
Besta deild karla

Gagnrýni Samúels ósanngjörn: „Þetta verður stórkostleg breyting“
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar lætur kveinstafi Samúels Samúelssonar, stjórnarmanns knattspyrnudeildar Vestra, sem vind um eyru þjóta. Hún segir bæjaryfirvöld styðja stolt við knattspyrnustarfið fyrir vestan.

Tíu bestu liðin (1984-2023): ÍA 1995 | Scania og Ferrari á Skaganum
ÍA varð Íslandsmeistari fjórða árið í röð og jafnaði stigamet liðsins frá því tveimur árum áður. Skagamenn unnu fyrstu tólf leiki sína og unnu deildina með fjórtán stiga mun. Ólafur Þórðarson var í aðalhlutverki fyrri hluta tímabilsins en seinni hlutann stal Arnar Gunnlaugsson fyrirsögnunum og hirti gullskóinn þrátt fyrir að spila bara sjö deildarleiki.

Snjó ekki rutt burt, stórskemmt vallarhús og mörk og línur vantar
Ísafjarðarbær þarf að þjónusta og styðja við fótboltastarfið í bænum með mun betri hætti en nú er. Þetta segir Samúel Sigurjón Samúelsson, formaður meistaraflokksráðs karla hjá Vestra.

Tíu bestu liðin (1984-2023): Fram 1988 | Ókleifur hamarinn
Fram varð Íslandsmeistari 1988, í annað sinn á þremur árum, með fáheyrðum yfirburðum og setti stigamet sem stendur enn í tíu liða deild með þriggja stiga reglunni. Fram-vörnin óvinnandi vígi og Birkir Kristinsson hélt tólf sinnum hreinu í átján leikjum. Framar á vellinum voru Pétur Ormslev og Guðmundur Steinsson aðalmennirnir.

Lætur bæjaryfirvöld á Ísafirði fá það óþvegið
Formaður meistaraflokksráðs Vestra í fótbolta, Samúel Samúelsson - betur þekktur sem Sammi, er heldur betur ósáttur með bæjaryfirvöld á Ísafirði þessa dagana. Lét hann gamminn geysa á Facebook-síðu sinni.

Valur hafnaði tilboði Breiðabliks í Aron Jó
Þrátt fyrir miklar breytingar á þjálfarateymi og leikmannahóp þá er Breiðablik stórhuga fyrir komandi tímabil í Bestu deild karla. Liðið bauð í Aron Jóhannsson, leikmann Vals, en tilboðinu var hafnað.

Tíu bestu liðin (1984-2023): KR 1999 | Þetta er KR, það er enginn einn
Á aldarafmæli félagsins braut KR loks ísinn og varð Íslandsmeistari í fótbolta karla eftir 31 árs bið. KR-ingar urðu einnig bikarmeistarar í þriðja sinn á sex árum. Guðmundur Benediktsson fór á kostum en koma tveggja Skagamanna gerði gæfumuninn fyrir KR-inga sem náðu toppsætinu snemma móts og létu það ekki af hendi eftir það.

FH með stórsigur í Þungavigtarbikarnum
ÍA og FH mættust í úrslitaleik Þungavigtarbikarsins í fótbolta karla í dag en þetta var annað árið í röð sem FH vinnur þennan bikar.

Blikar frá Barcelona beint á æfingu: „Erfitt að hringja sig inn veikan þá“
Karlalið Breiðabliks hóf í vikunni undirbúning fyrir komandi leiktíð í Bestu deild karla. Aldrei hefur lið hafið undirbúninginn eins seint. Leikmenn liðsins eru örlítið ryðgaðir en fagna nýbreytninni.

Davíð til Danmerkur
Fótboltamaðurinn Davíð Ingvarsson er genginn í raðir danska B-deildarliðsins Kolding frá Breiðabliki.

Titillinn tekinn af KR: „Þetta er bara klúður“
KR-ingar þurfa að öllum líkindum að horfa á eftir Reykjavíkurmeistaratitlinum í fótbolta, sem þeir fögnuðu í gærkvöld, í hendur Víkinga sem verður dæmdur 3-0 sigur í leik liðanna vegna ólöglegs leikmanns KR.

Tíu bestu liðin (1984-2023): Stjarnan 2014 | Sú tilfinning er engu lík
Undir taktföstum tónum Silfurskeiðarinnar vann Stjarnan sinn fyrsta og eina Íslandsmeistaratitil á eins ævintýralegan hátt og mögulegt var. Stjörnumenn fóru einnig lengra í Evrópukeppni en íslenskt lið hafði áður farið og mætti meðal annars Inter í tveimur leikjum. Úrslitaleik FH og Stjörnunnar gleymir svo enginn sem hann sá.

Ágúst Eðvald: Veit alveg hvað í mér býr
Ágúst Eðvald Hlynsson samdi nýverið við AB Gladsaxe sem spilar í C-deildinni í Danmörku. Hann segir að ekki sé um að ræða skrif niður á við frá Breiðabliki þar sem hann spilaði á síðasta ári en nýir eigendur AB stefna hátt og er Ágúst Eðvald spenntur að vera hluti af því verkefni.

Tíu bestu liðin (1984-2023): ÍA 1996 | Á degi eins og þessum
Eftir stormasamt tímabil lauk glæsilegri sigurgöngu ÍA á eftirminnilegan hátt, með fimmta Íslandsmeistaratitlinum á jafn mörgum árum og bikarmeistaratitli. Nýjar stjörnur komu fram og kjarnastarfsmenn stóðu áfram fyrir sínu. Æsilegu kapphlaupi Skagamanna og KR-inga um Íslandsmeistaratitilinn lauk með úrslitaleik á Akranesi.

Tíu bestu liðin (1984-2023): ÍBV 1998 | Komu fagnandi
Eftir að hafa verið hársbreidd frá því að vinna tvöfalt árið á undan afrekaði ÍBV það tímabilið 1998. Steingrímur Jóhannesson fyllti skarð Tryggva Guðmundssonar með glæsibrag og skoraði grimmt fyrir Eyjamenn sem lentu í þrengingum um sumarið en tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri á KR-ingum í úrslitaleik í Frostaskjólinu.

Tíu bestu liðin (1984-2023): Breiðablik 2022 | Háflug á vængjum Hrafnsins
Breiðablik missti af Íslandsmeistaratitlinum 2021 á grátlegan hátt en kom öflugt til baka og vann titilinn með talsverðum yfirburðum árið eftir. Blikar, með Ísak Snæ Þorvaldsson í feiknaformi, byrjuðu tímabilið af gríðarlegum krafti, unnu fyrstu átta leiki sína og voru alltaf fremstir í kapphlaupinu um titilinn. Þá gerðu þeir sig gildandi í Evrópukeppni.

Lengjubikar karla og kvenna í beinni á Stöð 2 Sport
Knattspyrnuáhugafólk getur farið að hita upp fyrir fótboltasumarið með því að sjá liðin spila leiki í beinni á Stöð 2 Sport í stærsta mótinu á undirbúningstímabilinu.

Tíu bestu liðin (1984-2023): Fylgt úr hlaði
Vísir fékk valinkunna sérfræðinga til að velja bestu liðin í íslenskum karlafótbolta undanfarin fjörutíu ár. Umfjöllun um tíu bestu liðin birtist á næstu dögum.

Fór í Val til að vinna titla: „Æfa á atvinnumannatíma“
Jónatan Ingi Jónsson er kominn heim úr atvinnumennsku og samdi við Valsmenn. Hann er uppalinn hjá FH og spilaði fjögur tímabil með meistaraflokki FH áður en hann fór út í atvinnumennsku eftir 2021 tímabilið.

Birnir Snær til Svíþjóðar
Sænska knattspyrnufélagið Halmstad hefur tilkynnt að Birnir Snær Ingason, fráfarandi leikmaður Íslands- og bikarmeistara Víkings, sé nýjasti leikmaður félagsins. Ekki kemur fram hversu langan samning Birnir Snær gerir við félagið.

Valsmenn staðfesta komu Jónatans Inga
Knattspyrnudeild Vals hefur komist að samkomulagi við Jónatan Inga Jónsson um að hann muni leika með liðinu í Bestu-deild karla.

Pétur tekur slaginn með Vestra í efstu deild
Pétur Bjarnason er snúinn aftur á heimaslóðir og mun spila með uppeldisfélagi sínu Vestra í Bestu deild karla í knattspyrnu í sumar. Þetta staðfesti félagið fyrr í dag.

Jónatan Ingi að ganga til liðs við Val
Kantmaðurinn Jónatan Ingi Jónsson er að ganga í raðir Vals fyrir komandi tímabil í Bestu-deild karla í knattspyrnu.

Ætlaði ekki að yfirgefa kvennaliðið en snýr sér nú að karlaliðinu
Pálmi Rafn Pálmason er hættur sem þjálfari kvennaliðs KR í knattspyrnu. Hann snýr sér nú að karlaliðinu og hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari liðsins.

Víkingur afgreiddi Fjölni auðveldlega
Íslandsmeistarar Víkings afgreiddu Fjölnismenn heldur auðveldlega í Reykjavíkurmótinu í kvöld er liðin mættust.

Grindvíkingar fá Laugardalsvöll að öllum líkindum
Knattspyrnulið Grindavíkur mun að öllum líkindum spila heimaleiki sína á Laugardalsvelli í sumar en endanlega ákvörðun verður tekin í næstu viku.

Breyttar fjölskylduaðstæður vógu þyngst
Aron Bjarnason sneri nýverið heim úr atvinnumennsku og samdi við Breiðablik fyrir komandi leiktíð í Bestu deild karla. Það var smá bras að losa sig frá liði hans erlendis en hann var ákveðinn í heimför.

KR-ingar skoruðu fimm mörk hjá Val og byrja vel undir stjórn Ryder
KR vann 5-2 sigur á Val í Reykjavíkurmóti karla í fótbolta í Egilshöllinni í dag en leikurinn fór fram á mjög óvenjulegum tíma eða klukkan 11.00 á virkum degi.

Rosenörn semur við Stjörnuna
Markvörðurinn Mathias Rosenörn hefur samið við Stjörnuna í Bestu deild karla í knattspyrnu. Samningurinn gildir út tímabilið 2026.

Fram heldur áfram að smíða nýja vörn
Fram hefur staðfest komu Þorra Stefáns Þorbjörnssonar á láni frá Lyngby í Danmörku. Hann mun leika með Frömmurum í Bestu deildinni í sumar.