Innlent
Hvalveiðar ræddar á CNN
Helgi Ágústsson, sendiherra Íslendinga í Bandaríkjunum, kom fram í beinni útsendingu fréttastöðvarinnar CNN í gær þar sem hann svaraði spurningum um hvalveiðar.

Hundruð sjómanna slasast við vinnu sína
Hundruð sjómanna lenda á ári hverju í vinnuslysum sem samþykkt eru bótaskyld, og tugir slasast svo illa að þeim er metin örorka. Samtals 22 sjómenn hafa látist við störf frá og með árinu 2000 til dagsins í dag.

Telur andstöðuna vera mótsagnakennda
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra segir að viðbrögðin við ákvörðun ríkisstjórnarinnar að hefja atvinnuhvalveiðar að nýju hafi verið fyrirsjáanleg.

Einkavæðing RÚV þar er efinn
Ótti stjórnarandstöðunnar við að Ríkisútvarpið verði selt er grundvöllur andstöðu hennar við breytingu RÚV í hlutafélag. Yfirlýsingar stjórnarliða um að ekki eigi að selja duga skammt.
Vissi ekki af rannsókn stjórnvalda
Svavar Gestsson, sendiherra Íslands í Danmörku, segist aldrei hafa heyrt af athugunum íslenskra stjórnvalda á tengslum íslenskra borgara við austur-þýsku leyniþjónustuna STASI. Svavar Gestsson var menntamálaráðherra í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar á árunum 1989 til 1991 og var með Steingrími og Jóni Baldvin í ríkisstjórn, þegar athugað var um tengsl STASI við Íslendinga.

Vilja banna veiðar á þorski í Norðursjó
Lagt er til í skýrslu sem opinberuð verður á morgun að þorskveiði í Norðursjó verði bönnuð. Hrygningarstofninn er nú 36 þúsund tonn. Gæti þýtt verðhækkanir á heimsmarkaði sem hefðu jákvæð áhrif hér, segir sjávarútvegsráðherra.

Brýnt að afstýra einokun
Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, leggur til að Alþingi samþykki þegar í stað lagabreytingu sem komi í veg fyrir samruna Mjólkursamsölunnar (MS), Norðurmjólkur og Osta- og smjörsölunnar. Gísli segir ljóst að slík einokun myndi draga svo úr samkeppni í mjólkuriðnaði að hagsmunum neytenda yrði stefnt í hættu.
Ekið á tvo með skömmu millibili
Ekið var á tvær konur sem voru á göngu á Miklubraut í gærmorgun. Fyrra óhappið varð rétt fyrir átta er kona var að fara yfir götu á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. Hún var flutt á slysadeild með áverka, sem reyndust ekki vera alvarlegir.

Bráðavakt varnarlausra villidýra
Um það bil þúsund villt dýr af sextíu tegundum hafa fengið aðhlynningu og athvarf í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í þau sextán ár sem sem hann hefur verið starfræktur.

Hvalveiðar vekja athygli um allan heim
Fjölmiðlar víða um heim greina frá hvalveiðum Íslendinga hver í kapp við annan. Stjórnvöld fjölmargra ríkja hafa komið skoðunum sínum á framfæri. Mótmæli eru ekki talin eins harkaleg og búast hefði mátt við fyrirfram.

Svið vinsælli en pitsur
Sviðamessa er gömul hefð á Austurlandi. Bændur héldu upp á lok smalamennskunnar með því að snæða svið og skemmta sér. Það er alveg jafn gaman í dag enda svið mikill herramannsmatur.
Viðsnúningur í vaxtatekjum
Samanlagðar hreinar vaxtatekjur viðskiptabankanna gætu dregist saman um 30 milljarða milli þessa árs og næsta. Frá þessu var greint í Vegvísi Landsbankans.

Breskar löggur vilja ekki vopn
Danska, sænska og finnska lögreglan ber skammbyssu við skyldustörf, en norska og breska ekki. Lögreglan í Bretlandi notar ekki einu sinni piparúða.

Grettir bætir við sig bréfum í Avion
Fjárfestingarfélagið Grettir fór upp fyrir tíu prósenta hlut í Avion Group í fyrradag. Grettir hefur verið duglegur að kaupa í félaginu því, frá byrjun október hefur heildarhlutur félagsins farið úr einu prósenti í 11,5 prósent. Reikna má með að bréfin hafi verið keypt á genginu 29,5-32 krónur á hlut en hluturinn stóð í 32,6 krónum í gær.

Söltun og mokstur aukinn í borginni
Dregið hefur úr notkun nagladekkja á höfuðborgarsvæðinu á undanförunum árum og eru nú 52 prósent farartækja með nagladekk. Til samanburðar má geta þess að 64 prósent voru með nagladekk árið 2001. Þetta kemur fram í viðhorfskönnun á notkun vetrardekkja sem gerð var í maí 2006.

Nauðguðu og myrtu stúlku
Máli fjögurra bandarískra hermanna hefur verið vísað til herdómstóla en þeir eru sakaðir um að hafa nauðgað og myrt fjórtán ára gamla íraska stúlku auk þess að hafa myrt systur hennar og foreldra í borginni Mahmoudiya, suður af Bagdad.

Óljóst hversu stór lóðin verður
Framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar hefur verið falið að gera tillögu að söluauglýsingu vegna húseignarinnar á Fríkirkjuvegi 11. Borgarstjórn hefur nú staðfest að húsið skuli selt.

Gert fyrir erlenda sjófarendur
Ara Páli Kristinssyni, forstöðumanni Íslenskrar málstöðvar, þykir miður að á varðskipinu Tý standi Coast Guard í stað íslenskrar áletrunar. Skipið er nýkomið úr slipp í Póllandi en þegar það hélt utan stóð á því Landhelgisgæslan.

Mikilvægt að hafa mælistiku
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir mikilvægt að einhver mælistika verði lögð á árangur grunnskólanema; það sé vilji foreldra og eins leggi Efnahags-og framfarastofnun Evrópu (OECD) áherslu á það. Hún segir hins vegar að samræmd próf eins og nú eru viðhöfð séu ekki endilega rétta leiðin og kveðst reiðubúin að ræða aðra möguleika.

Enginn hvalur veiddist í gær
Hvalveiðiskipið Hvalur 9 hélt á miðin vestur af landinu á þriðjudagskvöld en enginn hvalur veiddist í gær að sögn Kristjáns Loftssonar, forstjóra Hvals hf. Skipið leitaði að hval rúmlega eitt hundrað sjómílur norðvestur af Garðskaga.
Fleiri atvinnulausir en í fyrra
Að meðaltali 4.600 manns voru án vinnu og í atvinnuleit á þriðja ársfjórðungi 2006 eða 2,6 prósent vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 2,2 prósent hjá körlum en 3 prósent hjá konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16 til 24 ára eða 5,1 prósent.

Minni hávaði, minni mengun
Tveir nýir metanknúnir sorpbílar á vegum umhverfissviðs Reykjavíkurborgar hafa verið teknir í notkun en bílarnir hafa vakið nokkra athygli fyrir fallegar blómaskreytingar.

Hvalstöðin án vinnsluleyfa
Hvalstöðin í Hvalfirði hefur ekki starfsleyfi til matvælavinnslu en Landbúnaðarstofnun hefur ekki viljað veita stöðinni slíkt starfsleyfi. Kristján Loftsson, stjórnarformaður Hvals hf., segir hins vegar öll leyfi í lagi. Halldór Runólfsson yfirdýralæknir segir að Hvalur hf. hafi ekki leyfi til matvælavinnslu í Hvalstöðinni.
Ferðamenn byrjaðir að afpanta ferðir
Markaðsstjóri hvalaskoðunarfyrirtækisins Norðursiglingar á Húsavík segir ferðamenn þegar byrjaða að afpanta ferðir til Íslands. Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra óttast um trúðverðugleika og ímynd þjóðarinnar.

Gefur kost á sér í 6.-8. sætið
Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri hefur ákveðið að gefa kost á sér í 6.-8. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Málið enn til rannsóknar
Lögreglan í Hafnarfirði, sem gerði 170 kannabisplöntur upptækar við húsleit í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði á sunnudag, er langt komin með rannsókn málsins.

Kári og Hákon báru vitni
Vitnaleiðslur í máli Íslenskrar erfðagreiningar gegn fimm fyrrverandi starfsmönnum hafa staðið yfir í Fíladelfíuborg undanfarnar vikur en ganga hægt.

Næststærsta dýr jarðarinnar
Hvalveiðar hafa verið mikið í fréttum að undanförnu eftir að Einar K. Guðfinnsson ákvað að gefa heimild til að veiða níu langreyðar og 30 hrefnur undir formerkjum atvinnuveiða.

Elsti Íslendingur allra tíma
Sólveig Pálsdóttir frá Svínafelli í Öræfum er nú elsti Íslendingur sögunnar. Sólveig varð 109 ára þann 20. ágúst síðastliðinn og varð því 109 ára og 59 daga gömul í gær.
Stálu fatnaði og tækjabúnaði
Tveir menn voru í gær dæmdir í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir margvíslega þjófnaði úr tveimur verslunum á Akureyri. Mennirnir voru báðir starfandi í viðkomandi verslunum. Annar þeirra dró sér fatnað úr Sportveri fyrir allverulegar fjárhæðir, auk 10 þúsund króna úr peningakassa verslunarinnar. Hinn tók ófrjálsri hendi tækjabúnað úr Siemens-versluninni fyrir hundruð þúsunda. Mennirnir hlutu skilorðsbundna dóma, annar í þriggja mánaða fangelsi en hinn í fimm mánaða fangelsi, auk greiðslu sakarkostnaðar.