Spænski boltinn
257 258 259 260 261 262 263 264 265 … 270 ›
Eto'o ekki falur fyrir neina fjárhæð Frank Rijkaard, knattspyrnustjóri Barcelona segir að kamerúnski sóknarmaðurinn Samuel Eto'o sé ekki falur, sama hvaða fjárhæð verði boðin í leikmanninn. Sögusagnir herma að Chelsea hafi boðið 50 milljónir punda í leikmanninn þegar liðin mættust í Meistaradeildinni fyrr í mánuðinum. Sport 19.3.2006 14:35
Barcelona jók forystuna á toppnum Barcelona jók forystu sína á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld með 2-0 sigri á Real Sociedad. Henrik Larsson skoraði fyrra mark Barca á 8. mínútu og Samuel Eto'o hið síðara á 51. mínútu. Diego Forlan skoraði sigurmark Villareal sem lagði Atlético Madrid 1-0 í deildinni í kvöld og að lokum vann Deportivo La Coruña 2-3 útisigur á Getafe. Sport 18.3.2006 21:33
Útilokar ekki að snúa aftur Vicente del Bosque, fyrrum stjóri Real Madrid, segist alls ekki útiloka að taka aftur við liðinu ef sá möguleiki kæmi upp á borðið, en nú stendur leitin að næsta þjálfara félagsins sem hæst. Fel Bosque náði ágætum árangri með liðið á sínum tíma, en var engu að síður rekinn eftir að hafa gert liðið að spænskum meistara árið 2003. Sport 16.3.2006 16:13
Osasuna lagði Barcelona Spútniklið Osasuna vann góðan 2-1 sigur á Barcelona í kvöldleiknum í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld, en Börsungar misstu tvö menn af velli með rauð spjöld í leiknum. Valdo og Punal skoruðu mörk Osasuna, en Henrik Larsson minnkaði muninn fyrir gestina, sem hafa þó enn 9 stiga forskot á toppi deildarinnar. Osasuna situr sem fyrr í fjórða sætinu. Sport 12.3.2006 22:15
Ronaldinho hefur engan áhuga á Chelsea Besti knattspyrnumaður í heimi, Ronaldinho, segist ekki hafa neinn áhuga á því að ganga til liðs við Chelsea. Barcelona tekur á móti Englandsmeisturunum í seinni leik liðanna í Meistaradeildinni á morgun. Sport 6.3.2006 00:21
Sevilla í 6. sætið Sevilla komst í dag í 6. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með 2-1 sigri á Athletic Bilbao. Freddie Kanoute, fyrrverandi leikmaður West Ham skoraði sigurmark Sevilla en vandræði Bilbao halda áfram og er liðið í fallsæti eða þriðja neðsta sæti. Sport 5.3.2006 20:58
Barcelona heldur 10 stiga forystu á Spáni Barcelona og Real Madríd unnu bæði mótherja sína í spænsku knattspyrnunni í gærkvöldi. Barcelona lagði Deportivo La Coruña, 3-2 seint í gærkvöldi eftir að Real Madrid hafði lagt granna sína í Atletico, 2-1. Samuel Etoo skoraði sigurmark Börsunga á 61. mínútu. Sport 5.3.2006 14:08
Real Madrid vann nágrannaslaginn Real Madrid vann 2-1 sigur á Atletico Madrid í nágrannaslagnum í spænska fótboltanum í kvöld. Liðið er nú í 2. sæti deildarinnar, átta stigum á eftir toppliði Barcelona sem mætir Deportivo kl 21 í kvöld. Antonio Cassano og Julio Baptista skoruðu mörk Real Madrid. Tveimur öðrum leikjum er lokið í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Cadiz lagði Espanyol 2-0 og Villareal vann 3-2 sigur á Alaves. Sport 4.3.2006 21:05
Tveir stórleikir í beinni frá Spáni í kvöld 26. umferðin í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hefst í kvöld. Klukkan 19 mætast grannaliðin í Madríd, Real og Atletico og verður sýndur beint á Sýn. Strax á eftir verður skipt yfir til Barcelona þar sem Barcelona mætir Deportivo La Coruna. Sport 4.3.2006 16:37
Borgarstjórinn í Zaragoza býður Eto´o í heimsókn Juan Alberto Belloch, borgarstjóri í Zaragoza á Spáni brást hinn versti við þegar hann heyrði að stuðningsmenn knattspyrnuliðsins þar í borg hefðu sýnt Samuel Eto´o hjá Barcelona kynþáttafordóma á leik liðanna um síðustu helgi. Belloch hefur því sent knattspyrnumanninum bréf og boðið honum í sérstaka heimsókn til borgarinnar. Sport 3.3.2006 17:34
Ronaldo settur út úr liðinu Brasilíski framherjinn Ronaldo verður ekki í leikmannahópi Real Madrid í grannaslag liðsins við Atletico Madrid um helgina og talið er að það sé að frumkvæði forseta félagsins sem hefur boðað nýja stefnu í leikmannamálum hjá félaginu. Sport 3.3.2006 16:38
Tiltekt í vændum hjá Real Fernando Martin, sem á dögunum tók við embætti forseta Real Madrid í kjölfar afsagnar Florentino Perez, segist ekki kæra sig um að vera með lið fullt af milljónamæringum sem ekki leggi sig fram á knattspyrnuvellinum. Sport 2.3.2006 19:25
Sainz sækist eftir forsetaembætti hjá Real Madrid Hinn fyrrum tvöfaldi heimsmeistari í rallakstri, Carlos Sainz, er alvarlega að íhuga að bjóða sig fram sem næsta forseta knattspyrnuliðs Real Madrid eftir að Florentino Perez sagði af sér á dögunum. Sport 1.3.2006 15:28
Englendingar taka vel á kynþáttafordómum Spænsku leikmennirnir í ensku úrvalsdeildinni hafa bent á að spænsk knattspyrnuyfirvöld ættu að taka sér ensku úrvalsdeildina til fyrirmyndar þegar kemur að því að taka á kynþáttafordómum í deildarkeppninni á Spáni, en áhorfendur þar í landi voru enn í fréttunum um helgina vegna kynþáttafordóma. Sport 1.3.2006 15:08
Ekki liðtækur í heimanáminu Knattspyrnuhetjan David Beckham ætti líklega að halda sig við knattspyrnuiðkun á meðan hann hefur tök á því ef marka má grein í breska blaðinu Mail on Sunday, því þar kemur fram að Beckham treysti sér ekki til að hjálpa syni sýnum Brooklin við heimanámið. Brooklyn er sex ára gamall. Sport 27.2.2006 21:11
Florentino Perez segir af sér Florentino Perez, forseti Real Madrid, sagði af sér í kvöld og mun fyrrum Fernando Martin, fyrrum aðstoðarforseti félagsins taka við embætti hans. Real hefur ekki unnið titil síðan 2003 í stjórnartíð Perez, sem þótti réttast að segja af sér þar sem árangurinn hefur verulega látið á sér standa undanfarið. Sport 27.2.2006 21:22
Hefði gengið af velli með Eto´o Brasilíumaðurinn Ronaldinho segir að ef félagi hans Samuel Eto´o hjá Barcelona hefði látið verða af því að ganga af velli í leiknum gegn Real Zaragoza um helgina, hefði hann sjálfur farið með honum. Ronaldinho fordæmir harðlega þá kynþáttafordóma sem viðgangast í spænska boltanum og segir tíma til kominn til að binda enda á þá. Sport 27.2.2006 20:40
Mallorca - Real Madrid í beinni í kvöld Leikur Real Mallorca og Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 17:50. Madrid er enn í baráttu um Meistaradeildarsæti í úrvalsdeildinni, en Mallorca hefur aftur gengið afleitlega og því hlýtur pressan að vera mikil á gestina að klára leikinn. Sport 26.2.2006 09:53
Kynþáttafordómar skyggðu á sigur Barca Barcelona bar sigurorð af Real Zaragoza 2-0 í kvöldleiknum í spænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi, en fáránleg framkoma stuðningsmanna Zaragoza í garð framherjans Samuel Eto´o hjá Barcelona var til háborinnar skammar. Dómari leiksins og samherjar hans náðu naumlega að hindra að Eto´o gengi af leikvelli vegna kynþáttafordóma. Sport 26.2.2006 07:45
Zaragoza - Barcelona í beinni á Sýn Leikur Real Zaragoza og Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan 20:50 í kvöld. Zaragoza mun eflaust reyna að endurtaka leikinn frá því liðin mættust í spænska bikarnum fyrir mánuði, þegar Zaragoza sigraði 4-2 í hörkuleik en það var stærsta tap Barca á leiktíðinni. Sport 25.2.2006 19:36
Ósáttur við stuðningsmennina Brasilíski framherjinn Ronaldo hjá Real Madrid hefur látið í veðri vaka að hann fari frá félaginu í sumar því honum finnist stuðningsmenn liðsins aldrei hafa tekið sér opnum örmum. Sport 20.2.2006 16:39
Barcelona burstaði Betis Spánarmeistarar Barcelona unnu stórsigur á Real Betis í kvöld og tryggðu stöðu sína á toppi La Liga deildarinnar. Real Madrid vann einnig öruggan sigur, þeir lögðu Alaves 3-0 á heimavelli. Sport 18.2.2006 23:27
Hlær að sögusögnum Framherjinn Samuel Eto´o hjá Barcelona gat aðeins hlegið þegar hann var spurður út í orðróm þess efnis að hann væri á leið til Englandsmeistara Chelsea í sumar. Sport 15.2.2006 15:16
Fjögur mörk nægðu Real ekki Real Madrid er úr leik í spænska bikarnum þrátt fyrir 4-0 sigur á Zaragoza í undanúrslitum keppninnar í kvöld, en Zaragoza vann fyrri leik liðanna 6-1 á dögunum og er því komið áfram í keppninni. Brasilíumennirnir Ronaldo, Robinho, Cicinho og Carlos skoruðu mörk Real. Sport 14.2.2006 22:16
Tekst Real hið ómögulega? Nú er kominn hálfleikur í síðari viðureign Real Madrid og Zaragoza í undanúrslitum spænska bikarnum og hafa heimamenn 3-0 forystu. Zaragoza vann fyrri leik liðanna 6-1 og því var talið nær öruggt að Real væri úr leik. Þeir Cicinho, Robinho og Ronaldo skoruðu mörk Real á fyrstu tíu mínútum leiksins og þurfa því tvö mörk í viðbót til að tryggja sér sæti í úrslitunum. Sport 14.2.2006 20:50
Cuper hættur með Mallorca Þjálfarinn Hector Cuper hefur sagt starfi sínu lausu sem knattspyrnustjóri spænska liðsins Real Mallorca, en liðinu hefur gengið afleitlega í vetur og er í neðsta sæti deildarinnar. Sport 14.2.2006 17:18
Stórleikur á Sýn í kvöld Viðureign Valencia og Barcelona verður sýnd í beinni útsendingu á Sýn klukkan 19:50. Þetta er sannkallaður toppslagur því Barcelona er í efsta sæti deildarinnar með 52 stig, en Valencia í því þriðja með 43. Sigur hjá Barcelona í kvöld mundi þýða að liðið væri komið í afar vænlega stöðu í titilvörninni. Sport 12.2.2006 16:33
Bilbao - Real Madrid í beinni í kvöld Leikur Atletico Bilbao og Real Madrid í spænska boltanum verður í beinni útsendingu á Sýn klukkan 20:50 í kvöld. Real tapaði síðasta leik sínum mjög illa þegar liðið steinlá í bikarnum 6-1 fyrir Zaragoza og því er ljóst að stuðningsmenn liðsins heimta sigur og ekkert annað í kvöld. Sport 11.2.2006 19:35
Við játum okkur ekki sigraða Juan Ramon Lopez Caro, stjóri Real Madrid, segir sína menn ekki ætla að játa sig sigraða í spænska bikarnum þrátt fyrir að vera kjöldregnir í fyrri leik sínum gegn Real Zaragoza í gærkvöldi 6-1. Sport 9.2.2006 15:13
Real Madrid niðurlægt Stjörnulið Real Madrid var tekið í sannkallaða kennslustund í kvöld þegar liðið sótti Real Zaragoza heim í fyrri leik liðanna í undanúrslitum spænska bikarsins. Zaragoza sigraði 6-1 og eru möguleikar Madrid ansi litlir fyrir síðari leikinn, en hætt er við því að stuðningsmenn liðsins eigi eftir að láta vel í sér heyra eftir þennan skell. Sport 8.2.2006 22:13