Innlent
36 37 38 39 40 41 42 43 44 … 334 ›
Hækkun og lækkun í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í Kaupþingi hefur hækkað um rúm tvö prósent frá því viðskipti hófust í Kauphöllinni í dag. Gengi hlutabréfa sem þar eru skráð hafa bæði hækkað og lækkað. Mesta lækkunin er á gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum, en það hefur lækkað um rúm þrjú prósent. Viðskipti innlent 26.3.2008 10:16
Krónan veikist lítillega Gengi krónunnar hefur veikst um 1,65 prósent á gjaldeyrismarkaði það sem af er dags og stendur gengisvísitalan í 154,25 stigum. Krónan styrktist um 3,5 prósent eftir snarpa stýrivaxtahækkun Seðlabankans í gær. Viðskipti innlent 26.3.2008 09:32
Markaðurinn dregur andann eftir mikla hækkun Gengi hlutabréfa í Kaupþingi sem skráð eru í kauphöllina í Stokkhólmi í Svíþjóð hafa lækkað um 0,41 prósent frá upphafi dags. Þetta er í samræmi við þróunina á helstu hlutabréfamörkuðum á meginlandi Evrópu og Norðurlöndunum eftir mikla hækkun síðan fyrir páska. Viðskipti erlent 26.3.2008 09:12
Kaupþing hækkar í Svíþjóð en íslenski markaðurinn lokaður Gengi bréfa í Kaupþingi hefur hækkað um 4,4 prósent í OMX-kauphöllinni í Stokkhólmi í Svíþjóð í dag og gengi bréfa í finnska fjármálafyrirtækinU Sampo, sem Exista á tæpan fimmtungshlut í, lækkað um 1,1 prósent, í kauphöllinni í Helsinki í Finnlandi. Á sama tíma eru engin viðskipti með hlutabréf hér enda hlutabréfamarkaðurinn lokaður vegna Skírdagsins. Viðskipti innlent 20.3.2008 09:55
Viðsnúningur á síðustu metrunum Talsverður viðsnúningur varð á gengi hlutabréfa undir lok viðskiptadagsins í Kauphöllinni í dag. Gengi Skipta, móðurfélags Símans, féll um rúm þréttan prósent á fyrsta degi frá útboðsgengi. Viðskipti innlent 19.3.2008 16:43
Úrvalsvísitalan fellur - átta mánuðir frá hæsta gildi Sléttir átta mánuðir voru í gær síðan Úrvalsvísitalan fór í sitt hæsta gildi áður en hún tók að falla. Vísitalan stóð í 9.016 stigum 18. júlí í fyrra. Hún hefur fallið um 5,7 prósent í dag í mikilli lækkanahrinu og hefur því fallið um rúmlega 51 prósent síðan þá. Samkvæmt þessu þarf hún að hækka um 105 prósent eigi hún að ná sömu hæðum og fyrir átta mánuðum síðan. Viðskipti innlent 19.3.2008 13:53
Rauður dagur fyrir páska í Kauphöllinni Gengi FL Group og Existu féll um rúm þrjú prósent við upphaf viðskipta í Kauphöllinni í dag, á síðasta viðskiptadeginum fyrir páska. Á eftir fylgir Færeyjabanki, sem hefur fallið um tvö prósent. Allir bankarnir og fjármálafyrirtækin hafa lækkað í dag. Einungis gengi Össurar hefur hækkað, um 0,46 prósent. Viðskipti innlent 19.3.2008 10:14
Ferðaskrifstofur uggandi yfir gengissveiflum Ferðaskrifstofur hafa þegar hækkað verð á utanlandsferðum vegna gengislækkunar krónunnar. Kostnaður Íslendinga á ferðum þeirra erlendis hefur snarhækkað frá því um áramót. Innlent 18.3.2008 18:21
Uppsveifla um allan heim - nema hér Helstu hlutabréfavísitölur hafa verið á mikilli hraðferð upp á við víða um heim í dag. Hlut að máli eiga uppgjör bandarísku fjárfestingarbankanna Lehman Brothers og Goldmans Sachs. Á sama tíma standa flest hlutabréf á rauðu í Kauphöllinni. Viðskipti innlent 18.3.2008 15:31
Úrvalsvísitalan niður um þrjú prósent Gengi Existu, FL Group og Færeyjabanka féll um rúm fimm prósent við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöll Íslands í dag. Gengi FL Group fór niður fyrir átta krónur á hlut . Þá fór gengi 365 og SPRON sömuleiðis í sitt lægsta gildi frá upphafi. Gengi bréfa í 365 stendur í 1,32 krónum á hlut og SPRON í 4,86 krónum. Viðskipti innlent 17.3.2008 10:04
Fall á öllum hlutabréfamörkuðum Gengi hlutabréfa í Kaupþingi hafa fallið um 4,5 prósent í sænsku kauphöllinni í Stokkhólmi í dag. Þetta er nokkuð í takti við mikla dýfu á hlutabréfamörkuðum víða um heim í kjölfar þess að bandaríski fjárfestingarbankinn JP Morgan keypti kollega sinn hjá Bear Stearns með miklum afslætti. Viðskipti innlent 17.3.2008 09:21
Bakkavör hækkar um tæp fjögur prósent Gengi bréfa í Bakkavör hafa hækkað um rúm 3,6 prósent í Kauphöllinni í dag en félagið tilkynnti í morgun að það hefði keypt 48 prósenta hlut í matvæla- og drykkjavöruframleiðandanum Gastro Primo í Hong Kong. Kaupverð er trúnaðarmál. Þetta er mesta hækkunin í Kauphöllinni í dag. Viðskipti innlent 14.3.2008 10:31
Færa eignir til Invik Íslenskar eignir fjármálafyrirtækisins Milestone verða frá og með þessu ári færðar undir sænsku fjármálasamstæðuna Invik, dótturfélag Milestone. „Eftir eignafærsluna á árinu 2008 munu öll fyrirtæki Milestone verða dótturfélög Invik, þar með talin íslensku fjármálafyrirtækin Sjóvá, Askar Capital og Avant,“ segir í tilkynningu vegna ársuppgjörs fyrirtækisins. Viðskipti innlent 14.3.2008 08:15
46 nýir bílar seljast á dag Þrjátíu prósent fleiri nýir bílar voru skráðir til heimilis á Íslandi það sem af er þessu ári, miðað við sama tíma í fyrra. Og enn fleiri bílum var fleygt í brotajárn. Bílasalar eru brattir og búast ekki við miklum samdrætti. Innlent 13.3.2008 17:55
Vaxtabætur þyrftu að tvöfaldast Vaxtabætur þyrftu að tvöfaldast ef ríkið ætlar að styðja við fólk sem er að kaupa sér húsnæði á sama hátt og það gerði fyrir rúmum áratug, að mati Stefáns Ólafssonar félagsfræðiprófessors. Fréttastofa Stöðvar tvö heldur áfram að skoða skattana í landinu. Í dag skyggnumst við á bak við tölur um aukna skattbyrði, hvað veldur og hversu langt þarf að ganga eigi að snúa þróuninni við. Innlent 13.3.2008 17:50
Sprettur í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í FL Group og SPRON rauk upp um 3,35 prósent á fyrstu tveimur mínútunum í Kauphöllinni í dag. Heildarviðskiptin á þessum fyrstu mínútum námu 8,5 milljörðum króna. Til samanburðar námu viðskiptin aðeins 1,8 milljörðum króna allan mánudag.Heldur hefur blásið í hlutabréfaveltuna eftir því sem lengra hefur liðið frá upphafi viðskiptadagsins. Viðskipti innlent 12.3.2008 10:03
Íslenskar eignir á uppleið erlendis Fjárfestar víða um heim virðast almennt ánægðir með aðgerðir bandaríska seðlabankans gegn lausafjárþurrðinni. Bréf í Kaupþingi, sem skráð eru í Svíþjóð, hefur hækkað um rúmt prósent. Finnska fjármálafyrirtækið Sampo, sem Exista á 20 prósent í, hefur hækkað um tæp 1,4 prósent í dag. Viðskipti innlent 12.3.2008 09:04
Krónan aldrei lægri gagnvart evru Krónan hefur lækkað um tæp þrettán prósent frá áramótum. Hún hélt áfram að lækka í dag, einna mest gagnvart þeim gjaldmiðlum sem algengastir eru í myntkörfulánum landsmanna. Formaður Eflingar hvetur fyrirtæki til að velta gengislækkuninni ekki út í verðlagið. Innlent 10.3.2008 18:25
Færeyingar vilja aðild að EFTA Færeyingar vilja fá aðild að EFTA og njóta til þess stuðnings Íslendinga. Høgni Hoydal, sem fer með utanríkismál í landsstjórn Færeyja, kom í opinbera heimsókn til Íslands síðdegis. Innlent 9.3.2008 19:05
Fólk flykkist í Bónus og Krónuna Íslendingar velja sem aldrei fyrr að kaupa í matinn í lágvöruverðsverslunum. Allt að hundrað prósent meiri sala hefur verið í sumum verslunum Krónunnar og umtalsvert meiri í Bónus. Þá er starfsmannasvelti matvörukeðjanna fyrir bí. Fréttastofa heldur áfram að rýna í neysluvenjur landsmanna í skugga niðursveiflu. Innlent 9.3.2008 18:53
Hólmsheiði vondur kostur Ferðaáætlanir þúsunda manna hefðu raskast síðustu daga - ef búið hefði verið að flytja Reykjavíkurflugvöll upp á Hólmsheiði. Blindþoka var á heiðinni í dag - á meðan sólskinið lék við flugvöllinn í Vatnsmýrinni. Framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands segir skort á ákvörðunum setja innanlandsflugið í kreppu. Innlent 8.3.2008 18:49
UNIFEM á Íslandi sett ný viðmið í söfnunum Starfandi aðalframkvæmdastýra UNIFEM í New York segir Íslandsdeild samtakanna hafa sett öðrum landsdeildum ný viðmið í fjáöflun. Milljónir hafa safnast í Fiðrildaviku sem lýkur í kvöld. Utanríkisráðherra Líberu segir framlag Íslandsdeildar UNIFEM mikilvægt til að draga úr ofbeldi gegn konum í heimalandi hennar. Innlent 8.3.2008 18:31
Gengi SPRON aldrei lægra Gengi hlutabréfa í SPRON hefur fallið um rúm fjögur prósent frá því viðskipti hófust í Kauphöll Íslands í dag. Gengið stendur í 5,0 krónum á hlut og hefur það aldrei verið lægra. Úrvalsvísitalan hefur ekki verið lægri síðan um miðjan nóvember árið 2005. Viðskipti innlent 7.3.2008 10:19
Evran í hæstu hæðum Gengi evru hefur styrkst nokkuð í dag en hún kostar nú rúma 101 krónu og hefur sjaldan verið dýrari. Að sama skapi hefur hún aldrei verið dýrari gagnvart bandaríkjadal. Viðskipti innlent 6.3.2008 11:09
Færeyingar hækka mest í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hefur hækkað um 1,34 prósent frá því viðskiptadagurinn hófst í Kauphöllinni í dag. Byrjun dags hefur verið með rólegasta móti en hreyfingar aðeins á átta fyrirtækjum í Kauphöllinni. Viðskipti innlent 6.3.2008 10:28
Vísitala afurða í stóriðju lækkar um 16,8 prósent Vísitala framleiðsluverð var 3,1 prósenti lægra í janúar á þessu ári en á sama tíma í fyrra, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Verðvísitala afurði í stóriðju lækkaði um 16,8 prósent á meðan vísitala sjávarafurða hækkaði um 3,4 prósent og matvælaframleiðslu um 4,3 prósent. Gengi krónunnar spilar stóra rullu í afurðaverðinu. Viðskipti innlent 6.3.2008 09:03
Lánshæfishorfur ríkisins versna Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's hefur fært lánshæfishorfur ríkissjóðs úr stöðugum í neikvæðar. Ástæðan er nýleg lækkun á lánshæfismati íslensku bankanna. Staða ríkissjóðs er sögð sterk enda skuldir þess nánast engar. Viðskipti innlent 5.3.2008 11:56
Verðbólga mælist 3,5 prósent innan OECD Verðbólga mældist 3,5 prósent innan aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) í janúar, samkvæmt upplýsingum stofnunarinnar, sem birtar voru í dag. Verðbólgan hér var 5,8 prósent á sama tíma. Mesta verðbólgan var í Tyrklandi en minnst í Japan, Viðskipti innlent 5.3.2008 11:35
Kaupþing og aðrir bankar á uppleið Gengi Kaupþings hækkaði um rúm 1,7 prósent við upphaf viðskipta í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgdu allir íslensku bankarnir og fjármálafyrirtækin en gengi þeirra allra hefur hækkað um rúmt prósent. Viðskipti innlent 5.3.2008 10:14
Straumur hækkar mest í Kauphöllinni Gengi bréfa í Straumi hefur hækkað um tæp 1,3 prósent í upphafi viðskiptadagsins í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgir gengi banka og fjármálafyrirtækja að Atlantic Petroleum undanskildu. Gengi bréfa í Landsbankanum hefur hækkað um 1,12 prósent, Existu um 1,08 prósent, Atlantic Petroleum um 0,76 prósent, í Glitni um 0,6 og Kaupþing um 0,55 prósent. Viðskipti innlent 29.2.2008 10:31