Innlent

Úrskurður óbyggðanefndar um þjóðlendu við Sólheimajökul felldur úr gildi
Eigendur Ytri-Sólheimajarða unnu mál gegn íslenska ríkinu fyrir héraðsdómi Suðurlands í gær. Felldur var niður úrskurður óbyggðanefndar frá því í desember 2004 um að landið Hvítmaga í Mýrdalshreppi teldist þjóðlenda.

Lögreglumenn slökktu eld í vörubíl
Snör handtök lögreglunnar á Ólafsvík forðuðu því að ekki fór verr þegar kviknaði í gömlum vörubíl sem stóð á yfirbyggðu porti nálægt fiskikerjum bæjarins í gærkvöldi. Talið er að unglingar sem hafi það fyrir sið að reykja í portinu hafi í ógáti kveikt í bílnum. Að sögn lögreglu á staðnum er mikill eldmatur nálægt portinu sem bíllinn stóð í og því skipti miklu að snarlega tókst að ráða niðurlögum eldsins.
Komst í gang aftur
Hjálparbeiðni barst frá bát sem var vélarvana úti fyrir Hornvík um klukkan átta í morgun og voru björgunarbátar kallaðir út. Áður en bátarnir komust á staðinn var hjálparbeiðnin afturkölluð þar sem skipverjum tókst að koma vél bátsins í gang að nýju.

Fleiri stelpur hafa sofið hjá
Í rannsókn sem gerð var á heilsu og lífskjörum skólabarna nú í vor kemur í ljós að 32,4 prósent unglinga í 10. bekk hafa haft samfarir. Þetta hlutfall er hæst á Suðurnesjum, Suðurlandi og Vestfjörðum, um 40 prósent en lægst um 28 prósent í nágrenni Reykjavíkur. Í Reykjavík er þetta hlutfall rétt um landsmeðaltal.

Gantaðist við verjanda sinn
Romas Kosakovskis, Litháinn sem reyndi að smygla rúmum tveimur lítrum af amfetamínbasa og tæpum lítra af brennisteinssýru inn til landsins í lok febrúar síðastliðnum, var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þar að auki var honum gert að greiða rúma milljón króna í sakarkostnað.

Sýknaður af fjársvikum
Kristján B. Snorrason, fyrrverandi útibússtjóri KB banka í Borgarnesi, var í fyrradag sýknaður af fjár- og umboðssvikum í Héraðsdómi Reykjaness.

Steytti á afnámi verndartolla landbúnaðarvara
Fulltrúi bænda í matvælaverðsnefnd forsætisráðherra lagðist gegn hugmyndum um afnám verndartolla búvara. ASÍ vildi ekki standa að sameiginlegum tillögum nefndarinnar þar sem ekki var lögð til stórfelld uppstokun.

Heimilin gætu sparað 130.000
Hægt er að lækka matarreikning heimilanna um 130 þúsund krónur á ári og færa matvöruverð undir meðaltal Evrópusambandsríkjanna.

Sprunga kom í stífluvegginn
Sprungur komu í þriðju stærstu stíflu veraldar, sem er í suðurhluta Brasilíu, eftir að byrjað var að fylla hana af vatni, með þeim afleiðingum að allt vatnið flæddi úr stíflunni. Stíflan er sömu gerðar og sú sem verið er að reisa á Kárahnjúkum.

Alfreð fær hálfa efstu hæðina
Deilan um nýtt húsnæði Blóðbankans við Snorrabraut hefur verið leyst farsællega og með samþykki allra hlutaðeigandi. Ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins segir deiluna hafa frá upphafi byggst á misskilningi.

Átök í borgarstjórn
Fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn greiddu atkvæði gegn því að starf jafnréttisráðgjafa yrði lagt niður hjá Reykjavíkurborg í borgarráði í fyrradag. Í stað embættisins verður stofnað embætti mannréttindafulltrúa sem mun starfa með nýrri mannréttindanefnd borgarinnar, en stofnun hennar var ákveðin í vor.

Hafnaði kröfu Impregilo
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kröfu verktakafyrirtækisins Impregilo um að fyrirtækið eigi ekki að standa skil á sköttum erlendra starfsmanna undirverktaka sinna fyrr en þeir hafa verið sex mánuði í starfi á Íslandi.
Ný keppnisgögn útbúin
Borgarráð hefur ákveðið að halda áfram með hugmyndasamkeppni um heildarskipulag Vatnsmýrarinnar.

Keyptu fyrir Actavis
Króatíska samheitalyfjafyrirtækið Pliva sendi í gær frá sér tilkynningu um að fyrirtæki með höfuðstöðvar í Reykjavík, ELL 33 ehf., hafi keypt sem jafngildir 1.894.650 hlutum eða um 10,19 prósent af almennu hlutafé félagsins.

Feginn að málinu sé lokið
Mál þeirra þriggja manna sem lögreglan í Reykjavík handtók í janúar vegna gruns um fjársvik hefur nú verið fellt niður. Mennirnir, einn Íslendingur og tveir útlendingar, voru handteknir í Íslandsbanka, grunaðir um að hafa ætlað að svíkja hundruð milljóna íslenskra króna úr bankanum.
Fótgangandi olli árekstri
Ökumaður sendibíls slasaðist lítillega þegar bifreiðin sem hann ók og vörubifreið skullu saman á Reykjanesbrautinni á níunda tímanum í gærmorgun.



Viðbrögð við ákvörðun Guðna
Tilkynning Guðna Ágústssonar um að hann sækist eftir endurkjöri í embætti varaformanns Framsóknarflokksins kom sumum á óvart. Var það hald manna að hugur Guðna stæði til formennsku, enda hefur hann verið varaformaður í fimm ár

Óvíst hvort náist að veiða hrefnukvótann
Alls hafa átján hrefnur verið veiddar á veiðitímabilinu sem lýkur 4. ágúst. Óvíst er hvort næst að fullnýta kvótann sem er 50 dýr. Markaðssetning á hrefnukjöti er að skila árangri að sögn framkvæmdastjóra Félags hrefnuveiðimanna.
Sprengjur fjarlægðar
Að sögn Adrians J. King, sprengjusérfræðings hjá Landhelgisgæslunni, vinnur sprengjudeild gæslunnar að skýrslu vegna sprengihættu við El Grillo.

Áhangendurnir eru mikilvægir
Það var erfitt að byrja æfingar að nýju, ekki síst vegna þess að ég er búinn að vera meiddur lengi. Fyrstu leikirnir eru alltaf erfiðir, sérstaklega þegar leikið er gegn góðum liðum eins og því sem við lékum við í dag. Hayles segir að ekki gefist mikill tími til að skoða borgina eða landið. Æft er tvisvar á dag og enginn frítími á milli. Við förum heim strax á morgun og fáum þá frídag.

Landsmenn bítast um laus sæti í sólina
Eftirspurnin vex með hverjum rigningardropa, að sögn markaðsstjóra Heimsferða. Fólk er nánast tilbúið að fara hvert sem er og frestar sumarleyfum fram í ágúst til að komast í sólarfrí.