgi og útsjónarsemi náð að eignast og halda íbúð. Hún festi vexti fyrir nokkrum árum og hefur greitt 120.000 krónur á mánuði af lánunum. En svo „féll snjóhengjan“, vextirnir losnuðu og núna á hún að greiða 270.000 krónur í hverjum mánuði.

Vaxtalækkun eða neyðarlög
Það er staðreynd sem engin getur lengur neitað, að með vaxtastefnu sinni er Seðlabankinn að kæfa heimili og fyrirtæki landsins og það er kominn tími til að þau fái að ná andanum aftur. Þau hafa borið nægar byrðar og bankarnir grætt nóg. Hingað og ekki lengra.

Í gíslingu Ríkislögmanns, samtryggingar og spillingar
Þú átt ekki sjens ef ríkið, „kerfið“, brýtur á þér. Það er hin einfalda staðreynd málsins.

Af hverju eru kaupin á TM ekki á dagskrá aðalfundar Landsbankans?
Næsta föstudag, þann 19. apríl kl. 16.00 er aðalfundur Landsbanka Íslands og samkvæmt dagskrá fara þar fram venjuleg aðalfundastörf en í henni er ekki minnst einu orði á kaup Landsbankans á TM.

Hver skipaði bankaráði Landsbankans að kaupa TM?
Á undanförnum dögum hefur mikið verið rætt um kaup Landsbankans á TM tryggingum og miklu ryki þyrlað upp.

Ráðherra sem fer þvert á vilja Alþingis
Síðastliðinn febrúar ásakaði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra þingmenn Flokks fólksins um að beita aðferðum sem hann kallaði „popúlisma“.

Nóbelsverðlaunahafi eða Seðlabankinn?
Í Kastljósi í vikunni var viðtal við Joseph Stiglitz, nóbelsverðlaunahafa í hagfræði. Þetta viðtal var eins og talað úr okkar munni og staðfesti ALLT sem við höfum sagt í gagnrýni okkar á grimmilegar aðgerðir Seðlabankans gegn verðbólgunni, sem svo til eingöngu hafa falist í vaxtahækkunum.

Standið við stóru orðin og lækkið vexti!
Opið bréf til peningastefnunefndar og Seðlabankastjóra

Ofbeldi á ofbeldi ofan
Í síðustu viku var vinur minn sakaður opinberlega um ofbeldi. Ég hef sjaldan séð aðra eins gengisfellingu á hugtakinu „ofbeldi“ eins og í bréfinu sem sent var á stjórn VR og fjallað um í fjölmiðlum, en látum það liggja á milli hluta í bili.

Embætti þitt hafði af mér 10,6 milljónir og afhenti Arion banka
Opið bréf til Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, Sigríðar Kristinsdóttur.

Við krefjumst uppsagnar Seðlabankastjóra!
Það sem við rekjum hér á eftir ætti að vekja alvarlegar spurningar um hæfi æðstu stjórnenda Seðlabankans og við teljum ljóst að hvorki Seðlabankinn né Seðlabankastjóri sjálfur, njóti trausts þjóðarinnar lengur.

Hættum að ræða fátækt barna
Margir hafa miklar áhyggjur af fátækt barna, enda er fátækt barna að aukast á milli ára, frá 12,7 í 13,1%. Meðal þeirra sem opinberað hafa áhyggjur sínar af fátækt barna eru t.d. forsætisráðherra og þingmenn.

Bankaránið mikla
Fjárhagslegar afleiðingar þess að missa heimili sitt eru skelfilegar en það voru ekki bara fjármunir og eignir sem var stolið af fólki, heldur hreinlega lífinu sjálfu.

Sami skíturinn í aðeins fínni skál
Við sem höfum barist frá hruni gegn spillingunni og fyrir réttlæti fyrir heimilin og fólkið í landinu, höfum oft verið ásökuð um að dvelja í fortíðinni.

Fáum peningana aftur heim
Það er sorgleg staðreynd að staða heimilanna í landinu þarf ekki að vera jafn slæm og raun ber vitni. Það er ekki hægt að kenna verðbólgunni um hana. Staða heimilanna er slæm af því að það hefur verið ákveðið að hún skuli vera slæm. Það er ekki flóknara en svo að um það hefur verið tekin meðvituð ákvörðun.

Um „rógburð“ og „ærumeiðingar“
Samkvæmt Elvu Hrönn Hjartardóttur, frambjóðanda til formanns VR, er grein með fyrirsögninni VR eða VG? sem ég skrifaði á sunnudaginn, „rógburður“ og „ærumeiðingar“.

VR eða VG?
Ég get hreinlega ekki orða bundist eftir rangfærslur og aðdróttanir Elvu Hrannar Hjartardóttur, sem er í framboði til formanns VR, í Silfri Egils sunnudaginn 5. mars.

Verðbólguhvetjandi vaxtahækkanir
Allar aðgerðir Seðlabankans eru verðbólguhvetjandi.

Felum klúðrið – fórnum heimilunum: Aftur!
Það er stundum hjákátlegt að fylgjast með aðferðum stjórnmálamanna og „kerfisins“ við að fría sjálfa sig ábyrgð en því miður eru afleiðingar þess ekki alltaf jafn sniðugar og bitna oftar en ekki á þeim sem síst skyldi.

Saga um staðfestan glæp gegn þjóðinni
Inni í félagsmálaráðuneytinu liggur skýrsla sem ekki fæst birt, enda leiðir hún í ljós hversu alvarlega ríkisstjórnir síðustu áratuga hafa brotið gegn heimilum landsins og við getum fullyrt að þær ríkisstjórnir sem setið hafa frá hruni hafi sýnt einbeittan vilja til þess að viðhalda brotunum gagnvart þjóðinni.

Þau elska ykkur bara rétt fyrir kosningar
Nú er ljóst að hrun heimilanna 2.0 er yfirvofandi. Það er ekkert eftir að lofa, því þegar sagan er skoðuð sést greinilega að „þeim“ verður nákvæmlega sama um þig strax eftir kosningar.

Tvær hliðar á sömu spillingu
Sérhagsmunagæsla eða spilling á Íslandi snýst í grunninn um „tvo turna“; fjármálakerfið og sjávarútveg. Að sjálfsögðu kemur fleira til og inn í sérhagsmunagæsluna fléttast gríðarlega margir, en þetta eru „turnarnir“ sem hafa sogað til sín hvað mestu af auðæfum þjóðarinnar hvað sem öðrum hagsmunaaðilum líður.