Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)
116 117 118 119 120 121 122 123 124 … 148 ›
Gefa nýja ferðagjöf, útvíkka viðspyrnustyrki og greiða 100 þúsund til atvinnulausra Einstaklingar sem hafa verið atvinnulausir frá því fyrir upphaf kórónuveirufaraldursins munu fá 100 þúsund króna eingreiðslu sem hluta af nýjum aðgerðapakka stjórnvalda. Þá verður sérstakur 30 þúsund króna barnabótaauki gefinn þeim sem fá tekjutengdar barnabætur. Innlent 30.4.2021 12:18
Svandís bjartsýn afléttingu takmarkana samhliða auknum bólusetningum Heilbrigðisráðherra segir unnið að því að útfæra bólusetningardagatalið þannig að fólk á öllum aldri geti séð nokkurn veginn hvenær það megi reikna með að fá bólusetningu við covid 19. Í dag var birt áætlun um afléttingu sóttvarnaaðgerða samhliða fjölgun fólks sem verið hefur bólusett. Innlent 27.4.2021 19:21
Heilbrigðisráðherra segir óásættanlegt að sumir sérfræðilæknar innheimti aukagjald Heilbrigðisráðherra segir algerlega óásættanlegt að sumir sérfræðilæknar innheimti sérstakt gjald af þjónustu sinni við sjúklinga sem þeir einir standi undir. Á næstunni verði gefin út reglugerð um að læknum sem innheimti þetta gjald verði ekki endurgreiddur kostnaður sem annars heyri undir hlut sjúkratrygginga í kostnaði sjúklinga. Innlent 27.4.2021 16:59
Úrræði stjórnvalda mest nýtt af rekstraraðilum með færri en fimm starfsmenn Fyrirtæki í ferðaþjónustu eru meirihluti þeirra sem nýta sér úrræði stjórnvalda vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Þrír af hverjum fjórum rekstraraðilum sem nýtt hafa úrræðin eru lítil fyrirtæki með færri en fimm starfsmenn eða einyrkjar. Viðskipti innlent 27.4.2021 14:40
Kynnti fjórar vörður í átt að afléttingu samkomutakmarkana Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti ríkisstjórn í morgun afléttingaráætlun vegna Covid-19. Er um að ræða fjórar skilgreindar „vörður“ á þeirri leið að opna samfélagið á ný þar sem sú fyrsta sé þegar að baki. Innlent 27.4.2021 10:48
Svandís kynnti áætlun um afléttingar samkomutakmarkana Reglulegur þriðjudagsfundur ríkisstjórnarinnar er nú hafinn í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Á dagskránni er kynning Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra á áætlun um afléttingar samkomutakmarkanna næstu mánuði. Innlent 27.4.2021 11:12
Katrín: Stórfyrirtæki sem misbjóða samfélaginu missa virðinguna Mennta- og menningarmálaráðherra segir Samherja hafa gengið of langt í viðbrögðum sínum við umfjöllun um fyrirtækið. Innlent 26.4.2021 18:25
Tólf berjast um átta sæti Samtals verða tólf í framboði í forvali Vinstri grænna í Reykjavík sem verður dagana 16. til 19. maí. Sex bjóða sig fram í annað sætið. Innlent 25.4.2021 22:36
Vill skipta yfir í ódýrari hraðpróf við landamærin Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, talaði fyrir einfaldari skimun fyrir Covid-19 við landamærin í Víglínunni á Stöð 2 í dag. Hún vill hætta að skima fólk að lokinni sóttkví við komuna til landsins. Innlent 25.4.2021 20:48
Lilja Rafney tapar oddvitasætinu Bjarni Jónsson, sveitarstjórnarmaður í Skagafirði, er nýr oddviti Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi. Hann felldi þar með fyrrverandi oddvita og eina þingmann VG í kjördæminu, Lilju Rafneyju Magnúsdóttur. Innlent 25.4.2021 18:19
Bjartsýn á að ná að aflétta samkomutakmörkunum í sumar Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra er bjartsýn á að 75 prósent þjóðarinnar verði bólusett fyrir lok júní og að í framhaldinu verði hægt að létta á öllum samkomutakmörkunum. Ríflega 25 þúsund manns verða bólusett í Laugardalshöll í næstu viku. Innlent 25.4.2021 18:08
„Íslensk stjórnvöld hafa engan skilning á þessu“ Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum ekki vera sannfærandi. Á sama tíma gefi ný stefna Bandaríkjastjórnar í loftslagsmálum tilefni til bjartsýni. Innlent 25.4.2021 15:59
Mest ánægja með Katrínu en Ásmundur hástökkvarinn milli kannana Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mælist enn vinsælasti ráðherra ríkisstjórnarinnar og Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra nýtur hve minnstra vinsælda samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, er hástökkvarinn milli kannana en ánægja með störf hans hefur aukist hvað mest frá því í fyrra. Innlent 24.4.2021 14:42
Hjúkrunarheimilin þurfa fimm milljarða Rúmir fimm milljarðar króna hafa bæst við heildarrekstrarkostnað hjúkrunarheimila á Íslandi ef borin eru saman árin 2021 og 2019. Fjöldi hjúkrunarheimila er í afar bágri fjárhagsstöðu, meðal annars vegna launahækkana sem enn ekki hefur fengist aukið framlag frá ríkinu til að greiða fyrir. Innlent 23.4.2021 18:50
Töluvert stærri hópur skikkaður á sóttkvíarhótel Miðað verður við að farþegum verði án undantekninga skylt að dvelja á sóttkvíarhóteli, sé nýgengi smita í upprunalandi þeirra yfir 700 á hverja 100.000 íbúa síðustu tvær vikur. Heilbrigðisráðherra hefur gefið út nýja reglugerð, sem tekur gildi á þriðjudaginn. Innlent 23.4.2021 17:27
Bóluefnið frá Noregi komið til landsins Síðdegis í dag bárust til landsins 16.000 skammtar af bóluefni AstraZeneca sem Norðmenn hafa veitt Íslendingum að láni. Byrjað verður að bólusetja með efninu strax í næstu viku í samræmi við fyrirmæli sóttvarnalæknis um notkun þess. Innlent 23.4.2021 17:11
Telur einsýnt að Svandís sé að skamma Sjallana en ekki sig Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingarinnar segir Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra vera að tala til Sjálfstæðisflokksins en ekki stjórnarandstöðunnar þegar hún heldur því fram að baráttan við veiruna sé orðin að pólitísku bitbeini. Innlent 23.4.2021 14:17
Svandís krossar fingurna og telur ósætti litast af komandi kosningum Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segist fegin að heyra frá sóttvarnalækni að smitin sem greinist þessa dagana helgist af afmörkuðum hópsmitum af Covid-19. Hún vonast til þess að næstu aðgerðir séu afléttingar frekar en herðingar. Innlent 23.4.2021 12:41
Hátt í tíu milljarðar króna greiddir út í tekjufallsstyrki Hátt í tíu milljarðar króna hafa verið greiddir út í tekjufallsstyrki sem ætlað er að aðstoða rekstraraðila, þar með talið einyrkja, sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna kórónuveirufaraldursins. Viðskipti innlent 23.4.2021 11:34
Telja 1. júní ekki raunhæfa dagsetningu Dagsetningin 1. júní varð samkvæmt vísindamönnum ranglega að viðmiði um betri tíma í huga margra eftir að ríkisstjórnin sýndi glæru á blaðamannafundi í vikunni, þar sem á stóð að öllum takmörkunum yrði aflétt innanlands þegar stærstur hluti fullorðinna hefði verið „varinn“ með fyrri skammt af bóluefni. Innlent 22.4.2021 19:21
Varaþingmaðurinn úr Pírötum sem greiddi atkvæði gegn frumvarpi Svandísar Aðeins tvö atkvæði voru greidd gegn sóttvarnalagafrumvarpi Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í gær, þar sem skylduvist á sóttkvíarhóteli var leidd í lög fyrir ákveðna hópa við landamærin. Innlent 22.4.2021 14:29
Herra Hnetusmjör hættur við mótmæli í bili Ekkert verður af áformum rapparans Herra Hnetusmjör um að stífla Reykjanesbrautina í mótmælaskyni í bili. Innlent 22.4.2021 13:05
Ánægður með breytingarnar sem gerðar voru á frumvarpinu í nótt Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er ánægðir að frumvörp um breytingar á sóttvarnalögum og lögum um útlendinga voru samþykkt í nótt. Lagabreytingin skyldar fólk frá tilteknum svæðum, miðað við útbreiðslu kórónuveirunnar, til að fara í sóttvarnahús milli skimana eftir komuna til landsins. Innlent 22.4.2021 12:19
Frumvarpið samþykkt á Alþingi í nótt Frumvarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um breytingar á sóttvarnalögum og lögum um útlendinga, þar sem kveðið er á um sóttvarnahús og för yfir landamæri, var samþykkt á Alþingi á fimmta tímanum í nótt. Frumvarpið var samþykkt með 28 atkvæðum gegn tveimur, 22 greiddu ekki atkvæði og ellefu voru fjarstaddir. Innlent 22.4.2021 07:10
Svandís segir aðgerðirnar tímabundnar og afmarkaðar en brýnar Heilbrigðisráðherra segir Íslendinga ekki mega láta kappið bera sig ofurliði í aðgerðum gegn covid 19 og gæta meðalhófs. Nýjustu aðgerðirnar miði að því að taka harðar á þeim sem komi til landsins frá hááhættusvæðum. Reiknað er með að frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á sóttvarna- og útlendingalögum verði lögfest í kvöld. Innlent 21.4.2021 19:20
Hugmyndir Herra Hnetusmjörs „ógeðfelldar“ Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar og forseti borgarstjórnar, gagnrýnir harðlega áform rapparans Herra Hnetusmjörs um að loka landamærunum í mótmælaskyni. Innlent 21.4.2021 17:19
Einstaklingar fá að draga góðgerðaframlög upp að 350 þúsund krónum frá skatti Einstaklingar geta frá og með 1. nóvember dregið allt að 350 þúsund krónur á ári frá skattskyldum tekjum sínum utan atvinnurekstrar vegna framlaga til góðgerðastarfsemi. Innlent 21.4.2021 17:09
Kynnti fyrstu fjóra fyrirmyndaráfangastaðina á Íslandi Gullfoss, Geysir, Þingvallaþjóðgarður og Jökulsárlón verða fyrstu áfangastaðirnir til að hefja ferli til að verða svonefndar Vörður. Um er að ræða nýtt verkefni á vegum stjórnvalda sem er ætlað að leggja drög að fyrirmyndaráfangastöðum sem teljast einstakir á lands- og heimsvísu. Innlent 21.4.2021 16:24
Covid faraldurinn hefur kostað ríkissjóð allt að fjögur hundruð milljarða Fjármálaráðherra segir kórónuveirufaraldurinn hafa kostað ríkissjóð um fjögur hundruð milljarða króna. Það hafi óumdeilanlega verið skynsamlegt að hefta möguleika covid 19 veirunnar til að komast inn í landið til að verja efnahagslífið. Innlent 21.4.2021 14:29
Íslendingar borga ekki krónu fyrir bóluefnið Norðmenn ætla að lána Íslendingum 16.000 skammta af bóluefni AstraZeneca og gert er ráð fyrir að skammtarnir berist til landsins um helgina. Innlent 21.4.2021 14:19