Innlent
261 262 263 264 265 266 267 268 269 … 334 ›
Fjórir á slysadeild eftir árekstur Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir árekstur þriggja bíla á mótum Norðurfells og Vesturbergs um níuleytið í gærkvöldi en meiðsl allra reyndust minniháttar. Innlent 5.9.2006 08:21
17,5 prósentustiga aukning á fé til vegaframkvæmda Fjármagn sem ríkið eyðir í vegaframkvæmdir hefur aukist um 17,5 prósentustig frá árinu 1998 til yfirstandandi fjárlagaárs eftir því sem segir í vefriti fjármálaráðuneytisins. Innlent 5.9.2006 08:07
Stal sex páskaeggjum úr búð Tuttugu og sex ára karlmaður var í gær ákærður fyrir þjófnað og fjársvik. Maðurinn er ákærður fyrir að stela fartölvu í Verzlunarskólanum í febrúar síðastliðnum. Í apríl gerði maðurinn sér svo lítið fyrir og stal sex páskaeggjum úr verslun 11/11 að verðmæti tæplega átta þúsund krónur. Innlent 4.9.2006 21:20
Hafa náð tíu kílóum af fíkniefnum í ár Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hefur lagt hald á um tíu kíló af fíkniefnum það sem af er ári. Það er jafn mikið magn og allt árið í fyrra. Helmingur magnsins er kókaín. Meðalaldur lögbrjótanna er tæplega 25 ár, sá yngsti var 17 ára. Innlent 4.9.2006 21:21
Meðalaldur starfsmanna stórmarkaða lækkar um 7 ár Meðalaldur félagsmanna VR sem vinna í stórmörkuðum hefur lækkað um heil sjö ár síðan árið 2000 og segir á heimasíðu VR að félagið hafi heyrt dæmi þess að ungmenni á aldrinum 13 til 14 ára vinni langtum meira en kveðið er á um í reglugerð um vinnu ungmenna. Innlent 5.9.2006 08:01
Tveimur flatskjám stolið í austurborginni Tveimur flatskjám var stolið úr raftækjaverslun í austurborginni um hálfþrjúleytið í nótt. Verðmæti þeirra er samtals á áttunda hundrað þúsunda. Þjófarnir brutu stóra rúðu til að komast inn í verslunina en þeir komust undan og er þeirra nú leitað. Innlent 5.9.2006 07:35
Tryggingasvikin skipta þúsundum Lögreglan fær aðeins brotabrot af öllum tryggingasvikum á sitt borð á ári, eða þrjú til fjögur. Útilokað er að þau séu svona fá, að mati framkvæmdastjóra hjá Sjóvá. Þau séu frekar um tvö þúsund á ári. Sjóvá fer í átak gegn svikunum. Innlent 4.9.2006 21:21
Telja í lagi að Davíð tjái sig um pólitík Formaður bankaráðs Seðlabankans segir ekkert mæla gegn því að Davíð Oddsson tjái sig um pólitísk álitamál. Prófessor í stjórnmálafræði segir vandann fremur liggja í pólitískum ráðningum en að Davíð hafi pólitískar skoðanir. Innlent 4.9.2006 21:21
Of mörg börn bíða þjónustu „Það bíða of margir nemendur eftir þjónustu sálfræðings eins og staðan er núna en verið er að vinna í því að stytta biðlistann,“ segir Þorsteinn Hjartarson, skólastjóri Fellaskóla. Innlent 4.9.2006 21:21
Bílvelta nærri Akureyri Bíll valt á hringveginum norðan Akureyrar til móts við bæinn Grjótgarð laust fyrir tvö í nótt. Ökumaður var einn í bílnum og var hann fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri en ekki er vitað um meiðsl hans. Innlent 5.9.2006 07:25
Heimilisofbeldismál enda sjaldnast í ákærumeðferð Innan við eitt prósent heimilisofbeldismála hafa verið tekin til ákærumeðferðar. Nauðsynlegt að breyta löggjöfinni um nálgunarbann, segir Bjarnþór Aðalsteinsson. Ofbeldismenn verði fjarlægðir af heimilum. Innlent 4.9.2006 21:21
Stunginn með hnífi í bakið 26 ára gamall maður leitaði á slysadeild í Reykjavík upp úr eitt í nótt eftir að hafa verið stunginn með hnífi í bakið. Hann þekkti til árásarmanns síns og náðist sá á hlaupum um hálffjögur í nótt, skammt frá heimili sínu í austurborginni. Innlent 5.9.2006 07:15
Fjórðungur sveitarstjóra er konur Konur eru bæjarstjórar í tveimur af tuttugu fjölmennustu sveitarfélögum landsins, Mosfellsbæ og Árborg. Sextán konur eru sveitarstjórar á landinu, en sveitarfélög landsins eru 79. Innlent 4.9.2006 21:21
20 milljónir frá íslenska ríkinu Íslensk stjórnvöld munu veita sem svarar tuttugu milljónum króna til neyðar- og mannúðaraðstoðar í Darfúr-héraði í Súdan, samkvæmt ákvörðun Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra. Innlent 4.9.2006 21:20
Fá tölvur sem nýtast í fjarnámi Styrktarfélag Krabbameinssjúkra barna og EJS, umboðsaðili Dell á Íslandi, skrifuðu í liðinni viku undir samstarfssamning, en öll börn á aldrinum tíu til átján ára sem greinast með krabbamein munu fá Dell fartölvu að gjöf frá EJS. Innlent 4.9.2006 21:20
Unnið að framgangi málsins Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær sala Reykjavíkurborgar á hlut borgarinnar í Landsvirkjun, til íslenska ríkisins, gengur í gegn. Reykjavíkurborg á 45 prósent í Landsvirkjun, íslenska ríkið 50 prósent og Akureyrarbær fimm prósent. Ráðandi meirihluti í borgarstjórn hefur lýst því yfir að hann ætli sér að selja hlutinn, að því gefnu að sanngjarnt verð fáist fyrir hlutinn. Innlent 4.9.2006 21:21
Grafir langt fram á þessa öld Fyrsta áfanga framkvæmdarinnar við nýjan duftgarð í Sóllandi í Fossvogsdal er lokið, segir Þorgeir Adamsson, garðyrkjustjóri kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Landmótuninni er lokið að stórum hluta til, segir Þorgeir. Það er vonast til að kannski verði hægt að taka hluta garðsins í notkun árið 2008. Innlent 4.9.2006 21:20
Vantar ríflega 100 starfsmenn Alls vantar starfsfólk í 105 stöðugildi á leikskólum og 28 stöðugildi í grunnskólum borgarinnar. Þetta kom fram á fundi menntasviðs sem haldinn var í gær. Ragnhildur Erla Bjarnadóttir, aðstoðarsviðsstjóri menntasviðs segir jákvæðu fréttirnar þær að staðan sé betri en á sama tíma í fyrra. Innlent 4.9.2006 21:20
250 dýr enn óveidd Enn á eftir að veiða 250 hreindýr af 909 dýra kvóta á hreindýraveiðisvæðunum á Austurlandi. Veiðar hafa gengið treglega að undanförnu því þoka hefur legið yfir stórum hluta veiðisvæðanna. Innlent 4.9.2006 21:20
Efling atvinnulífs mikilvæg Mikilvægt er að sú umræða sem verið hefur um Austurland undanfarin ár nýtist til jákvæðrar kynningar á landshlutanum og hjálpi til við að skjóta fleiri stoðum undir atvinnu- og félagslíf. Þetta var eitt af því sem fram kom á byggðaþingi undir yfirskriftinni Lífið eftir virkjun sem haldið var á Hallormsstað um helgina. Innlent 4.9.2006 21:21
Nefndin vill fá álit almennings Nefnd sem vinnur að heildarendurskoðun laga um grunnskóla auglýsir eftir athugasemdum og ábendingum frá almenningi um hvaða meginsjónarmið ætti að hafa að leiðarljósi við endurskoðunina og hver framtíðarsýn eigi að vera í málefnum grunnskólans. Innlent 4.9.2006 21:20
Bryndís ráðin aðstoðarrektor Bryndís Hlöðversdóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, hefur verið ráðin aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst í stað Magnúsar Árna Magnússonar sem lét af störfum fyrir helgi. Innlent 4.9.2006 21:20
Sjúklingar sendir á milli landshluta Tvo til fimm starfsmenn vantar til starfa á hvert sjúkrahús á Austurlandi. Vegna mönnunarvanda við sjúkrahúsin í fjórðungnum hefur þurft að senda sjúklinga á milli byggðarlaga. Innlent 4.9.2006 21:20
Vantar betri leiðbeiningar Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs hjá Samtökum atvinnulífsins, gagnrýnir Þjóðskrána fyrir lélega upplýsingagjöf í tengslum við umsóknir fyrirtækja um kennitölur til erlendra starfsmanna sem koma til starfa hér á landi. Innlent 4.9.2006 21:21
Segir kröfur Þórólfs fráleitar Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Icelandic Group, segir kröfur Þórólfs Árnasonar, forstjóra Skýrr og fyrrverandi forstjóra Icelandic Group, fráleitar en hann hefur ákveðið að höfða mál á hendur félaginu vegna vanefnda á kauprétti á hlutabréfum, eins og greint hefur verið frá í Fréttablaðinu. Þórólfur var forstjóri Icelandic Group í rúma fjóra mánuði en hann hætti störfum hjá félaginu 13.október í fyrra. Innlent 4.9.2006 21:20
Taka verður tillit til veðráttunnar „Við erum þegar farnir að velta fyrir okkur hvers konar aðstöðu verði best að koma upp fyrir reykingafólk,“ segir Kormákur Geirharðsson, annar eigandi Ölstofunnar. Innlent 4.9.2006 21:21
Ógnaði lífi ungrar konu Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir að ógna og ráðast á unga sambýliskonu sína. Maðurinn réðist að konunni vopnaður hnífi aðfaranótt sunnudagsins. Lögregla var kvödd að heimili konunnar í Vesturbænum og handtók manninn. Kom í ljós að konan hafði rispast við árásina en sloppið við stungusár. Innlent 4.9.2006 21:20
Með hass og hníf á búðarápi Nítján ára karlmaður var ákærður í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir ýmis lögbrot. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa í vörslu sinni smáræði af hassi sem lögreglumenn fundu við húsleit í maímánuði í fyrra, en þá var maðurinn átján ára að aldri. Innlent 4.9.2006 21:20
Þriggja bíla árekstur í Breiðholtinu Lögregla og slökkvilið var kallað út á tíunda tímanum í kvöld vegna áreksturs þriggja bíla á mótum Norðurfells og Vesturbergs í Breiðholti í Reykjavík. Einn var fluttur á slysadeild. Innlent 4.9.2006 22:06
Ekki í skóla nema að landslög séu brotin Fjöldi nýbúabarna hefur ekki getað byrjað í skóla í haust þar sem þau hafa enn ekki fengið kennitölu. Margra vikna bið er eftir kennitölum hjá þjóðskrá og á meðan geta skólayfirvöld ekki leyft þeim að fara í skólann nema brjóta landslög. Innlent 4.9.2006 21:02