Besta deild karla

Himnasending til Framara
Úrvalsdeildarlið Fram hefur náð sér í liðstyrk frá Suður-Ameríku fyrir fyrsta tímabil félagsins í efstu deild í átta ár.

ÍBV landaði bolvíska markahróknum
Andri Rúnar Bjarnason, sem kvaddi Ísland sem einn þeirra sem deila markametinu í efstu deild í fótbolta, verður með í deildinni á nýjan leik næsta sumar, sem leikmaður ÍBV.

ÍBV sækir sér liðsstyrk frá meisturunum
Nýliðar ÍBV hafa fengið liðsstyrk frá meisturum Víkings fyrir næsta fótboltasumar. Halldór Jón Sigurður Þórðarson skrifaði undir samning við Eyjamenn til þriggja ára.

Stjarnan staðfestir komu Jóhanns Árna
Knattspyrnudeild Stjörnunnar staðfesti í dag komu Jóhanns Árna Gunnarssonar til félagsins. Hann kemur frá Fjölni en í gær var greint frá því að hann væri á leiðinni í Garðabæinn.

Þökk sé formanninum sprungu allir úr hlátri í KR-klefanum þrátt fyrir 7-0 tap
Kristinn Kjærnested, fyrrum formaður Knattspyrnudeildar KR, var nýjasti gestur Henry Birgis Gunnarssonar í Foringjunum á Stöð 2 Sport en í þáttunum er rætt við menn sem hafa gefið mikið af sér og verið lengi í áhrifastöðum hjá íslenskum íþróttafélögunum.

Fyrrverandi leikmaður Pepsi deildarinnar í fótbolta eftirlýstur í 194 löndum
Alþjóðalögreglan, Interpol, leitar enn að senegalska knattspyrnumanninum Babacar Sarr sem spilaði hér á landi fyrir tæpum áratug síðan. Hans hefur nú verið leitað í tvö ár og það er eins og jörðin hafi gleypt hann.

Jóhann Árni á leið í Stjörnuna
Svo virðist sem Stjarnan mæti með mikið breytt lið til leiks í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu næsta sumar en það virðist sem Jóhann Árni Gunnarsson sé á leið í Garðabæinn.

Davíð Þór verður yfirmaður knattspyrnumála hjá FH
Davíð Þór Viðarsson verður tilkynntur sem yfirmaður knattspyrnumála hjá FH áður en langt um líður. Hann þekkir hvern krók og kima í Kaplakrika eftir að hafa leikið með liðinu sem og að hafa verið aðstoðarþjálfari þess á síðustu leiktíð.

Misheppnuð skipti Kára Árna til Vals gerðu ferilinn og Sölvi Geir hafði meiri áhuga á íshokkí
Gunnlaugur Jónsson ræddi við Ríkharð Óskar Guðnason um muninn á þeim æskufélögunum Kára Árnasyni og Sölva Geir Ottesen í Þungavigtinni.

Kári um Víkingsþættina: „Vona að hann geri þetta ekki of væmið“
Landsliðsmiðvörðurinn Kári Árnason endaði knattspyrnuferilinn á besta mögulega hátt í sumar er Víkingur – uppeldisfélag hans - varð Íslands- og bikarmeistari með hann í hjarta varnarinnar.

Einn þeirra sem hrakti hann úr Fylki var sá sem hann leyfði að fá fyrirliðabandið
Ásgeir Börkur Ásgeirsson var á sínum tíma „Herra Fylkir“ og því kom mörgum mikið á óvart þegar hann yfirgaf Árbæjarliðið árið 2018 og fór yfir í HK. Ásgeir Börkur gerði upp þennan tíma í viðtali Mána Pétursson í hlaðvarpsþættinum Enn einn fótboltaþátturinn sem kom út í vikunni.

Arnar Gunnlaugs í nýja Víkingsþættinum: Kemur hálfgert panikk ástand í klúbbinn
Fyrsti þátturinn af nýrri þáttröð um magnað tímabil Víkinga í fótboltanum í ár er á dagskrá Stöð 2 Sport á morgun. Þættirnir heita „Víkingar - Fullkominn endir“ en þar er fjallað um tvöfaldan sigur Víkingsliðsins í sumar.

Valur keypti Orra Hrafn frá Fylki
Orri Hrafn Kjartansson er orðinn leikmaður Vals eftir að Hlíðarendafélagið keypti hann frá Fylki.

ÍBV reynir að fá til sín markakóng
Nýliðar ÍBV vinna að því að fá mikinn liðsstyrk fyrir næstu leiktíð í úrvalsdeild karla í fótbolta en þeir hafa átt í viðræðum við framherjann Andra Rúnar Bjarnason.

Þungavigtin um Arnór Smára: „Hann vann ekki fyrir einni krónu af þeim peningum síðasta sumar“
Í síðasta þætti Þungavigtarinnar velti Ríkharð Óskar Guðnason, Rikki G, þeirri spurningu hvort kaup Vals á Arnóri Smárasyni væru einhver verstu kaup síðari ára. Að venju voru þeir Kristján Óli Sigurðsson og Mikael Nikulásson með Rikka.

Pepsi Max deild karla á að byrja um páskana samkvæmt fyrstu drögum
Fyrstu drög af Pepsi Max deildinni sýna að mjög sérstakt Íslandsmót er framundan í fótboltanum.

Sindri til reynslu hjá litla bróður
Markvörðurinn Sindri Kristinn Ólafsson úr Keflavík verður næstu daga til reynslu hjá danska 1. deildarliðinu Esbjerg.

Meistararnir fá góðan liðsstyrk úr Kópavoginum
Íslands- og bikarmeistarar Víkings kynntu tvo nýja leikmenn í dag, þá Karl Friðleif Gunnarsson og Davíð Örn Atlason. Þeir koma báðir frá Breiðabliki.

Víkingur og KA í Skandinavíudeild
Íslandsmeistarar Víkings og lið KA munu hefja nýtt knattspyrnuár í hlýjunni á Alicante á Spáni þar sem liðin leika í Skandinavíudeildinni í fótbolta.

Segir að það hafi verið mistök að reka Willum
Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, viðurkennir að hafa gert mistök þegar Willum Þór Þórssyni var sagt upp sem þjálfara liðsins um mitt sumar 2009.

„Svíður ekki“ þegar Val er lýst sem fasteignafélagi: „Snertum ekki höfuðstólinn“
Formaður knattspyrnudeildar Vals segir að Valsmenn séu staðráðnir í að fara vel með sterka fjárhagsstöðu sína og það angri sig ekki þó að „einhverjir félagar á Twitter“ lýsi félaginu sem fasteignafélagi.

Óskar Hrafn sannfærður um að Venesúelamaðurinn hitti í mark
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, bindur miklar vonir við nýjasta leikmann liðsins, Juan Camilo Pérez frá Venesúela.

Breiðablik fær venesúelskan liðsstyrk
Breiðablik hefur samið við Juan Camilo Pérez, 22 ára fjölhæfan leikmann frá Venesúela, um að leika með liðinu næstu tvö árin.

Tiago snýr aftur í Fram
Portúgalski miðjumaðurinn Tiago Manuel Silva Fernandes er snúinn aftur í raðir Fram og mun leika með liðinu í Pepsi Max deild karla á næstu leiktíð.

Leggur skóna á hilluna rétt rúmlega þrítugur að aldri
Arnþór Ingi Kristinsson hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna. Skagamaðurinn hefur leikið með KR undanfarin ár og var til að mynda stór ástæða þess að liðið varð Íslandsmeistari sumarið 2019.

Dr. Football telur að það þurfi að fækka fótboltafélögum í Reykjavík
Hjörvar Hafliðason, eigandi hlaðvarpsins Dr. Football og knattspyrnusérfræðingur, hefur ákveðnar skoðanir á því sem þarf að gerast í íslenskri knattspyrnu svo að íslenskir knattspyrnukarlar fari aftur að ná árangri.

Keflavík endurheimtir Sindra frá ÍA
Keflavík hefur fengið góðan liðsstyrk en miðjumaðurinn Sindri Snær Magnússon hefur skrifað undir samning við félagið sem gildir út næstu þrjár leiktíðir.

„Ætli móðirin hafi ekki séð um uppeldið“
Sigurður Óli Þórleifsson, aðstoðardómari í leiknum fræga á milli FH og Stjörnunnar árið 2014, sendir fyrrverandi formanni knattspyrnudeildar FH tóninn í færslu á Facebook eftir harkaleg ummæli formannsins í hans garð.

Kennir „blindum beitusala“ um og segir Stjörnuna enn eiga eftir að vinna titilinn
„Ég sé rautt þegar það er talað um þetta,“ segir Jón Rúnar Halldórsson, bæði í gríni og alvöru, um leikinn fræga á milli Stjörnunnar og FH þegar Stjarnan tryggði sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í fótbolta karla árið 2014, á kostnað FH.

Óttar Bjarni spilar með uppeldisfélaginu á næstu leiktíð
Það virðist klappað og klárt að Óttar Bjarni Guðmundsson muni leika með uppeldisfélagi sínu Leikni Reykjavík í efstu deild karla í knattspyrnu sumarið 2022.