Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)

Umhverfisráðherra segir Íslendinga ekki geta beðið eftir grænni orku
Umhverfis- og orkumálaráðherra segir útilokað að bíða með öflun grænnar orku á Íslandi ef Íslendingar ætli að ná markmiðum sínum í loftslagsmálum. Nú verði kannað hvað fór úrskeiðis við virkjanaleyfi Hvammsvirkjunar og það megi ekki taka langan tíma. Laga þurfi umsóknarferli vegna virkjana án þess að gefa eftir í umhverfismálum.

„Við bara getum ekki tekið við fleirum“
Bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ segir bæinn kominn langt yfir þolmörk í móttöku flóttafólks. Töluverður órói er í bænum vegna ástandsins.

Markmið stjórnvalda og virkjana-framkvæmdir fylgjast ekki að
Eini virkjanakosturinn sem Landsvirkjun var komin með á framkvæmdastig er í algerri óvissu eftir að Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi virkjanaleyfi Hvammsvirkjunar úr gildi í gær. Sviðsstjóri hjá Samtökum iðnaðarins segir stjórnvöld hafa brugðist í orkumálum. Allt of margar hindranir væru í kerfinu.

Alþingi taki hausinn úr sandinum í áfengismálum
Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir Alþingi verða að hætta að stinga höfðinu í sandinn þegar kemur að þróuninni á áfengismarkaði. Taka þurfi áfengislöggjöfina algjörlega í gegn þar sem hún hindri samkeppnishæfi innlendra fyrirtækja.

Bjarni tilkynnir væntanleg ráðherraskipti á sunnudag
Fastlega er búist við að Jón Gunnarsson láti af embætti dómsmálaráðherra á ríkisráðsfundi á mánudag og Guðrún Hafsteinsdóttir þingmaður flokksins á Suðurlandi komi inn í ríkisstjórn í hans stað.

Segir Ísland í „stórkostlegum vandræðum“ í útlendingamálum
Dómsmálaráðherra segir Ísland í svo „stórkostlegum vandræðum“ í útlendingamálum að það gangi ekki lengur. Hann segir „öfgafulla“ umræðu og ráðherra Vinstri grænna meðal annars standa í vegi þess að hægt sé að taka upp harðari stefnu í málaflokknum.

Þingflokkurinn fundar um ráðherraskiptin á sunnudag
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins mun funda á sunnudaginn um ráðherraskipti. Þá verður ákvörðun tekin í málinu en boðað hefur verið til ríkisráðsfundar á Bessastöðum á mánudag.

Mikilvægt að læra af því sem hefur gengið illa
Fjöldi fólks situr alþjóðlega ráðstefnu um hugmyndafræði velsældarsamfélagsins í Hörpu í dag og á morgun. Forsætisráðherra segir öruggt húsnæði fyrir alla vera meðal verkefna velsældarsamfélagsins.

Hagkaup bætist í hóp verslana sem selja áfengi
Hagkaup stefnir að því að hefja netverslun áfengis á næstu misserum. Verslunin mun þá bætast í hóp með Costco, Heimkaupum og fjölda smærri netverslana. Dómsmálaráðherra segist ekki getað dregið aðra ályktun en að vefverslun með áfengi sé lögmæt.

Segir svör Bjarna yfirgengilega ósvífin og ófullnægjandi
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur nú sent frá sér svör við spurningum um hæfi til Umboðsmanns alþingis. Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata segir ekki standa stein yfir steini í svörum Bjarna.

Samfylkingin telur samgönguáætlun ekki full fjármagnaða
Fulltrúi Samfylkingarinnar í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis segir ný framlagða samgönguáætlun ekki full fjármagnaða og hefur áhyggjur af efndum um framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Þá væri um 80 milljarða uppsöfnuð viðhaldsskuld á þjóðvegum landsins sem skynsamlegt væri að ráðast í sem fyrst.

Fráfarandi dómsmálaráðherra segir ósamstöðu hafa fellt frumvarp til lögreglulaga
Fastlega er reiknað með að Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra láti af ráðherraembætti á ríkisráðsfundi á Bessastöðum á mánudag og Guðrún Hafsteinsdóttir taki sæti í ríkisstjórn. Jón segist kveðja dómsmálaráðuneytið með söknuði verði þetta niðurstaðan en hann hafi náð mörgum góðum málum í gegn á Alþingi.

Áætlanir um fjórtán ný göng með gjaldtöku og uppbyggingu varaflugvalla
Tæplega þúsund milljarðar fara í uppbyggingu samgöngumannvirkja á næstu fimmtán árum samkvæmt samgönguáætlun sem innviðaráðherra kynnti í dag. Lokið verði við uppbyggingu varaflugvalla fyrir alþjóðaflugið og áætlun lögð fram um gerð allt að fjórtán jarðganga sem öll verði með gjaldtöku ásamt eldri göngum.

Forsætisráðuneytið kaupir siðfræðilega ráðgjöf
Forsætisráðuneytið og Háskóli Íslands, fyrir hönd Siðfræðistofnunar, hafa gert með sér samning um ráðgjöf stofnunarinnar til stjórnvalda um siðferðisleg efni og gerð kennsluefnis um siðareglur. Samningurinn gildir til tæplega eins árs og kostar stjórnvöld alls sjö milljónir króna.

Samningur í höfn um uppsteypu bílakjallara nýs Landspítala
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Þorvaldur Gissurarson forstjóri ÞG verk undirrituðu í dag samning Nýs Landspítala ohf. um uppsteypu á bílakjallara undir Sóleyjartorgi við hliðina á meðferðarkjarnanum.

Verið undirbúin fyrir flugtak
Það er fagnaðarefni að eitt af þeim málum sem varð að lögum á Alþingi Íslendinga í síðustu viku hafi verið frumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra um varaflugvallagjald.

909 milljarðar í samgöngur og einbreiðum brúm á þjóðvegi 1 útrýmt
Tillaga Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra að samgönguáætlun til næsti fimmtán ára gerir ráð fyrir að 909 milljarðar króna verði varið í samgöngur á tímabilinu. Auknu fjármagni verði varið í innanlandsflugvelli og einbreiðum brúm á hringveginum útrýmt.

Svona lítur forgangslisti Vegagerðar og Sigurðar Inga fyrir jarðgöng út
Fjarðarheiðargöng eru efst á forgangslista Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra í tillögum hans að samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038. Þetta kemur fram í drögum að samgönguáætlun í Samráðsgátt stjórnvalda. Áætlunin var kynnt á blaðamannafundi í dag.

Jón nánast örugglega á förum úr ráðherraliðinu
Boðað hefur verið til ríkisráðsfundar á mánudaginn næsta og ekki er gert ráð fyrir öðru en að þá verði gengið frá breytingum á ráðherraliði í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur: Að Jón Gunnarsson hverfi úr ríkisstjórn og Guðrún Hafsteinsdóttir komi inn.

Bein útsending: Kynnir tillögu sína um nýja samgönguáætlun 2024-2038
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, mun kynna þingsályktunartillögu sína um nýja samgönguáætlun fyrir tímabilið 2024 til 2038 á fréttamannafundi sem hefst klukkan 12:15.

Staðarráðnum starfsmönnum og leigunni sagt upp
Fimm staðarráðnum starfsmönnum íslenska sendiráðsins í Moskvu verður sagt upp í samræmi við gildandi ráðningarsamninga. Þá er gert ráð að leigusamningum fyrir húsnæði sendiráðsins og sendiherrabústað verði sagt upp.

Sprungurnar í ríkisstjórnarsamstarfinu muni dýpka enn frekar í haust
Prófessor í stjórnmálafræði segir að upptaktur að kosningabaráttunni muni lita næsta þingvetur. Þá muni sprungurnar í ríkisstjórnarsamstarfinu dýpka enn frekar.

Setja á fót mannréttindastofnun eftir ítrekuð tilmæli
Frumvarp um að koma á fót Mannréttindastofnun Íslands er komið í samráðsgátt stjórnvalda. Ísland hefur ítrekað fengið tilmæli og athugasemdir frá alþjóðlegum eftirlitsaðilum um að koma slíkri stofnun á fót.

Útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra lang fyrirferðarmesta málið
Alls voru haldnir 123 þingfundir á 153. löggjafarþingi, sem lauk á föstudag. Þingfundadagar voru 105 og stóðu þingfundirnir í samtals 659 og hálfa klukkustund.

Segja ákvörðunina eiga eftir að eyðileggja allt samstarf Rússlands og Íslands
And-rússneskum ákvörðunum íslenskra ráðamanna verður óhjákvæmilega svarað. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem rússneska utanríkisráðuneytið birti í dag í kjölfar ákvörðunar Þórdísar Kolbrúnar Gylfadóttur, utanríkisráðherra, um að leggja niður starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu, senda sendiherra Rússlands á Íslandi heim og draga þar með úr diplómatískum samskiptum ríkjanna.

Ætlar að krefja endurvinnslufyrirtækin um endurgreiðslu
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og auðlindaráðherra hyggst krefja íslensk endurvinnslufyrirtæki um endurgreiðslu á fjármunum sem greiddir voru úr Úrvinnslusjóði vegna endurvinnslu á fernum sem voru í raun og veru brenndar. Um er að ræða tugi milljóna króna sem greiddar voru til endurvinnslufyrirtækjanna.

Heilbrigðiskerfin þurfi að þola álag áfram
Formaður stjórnar Landspítalans segir ástand spítalans mjakast í rétta átt þrátt fyrir að enn sé langt í land. Enn sé of margt starfsfólk sem þjónusti sjúklinga ekki beint en það sé í höndum framkvæmdastjórnar og forstjóra spítalans að taka ákvarðanir um uppsagnir.

Allra augu á boðuðum ráðherrakapal: „Ég hef ekki hugmynd um það“
Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki hafa hugmynd um það hvenær hún tekur við embætti dómsmálaráðherra, sem henni var lofað í kjölfar myndunar ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur.

Rússneski sendiherrann verði farinn fyrir mánaðamót
Utanríkisráðherra segir enga ástæðu til að halda úti starfsemi sendiráðs í Moskvu þegar samskipti og viðskipti Íslands og Rússlands væru nánast engin og ætlar því að loka sendiráðinu. Það væri einnig hugsað í samhengi við alþjóðlegar aðgerðir til að einangra Rússa vegna innrásar þeirra í Úkraínu.

Það birtir alltaf til!
Í dag lauk seinni umræðu vegna fjármálaáætlunar 2024 - 2028. Fjármálaáætlun er verkfæri stjórnvalda til að setja fram skýra stefnu í hagstjórn hins opinbera. Þar er að finna grunngildi hagstjórnarinnar, útfærslu á markmiðum, stefnum og straumum í pólitík.