Hernaður
42 43 44 45 46 47 48 49 50 … 53 ›
Nato sendir hermenn til nágrannaríkja Úkraínu Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Nato, sagði í yfirlýsingu seint í gærkvöldi að bandalagið sé að senda viðbragðsveitir, reiðubúnar til bardaga, til nágrannalanda Úkraínu og muni þar að auki halda áfram að senda Úkraínumönnum vopn, þar á meðal loftvarnir. Erlent 26.2.2022 08:39
Vaktin: Allt stefnir í aðra erfiða nótt Rússneskar hersveitir segjast hafa náð yfirráðum í borginni Melitopol í suðausturhluta Úkraínu. Melitopol er fyrsta stóra borgin, utan þeirra sem eru á yfirráðasvæði aðskilnaðarsinna í austri, sem fellur í hendur Rússa. Varnarmálaráðherra Breta segir þessar fregnir þó ekki réttar. Erlent 26.2.2022 07:37
Ráðherra hefur ekki falið flóttamannanefnd að fjalla um Úkraínu Flóttamannanefnd mun koma saman í næstu viku á reglulegum fundi. Ráðherra hefur enn ekki falið nefndinni að meta stöðu mála í Úkraínu en Stefán Vagn Stefánsson, formaður nefndarinnar, segir í samtali við fréttastofu að ástandið í Úkraínu verði að öllum líkindum rætt á fundi nefndarinnar, sama hvort það verðir á dagskrá eða utan hennar. Innlent 25.2.2022 10:24
Heldur til í sprengjuskýli: Bardagar allt í kring um borgina Íbúar í Kænugarði, sem hafa ekki flúið borgina, eru nú margir í sprengjuskýlum vegna árása Rússa í morgun. Rússar hófu árásir af fullum krafti um klukkan fjögur í nótt en tvær íbúðabyggingar í Kænugarði urðu fyrir rússneskri þotu sem var skotin niður og eru nú rústir einar. Innlent 25.2.2022 07:54
Vaktin: Hart barist í Kænugarði Loftárásir Rússa hófust aftur klukkan fjögur í nótt að staðartíma í Úkraínu. Nú er sólarhringur liðinn síðan Rússar hófu allsherjarinnrás í Úkraínu og talið er að tæplega 140 Úkraínumenn hafi fallið í átökunum. Erlent 25.2.2022 06:54
Selenskíj telur markmið Pútíns að bola sér frá völdum Volódímír Selenskíj, forseti Úkraínu, hefur heitið því að halda kyrru fyrir í Kænugarði á meðan úkraínski herinn verst árásum Rússa, sem nálgast höfuðborgina óðfluga. Erlent 25.2.2022 06:49
Vaknaði við sprengingar: „Það var sjokk að vakna við þetta í morgun“ Óskar Hallgrímsson ljósmyndari sem er búsettur í Kænugarði í Úkraínu vaknaði við sprengingar í nótt. Rússar hafa hafið innrás af fullum krafti en Óskar segir að stríður straumur sé af íbúum Kænugarðs út úr borginni. Fólk er að flýja vestur. Innlent 24.2.2022 08:08
Markmiðið að brjóta niður hernaðarmátt Úkraínu og „afmá nasismann“ Vladimír Pútín Rússlandsforseti ávarpaði þjóð sína klukkan þrjú að íslenskum tíma þar sem hann sagðist hafa samþykkt hernaðaraðgerð í aðskilnaðarhéruðunum Luhansk og Donetsk í Úkraínu. Erlent 24.2.2022 07:44
„Þetta er stríð“ Sendiherra Úkraínu hjá Sameinuðu þjóðunum segir að átökin sem hafin eru þar í landi séu stríð. Rússar hófu allsherjarinnrás í landið í morgun og sprengjum rignir nú yfir úkraínskar borgir. Erlent 24.2.2022 07:22
Vaktin: Allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu Her Rússlands gerði innrás í Úkraínu eftir skipun frá Vladimír Pútín, forseta Rússlands, í nótt. Innrásin hófst á sprengjuregni í nokkrum borgum Úkraínu og innrás úr norðri, austri og suðri. Erlent 24.2.2022 06:23
„Skref sem gæti markað upphaf stríðs í gjörvallri Evrópu“ Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu ávarpaði þjóð sína í kvöld þar sem hann segir að yfirvöld í Rússlandi hafi fyrirskipað innrás og að þetta skref Rússa gæti verið upphafið á stríði í gjörvallri Evrópu. Erlent 23.2.2022 23:27
Úkraína óskar eftir neyðarfundi í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna Úkraína hefur óskað eftir að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna komi saman á neyðarfundi vegna ástandsins í landinu. Gervihnattamyndir sýna skýrt liðssöfnun Rússa við landamærin. Erlent 23.2.2022 22:55
Aðskilnaðarsinnar biðja Rússa um hernaðaraðstoð Aðskilnaðarsinnar í héruðunum Doetsk og Luhansk í Úkraínu hafa óskað eftir hernaðaraðstoð frá Rússlandi til að bregðast við ágangi Úkraínumanna. Þetta hefur AP fréttastofan eftir talsmanni Kreml. Erlent 23.2.2022 22:31
Heimurinn bíður næstu skrefa Pútíns Ráðamenn víða um heim bíða eftir næstu skrefum Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Stærsta spurningin er hvort hann muni hefja stríð við Úkraínu eða kalla her sinn heim frá landamærunum. Erlent 23.2.2022 17:01
Ætla að kynna frekari aðgerðir gegn Rússum í dag Sendiherrar Evrópusambandsins hafa komist að niðurstöðu um frekari refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna hernaðaraðgerða þeirra í Úkraínu. Búist er við því að þær verði samþykktar og kynntar síðar í dag. Erlent 23.2.2022 13:51
Olíuverð hækkar hratt og hefur ekki verið hærra frá 2014 Olíuverð hafði í morgun ekki verið hærra frá 2014 samhliða mjög svo aukinni spennu í Austur-Evrópu. Spennan við Úkraínu náði nýjum hæðum í gærkvöldi þegar Vladimír Pútín, forseti Rússlands, viðurkenndi sjálfstæði tveggja héraða í Úkraínu þar sem aðskilnaðarsinnar, studdir af Rússlandi, ráða ríkjum. Viðskipti erlent 22.2.2022 09:40
Vaktin: Innrás Rússlands í Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, bað í dag um, og fékk fljótt, formlegt leyfi til að beita hernum utan landamæra ríkisins. Það var degi eftir að hann sendi hermenn inn í austurhluta Úkraínu þar sem aðskilnaðarsinnar sem eru hliðhollir Rússlandi og studdir af Rússum, ráða ríkjum. Erlent 22.2.2022 06:39
Bíða eftir afdrifaríku svari Pútíns á meðan spennan magnast við landamæri Úkraínu Vladimir Pútin, forseti Rússlands, íhugar nú hvort hann muni svara ákalli um að viðurkenna sjálfstæði tveggja héraða í austanverðri Úkraínu. Þessu lýsti hann yfir á fundi með öryggisráði sínu í dag. Erlent 21.2.2022 16:39
Saka Kínverja um að hafa lýst upp herþotu með leysigeisla Áströlsk hernaðaryfirvöld eru ekki par sátt með kollega þeirra frá Kína, eftir að kínverskt herskip beindi kraftmiklum leysigeisla að ástralskri herþotu. Erlent 21.2.2022 08:03
Biden fellst á leiðtogafund með Pútín Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur í stórum dráttum fallist á leiðtogafund með Vladimír Pútín Rússlandsforseta til að ræða ástandið í Úkraínu. Erlent 21.2.2022 06:57
Rússar hættir við að hætta heræfingum í Hvíta-Rússlandi Rússar hafa hætt við að kalla hermenn sína í Hvíta-Rússlandi aftur heim til Rússlands og þess í stað fært þá nær norðanverðum landamærum Úkraínu. Spennan á svæðinu magnast sífellt og nú búast flestir við innrás Rússa inn í landið á næstu dögum. Erlent 20.2.2022 19:35
Segir Pútín hyggja á mesta stríð Evrópu frá 1945 Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir vísbendingar um að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sé að undirbúa mesta stríð Evrópu frá 1945. Þar að auki sé útlit fyrir að þær áætlanir séu þegar komnar af stað. Erlent 20.2.2022 10:12
Úkraína, yfirheyrslur yfir blaðamönnum og kvótakerfið á Sprengisandi Margt verður rætt í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu. Innlent 20.2.2022 09:30
Innrás Rússa inn í Úkraínu gæti verið yfirvofandi Innrás Rússa inn í Úkraínu gæti verið yfirvofandi á næstu dögum og hefði hörmulegar afleiðingar, að mati leiðtoga sem sótt hafa öryggisráðstefnu í Munchen í dag. Íslenskur sérfræðingur segir ómögulegt að segja til um hvað Pútín ætli sér. Erlent 19.2.2022 20:50
Hvetja Íslendinga í Úkraínu til að láta vita af sér Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hvetur íslenska ríkisborgara sem eru í Úkraínu til að láta vita af sér. Ráðuneytið vekur athygli á því að vegna óvissunnar á svæðinu hafa nokkur flugfélög ákveðið að hætta að fljúga til og frá landinu eftir helgi. Innlent 19.2.2022 16:55
Aðskilnaðarsinnar setja á almenna herkvaðningu Leiðtogar aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu, sem studdir eru af Rússlandi, hafa lýst yfir allsherjar herkvaðningu í Donetsk og Luhansk. Í gær tilkynntu þeir að almennir borgarar yrðu fluttir úr héruðunum og til Rússlands. Erlent 19.2.2022 10:32
Földu hernaðarleyndarmál í samloku og tyggjópakka og reyndu að selja Bandarísk hjón hafa verið dæmd í fangelsi fyrir að hafa reynt að selja hernaðarleyndarmál um bandaríska kjarnorkukafbáta til erlends ríkis. Eiginmaðurinn faldi gagnakort sem geymdi trúnaðarskjöl meðal annars inn í samloku og tyggjópakka. Erlent 19.2.2022 08:25
Leiðtogar aðskilnaðarsinna skipa borgurum að flýja til Rússlands Denisi Pushilin, leiðtogi aðskilnaðarsinna Donetsk í austurhluta Úkraínu, tilkynnti í dag að almennir borgarar héraðsins yrðu fluttir til Rússlands. Leiðtogar Lunhansk, hins héraðsins þar sem aðskilnaðarsinnar sem studdir eru af Rússum stjórna, hafa einnig tilkynnt að flytja eigi íbúa á brott. Erlent 18.2.2022 15:35
Rússar æfa notkun kjarnorkuvopna Ráðamenn í Rússlandi tilkynntu í morgun að halda ætti umfangsmikla kjarnorkuvopnaæfingu þar í landi um helgina. Æfingarnar hefjast á morgun en samkvæmt yfirlýsingu frá Varnarmálaráðuneyti Rússlands munu þær meðal annars fela í sér að skjóta eldflaugum sem geta borið kjarnorkuvopn á loft. Erlent 18.2.2022 12:03
Rússar gagnrýna stuðningsyfirlýsingu Guðna forseta Rússneska sendiráðið á Íslandi segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með stuðningsyfirlýsingu forseta Íslands. Forseti lýsti yfir stuðningi við Úkraínu í gær og bað Rússa um að draga úr viðbúnaði við landamæri landsins. Innlent 17.2.2022 18:06