Spænski boltinn
248 249 250 251 252 253 254 255 256 … 268 ›
Valencia byggir nýjan leikvang Spænska knattspyrnufélagið Valencia hefur nú kynnt formlega áform sín um að reisa nýjan knattspyrnuleikvang í borginni sem ætlað verður að leysa gamla Mestalla leikvanginn af hólmi. Fótbolti 11.11.2006 19:44
Tveir leikir í beinni í kvöld Tveir leikir verða sýndir beint úr spænska boltanum á Sýn í kvöld, en sjónvarpsstöðin er með sannkallaða íþróttaveislu í beinum útsendingum í dag og nótt. Leikur Atletico Madrid og Villarreal verður sýndur klukkan 18:50 og klukkan 20:50 tekur Valencia á móti Atletico Bilbao. Fótbolti 11.11.2006 16:40
Gerir tilkall til sætis í byrjunarliði Real David Beckham þótti senda þjálfara sínum Fabio Capello hjá Real Madrid ákveðin skilaboð í gær þegar hann skoraði mark og lék mjög vel í auðveldum sigri Real á Ecija í bikarkeppninni í gær. Beckham hefur ekki náð að vinna sér sæti í byrjunarliðinu það sem af er leiktíðinni. Fótbolti 10.11.2006 17:27
Real Madrid búið að kaupa arftaka Roberto Carlos Real Madrid hefur gengið frá kaupum á vinstri bakverðinum Marcelo frá brasilíska liðinu Fluminense, samkvæmt spænskum blöðum. Kaupverðið er talið vera um sex milljónir evra, eða um 522 milljónir íslenskra króna. Sevilla var einnig með augastað á Marcelo en nú virðist Real Madrid hafa haft betur. Fótbolti 9.11.2006 20:09
Bikarmeistararnir úr leik Óvænt úrslit urðu í spænska bikarnum í kvöld þegar titilhafarnir Espanyol féllu úr keppni gegn þriðjudeildarliði Rayo Vallecano 2-1 samanlagt. Barcelona kláraði smálið Badalona í beinni á Sýn 4-0 og samanlagt 6-1, þar sem Javier Saviola skoraði tvívegis. Sport 8.11.2006 23:47
Beckham varð fyrir áfalli Fabio Capello segir að erfiðleikar David Beckham á knattspyrnuvellinum undanfarið stafi af því að hann hafi orðið fyrir sálrænu áfalli við það að segja af sér sem fyrirliði enska landsliðsins og að það hafi fengið á hann að vera ekki valinn í liðið síðan á HM. Fótbolti 8.11.2006 15:57
Tveir bikarleikir á Sýn í kvöld: Leikur Birmingham og Liverpool í enska deildarbikarnum verður sýndur beint á Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:35. Þá verður síðari leikur Barcelona og Badalona í spænska bikarnum sýndur beint þar á eftir. Fótbolti 8.11.2006 15:15
Barcelona hirti öll verðlaunin Ronaldinho var valinn besti leikmaðurinn og Lionel Messi besti ungi leikmaðurinn þegar úrslit hinna árlegu FIFPro verðlauna voru gerð kunn í dag. Aukinheldur hlaut Samuel Eto´o, einnig leikmaður Barcelona, sérstök heiðursverðlaun sem veitt eru knattspyrnumanni sem hefur unnið framúrskarandi starf í þágu íþróttarinnar. Fótbolti 6.11.2006 19:51
Rijkaard hrósar Saviola Eiður Smári Guðjohnsen gæti átt á hættu að missa byrjunarliðssæti sitt í framlínu Barcelona, ef eitthvað er að marka orð Frank Rijkaard eftir jafnteflið gegn Deportivo um helgina. Hollenski þjálfarinn hrósar Argentínumanninum Javier Saviola, sem tók stöðu Eiðs í fremstu víglínu, fyrir góða frammistöðu. Fótbolti 6.11.2006 14:51
Cassano eða Eiður Smári? Enska slúðurblaðið News Of The World greinir frá því að Newcastle ætli sér að bjóða 11 milljónir punda í ítalska framherjann Antonio Cassano hjá Real Madrid þegar leikmannaglugginn opnar að nýju í janúar. Um helgina var Eiður Smári Guðjohnsen orðaður við Newcastle í nokkrum ensku blaðanna. Fótbolti 6.11.2006 10:49
Vill ekki skrifa strax undir nýjan samning David Beckham, fyrrum landsliðsmaður Englendinga og leikmaður Real Madrid á Spáni, vill ekki skrifa undir nýjan samning við félagið fyrr en hann hefur náð að vinna sér sæti í byrjunarliðinu á nýjan leik. Fótbolti 6.11.2006 10:07
Real Madrid tapaði á heimavelli Stjörnum prýtt lið Real Madrid tapaði óvænt á heimavelli fyrir Celta Vigo, 1-2, í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Sevilla er á toppi deildarinnar eftir leiki helgarinnar. Fótbolti 5.11.2006 19:57
Barcelona náði aðeins jafntefli Ríkjandi Spánarmeistarar Barcelona náði aðeins jafntefli gegn Deportivo í stórleik gærkvöldsins í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Lokatölur urðu 1-1. Fótbolti 5.11.2006 10:22
Þú ert ennþá of feitur Brasilíski framherjinn Ronaldo er ennþá of feitur að mati þjálfara Real Madrid, Fabio Capello. Ítalski þjálfarinn segir að það verði ekki fyrr en nokkur kíló séu farin til viðbótar sem hann geti farið að gera tilkall til byrjunarliðssætis. Fótbolti 4.11.2006 20:52
Cassano á að biðjast afsökunar Predrag Mijatovic, yfirmaður knattspyrnumála hjá Real Madrid og fyrrum fyrirliði liðsins, telur að Antonio Cassano skuldi þjálfara sínum og samherjum afsökunarbeiðni fyrir hegðan sína eftir að hafa verið skilinn eftir utan leikmannahópsins um síðustu helgi. Fótbolti 4.11.2006 10:56
Puyol ekki með vegna andláts föður Carlos Puyol, fyrirliði Barcelona, hefur dregið sig út úr leikmannahópi Barcelona fyrir leikinn gegn Deportivo La Coruna í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld, eftir að faðir hans lést í gær. Fótbolti 4.11.2006 10:47
Argur yfir að þurfa að sitja á bekknum Brasilíski framherjinn Ronaldo hjá Real Madrid segist undrast það að þurfa að húka á varamannabekknum hjá Fabio Capello þjálfara og segist ekki skilja til hvers þjálfarinn ætlist af sér. Fótbolti 3.11.2006 15:25
Kia neitaði tilboði Barcelona Breska blaðið Daily Mail heldur því fram í dag að milljónamæringurinn Kia Joorabchian sem á kaupréttinn á Argentínumanninum Carlos Tevez, hafi hafnað kauptilboði Barcelona í kappann í dag. Fótbolti 2.11.2006 18:40
Verður ekki með gegn Deportivo Eiður Smári Guðjohnsen verður ekki í liði Barcelona sem mætir Deportivo í spænsku úrvalsdeildinni um helgina vegna ökklameiðslanna sem hann varð fyrir í leiknum við Chelsea í Meistaradeildinni. Fótbolti 2.11.2006 18:31
Vill aldrei fara til Englands aftur Spænski landsliðsmaðurinn Jose Antonio Reyes sem nú leikur sem lánsmaður hjá Real Madrid frá enska félaginu Arsenal, segist aldrei geta hugsað sér að spila á Englandi aftur. Reyes fór sem lánsmaður til Real í skiptum fyrir Julio Baptista í sumar og búist er við því að sú ráðstöfun verði gerð varanleg fljótlega. Enski boltinn 2.11.2006 15:10
Meiðsli Eiðs ekki alvarleg Ökklameiðsli landsliðsfyrirliðans Eiðs Smára Guðjohnsen í leiknum gegn Chelsea í Meistaradeildinni í gærkvöld voru ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu og svo gæti farið að hann yrði klár í slaginn um helgina þegar meistararnir mæta Deportivo í deildinni. Fótbolti 1.11.2006 18:16
Flestir vilja sjá Saviola taka sæti Eiðs Ratomir Antic, fyrrverandi knattspyrnustjóri Barcelona, segir að Eiður Smári Guðjohnsen sé ekki að spila vel fyrir félagið og að flestir myndu frekar vilja sjá Javier Saviola í fremstu víglínu liðsins. Fótbolti 31.10.2006 18:07
Osasuna - Bilbao í beinni Leikur Osasuna og Atletic Bilbao verður sýndur beint á Sýn klukkan 17:50 í kvöld og strax að leiknum loknum verður á dagská viðureign Denver og Indianapolis í bandarísku NFL deildinni. Fótbolti 29.10.2006 17:30
Eiður skoraði ekki en Barcelona vann Eiður Smári var í byrjunarliði Börsunga en skoraði ekki þegar þeir sigruðu Recreativo 3-0 í Barcelona í kvöld. Ronaldinho, Eiður Smári og Giuly voru í framvarðarlínunni því Leo Messi var meiddur og lék því ekki með. Fótbolti 28.10.2006 21:44
Barclona - Recreativo í beinni Leikur Barcelona og Recreativo í spænsku úrvalsdeildinni verður sýndur beint á Sýn í dag og hefst útsending klukkan 17:50. Það verður Hörður Magnússon sem lýsir leiknum beint og þá er rétt að minna á beina útsendingu Sýnar frá Íslandsmótinu í Ice Fitness sem hefst klukkan 20 í kvöld. Fótbolti 28.10.2006 17:25
Lotina tekinn við Real Sociedad Spænska knattspyrnufélagið Real Sociedad gekk í dag frá ráðningu Miguel Angel Lotina sem taka mun við starfi þjálfara liðsins í kjölfar þess að Jose Mari Bakero var látinn taka pokann sinn í gær. Hinum 49 ára gamla Baska verður falið það erfiða verkefni að rétta við skútuna hjá Sociedad, en hann verður fjórði þjálfari liðsins á síðustu 14 mánuðum. Fótbolti 27.10.2006 19:29
Fá 150 milljónir evra í tekjur frá Nike Forráðamenn Barcelona tilkynntu í dag að nýr samningur félagsins við ameríska íþróttavöruframleiðandann Nike ætti eftir að skila félaginu um 150 milljónum evra í tekjur á næstu fimm árum. Barcelona hefur spilað í treyjum Nike frá árinu 1998 og verður núverandi samningur framlengdur til ársins 2013. Fótbolti 27.10.2006 18:50
Ánægður með Eið Smára Frank Rijkaard var mjög ánægður með frammistöðu Eiðs Smára Guðjohnsen í gær þegar hann skoraði bæði mörk Barcelona í 2-1 sigri á smáliði Badalona í fyrri viðueign liðanna í spænska bikarnum. Evrópumeistararnir þóttu ekki sýna nein glæsitilþrif í leiknum, en það var Eiður Smári sem gerði gæfumuninn með mörkum sínum. Fótbolti 26.10.2006 16:42
Eiður Smári tryggði Barcelona sigurinn Eiður Smári Guðjohnsen skoraði bæði mörk Barcelona í kvöld þegar liðið lagði smálið Badalona 2-1 á útivelli í spænska bikarnum en leikurinn var spilaður á gervigrasi. Eiður skoraði á 62. og 76. mínútu og gerði út um leikinn, en heimamenn minnkuðu reyndar muninn undir lokin með marki úr vítaspyrnu. Fótbolti 25.10.2006 21:54
Ætlar að auglýsa í Formúlu 1 Ramon Calderon segist hafa áform uppi um að gera auglýsingasamning við ónefnt keppnislið í Formúlu 1 á næsta keppnistímabili, þar sem bíllinn verði þakinn auglýsingum frá spænska knattspyrnufélaginu. Hann segist óska þess heitt að þessi bíll komi fyrstur í mark, því kappaksturinn fer sem kunnugt er fram í borg erkifjendanna - Barcelona. Fótbolti 25.10.2006 16:34