
Auglýsinga- og markaðsmál

Bubbi er bílakrotarinn Blanksy
Huldulistamaðurinn Blanksy svipti af sér hulunni í kvöld eftir að hafa krotað skilaboð á auglýsingaskilti, eignir áhrifavalda og ýmislegt fleira undanfarna daga. Bubbi Morthens er maðurinn á bakvið lambhúshettuna.

„Fréttir eru ekki ókeypis“
Formaður Blaðamannafélags Íslands segir minnst tíu milljarða króna fari út úr íslenskum fjölmiðlamarkaði árlega í formi auglýsinga til Google og Meta. Hún viðrar hugmyndina um að almenningur borgi áskrift fyrir fréttir til þess að blaðamennskunni verði haldið á floti en starfsgreinin hefur samkvæmt nýrri vitundarherferð félagsins aldrei verið mikilvægari.

Lára ráðin til stýra almannatengsladeild Pipar/TBWA
Pipar\TBWA auglýsingastofa hefur ráðið Láru Zulima Ómarsdóttur í starf leiðtoga almannatengsla (Head of Communication & Public Relations) og mun hún stýra almannatengsladeild stofunnar.

Taka gagnrýni á enskunotkun í auglýsingu alvarlega
Markaðsstjóri Origo segir gagnrýni á enskunotkun í auglýsingu frá þeim kærkomna áminningu á að nota íslensku. Það geti verið erfitt þegar fólk er búið að venja sig á enskt heiti eða orð en fyrirtækið ætli að gera betur.

Origo gagnrýnt fyrir enskunotkun: Gæðin eru „insane“ og áferðin „flawless“
Upplýsingatæknifyrirtækið Origo hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir enskunotkun í auglýsingu þar sem vísað er í áhrifavaldinn Jóhönnu Helgu sem segir myndavél Sony búa yfir „flawless“ áferð og „insane“ og „Netflix approved“ gæðum.

Knattspyrnufólk og bransastjörnur fjölmenntu í bíó
Goðsagnir úr heimi knattspyrnunnar í bland við þjálfara, leikmenn og bransastjörnur úr auglýsingageiranum sameinuðust í Smárabíó í gær þar sem árleg auglýsing fyrir Bestu-deildirnar var frumsýnd. Góð stemning var á sýningunni líkt og myndirnar bera með sér.

Fékk draumastarfið hjá Forlaginu vegna TikTok-reiknings
Embla Rún hóf að birta myndbönd á samfélagsmiðlinum TikTok árið 2022 þar sem hún gaf fylgjendum innsýn í daglegt líf með þunglyndi og kvíða.

Spennuþrungin sigling Mottumarssokkana til Íslands dæmi um hvað margt getur komið upp
„Mottumarssokkarnir voru framleiddir í þetta skiptið í Asíu og í byrjun desember var þeim lestað þar í skip til að koma til okkar sjóleiðina. Nema að þá lendum við í því Hútarnir í Jemen loka Súesskurðinum í framhaldi af sínum deilum við Bandaríkjamenn með þeim afleiðingum að fjölmörg flutningaskip þurftu að sigla suður með Afríku sem þýddi að sokkarnir voru mun lengur á leiðinni hingað heim,“ segir Árni Reynir Alfredsson, forstöðumaður markaðs- og fjáröflunarmála hjá Krabbameinsfélaginu.

Gefur ekki fimm aura fyrir gagnrýni á Krónuna
Framkvæmdastjóri Krónunnar segir fjarstæðukennt að halda því fram að Krónan hafi fórnað hagsmunum viðskiptavina til að forðast mögulega skaðabótaskyldu. Fyrirtækið hafi strax brugðist við fréttum af matvælalager í Sóltúni, sem tengdist meðal annars veitingastaðnum Wok On. Þegar rökstuddur grunur um mansal og fleira ólöglegt athæfi hafi legið fyrir, hafi samningi Krónunnar við Wok On verið rift.

Völdu hættu á matareitrun frekar en skaðabætur
Ólafur Hauksson, almannatengill og hluthafi í Festi, gagnrýnir Krónuna harðlega fyrir að hafa metið hættu á skaðabótamáli æðri en þá hættu að selja viðskiptavinum sínum vafasaman mat í fjóra mánuði.

Tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna
Fimmtíu vefir eða stafrænar lausnir eru tilnefnd til Íslensku vefverðlaunanna. Þeir Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson, sem eru hvað þekktastir fyrir Hraðfréttir kynna tilnefningarnar og verða kynnar á verðlaunahátíðinni.

Skemmtilegustu auglýsingarnar spegla okkur
Hvernig eru bestu auglýsingar ársins? Hvaða auglýsingar stóðu upp úr og voru skemmtilegastar eða snertu okkur beint í hjartað?

Lagt til að auglýsingasala RÚV verði stafræn
Starfshópur menningar- og viðskiptaráðuneytisins leggur til að stafræn leið verði farin til að minnka umsvif RÚV á auglýsingamarkaði. Sala og markaðssetning á auglýsingum verði óheimil hjá RÚV en hægt sé að kaupa auglýsingahólf samkvæmt verðskrá á vefnum.

Leggja til ýmsar breytingar á auglýsingasölu RÚV
Dregið verður úr umsvifum Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði og unnið að því að hefðbundin sala og markaðsetning á auglýsingum hjá RÚV verði gerð óheimil, ef tillögur um stefnu um málefni fjölmiðla til ársins 2030 ná fram að ganga.

Ákvörðun um að banna auglýsingu dregin til baka eftir mótmæli
Advertising Standards Authority, sem hefur eftirlit með auglýsingum á Bretlandseyjum, hefur afturkallað ákvörðun sína um að banna auglýsingu Calvin Klein, sem sýnir listamanninn FKA twigs hálfbera.

„Lúðurklúður” í boði Kynnisferða hf.
Í vikubyrjun vaknaði ég við símtal frá félaga mínum sem starfar í auglýsingabransanum: „Til hamingju Jón með tilnefninguna! Lúðurinn maður! Frábært hjá þér ”

Bein útsending: Íslenskir fjölmiðlar, gervigreind og Facebook
Hver er staða íslenskra fjölmiðla á tímum stafrænnar byltingar? Ættu Google og Meta að greiða útgefendum fjölmiðla fyrir fréttir og er hægt að verðmeta fréttir? Hver verða áhrif gervigreindar á blaðamennsku og ritstjórnir fjölmiðla?

Sýnileikadagur FKA: Erfiðast að rukka!
„Að rukka!“ svarar Elín Arnar hjá Birtu Media og hlær þegar hún er spurð um það, hvað henni hafi fundist erfiðast að yfirstíga á þeim tveimur árum sem fyrirtækið Birta Media hefur verið starfrækt.

Elsta vörumerki Bretlands fær nýtt útlit
Lyle's Golden Syrup hefur tekið til notkunar nýjar umbúðir á vörum sínum. Í stað rotnandi ljónshræs kemur teiknuð mynd af ljóni. Breytingin á þó einungis við sírópið sem fæst í flöskum en sírópsdósirnar vinsælu verða enn með sama útlit.

Falið að stýra samskipta- og markaðsmálum HR
Ásthildur Gunnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður samskipta og markaðsmála hjá Háskólanum í Reykjavík.

Aron Ólafsson nýr markaðsstjóri Solid Clouds
Aron Ólafsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Solid Clouds en hann var áður framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Mikill meirihluti áhrifavalda merkir auglýsingar sjaldan
Einungis einn af hverjum fimm áhrifavöldum merkir reglulega auglýsingar á samfélagsmiðlum sínum sem slíkar. 26 íslenskir áhrifavaldar voru til skoðunar.

Staðfestu öll brot Svens á auglýsingabanni
Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu að Svens braut gegn auglýsingabanni gegn nikótínvörum með auglýsingum á samfélagsmiðlum og með merkingum á verslunum og bílum félagsins.

Allar auglýsingar Super Bowl á einum stað
Kansas City Chiefs vann Ofurskáina í annað sinn í röð í nótt. Leikurinn var æsispennandi og fór í framlengingu en í huga margra skipta auglýsingarnar meira máli en leikurinn, þar sem um er að ræða heimsins dýrustu auglýsingapláss.

Deilunni um litla rauða límmiðann lokið vegna tímamóta
Norrænni deilu um hvort taka eigi lítinn rauðan límmiða af iittala glösum verður brátt lokið því rauðu miðarnir eru á undanhaldi. Finnski risinn hefur breytt allri hönnun á þessu rótgróna vörumerki og segir hönnunarstjóri á Íslandi, ákvörðunina djafra.

Bein útsending: Bestu íslensku vörumerkin
Vörumerkjastofan brandr mun útnefna „Bestu íslensku vörumerkin“ í fjórða sinn klukkan 12 í dag.

Ný stefna, nýtt nafn og nýtt merki: „Við erum aflvaki sjálfbærrar framtíðar“
Síðustu vikur og mánuði hefur farið fram mikil vinna við nýja stefnu Orkuveitu Reykjavíkur. Meðfram nýrri stefnu hefur ásýnd fyrirtækisins verið endurmörkuð. Héðan af verður það kallað Orkuveitan í daglegu tali, nýtt merki hefur verið hannað og einkennislitnum breytt úr bláum í grænan. Þá hefur setningin „Við erum aflvaki sjálfbærrar framtíðar“ verið gerð að eins konar einkunnarorðum Orkuveitunnar.

Bogi Nils valinn markaðsmanneskja ársins
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, var í gærkvöldi valinn markaðsmanneskja ársins 2023 hjá ÍMARK.

Frambjóðandi óskar eftir samskiptaskapara
Sigríður Hrund Pétursdóttir, forsetaframbjóðandi og athafnakona, óskar eftir því að ráða samskiptaskapara fyrir framboð sitt, til sigurvegferðar.

Kristján hættir sem framkvæmdastjóri Hér&Nú
Kristján Hjálmarsson hefur ákveðið að hætta sem framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Hér og Nú. Hann hyggst einbeita sér að almannatengslum og mun meðal annars áfram vinna náið með viðskiptavinum stofunnar.