
Erlent

Nasdaq skoðar sölu á LSE-hlutum
Stjórnendur Nasdaq hafa fengið heimild til þess að selja rúmlega þriðjungshlut sinn í bresku kauphöllinni í Lundúnum (LSE). Markaðurinn festi sér hlutinn þegar það reyndi að yfirtaka rekstur LSE á síðasta ári. Nasdaq keppir um þessar mundir við kauphöllina í Dubai um kaup á norrænu kauphallarsamstæðunni OMX, sem meðal annars rekur Kauphöllina hér.

Nýnasistar háværir í Danmörku
Nýnasistar létu í sér heyra í Kolding í Danmörku í gær þar sem þeir minntust þess að tuttugu ár eru liðin frá nasistaforingjanum Rudolf Hess. Hundrað manns voru handteknir - fæstir af þeim þó nýnasistar. Leiðtogi þeirra var þó færður í járn fyrir að ráðast á laganna verði.

Nakið fólk á jökli
Mörg hundruð manns létu kuldann ekki á sig fá og beruðu sig í Svissnesku ölpunum í gær. Var það allt gert fyrir listina en þar var ljósmyndarinn Spencer Tunick mættur til að skapa listaverk með Grænfriðingum.

Göngu nýnasista mótmælt
Um hundrað manns voru handteknir þegar mikil ringulreið skapaðist í Kolding í Danmörku í gær. Nýnasistar höfðu safnast saman í miðborginni til að minnsta þess að 20 ár voru frá dauða nasistaforingjans Rudolfs Hess.

Fellibylurinn Dean ógnar ríkjum Karíbahafsins
Yfirvöld á Jamaíku búast við hinu versta nú þegar fellibylurinn Dean stefnir hraðbyr á landið. Óttast er að bylurinn valdi miklum skemmdum og jafnvel manntjóni á eyjum á Karíbahafinu. Útgöngubann er nú í gildi á Jamaíku og búið að loka öllum flugvöllum.

Fellibylurinn Dean nær landi á Jamaíku
Jamaíkubúar eru viðbúnir því versta nú þegar fellibylurinn Dean hefur náð landi þar. Vindhraði í verstu hviðum er rúmlega 60 metrar á sekúndu og því spáð að úrkoma mælist um 50 sentimetrar. Því er spáð að bylurinn nái mesta styrk þegar hann kemur á Mexíkóflóa.

Líst illa á tilboð í Sainsbury’s
Eitt stærsta verkalýðsfélag Bretlandseyja hvetur stjórn bresku verslunarkeðjunnar Sainsbury´s að hafna tilboði í keðjuna sem fjárfestingafélag frá Quatar hefur lagt fram. Það er konungsfjölskylda landsins sem stendur á bak við félagið, Delta Two.

HIV próf fyrir giftingu
Pör sem ætla að gifta sig í nígerísku biskupakirkjunni verða fyrst að gangast undir HIV próf. Talsmenn kirkjunnar segja skilyrðið sett til að fólk geti tekið upplýsta ákvörðun áður en það gengur í hjónaband. Samkvæmt fréttavef BBC munu fleiri kristnar kirkjur í Nígeríu hafa svipaðar reglur.

Handtökuskipun gefin út á dóttur Saddam Hussein
Alþjóðalögregan Interpol hefur gefið út handtökuskipun á elstu dóttur Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks. Raghad Saddam Hussein, sem flúði land þegar Bandaríkjamenn gerðu innrás í Írak árið 2003, er meðal annars sökuð um hryðjuverk sem og önnur brot.

Ítalskur bæjarstjóri borgar fyrir megrun
Ítalskur bæjarstjóri beitir nýstárlegum aðferðum gegn offitu. Hann heitir allt að 70 þúsund íslenskum krónum til hvers íbúa bæjarins sem er of þungur, en tekst að koma sér í kjörþyngd - og halda sér þar.

Fellibylurinn Dean skall á eyjar í Karabíska hafinu
Fellibylur skall á eyjuna Sanktí Lúsíu og nágrannaeyjuna Martiník í Karabíska hafinu í dag með þeim afleiðingum að rafmagn fór af og tré féllu. Þetta er fyrsti fellibylur ársins sem fer um svæðið og hefur hann hlotið nafnið Dean.

Afstæðiskenningin sögð afsönnuð
Tveir þýskir vísindamenn segja að þeir hafi afsannað afstæðiskenningu Alberts Einstein með því að fara í gegnum ljósmúrinn. Afstæðiskenningin gengur í örstuttu og einfölduðu máli út á það að ekkert geti farið hraðar en ljósið undir nokkrum kringumstæðum. Ef maður færi hraðar en ljósið myndi maður samkvæmt kenningunni skrúfa tímann afturábak.

Við erum komnir aftur -Vladimir Putin
Vladimir Putin tilkynnti í dag að Rússar hefðu sent fjórtán langdrægar sprengjuflugvélar í eftirlitsflug langt útfyrir landamæri ríkisins. Orrustuþotur og eldsneytisvélar fylgdu þeim eftir. Forsetinn sagði að ákveðið hafi verið að hefja á ný langflug sprengjuflugvéla. Þær væru komnar til þess að vera. Putin lýsti þessu yfir á blaðamannafundi í tilefni af sameiginlegum heræfingum Rússa og Kínverja.

Góð byrjun á bandarískum hlutabréfamarkaði
Gengi hlutabréfa hækkaði við opnun fjármálamarkaða í Bandaríkjunum í dag eftir að seðlabanki landsins ákvað að koma til móts við niðursveiflu á mörkuðum með lækkun millibankavaxta.

Vextir lækkaðir í Bandaríkjunum
Seðlabanki Bandaríkjanna kom til móts við niðursveiflu á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag með lækkun millibankavaxta upp á 50 punkta. Við það fara vextirnir úr 6,25 prósentum í 5,75 prósent.

Passaðu þig þegar þú segir það með blómum
Leroy Greer er bílasali í Missouri City í Bandaríkjunum. Leroy er dálítið rómantískur. Hann sendi kærustunni sinni blómvönd og bangsa. Með korti þar sem sagði; "Vildi bara segja að ég elska þig." Ósköp sætt. Því miður sendi blómasalinn kvittunina heim til eiginkonu hans. Nú hefur Leroy höfðað mál gegn blómasalanum.

Fangelsaðir fyrir að stofna stjórnmálaflokk
Áfrýjunardómstóll í Vietnam mildaði í dag dóma yfir þrem mönnum sem voru sakaðir um að hafa dreift óhróðri um ríkisstjórnina og stofnað pólitískan flokk. Mennirnir höfðu verið dæmdir í fimm ára, fjögurra ára og þriggja ára fangelsi. Eitt ár var tekið af hverjum dómi.

Nasdaq segir tilboð sitt betra
Forsvarsmenn bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq hvetja hluthafa í norrænu OMX-kauphallarsamstæðunni til að halda að sér höndum þrátt fyrir að kauphöllin í Dubaí hafi lagt fram hærra yfirtökutilboð í norræna markaðinn í dag. Kauphöllin í Dubai ræður nú þegar yfir 25 prósentum af hlutafé OMX.

Vilja banna ungmennum að aka um helgar
Norsku samtökin Trygg Trafikk eða Örugg umferð vilja setja margvíslegar hömlur á ökuréttindi yngstu ökumanna. Meðal annars banna þeim að aka um helgar og á kvöldin. Og að hafa farþega með sér í bílnum. Samtökin benda á að slíkar takmarkanir gildi þegar í Kanada. Þar hafi banaslysum ungmenna fækkað um 30-40 prósent.

Vilja hætta við hækkun stýrivaxta
Hagfræðingar hafa áhyggjur af því að hagvöxtur muni minnka á heimsvísu í kjölfar samdráttar á bandarískum fasteignalánamarkaði sem hefur valdið usla á alþjóðlegum hlutabréfamarkaði. Gangi það eftir mun fjármögnun verða erfiðari en áður. Bloomberg segir að evrópski seðlabankinn verði að falla frá hækkun stýrivaxta í næsta mánuði.

Hækkanir og lækkanir í Evrópu
Hlutabréfamarkaðir í Evrópu hafa tekið ágætlega við sér í kjölfar minni lækkana á Wall Street í gær en dagana á undan. Taugatitrings gætir hins vegar hjá asískum fjárfestum en Nikkei-vísitalan lækkaði um rúm 5,4 prósent við lokun markaða í Japan í morgun. Vísitalan hefur ekki lækkað jafn mikið á einum degi í sjö ár.

Minnst 500 látnir
Minnst 500 manns týndu lífi og 1500 slösuðust í tveimur öflugum jarðskjálftum sem skóku Perú í nótt. Upptök skjálftans eru í Kyrrahafinu, suð-austur af höfuðborginni Líma. Flestir hinna látnu bjuggu í strandhéraðinu Ica.

Enn þrengir að bandarískum fasteignamarkaði
Samdrátturinn á bandarískum fasteignamarkaði hefur skilað sér í því að nýbyggingum hefur snarfækkað vestra og hafa þær ekki verið með minna móti í áratug. Útgáfa nýrra byggingarleyfa hefur ekki verið með minna móti í ellefu ár. Fjöldi byggingarleyfa þykir ágæt vísbending um komandi tíð, sem er ekki björt, að mati greinenda.

Trylltur á traktor
Þýskur bóndi tók því illa þegar lögreglumenn stöðvuðu hann þar sem hann var að aka á þjóðvegi á traktor sínum. Bóndinn hafði ekki tilskilin ökuréttindi og hafði fengið margar viðvaranir. Nú þótti laganna vörðum nóg komið og skipuðu honum út úr traktornum. Bóndinn hélt nú ekki. Hann gaf í botn og þrusaði skrímslinu á næsta lögreglubíl. Framan á traktornum var vígalegur gaddalyftari.

Fjölskyldum danskra hermanna hótað
Íraskir hryðjuverkamenn hafa hlerað símtöl danskra hermanna við fjölskyldur sínar. Þeir hafa svo hringt í fjölskyldurnar og hótað þeim öllu illu, að sögn vefmiðilsins avisen.dk. Danskur sérfræðingur í sálfræðihernaði segir þetta hafa ótrúlega lamandi áhrif á hermennina. Varnarmálaráðuneytið vil ekki upplýsa um umfang þessara hótana.

Stjórnlausir skógareldar í úthverfum Aþenu
Gríðarlegir skógareldar hafa borist í úthverfi Aþenu, höfuðborgar Grikklands. Þrjátíu metra háar eldsúlur hafa þegar brennt tugi húsa til kaldra kola. Sjóðheitir stormsveitir koma í veg fyrir að hægt sé að nota flugvélar við slökkvistarfið. Slökkviliðsmenn á jörðu niðri ráða ekkert við ástandið. Gríska veðurstofan segir að vindinn muni ekki lægja fyrr en seint í kvöld.

Vísitölur niður í Bandaríkjunum
Hlutabréfavísitölur lækkuðu í fyrstu viðskiptum dagsins á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag. Markaðirnir opnuðu fyrir nokkrum mínútum og virðist sem hrakspár fjárfesta um áframhaldandi niðursveiflu haldi áfram.
Ræningjar í djúpum
Frú Chen sem býr í borginni Laoheku í Kína var að koma frá því að taka út peninga í bankanum sínum þegar tveir menn á skellinöðru renndu upp að henni. Þeir rifu af henni böggulinn sem hún hélt á undir hendinni.

Fjárfestar reikna með frekari lækkun vestanhafs
Fjárfestar í Bandaríkjunum hafa sett sig í stellingar fyrir enn eina dýfuna á hlutabréfamarkaði vestanhafs í dag eftir að forsvarsmenn fjármálafyrirtækisins Countrywide Financial Corporation, einu stærsta fasteignalánafyrirtæki þar í landi, greindu frá því að þeir hefðu þurft að sækja í varasjóði sína vegna lausafjárskorts.

Andláts Elvis minnst
Aðdáendur Elvis Presley minnast þess í dag að þrjátíu ár eru frá því rokkkóngurinn safnaðist til feðra sinna. Í dag verða minningartónleikar haldnir um Presley við heimili hans, Graceland. Búist er við mörg þúsund manns.