

„Þetta er stórkostlegt, loksins fengum við smá sigurvímu. Við gerðum þetta aðeins spennandi svona eins og þetta á að vera,“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, eftir fyrsta sigur ÍBV í Bestu deild karla í dag er liðið tók á móti Val. Lokatölur 3-2.
Íþróttabandalag Vestmannaeyja mun falla frá þeirri ákvörðun frá 15. mars sl. um tekjuskiptingu milli knattspyrnu- og handknattleiksdeildar félagsins.
Aðalstjórn ÍBV þarf að fara að leysa hnúta sem myndast hafa innan félagsins vegna umdeildrar ákvörðunar sem hún tók vegna skiptingar fjármagns til íþróttadeilda innan ÍBV.
ÍBV, Haukar og KA eru þau þrjú íslensku lið sem skráð eru til leiks í Evrópubikarkeppni karla í handbolta. ÍBV verður í pottinum þegar dregið verður í fyrstu umferð, en Haukar og KA mæta til leiks í aðra umferð.
Eyjamenn voru grátlega nálægt sínum fyrsta sigri í Bestu-deildinni í gær en þeir komust tvívegis yfir gegn KA áður norðanmenn sneru leiknum við sér í hag.
KA vann mikilvægan heimasigur á botnliði ÍBV á Akureyri í dag. Leikurinn var stórkostleg skemmtun og sjö mörk litu dagsins ljós en það var Elfar Árni Aðalsteinsson sem skoraði sigurmark heimamanna.
Eyjamenn, sem voru sigurlausir á botni Bestu-deildar karla fyrir leik dagsins, gerðu sér lítið fyrir og tóku stig af sjóðheitu toppliði Breiðabliks er liðin gerðu markalaust jafntefli í Vestmannaeyjum í dag.
Þeir Hans Kamta Mpongo og Hosine Bility hafa yfirgefið lið ÍBV og Fram í Bestu deild karla í fótbolta. Munu þeir ekki leika meira með liðunum á leiktíðinni.
Það stefnir í mikinn hitafund í Vestmannaeyjum í kvöld þegar aðalfundur ÍBV Íþróttafélags fer fram. Fyrr í dag sagði handknattleiksráð félagsins af sér vegna mikillar óánægju með skiptingu fjár á milli handboltans og fótboltans hjá félaginu.
Stjórn handknattleiksdeildar ÍBV hefur lýst yfir vantrausti á aðalstjórn félagsins og séð sig tilneydda að segja af sér störfum.
Stórsigur Breiðabliks á KR í Bestu deild karla á fimmtudag fer í sögubækurnar. Var Breiðablik þar að vinna sinn 16. heimaleik í röð í efstu deild. Síðasta tap liðsins á Kópavogsvelli kom í fyrstu umferð síðasta tímabil þegar KR vann þar 2-0 útisigur.
Stúkan rýndi í annað mark ÍBV er liðið gerði 3-3 jafntefli við Fram í Úlfarsárdal í Grafarholti. Nýtt myndefni sýnir að „Andri Rúnar Bjarnason er klárlega fyrir innan“ í aðdraganda marksins en atburðarrásin fyrir markið var vægast sagt undarleg.
Þrír leikir fóru fram í Bestu deild karla í gærkvöldi. Fram vígði nýjan heimavöll og bauð til veislu er ÍBV kom í heimsókn. Stjarnan tók á móti KR og Breiðablik skoraði fjögur gegn KA.
Það var sannkölluð markaveisla í Úlfarsárdal þar sem Framarar voru að vígja nýjan heimavöll sinn í kvöld. Sigurlausir Eyjamenn voru í heimsókn en bæði lið skoruðu þrjú mörk fyrir framan mikinn fjölda í Grafarholtinu.
Andri Rúnar Bjarnason, framherji ÍBV, var svekktur að hafa ekki fengið stigin þrjú út úr leiknum sem ÍBV spilaði í kvöld við Fram á nýjum heimavelli þeirra í Úlfarsárdal. Leiknum lauk með 3-3 jafntefli, en Andri gerði sjálfur tvö mörk fyrir ÍBV.
Stjarnan og ÍBV mættust í síðasta leik Bestu deildar kvenna fyrir EM kvenna í knattspyrnu fyrr í dag í Garðabænum. Stjarnan var mikið betri aðilinn í seinni hálfleik og uppskar þrjú mörk eftir að hafa sótt án afláts seinni 45 mínúturnar. Leikurinn endaði 4-0 og þótti sigurinn sanngjarn.
Alls voru níu mörk skoruð í aðeins tveimur leikjum í Bestu deild karla í fótbolta á miðvikudag. KR og ÍA gerðu 3-3 jafntefli á meðan Víkingar lögðu ÍBV 3-0 í Vestmannaeyjum.
Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, var afar jákvæður eftir 0-3 tap á heimavelli gegn Víkingi Reykjavík.
Víkingur Reykjavík vann sannfærandi útisigur á ÍBV 0-3. Gestirnir spiluðu afar vel í fyrri hálfleik sem skilaði tveimur mörkum. Eyjamenn voru töluvert betri í seinni hálfleik en nýttu ekki færin sín og Ari Sigurpálsson kláraði síðan leikinn er hann skoraði þriðja mark Víkings.
Fyrrum landsliðsþjálfarinn Heimir Hallgrímsson er mættur til Vestmannaeyja. Heimir er á varamannabekk ÍBV í leik liðsins gegn Víkingi sem nú stendur yfir.
Jonathan Glenn, þjálfari ÍBV, var sáttur með sigurinn á móti Aftureldingu í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld. Með sigrinum lyfti ÍBV sér upp í 2. sæti deildarinnar, í bili. Mark ÍBV kom undir lok fyrri hálfleiks, lokatölur 1-0.
Nýliðar Aftureldingar tóku á móti ÍBV í Bestu deild kvenna í fótbolta. Afturelding er í fallsæti á meðan ÍBV er í 6. sæti. Eina mark leiksins kom rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og var það Olga Sevcova sem kom ÍBV í 1-0.
Stjarnan varð í kvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum MJólkurbikars kvenna er liðið vann öruggan 1-4 útisigur gegn ÍBV.
Kristín Erna Sigurlásdóttir skoraði sigurmark ÍBV er liðið lagði Keflavík 3-2 í 8. umferð Bestu deildar kvenna á dögunum. Farið var yfir frammistöðu Kristínar Ernu í Bestu mörkunum að leik loknum.
Mörkunum rigndi í 8. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta og hér á Vísi má sjá öll mörkin úr umferðinni. Sautján ára leikmaður Þróttar skoraði þrennu á tuttugu mínútum.
Það gustaði duglega úr austri þegar ÍBV tók á móti Keflavík á Hásteinsvelli í dag í fimm marka leik sem endaði 3-2 fyrir Eyjastúlkum. Þó stigin hafi öll orðið eftir í Vestmannaeyjum voru þau ekki auðfengin.
Stórskyttan Ásta Björt Júlíusdóttir er gengin til liðs við uppeldisfélag sitt eftir eins árs veru hjá Haukum.
Grímur Hergeirsson verður ekki í þjálfarateymi ÍBV í Olís deild karla í handbolta á næstu leiktíð.
Topplið Vals varð sér úti um stig í blálokin þegar liðið fékk ÍBV í heimsókn í Bestu deildinni í fótbolta á fimmtudagskvöld.
Valskonum tókst að kreista stig gegn ÍBV á heimavelli. Ásdís Karen Halldórsdóttir jafnaði leikinn í uppbótartíma en ÍBV hafði verið marki yfir frá því í byrjun síðari hálfleiks.