Ástin á götunni

Gunnar skoraði - Halmstad áfram
Markahrókurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson var enn eina ferðina á skotskónum fyrir lið sitt Halmstad í Svíþjóð, þegar það gerði sér lítið fyrir og sló Sporting frá Lissabon út úr Evrópukeppni félagsliða í Portúgal í kvöld.
Grétar og félagar áfram
Grétar Rafn Steinsson og félagar í hollenska liðinu AZ Alkmaar unnu góðan sigur á rússneska liðinu Krylya Sovietiov í Evrópukeppni félagsliða nú áðan 3-1, eftir að hafa tapað fyrri leiknum 5-3 og eru því komnir áfram í keppninni. Grétar Rafn fékk að spila síðustu mínúturnar í leiknum eftir að hafa komið inná sem varamaður.

Wembley verður klár
Enska knattspyrnusambandið segir að það hafi fengið staðfestingu á því frá verktökum um að bygging hins nýja þjóðarleikvangs verði tilbúin á tilsettum tíma fyrir bikarúrslitaleikinn í ensku knattspyrnunni þann 13. maí á næsta ári.

Uefa-bikarinn í kvöld
Fjölmargir leikir fara fram í Evrópukeppni félagsliða í dag og í kvöld, en tveimur þeirra er þegar lokið. Stuttgart tryggði sig áfram í riðlakeppnina nú áðan, þrátt fyrir tapi gegn NK Domzale 1-0, en þýska liðið vann fyrri leikinn 2-0. Landar þeirra í Leverkusen voru ekki jafn heppnir og féllu úr keppni fyrir CSKA Sofia, samanlagt 2-0.

Bolton áfram á elleftu stundu
Úrvalsdeildarlið Bolton tryggði sér dramatískan sigur á búlgarska liðinu Lokomotiv Plovdov í Evrópukeppni félagsliða nú rétt áðan. Bolton vann fyrri leik liðanna á heimavelli á dögunum 2-1, en lenti undir á 52. mínútu í dag og um tíma leit út fyrir að liðið væri að falla úr keppni fyrir minni spámönnum.

KS og ÍA fá 2,5 milljónir
Uppeldisfélög knattspyrnumannsins Grétars Rafn Steinssonar munu skipta á milli sín fimm prósenta hlut af þeim tæplega fimmtíu milljónum sem svissneska félagið Young Boys fékk fyrir hann þegar hann gekk til liðs við hollenska félagið AZ Alkmaar.
Hetjuleg barátta Brann dugði ekki
Kristján Örn Sigurðsson og félagar í Brann háðu hetjulega baráttu við rússnenska liðið Lokomotiv frá Moskvu í Evrópukeppni félagsliða nú síðdegis. Rússarnir unnu fyrri leikinn í Noregi 2-1, en Brann stríddi þeim vel í Moskvu í kvöld.
Greta fór á kostum
Markahrókurinn Greta Mjöl Samúelsdóttir fór á kostum í dag þegar íslenska U-19 ára landslið kvenna vann stórsigur á liði Bosníu og Hersegóvínu í undankeppni EM.
Gaui fúll yfir agaleysi leikmanna
Leikmenn Notts County hafa nælt sér í þrjú rauð spjöld í síðustu fjórum leikjum og stjóri liðsins, Guðjón Þórðarson, hefur ákveðið að grípa til ráða svo þetta agaleysi leikmanna endurtaki sig ekki í næstu leikjum.

Eiður handarbrotinn
Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, handabrotnaði á æfingu með Chelsea fyrir skemmstu en þarf þó ekki að taka sér frí frá æfingum eða keppni.

Lampard vill Crouch í landsliðið
Leikur Liverpool og Chelsea í Meistaradeildinni í gær var nokkuð stíft leikinn og mikið var um hörð návígi. Frank Lampard, miðjumaður Chelsea og lykilmaður í enska landsliðinu, gaf sér þó tíma til að hrósa landa sínum leggjalanga, Peter Crouch, og telur að hann ætti að eiga fast sæti í landsliði Englendinga.

Chelsea er hrætt við okkur
Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að Chelsea-liðið sé líklega hrætt við Liverpool og segir að dómarinn hafi sleppt þremur augljósum vítaspyrnum í leik liðanna í Meistaradeildinni á Anfield í gærkvöldi.

Everton úr leik
Everton er fallið úr leik í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu, þrátt fyrir að hafa sigrað rúmenska liðið Dinamo Búkarest 1-0 í kvöld, með marki frá Tim Cahill. Dinamo vann fyrri leikinn í Rúmeníu 5-1 og samanlagt 5-2. Þetta er enn eitt áfallið fyrir Everton, sem hefur byrjað leiktíðina skelfilega í ár, eftir gott gengi á síðustu leiktíð.

Tromsö sló út Galatasaray
Norska liðið Tromsö gerði sér lítið fyrir og sló tyrkneska liðið Galatasaray út í Evrópukeppni félagsliða nú í kvöld. Norska liðið vann fyrri leikinn í Tromsö 1-0, og náði svo jafntefli í Tyrklandi í kvöld 1-1.

Fer Keane frá United?
Roy Keane, fyrirliði Manchester United segist ekki eiga von á öðru en hann muni yfirgefa félagið næsta sumar þegar samningur hans rennur út.

Við erum betri núna
Rafael Benitez telur að Liverpool sé með betra lið nú en í fyrra og segir að það muni ráða úrslitum í annars jafnri viðureign liðsins við Chelsea í Meistaradeildinni í kvöld, rétt eins og í slag liðanna í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi.

Liverpool - Chelsea að byrja á Sýn
Leikur Liverpool og Chelsea í Meistaradeild Evrópu er nú að hefjast og verður hann sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Eiður Smári er á varamannabekknum hjá Chelsea, sem vilja eflaust hefna ófaranna frá í fyrra, þegar þeir duttu út úr meistaradeildinni á Anfield.

Mourinho hugsar enn um "markið"
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur nú enn vakið athygli á þeirri ósk sinni að tekinn verði upp búnaður til að ákvarða hvort boltinn fer inn fyrir línuna í leikjum á Englandi og í Meistaradeildinni, eftir að lið hans féll úr Meistaradeildinni í fyrra á vafasömu marki á Anfield.

Óvíst með Árna Gaut
Óvíst er hvort Árni Gautur Arason landsliðsmarkvörður geti leikið gegn Pólverjum og/eða Svíum 7. og 12. október næstkomandi þar sem sambýliskona hans á von á barni og er skrifuð á fæðingardeildina daginn eftir Svíaleikinn.

LuaLua með malaríu
Kongómaðurinn Lomana LuaLua hjá Portsmouth hefur verið lagður inn á sjúkrahús vegna veikinda, sem talið er að sé malaría, og gæti orðið frá keppni í allt að sex vikur.

Jafnt hjá Liverpool og Chelsea
Nú er kominn hálfleikur í leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Enn er markalaust á Anfield þar sem Liverpool tekur á móti Chelsea í stórleik kvöldsins.

Messi vakti athygli
Argentínska ungstirnið Lionel Messi hjá Barcelona átti stórleik fyrir lið sitt í gærkvöldi, þegar spænska liðið vann auðveldan 4-1 sigur á Udinese frá Ítalíu. Þó svo að Brasilíumaðurinn Ronaldinho hafi skoraði þrennu í leiknum og verið í fyrirsögnum blaða á Spáni, var það frammistaða unglingsins sem var á allra vörum í gær.

Logi lenti í hörðum árekstri
Logi Ólafsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, lenti í gær í alvarlegum árekstri við 17 tonna malarflutningabíl fyrir utan höfuðstöðvar KSÍ. Bíll Loga er líklega ónýtur en betur fór en á horfðist því hann slapp með minniháttar meiðsli.

Ásgeir og Logi völdu einn nýliða
Landsliðsþjálfararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson hafa valið íslenska landsliðshópinn sem mætir Pólverjum og Svíum í byrjun næsta mánaðar. Eiður Smári og Hermann Hreiðarsson eru ekki í hópnum vegna leikbanns, en Sölvi Geir Ottesen hjá Djurgarden er eini nýliðinn í hópnum.>

Íslenska landsliðið sektað
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hefur fengið sekt frá Alþjóða knattspyrnusambandinu fyrir fjölda gulra spjalda sem liðið fékk í leikjunum tveimur gegn Króatíu og Búlgaríu í undankeppni HM í byrjun mánaðarins.

Kewell að ná sér
Ástralski miðjumaðurinn Harry Kewell hjá Liverpool, er nú byrjaður að æfa með liðinu í fyrsta sinn síðan í úrslitaleiknum gegn AC Milan í Meistaradeildinni í vor, en hann hefur þurft að gangast undir tvær aðgerðir tengdar kviðsliti.
Íslendingar undir smásjánni
Það verður vel fylgst með leikmönnum ungmennalandsliðs Íslands í knattspyrnu þegar það mætir Svíum, en leikurinn fer fram hinn 11. október í Svíþjóð. Að sögn Ólafs Garðarssonar, umboðsmanns nokkurra leikmanna liðsins, má búast við því að forráðamenn flestra félaganna í Svíþjóð muni fylgjast með leiknum.

Leikjum lokið í Meistaradeid
Leikjunum átta í Meistaradeild Evrópu í kvöld er nú lokið. Liverpool og Chelsea gerðu markalaust jafntefli á Anfield eins raunar margir reiknuðu með. Leikurinn var mjög harður, en hvorugt lið gaf nokkurt færi á sér eða tók áhættu í sóknarleiknum.
Þjálfari Lecce rekinn
Ítalska fótboltaliðið Lecce rak í morgun knattspyrnustjórann sinn, Angelo Grugucci. Gregucci var ráðinn til félagsins í sumar þegar hann tók við af Tékkanum Zdenek Zeman. Undir stjórn Gregucci lék Lecce fimm leiki og tapaði fjórum þeirra.

Góður sigur hjá íslensku stelpunum
Íslenska U19 ára stúlknalandsliðið burstaði Georgíu 7-0 í undankeppni HM sem fram fer í Bosníu-Hersegóvínu. Katrín Ómarsdóttir og Greta Mjöll Samúelsdóttir skoruðu tvö mörk hvor og María Kristjánsdóttir, Elísa Pálsdóttir og Guðný Björk Óðinsdóttir sitt markið hver. Ísland mætir gestgjöfunum, Bosníu-Hersegóvínu, á morgun sem töpuðu fyrir Rússum í fyrsta leik, 6-0.