
Þór Akureyri

Uppgjör: Þór/KA-Fylkir 3-1 | Akureyringar blanda sér í toppbaráttuna
Þór/KA lagði Fylki 3-1 í 9. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Þór/KA er aðeins þremur stigum á eftir toppliði Breiðabliks á meðan Fylkir er komið í botnsætið.

„Ef hún andar inn á vellinum þá skorar hún“
Sandra María Jessen varð um helgina sú fimmtánda í sögunni til að skora hundrað mörk í efstu deild kvenna í fótbolta.

Uppgjör: Stjarnan – Þór/KA 1-4 | Sandra María hættir ekki að skora
Þór/KA er komið aftur á beinu brautina í Bestu deild kvenna eftir 3-0 tap fyrir toppliði Breiðabliks í síðustu umferð. Í 8. umferð fór liðið í Garðabæinn og vann ótrúlegan 4-1 sigur eftir að lenda marki undir snemma leiks.

„Maður finnur aðeins til með liðinu að þurfa að spila á þessum velli”
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, var léttur í lund þegar blaðamann bar að garði eftir 1-0 sigur á Þór á Akureyri í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins með marki á lokaandartökum leiksins.

„Þurfum að fara láta þetta falla fyrir okkur núna“
„Það er eiginlega erfitt að einhvernveginn setja það í orð skilurðu, maður er einhvernveginn ekki alveg búinn að átta sig á tilfinningunum eftir leikinn þannig ég þarf eiginlega bara að fá að þessa pass við þessari spurningu“, sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, sem var eðlilega enn að jafna sig eftir að hafa dottið út úr 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins gegn Stjörnunni þar sem eina mark leiksins kom á þriðju mínútu uppbótartíma.

Uppgjör: Þór Ak. - Stjarnan 0-1 | Róbert Frosti dró Stjörnuna í undanúrslit
Stjarnan er komin í undanúrslit Mjólkurbikarsins eftir dramatískan 1-0 sigur gegn Lengjudeildar liði Þórs á Akureyri fyrr í kvöld. Róbert Frosti Þorkelsson skoraði eina mark leiksins á þriðju mínútu uppbótartíma eftir annars bragðdaufan leik.

„Við tökum vel á móti öllum sem vilja gera sér ferð norður“
Þór/KA tryggði sér farseðilinn í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna þegar liðið sigraði FH með einu marki gegn engu í Hafnarfirði í dag. Það var létt yfir þjálfara liðsins, Jóhanni Kristni Gunnarssyni, eftir sigurinn í dag.

Leik lokið: FH - Þór/KA 0-1 | Sandra María skoraði strax og tryggði sigur
FH féll úr leik í Mjólkurbikar kvenna eftir 0-1 tap gegn Þór/KA í 8-liða úrslitum. Sandra María Jessen kom inn á í hálfleik og skoraði strax á 48. mínútu til að tryggja sigur.

Sjáðu þrennur Ísabellu og Kristrúnar og öll mörkin
Sautján mörk voru skoruð í 7. umferð Bestu deildar kvenna sem fór fram í gær. Tveir leikmenn gerðu þrennu.

„Ég var að reyna senda hann á fjærsvæðið og hann fór inn, ég tek því bara”
„Bara ótrúlega sátt, þetta gerist ekkert mikið betra en að mæta hérna á Akureyri og vinna 3-0 þannig bara frábær sigur í dag”, sagði Agla María Albertsdóttir, leikmaður Breiðabliks, eftir öruggan útisigur gegn Þór/KA í toppslag deildarinnar en Agla bæði skoraði og lagði upp í dag.

„Sést oft í Eyjum og á N1 mótinu en á kannski ekki að vera í fullorðinsfótbolta”
„Ég er mjög ósáttur með hvernig við töpuðum þessum leik. Alltaf vont að tapa og frekar ósáttur hvernig við töpuðum þessum, það er bara þannig”, sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þórs/KA, eftir 3-0 tap gegn toppliði Breiðabliks á heimavelli í dag.

„Við vorum ekki að fara spila fótbolta hérna“
Nik Chamberlain, þjálfari toppliðs Breiðabliks, var ánægður með 3-0 sigur gegn Þór/KA fyrir norðan í dag en segir aðstæður hafa verið erfiðar en spilað var á VÍS-vellinum sem hefur náttúrulegt gras og hefur mátt þola snjókomu alla vikuna.

Uppgjör: Þór/KA - Breiðablik 0-3 | Blikar völtuðu yfir toppslaginn
Breiðablik lagði Þór/KA sannfærandi að velli, 3-0, í toppslag í 7. umferðar Bestu deildar kvenna á Akureyri í dag. Breiðablik er því áfram taplaust á toppnum en Þór/KA fellur niður í þriðja sæti eftir sigur Vals fyrr í dag.

Njarðvíkingar rústuðu Þórsurum
Njarðvík gerði sér lítið fyrir og valtaði fyrir Þór, 5-1, þegar liðin áttust við suður með sjó í Lengjudeild karla í kvöld.

Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 5-0 | Þór/KA í stuði í Boganum
Þór/KA vann öruggan 5-0 sigur gegn Tindastóli í Boganum fyrr í kvöld en leikurinn var liður í sjöttu umferð Bestu deildar kvenna. Heimakonur komust snemma yfir og leiddu með fjórum mörkum í hálfleik og sigurinn því aldrei í hættu.

„Hefðum getað gert þetta ennþá ljótara á töflunni”
Þór/KA vann 5-0 stórsigur á Tindastóli í bestu deild kvenna fyrr í kvöld eftir að hafa leitt með fjórum mörkum í hálfleik. Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þór/KA, var mjög ánægður með leik síns liðs og þá sérstaklega spilamennskuna í fyrri hálfleik sem lagði grunninn að sigrinum.

„Margir hlutir sem spila inn í en fyrst og fremst þessi hefð og menning“
Helena Ólafsdóttir fékk til sín keppnisgesti til að hita upp fyrir 6. umferð Bestu deildar kvenna. Rakel Logadóttir, fyrrum leikmaður Vals og Ásthildur Helgadóttir, fyrrum leikmaður Breiðabliks, settust í settið ásamt sérfræðingnum Mist Rúnarsdóttur.

Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík
Lið Þórs/KA er komið áfram í átta liða úrslit Mjólkurbikars kvenna í fótbolta eftir sigur á Tindastóli, 1-2, í dag. Leikið var á Dalvík.

„Þegar við skorum að þá er gaman“
„Ég er ægilega ánægður, mér fannst liðið bara flott í þessum leik á móti erfiðu liði,“ sagði Jóhann Kristinn þjálfari Þór/KA eftir 4-0 sigur á Keflavík á Akureyri í Bestu deild kvenna í fótbolta.

Uppgjör og viðtöl: Þór/KA - Keflavík 4-0 | Heimakonur ekki í vandræðum
Þór/KA vann góðan 4-0 heimasigur á Keflavík í 5. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta á Akureyri í dag. Fyrir leikinn var Þór/KA í þriðja sæti deildarinnar með níu stig en gestirnir í botnsætinu án stiga.

Segir að móðurhlutverkið hafi gert sig að betri leikmanni
Sandra María Jessen, markahæsti leikmaður Bestu deildar kvenna í fótbolta, segist hafa orðið betri leikmaður eftir að hún eignaðist barn.

Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“
Engu er logið þegar sagt er að Sandra María Jessen, landsliðskona í fótbolta, hafi farið hamförum í upphafi tímabils. Hún hefur skorað öll sjö mörk Þórs/KA í sumar og er markahæst í Bestu deildinni. Sandra ákvað að semja aftur við Þór/KA í vetur og er sátt með þá ákvörðun. Hún segir að Akureyringa dreymi um að verða Íslandsmeistarar.

„Ég vil vera þarna uppi að berjast um flest mörk“
Sandra María Jessen, fyrirliði Þór/KA, skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri gegn Þrótti í Boganum í þriðju umferð Bestu deildar kvenna og er nú komin með sjö mörk í fyrstu þremur leikjum tímabilsins og má til með að brosa.

Uppgjörið og viðtöl: Þór/KA - Þróttur 2-1 | Sandra María algjörlega óstöðvandi
Þór/KA vann 2-1 gegn Þrótti í 3. umferð Bestu deildar kvenna. Sandra María Jessen skoraði bæði mörk heimakvenna, hún hefur nú skorað sjö mörk í fyrstu þremur leikjum mótsins.

Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið
Það er því miður gömul saga og ný að ekki sé ekki gengið frá leikskýrslum Bestu deildar kvenna með réttum hætti. Enn eitt dæmið er úr leik Vals og Þór/KA í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna.

Sandra María: Vil gera betur en í fyrra
Sandra María Jessen, fyrirliði Þórs/KA, fór á kostum í sigri liðsins gegn FH í dag en hún gerði sér lítið fyrir og skoraði öll fjögur mörk liðsins í 0-4 sigri.

Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór/KA 0-4 | Óvæntur stórsigur gestanna
FH tók á móti Þór/KA í 2. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í leik sem búist var við að yrði gríðarlega jafn. Annað kom á daginn en gestirnir unnu ótrúlegan sigur.

Sjáðu sýningu Amöndu gegn Akureyringum
Keppni í Bestu deild kvenna hófst í gær með leik Íslandsmeistara Vals og Þórs/KA á N1-vellinum á Hlíðarenda.

„Sem fyrrum sóknarmaður er ég mjög sáttur með varnarleikinn“
Pétur Pétursson, þjálfari Vals, var að vonum ánægður með sigur síns liðs gegn Þór/KA í fyrsta leik Bestu deildar kvenna í dag.

Uppgjörið og viðtöl: Valur - Þór/KA 3-1 | Amanda með tvö og titilvörnin byrjar vel
Íslandsmeistarar Vals byrja vel í Bestu deild kvenna í fótbolta en liðið vann 3-1 sigur á Þór/KA í opnunarleik mótsins. Amanda Andradóttir skoraði tvö fyrstu mörk Íslandsmótsins en Jasmín Erla Ingadóttir var bæði með mark og stoðsendingu í fyrsta deildarleik með Val.