Fótbolti
88 89 90 91 92 93 94 95 96 … 334 ›
Chelsea reynir að nýta tengslanet sitt í Sádi-Arabíu til að losa sig við leikmenn Enska knattspyrnufélagið Chelsea er í óðaönn að reyna losa sig við leikmenn áður en það þarf að gera tímabilið upp fjárhagslega þann 30. júní. Þá er gott að eiga góða vini sem virðast eiga meiri pening þeir vita hvað þeir eiga að gera við. Enski boltinn 19.6.2023 08:01
Unai Simon hetja Spánverja þegar liðið vann Þjóðadeildina Spánn bar sigurorð af Króatíu þegar liðin mættust í úrslitum Þjóðadeildar UEFA í fótbolta karla á De Kuip í Rotterdam í Hollandi í kvöld. Markalaust var eftir venjulegan leiktíma og framlengingu og þar af leiðandi réðust úrslitin í vítaspyurnukeppni. Fótbolti 18.6.2023 18:15
Allt útlit fyrir að Luis Enrique verði næsti stjóri PSG Hinn spænski Luis Enrique er kominn langt í samningaviðræður við PSG um að taka við þjálfun liðsins. Enrique er sagður hafa gefið klúbbnum jákvætt svar en PSG hafa varann á sér eftir að upp úr slitnaði í viðræðum við Julian Nagelsmann. Fótbolti 18.6.2023 17:05
Ingibjörg Sigurðardóttir aftur á skotskónum með Vålerenga Varnarjaxlinn Ingibjörg Sigurðardóttir var aftur á skotskónum í dag með Vålerenga í norsku úrvalsdeildinni, en þetta var þriðja mark Ingibjargar á tímabilinu. Vålerenga unnu öruggan 4-1 sigur á botnliði Arna-Bjørnar og sitja taplausar í toppsætinu eftir 16 leiki. Fótbolti 18.6.2023 16:31
Endurbætur á Nývangi í skugga fjármálaóreiðu Barcelona Barcelona mun leika heimaleiki sína næsta tímabil á Ólympíuleikvangnum í borginni en umfangsmiklar endurbætur á Nývangi eru komnar á fullt og reiknað er með að þær taki 18 mánuði. Heildarkostnaður við framkvæmdirnar er um 1,5 milljarður Evra. Fótbolti 18.6.2023 16:15
Ítalir sóttu bronsið í Þjóðadeildinni sigri á Hollendingum Ítalir fara heim með bronsið frá Hollandi eftir 3-2 sigur á Hollendingum. Hollendingar voru meira með boltann og sóttu mikið en gekk ekki nógu vel að skapa sér afgerandi færi. Fótbolti 18.6.2023 14:59
Al Hilal með risatilboð í Rubén Neves og setja plön Barcelona í uppnám Lið Al Hilal hefur lagt fram risatilboð í Rubén Neves, fyrirliða Wolves, samkvæmt Fabrizo Romano. Allt leit út fyrir að Neves væri á leið til Barcelona í lok maí en Spánverjarnir hafa ekki náð að klára kaupin, þrátt fyrir að hafa náð samningum við leikmanninn sjálfan. Fótbolti 18.6.2023 13:30
Manchester United sagðir undirbúa tilboð í Jordan Pickford Fjölmargir breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að orðið á götunni sé að Manchester United séu að undirbúa 45 milljóna punda tilboð í Jordan Pickford, markvörð Everton. Samningur David de Gea við United rennur út um mánaðarmótin. Fótbolti 18.6.2023 11:30
Portúgal heldur áfram að leika á als oddi Portúgal fer afar vel af stað í J-riðli undankeppninnar fyrir EM 2024 í knattspyrnu karla. Portúgal vann sannfærandi 3-0 sigur á móti Bosníu Hersegóveníu í þriðju umferð undankeppninnar á Estadio da Luz í Lissabon í kvöld. Fótbolti 17.6.2023 18:16
Noregur fer afleitlega af stað í undankeppninni Skotland er með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir í A-riðli undankeppninnar fyrir EM 2024 í fótbolta karla en skoska liðið lagði Noreg, sem fer illa af stað í undankeppninni, að velli með tveömur mörkum gegn einu á Ullevaal í Osló í dag. Fótbolti 17.6.2023 15:30
Beckham skiptir yfir í Brentford frá Inter Miami Romeo Beckham skrifaði í dag undir samning við B-lið Brentford en hann hafði verið hjá liðinu á láni frá Inter Miami síðan í janúar. Samingurinn er til eins árs með möguleika á framlengingu um ár til viðbótar. Fótbolti 17.6.2023 14:31
„Ég finn fyrir því bæði á æfingum og inni á hóteli að það er einbeiting“ Bakvörðurinn Alfons Sampsted, leikmaður FC Twente og íslenska landsliðsins, var afar léttur í lundu í spjalli fyrir leikinn en sagði að leikmenn liðsins væru þó almennt mjög einbeittir og fyrirmælin frá Hareide væru skýr. Fótbolti 17.6.2023 13:59
KSÍ keyrir upp þjóðhátíðarstemmingu fyrir leikinn frá kl. 15:00 Leikdag Íslands og Slóvaíku ber uppi á sjálfan þjóðhátíðardaginn, en það verður nóg um að vera við völlinn. KSÍ opnar svokallað „fan zone“ kl. 15:00 þar sem allskonar afþreying verður í boði fyrir unga sem aldna. Fótbolti 17.6.2023 13:31
„Við sjáum alveg hvað við getum gert til að brjóta þá niður, bæði með og án bolta“ Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður D.C. United og íslenska landsliðsins, segir að Åge Hareide sé búinn að undirbúa íslenska hópinn vel fyrir leikinn gegn Slóvakíu og telur að Ísland eigi góða möguleika á að sækja þrjú stig í kvöld. Fótbolti 17.6.2023 12:05
Ólafur Kristjánsson fékk stjörnu Slóvaka til liðs við sig 2015 Ein stærsta stjarna Slóvaka er miðjumaðurinn Stanislav Lobotka sem varð ítalskur meistari með Napoli á dögunum. Ólafur Kristjánsson þekkir vel til Lobotka en hann fékk leikmanninn til Nordsjælland 2015, þá 21 árs gamlan. Fótbolti 17.6.2023 11:37
„Við verðum að ná í úrslit og förum auðvitað í leikinn til að vinna hann“ Framherjinn Alfreð Finnbogason, leikmaður Lyngby og íslenska landsliðsins, er vel stemmdur fyrir komandi landsliðsverkefni í undankeppni EM. Hann segir alltaf gaman að koma heim til Íslands á sumrin og segir að liðið stefni á sigur í dag. Fótbolti 17.6.2023 11:01
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 0-1 | Stjarnan á leið í undanúrslit Keflavík tók á móti Stjörnunni í lokaleik 8-liða úrslita Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu í kvöld. Stjörnukonur unnu síðustu viðureign liðanna 3-0 og unnu aftur í kvöld, þó með minnsta mögulega mun. Íslenski boltinn 16.6.2023 19:15
Leik lokið: Malta - England 0-4 | Kane bætti í markametið England vann auðveldan sigur á Möltu undankeppni EM 2024 í knattspyrnu. Sumir reiknuðu eflaust með fleiri mörkum en þægilegur 0-4 sigur var niðurstaðan. Fótbolti 16.6.2023 18:16
Leik lokið: Danmörk - Norður Írland 1-0 | Danir á toppinn í H-riðli Eftir óvænt tap í Kasakstan mátti Danmörk ekki við því að tapa stigum á heimavelli í undankeppni EM 2024 í knattspyrnu. N-Írar mættu til Kaupmannahafnar í von um að lyfta sér upp fyrir Dani í H-riðli en varð ekki kápan úr því klæðinu. Fótbolti 16.6.2023 18:16
Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - Selfoss 2-1 | 1. deildarlið Víkings sló úrvalsdeildarlið Selfoss úr leik Víkingur og Selfoss mættust í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu í kvöld. Víkingur trónir á toppi Lengjudeildar á meðan Selfoss skrapar botninn í Bestu deildinni. Íslenski boltinn 16.6.2023 16:46
Dreymir um að spila fyrir Real Madríd Brasilíski framherjinn Richarlison fer ekkert í grafgötur með það að honum dreymi um að spila fyrir spænska stórveldið Real Madríd. Carlo Ancelotti, þjálfari framherjans þegar hann var hjá Everton, stýrir Real í dag. Enski boltinn 16.6.2023 16:30
Gerði undantekningu og endaði með ælu í handtöskuna hjá móður Grealish Rúben Dias, miðvörður Manchester City, drekkur ekki áfengi en gerði undantekningu fyrst lið hans varð Englands-, Evrópu og bikarmeistari nýverið. Það endaði vægast sagt illa fyrir bæði hann sem og handtöskuna sem móðir Jack Grealish var með. Enski boltinn 16.6.2023 15:00
Vinícius mun leiða nefnd sem berst gegn kynþáttaníði Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins – FIFA, hefur staðfest að Vinicíus Júnior, framherji Real Madríd, muni leiða nefnd skipaða af leikmönnum. Markmið nefndarinnar er að berjast gegn kynþáttaníði. Fótbolti 16.6.2023 14:31
Svona var blaðamannafundur Íslands fyrir leikinn gegn Slóvakíu Blaðamannafundur fyrir leik Íslands og Slóvakíu í undankeppni EM 2024 í knattspyrnu fór fram klukkan 12.45 í Laugardal í dag. Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide og fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson sátu fyrir svörum og sjá má upptöku af fundinum hér að neðan. Fótbolti 16.6.2023 12:16
Rauð spjöld og níðsöngvar er Bandaríkin fóru í úrslit Bandaríkjamenn unnu öruggan 3-0 sigur er liðið mætti Mexíkó í undanúrslitum Þjóðardeildar Norður- og Mið-Ameríku í nótt. Það eru þó ekki úrslit leiksins sem vekja mesta athygli, heldur lætin sem áttu sér stað á meðan leik stóð. Fótbolti 16.6.2023 10:31
Úkraínumaðurinn Zinchenko vill banna allt íþróttafólk frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi Úkraínumaðurinn Oleksandr Zinchenko, vinstri bakvörður enska knattspyrnufélagsins Arsenal, vill banna allt íþróttafólk frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi. Þá segist hann tilbúinn að berjast fyrir land sitt. Fótbolti 16.6.2023 10:00
Þjálfari Slóvakíu segir Ísland með sterka liðsheild og býst við líkamlega erfiðum leik Francesco Calzona, þjálfari Slóvakíu, er spenntur fyrir leik Íslands og Slóvakíu þann 17. júní. Hann segir íslenska liðið spila sem eina liðsheild og býst við líkamlega erfiðum leik. Fótbolti 16.6.2023 09:01
Hættir að grípa bolta í von um að grípa ástina Markvörðurinn Scott van-der-Sluis hefur ákveðið að segja upp samningi sínum hjá írska knattspyrnufélaginu Shelbourne Football Club þar sem hann er að fara taka í hinum fræga raunveruleika þætti Love Island. Fótbolti 16.6.2023 07:30
Lagerbäck: „Afar góð ákvörðun hjá KSÍ að ráða Åge til starfa“ Lars Lagerbäck, fyrrum landsliðsþjálfari íslenska landsliðsins í fótbolta, er spenntur fyrir stjórnartíð Åge Hareide með liðið. Aðstæður nú séu að mörgu leiti ansi svipaðar þeim sem voru til staðar þegar Lars tók við liðinu á sínum tíma. Fótbolti 16.6.2023 07:00
Harry Kane færði liðsfélögum sínum brotna plötu að gjöf Harry Kane varð í vor markahæsti leikmaður í sögu enska landsliðsins. Harry veit vel að enginn maður er eyland og færði félögum sínum í landsliðinu því brotna plötu sem þakklætisvott fyrir stuðninginn. Fótbolti 15.6.2023 23:31
Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Erlent