
Ítalski boltinn

Misstu niður forystu þrátt fyrir að vera manni fleiri
Ekkert gengur hjá Alberti Guðmundssyni og félögum í Fiorentina þessi dægrin. Í dag gerði liðið 1-1 jafntefli við Torino í ítölsku úrvalsdeildinni þrátt fyrir að vera manni fleiri í tæpan klukkutíma.

Sex í röð hjá Napólí
Napólí vann dýrmætan sigur í toppbaráttunni í Seríu A í kvöld þegar liðið sótti þrjú stig í greipar Atalanta.

Juventus lagði AC Milan
Juventus er áfram taplaust í Seríu A á Ítalíu en liðið lagði AC Milan 2-0 í dag.

Þrettánda jafnteflið hjá Juventus
Juventus er enn án taps í Serie A, efstu deild ítalska fótboltans, en lærisveinar Thiago Motta hafa hins vegar nú gert 13 jafntefli í aðeins 20 leikjum.

Albert spilaði fyrri hálfleik í tapi Fiorentina
Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Fiorentina þegar liðið tapaði 2-1 gegn botnliði Monza á útivelli. Albert og félagar hafa nú spilað fimm leiki án sigurs.

Conte vill fá Garnacho í staðinn fyrir Kvaratskhelia
Antonio Conte, knattspyrnustjóri Napoli, vill fá Alejandro Garnacho, leikmann Manchester United, í staðinn fyrir Khvicha Kvaratskhelia sem er væntanlega á förum frá ítalska félaginu.

„Þjálfarinn sem að lokum tekur ákvörðunina um það hver okkar spilar“
Íslenski landsliðmarkvörðurinn Fanney Inga Birkisdóttir segir það vilja markvarða íslenska landsliðsins að það sé mikil samkeppni um stöðuna í markrammanum. Samkeppnin sé á góðu nótunum en að auðvitað vilji allir á endanum spila. Mikilvægt EM ár fyrir íslenska landsliðið er runnið upp og markverðir liðsins hafa verið að gera mjög vel.

Unnu fyrir þrettán ára vin sem lést úr hvítblæði
Leikmenn Napoli léku í gær fyrir stuðningsmann sinn og vin, Daniele, sem lést nýverið aðeins 13 ára gamall eftir baráttu við hvítblæði.

Frábær sigur hjá Cecilíu Rán og Napoli jók forystuna á ný
Cecilía Rán Rúnarsdóttir var í marki Inter sem vann sigur í toppslag ítölsku úrvalsdeildarinnar. Í Serie A-deild karla náði Napoli að auka forystu sína á toppnum.

Milan áfram í miðjumoði eftir jafntefli
AC Milan situr áfram í 8. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar eftir 1-1 jafntefli gegn Cagliari á heimavelli í kvöld.

Tólfta jafntefli Juventus sem hefur ekki enn tapað deildarleik
Torino og Juventus gerðu jafntefli í nágrannaslag í Serie A-deildinni á Ítalíu í dag. Juventus mistókst því að minnka forskot liðanna í efstu sætum deildarinnar.

Hjörtur þriðji úr vörn landsliðsins í Grikklandi
Eftir þrjú og hálft ár á Ítalíu er landsliðsmaðurinn Hjörtur Hermannsson mættur til Grikklands og orðinn leikmaður Volos.

Milan og Juventus ásælast framherja United
Framherjar Manchester United, Marcus Rashford og Joshua Zirkzee, eru á óskalista ítölsku félaganna AC Milan og Juventus.

AC Milan tók Ofurbikarinn fyrir framan nefið á nágrönnum sínum
AC Milan varð meistari meistaranna á Ítalíu í kvöld eftir sigur í úrslitaleik ítalska Ofurbikarsins

Albert ekki með þegar Fiorentina steinlá gegn Napoli
Albert Guðmundsson var á varamannabekk Fiorentina þegar Napoli kom í heimsókn í Serie A, efstu deild ítalska fótboltans. Fór það svo að gestirnir unnu þægilegan 3-0 sigur.

Skrípamark en Mikael og félagar fengu bara stig
Mikael Egill Ellertsson lék allan leikinn fyrir Venezia í ítölsku A-deildinni í fótbolta í dag, þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Empoli.

Englandsmeistarar Chelsea meðal liða sem vilja Cecilíu Rán
Cecilía Rán Rúnarsdóttir, landsliðsmarkvörður Íslands, hefur staðið sig frábærlega með Inter síðan hún kom þangað á láni frá Þýskalandsmeisturum Bayern München. Svo vel hefur hún spilað að Englandsmeistarar Chelsea eru meðal þeirra liða sem vilja fá markvörðinn í sínar raðir.

Zlatan biðst afsökunar eftir brottrekstur Fonseca
Paulo Fonseca var rekinn sem knattspyrnustjóri AC Milan á sunnudagskvöldið eftir dapurt gengi á tímabilinu. Félagið hefur nú beðist afsökunar á hvernig brottreksturinn var framkvæmdur.

Sögðu frá nýjum þjálfara AC Milan áður en hinn var rekinn
Sérgio Conceicao verður næsti þjálfari ítalska stórliðsins AC Milan samkvæmt fréttum ítalskra fjölmiðla.

Þjálfarinn sá rautt í mögulega sínum síðasta leik
Paulo Fonseca gæti hafa verið að stýra AC Milan í síðasta sinn er liðið tók á móti Roma í ítölsku deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Albert og félagar stálu stigi af Juventus
Albert Guðmundsson og félagar hans í Fiorentina nældu í stig er liðið heimsótti Juventus í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Töpuðu fyrir Napoli með minnsta mun
Mikael Egill Ellertsson var í byrjunarliði Venezia sem laut í lægra haldi fyrir Napoli, 1-0, í ítölsku úrvalsdeildinni í dag.

Þurfti að biðja allt liðið afsökunar: „Þetta var ekkert illa meint“
Margar áskoranir fylgja því að halda á vit ævintýranna sem atvinnumaður í knattspyrnu. Þessu hefur Adam Ægir Pálsson kynnst í Perugia á Ítalíu í vetur.

Atalanta missteig sig eftir ellefu sigra í röð
Eftir að hafa unnið ellefu deildarleiki í röð gerði Atalanta jafntefli við Lazio, 1-1, í síðasta leik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni.

Cecilía í liði ársins
Landsliðsmarkvörðurinn í fótbolta, Cecilía Rán Rúnarsdóttir, er í liði ársins á Ítalíu hjá DAZN.

Inter á toppinn eftir sigur á Sardiníu
Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Inter þrjú mörk í seinni hálfleik gegn Cagliari í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur 0-3, Inter í vil.

Inter þremur stigum frá toppnum og með leik til góða
Inter Milan tók á móti Como og vann 2-0 sigur í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Mílanó-menn eru nú þremur stigum frá efsta sæti deildarinnar og eiga einn leik til góða á liðin fyrir ofan.

Svekkjandi tap hjá Alberti og félögum eftir að hafa komist yfir
Fiorentina tapaði öðrum deildarleiknum í röð, 2-1 gegn Udinese. Albert Guðmundsson byrjaði á bekknum en var settur inn á þegar liðið lenti undir.

Landaði forstjórastarfi hjá Forest eftir að Rómverjar ruddu henni burt
Nottingham Forest hefur ráðið nýjan forstjóra, eftir tæp tvö ár án slíks. Lina Soulouko mun taka við starfinu en henni var bolað burt af mikilli reiði úr framkvæmdastjórastarfi hjá Roma í haust.

Nesta látinn fara eftir aðeins einn sigur í sautján leikjum
Alessandro Nesta hefur verið sagt upp störfum hjá ítalska úrvalsdeildarfélaginu Monza eftir að hafa aðeins unnið einn af sautján leikjum við stjórnvölinn.