Innlent
Borgarstjóri snýr út úr
Stefán Jón Hafstein borgarfulltrúi ætlar að kanna hvort leita eigi eftir áliti Eftirlitsstofnunar EFTA vegna þess hvernig staðið var að gerð viljayfirlýsingar við hjúkrunarheimilið Eir um byggingu menningarmiðstöðvar í Grafarvogi.

Átak á sviði geðheilbrigðismála
„Þú gefur styrk“ er heiti átaks sem Sparisjóðurinn stendur fyrir meðal viðskiptavina sinna og landsmanna til styrktar verkefnum átta félagasamtaka á sviði geðheilbrigðismála.

Aktivismi hlaut viðurkenningu
Aðgerðastarf Heimildamyndin Sófakynslóðin eftir Áslaugu Einarsdóttur og Garðar Stefánsson var frumsýn við góðar viðtökur í Háskólabíói í gær. Myndin fjallar um aktivisma á Íslandi og hvað fólk getur gert til að vinna að hugsjónum sínum
Maður missti fjórar tennur
Fjórir karlmenn veittust að karlmanni á sjötugsaldri og slógu hann í andlitið á Flugvallarvegi við Öskjuhlíð rétt fyrir miðnætti aðfaranótt laugardags. Fórnarlambið missti fjórar tennur og slasaðist á nefi í árásinni.
Einn stórslasaður á gjörgæslu
Árekstur tveggja varð við bæinn Breiðumýri í Reykjadal um 30 kílómetra frá Húsavík klukkan rúmlega sjö á föstudagskvöldið. Annar ökumaðurinn, sautján ára gamall piltur, var fastur í öðrum bílnum og var kallað á Slökkviliðið á Akureyri til að ná honum út úr flakinu. Manninum var náð út með klippum.
Kona stal skóm
Kona á fimmtugsaldri var dæmd í 45 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudag fyrir að stela níu pörum af skóm úr verslun í Kringlunni.
Annar alvarlega slasaður
Tvítugur karlmaður slasaðist alvarlega fyrir utan skemmtistaðinn Pakkhúsið á þriðja tímanum aðfaranótt laugardagsins þegar þrítugur karlmaður sló hann í andlitið.
Bílslys Bíllinn ónýtur
Eldri maður keyrði á grjótgirðingu í Óshlíðinni, veginum á milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur, um klukkan eitt í gær. Bíllinn fór út af veginum í hálku. Manninn sakaði ekki en bíllinn er ónýtur.

Eldur logaði í kjallara á Akureyri
Slökkviliðið á Akureyri var kallað að fjölbýlishúsi í Brekagili á sjötta tímanum í kvöld þar sem eldur logaði í kjallara hússins. Kveikt hafði verið í pappír í sameign í kjallaranum og myndaðist mikill reykur sem lagði upp allan stigaganginn.

Sigurbjörn Einarsson biskup enn að predika
Sigurbjörn Einarsson biskup predikar á morgun í Grafavogskirkju á Degi orðsins. Sigurbjörn er 95 ára og þykir einn áhrifamesti kirkjuhöfðingi seinni ára. Messan hefst klukkan ellefu en fyrir hana verða haldin fjögur erindi um biskupinn.
Fyrstu íslensku eldflauginni skotið á loft
Eldflaug var skotið upp í fyrsta sinn frá Íslandi af Íslendingum í dag. Enginn varð þó fyrir skotinu enda til gamans gert.

Ráðist á karlmann á sjötugsaldri
Karlmaður á sjötugsaldri missti fjórar tennur og slasaðist á nefi eftir árás fjögurra karlamanna rétt fyrir miðnætti í gær. Maðurinn var að aka bíl sínum frá miðbænum, þar sem hann hafði verið að týna dósir, og ók eftir Flugvallarvegi.
Leið yfir förgun fuglanna
Það var dauft yfir Húsdýragarðinum í dag enda síðasti dagur flestra fuglanna þar á morgun, en þeim verður fargað eftir helgi vegna hættu á fuglaflensu.

Ökumaður enn á gjörgæsludeild
Karlmaður sem fluttur var á gjörgæsludeild Landspítala-Háskólasjúkrahús eftir bílslys, við bæinn Breiðumýri í Reykjadal í gærkvöldi, liggur enn á gjörgæsludeild. Maðurinn er mikið brotinn og gekkst undir fjölda aðgerða í nótt.

Sturla leiðir Sjálfstæðisflokkinn í Norðvesturkjördæmi
Sjálfstæðismenn í Norðvesturkjördæmi samþykktu í dag framboðslista sinn fyrir komandi Alþingiskosningar á kjördæmisþingi í Borgarnesi. Flokkurinn fékk þrjá þingmenn kjörna í síðustu kosningum, ráðherrana Sturlu Böðvarsson og Einar K. Guðfinnsson, og þingmanninn Einar Odd Kristjánsson. Þeir skipa áfram þrjú efstu sæti listans. Í fjórða sæti er Herdís Þórðardóttir.

Draga á úr kolmunaveiðum
Samkomulag tókst milli allra aðildarríkja Norðaustur-Atlantshafs fiskveiðinefndarinnar um að draga úr kolmunaveiðum á ársfundi nefndarinnar sem lauk í dag.

Selur í smábátahöfninni í Reykjavík
Þeir sem leið hafa átt um smábátahöfnina við Elliðavog í Reykjavík í dag hafa margir hverjir séð nokkuð óvenjulega sjón. Þar hefur selur hafst við á ísbreiðu inni í höfninni. Selurinn er hinn rólegasti og kippir sér ekki upp við athygli vegfarenda.

Nokkuð kalt á opnunardegi Hlíðarfjalls
Skíðasvæði Akureyringa í Hlíðarfjalli er opið í dag. Þetta er fyrsti opnunardagurinn á þessum vetri en snjórinn er fyrr á ferðinni en venjulega. Skíðalyftur eru opnar og helstu skíðaleiðir hafa verið troðnar. Einnig er hægt að nota göngubrautir. Nokkuð kalt er á svæðinu en þar er nú 14 stiga frost og logn.

Styrkja framsækin verkefni í geðheilbrigðismálum
Sparisjóðurinn hefur sett af stað söfnun til styrktar framsæknum verkefnum í geðheilbrigðismálum, þar sem markmið er að ná að safna tuttugu og fimm milljónum króna.

Geta útmáð kreditkortanúmer
Tæknimenn Bónuss hafa fundið leið til að útmá kreditkortanúmer viðskiptavina af kassastrimlum.

Telur að fylgi Framsóknarflokksins muni dala
Fylgi Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi mun dala í kjölfar niðurstöðu prófkjörsins, segir Kristinn H. Gunnarsson sem féll niður í þriðja sætið í prófkjörinu í gær. Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra sigraði og hlaut fyrsta sætið en Herdís Sæmundsdóttir fékk annað sætið.

Ársæll hélt aftur til veiða í morgun
Ársæll ÁR-66, tvö hundruð brúttólesta netabátur, hélt aftur til veiða í morgun en björgunarskipum Slysavarnafélags Landsbjargar í Sandgerði tókst á miðnætti að bjarga bátnum af strandstað í innsiglingunni til Sandgerðis. Ekki reyndust miklar skemmdir á bátnum.

Sykurmolarnir fylltu Höllina
Fullt var út úr dyrum á tónleikum Sykurmolanna í Laugardalshöll í gærkvöldi. Hljómsveitin koma saman á nýjan leik til að minnast þess að tuttugu ár eru liðin frá því fyrsta smáskífa sveitarinnar, afmæli, kom út hinn 17. nóvember 1986.

Miklar frosthörkur á landinu
Kuldatíðin sem verið hefur hefur nú náð hámarki að mati Sigurðar Þ. Ragnarsson veðurfræðings á Veðurstofu NFS. "Já það eru gríðarmiklir kuldar á landinu og fór frostið síðastliðna nótt niður fyrir 20 stig í Mývatnssveitinni og athygli vekur að kólnað hefur í Reykjavík eftir því sem liðið hefur á morguninn og var frostið kl. 10 um 13 gráður" segir Sigurður.

Stal bíl á meðan eigandinn lá inni í húsinu í fastasvefni
Þjófur gerðist bíræfinn í nótt þegar hann stal bíl fyrir utan íbúðarhús á meðan eigandinn lá í fastasvefni inni í húsinu. Lögreglunni í Reykjavík berst á ári hverju fjöldi tilkynninga um að bílum hafi verið stolið og er bílum oftar stolið um helgar en á virkum dögum.

Ók undir áhrifum á ljósastaur
Kona sem ók undir áhrifum á ljósastaur á Reykjanesbraut slapp án meiðsla. Bíllinn skemmdist mikið.

Hlaut höfuðáverka í slagsmálum
Maður á þrítugsaldri var fluttur með höfuðáverka eftir líkamsárás við skemmtistaðinn Pakkhúsið á Selfossi í nótt.

Róleg í miðbænum í nótt
Fámennt var í miðbæ Reykjavíkur í nótt að sögn lögreglegu og er kuldinn talinn vera ein aðalskýringin. Fimm líkamsárásir voru tilkynntar.

Netabáti bjargað í innsiglingunni í Sandgerði
Björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Sandgerði tókst á miðnætti að bjarga Ársæli ÁR-66 af strandstað í innsiglingunni til Sandgerðis. Ársæll ÁR, sem er tæplega 200 brúttólesta netabátur hafði siglt af leið í innsiglingunni og strandaði á leið sinni upp í Eyrina við Sandgerði.

Mikil steranotkun í fitness-keppnum
Sextíu prósent þeirra sem taka þátt í fitness-keppnum hér á landi falla á lyfjaprófum. Þetta var meðal þess sem fram kom á hádegisverðarfundi á vegum ÍSÍ í gær. Fjárlög til lyfjaeftirlits innan íþróttahreyfingarinnar verða aukin.