Innlent
Lækkun um 1,7 prósent Innlent 23.8.2006 22:02 Greiðslukortið í farsímanum Svo gæti farið að örbylgjuflögur (RFID) verði teknar upp í stað greiðslukorta þegar greitt er fyrir vörur og þjónustu. Örbylgjuflögunum væri hægt að koma fyrir í farsímum og yrðu þeir þannig alþjóðlegt greiðslutæki sem gætu komið í stað greiðslukortsins. Stærstu verslunarfyrirtæki heims hafa gert tilraunir og þróað þessa tækni í samstarfi við þekkt tæknifyrirtæki eins og Nokia. Innlent 23.8.2006 22:02 « ‹ 275 276 277 278 279 280 281 282 283 … 334 ›
Vísað allslausum úr landi eftir 10 tíma Íslendingur af palestínskum ættum, Abraham Shwaiki, var í haldi lögreglu á flugvellinum í Tel Avív í 10 klukkustundir í gær og var að þeim tíma loknum vísað úr landi. Hann var sakaður um að ferðast á fölsuðu vegabréfi, sem ísraelskir lögreglumenn ógiltu síðan og tóku af honum. Innlent 23.8.2006 22:03
Reykingamenn fengu bíómiða Útvarpsstöðin XFM braut hugsanlega lög með því að gefa boðsmiða á myndina Thank You for Smoking og sígaretta fylgdi með miðanum. Skilyrði fyrir því að fá miðann var að reykja sígarettuna. Innlent 23.8.2006 22:02
Missti stjórn á bíl í lausamöl og krappri beygju Bíll valt um klukkan þrjú í nótt á Eyjafjarðarbraut eystri við bæinn Fellshlíð í Eyjafirði. Þrjú ungmenni voru í bílnum en ökumaður og farþegi voru fluttir á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri með minniháttar skrámur. Svo virðist sem ökumaður bílsins hafi misst stjórn á honum í lausamöl í krappri beygju með fyrrgreindum afleiðingum. Bíllinn er mjög mikið skemmdur. Innlent 24.8.2006 07:54
Mislægu gatnamótin eru vel á veg komin Áætlaður kostnaður við mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar er um þrír milljarðar króna. Samhliða verður skoðað að leggja Miklubraut í stokk meðfram Klambratúni. Stefnt er að því að verkið verði langt komið árið 2010. Innlent 23.8.2006 22:03
Tveir Íslendingar í haldi í Brasilíu Tveir Íslendingar sitja nú í gæsluvarðhaldi í Brasilíu fyrir tvö aðskilin fíkniefnamál. Innlent 23.8.2006 22:02
Skólastofurnar eru opnar og kennslustundir mislangar Allir nemendur Norðlingaskóla fá heimsókn frá starfsfólki skólans í upphafi skólaárs. Þetta fyrirkomulag hefur mælst vel fyrir en skólinn býður upp á ýmiskonar nýbreytni í skólastarfi. Innlent 23.8.2006 22:03
Kveðst ekki geta tjáð sig Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, getur ekki tjáð sig um hvort gera skuli jarðhitasvæði á Reykjanesi að friðlandi. Innlent 23.8.2006 22:03
Mótmæla nýrri skattheimtu Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) áætla að um 200 milljónir króna leggist á kaupendur almennrar byggingavöru vegna breytinga sem eru boðaðar í frumvarpi Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra um stofnun svonefndrar Byggingarstofnunar. Innlent 23.8.2006 22:03
Vilja lagabreytingar til að auðvelda störf Send hafa verið bréf til dómsmála- og samgönguráðuneyta þar sem óskað er eftir lagabreytingum til auðvelda störf lögreglu og Neyðarlínunnar. Mikilvægt að breyta lögum svo að hægt sé að sinna lögbundnu hlutverki, segir í bréfinu. Innlent 23.8.2006 22:03
Verulegt tjón á rafmagnsköplum Talið er að verulegt tjón hafi orðið á rafmagnsköplum í verksmiðju Norðuráls á Grundartanga í gærkvöldi þegar ál rann út fyrir ker og bræddi kaplana. Slökkviliðið á Akranesi var kallað út um klukkan hálf níu í gærkvöldi vegna reyks sem lagði frá lagnakjallara í skála þrjú. Innlent 24.8.2006 07:24
Barnaafmæli fagnað í fangelsi Haldið var upp á afmæli tveggja ára gamallar stúlku í fangelsinu í Kópavogi fyrir skemmstu. Stúlkan hefur dvalið hjá móður sinni í fangelsinu frá fæðingu. Innlent 23.8.2006 22:03
Kristinn H. segir samkomulag brotið Kristinn H. Gunnarsson segist hafa gert samkomulag við Hjálmar Árnason um að verða aftur formaður í einni af nefndum þingsins. Það hafi ekki verið efnt. Hjálmar segir Kristin ekki fara rétt með og skilur ekki hvað vakir fyrir honum. Innlent 23.8.2006 22:03
Átak gegn riðuveiki kostar 667 milljónir Kostnaður ríkissjóðs vegna baráttu gegn riðuveiki nam 667,4 milljónum króna og kostnaður vegna garnaveiki 90,3 milljónum króna á tímabilinu 1998-2004. Áætlað er að um 182.000 kindum hafi verið fargað vegna aðgerðanna á 18 ára tímabili og að 350 bændur hafi hætt búskap með sauðfé í kjölfar niðurskurðar vegna riðuveiki. Innlent 23.8.2006 22:03
Söfnun fyrir ekkju hafin Olga Guðgeirsdóttir, húsmóðir í Vogum, hefur stofnað söfnunarreikning fyrir fjölskyldu Jóhanns Fannars Ingibjörnssonar, sem lést í bílslysi á Garðskagavegi þann 16. ágúst síðastliðinn. Jóhann Fannar lét eftir sig 27 ára eiginkonu og þrjú ung börn. Innlent 23.8.2006 22:02
Samkeppniseftirlitið kallar á afnám margvíslegra gjalda Samkeppniseftirlitið segir aðgerða þörf til að efla samkeppni á milli banka. Miðað við afkomu gætu þeir boðið betri kjör. Ný skýrsla sýnir að viðskiptavinir færa sig ógjarnan á milli banka. Huga þarf að eignarhaldi á greiðslukerfum og kortafyrirtækjum. Innlent 23.8.2006 22:03
Þrjú áföll á skömmum tíma Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur og nágrennis, segir það vera áfall fyrir atvinnulífið á Húsavík að Skinney-Þinganes hf. hafi keypt kvóta og skip útgerðarfélagsins Langaness hf. á Húsavík. Innlent 23.8.2006 22:02
Ætla að styrkja fötluð börn Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbanka Íslands, kynnti í gær verkefnið skorað fyrir gott málefni. Verkefnið er áheit þar sem bankinn mun gefa ákveðna upphæð fyrir hvert skorað mark í næstu umferð Landsbankadeildar karla og kvenna í knattspyrnu. Innlent 23.8.2006 22:02
Yfir átta hundrað börn bíða Alls bíða 816 börn eftir vistun á frístundaheimilum í Reykjavík. Flest börn bíða eftir plássi í Grafarvogi og Árbæ eða um 220 á hvorum stað. Innlent 23.8.2006 22:03
Biðlistar heyra sögunni til Biðlistar heyra sögunni til hjá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands. Um eða yfir tveggja mánaða bið er eftir heyrnartækjum í dag. Guðrún Gísladóttir framkvæmdastjóri segir að biðin í dag sé eðlileg. Vorið 2003 hafi reglugerð um greiðsluþátttöku ríkisins í heyrnartækjum orðið til þess að þáttur einstaklingsins hafi aukist og losnað um flöskuhálsinn. Fjármagn hafi myndast og hagræðing og endurskipulagning á rekstrinum hafi orðið til þess að saxast hafi á biðlistann. Innlent 23.8.2006 22:02
Hvellur varar ferðamenn við Hvellbombur voru prófaðar í nágrenni Hrafntinnuskers í gær. Hugmyndin er að þær verði notaðar til þess að vara ferðamenn við ef til Kötlugoss kemur. Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra stendur fyrir prófuninni. Hvellbomban er eins konar flugeldur sem gefur aðeins frá sér hljóð en ekki bjarma. Á sama tíma voru tívolíbombur sprengdar til samanburðar. Innlent 23.8.2006 22:02
Birkir Jón stýrir fjárlaganefnd Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokks, er nýr formaður fjárlaganefndar Alþingis. Hann tekur við starfinu af Magnúsi Stefánssyni sem varð félagsmálaráðherra í sumar. Framsóknarmenn gengu frá nýrri skipan í nefndir þingsins á þriðjudagskvöld vegna breytinganna sem urðu á þingliði flokksins í júní. Innlent 23.8.2006 22:02
Stundum þarf að beita valdi Landssamband lögreglumanna telur undanfarna umfjöllun um störf lögreglumanna, meðal annars við Kárahnjúka, einsleita. Hún sé til þess fallin að draga úr trúverðugleika lögreglumanna og fagstéttarinnar í heild sinni. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá sambandinu. Innlent 23.8.2006 22:02
Slök uppskera ástarviku Nemendum við Grunnskóla Bolungarvíkur fækkar á milli ára, úr 151 í 134 í haust. Innlent 23.8.2006 22:02
Mikill áhugi fólks á skipinu Að sögn Bjarna Thoroddsen, framkvæmdastjóra hjá Stálsmiðjunni í Reykjavíkurhöfn, hefur Hvalur 9 vakið mikla athygli eftir að hann var dreginn upp í slipp í fyrsta sinn síðan 1989. Innlent 23.8.2006 22:02
Sektaður fyrir að aka of hægt Ökumaður á Vesturlandsvegi var stöðvaður í gær fyrir að aka of hægt. Ökumaður ók bifreið með hjólhýsi í eftirdragi og ók hann töluvert undir fimmtíu kílómetra hraða, þar sem leyfilegur hámarkshraði er níutíu kílómetrar á klukkustund. Innlent 23.8.2006 22:02
Skólaupplýsingar á einn stað Framhald.is, upplýsingavefur fyrir fólk sem hyggur á framhaldsnám, var opnaður í menntamálaráðuneytinu í gær. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra opnaði vefinn og tilkynnti á sama tíma um hundrað þúsund króna styrk sem menntamálaráðuneytið veitir til verkefnisins. Innlent 23.8.2006 22:03
Starfsmenn megi tjá sig Borgarfulltrúar vinstri grænna gagnrýna ákvörðun stjórnenda Orkuveitu Reykjavíkur um að starfsmaður ætti ekki að tjá sig um málefni Kárahnjúkavirkjunar. Innlent 23.8.2006 22:02
Nálgunarbann í sex mánuði Hæstiréttur staðfesti í gær sex mánaða nálgunarbann sem maður var dæmdur í gagnvart barnsmóður sinni og sambýlismanni hennar, í héraðsdómi þann 21. ágúst síðastliðinn. Innlent 23.8.2006 22:02
Greiðslukortið í farsímanum Svo gæti farið að örbylgjuflögur (RFID) verði teknar upp í stað greiðslukorta þegar greitt er fyrir vörur og þjónustu. Örbylgjuflögunum væri hægt að koma fyrir í farsímum og yrðu þeir þannig alþjóðlegt greiðslutæki sem gætu komið í stað greiðslukortsins. Stærstu verslunarfyrirtæki heims hafa gert tilraunir og þróað þessa tækni í samstarfi við þekkt tæknifyrirtæki eins og Nokia. Innlent 23.8.2006 22:02