

Nú eru liðin átta ár síðan Friðrik Kristjánsson hvarf sporlaust í Paragvæ og hefur ekkert spurst til hans síðan. Vilborg Einarsdóttir, stjúpmóðir Friðriks, birti í gær færslu á Facebook þar sem hún biðlaði til fólks sem vissi eitthvað um hvarf Friðriks að stíga fram og segja frá.
Jóhann Hlíðar Harðarson segir mikið fagnaðarefni fyrir blaða- og fréttamenn að Mannréttindadómstóll Evrópu hafi nú hent máli Guðmundar Spartakusar í ruslið. Jafnframt og því miður sé málið háðung fyrir Ríkisútvarpið.
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur vísað frá máli Guðmundar Spartakusar Ómarssonar gegn íslenska ríkinu og hafnað að taka málið til efnislegrar meðferðar.
Hæstiréttur vísaði málinu frá. Áfangasigur og gott betur segir Gunnar Ingi lögmaður.
Sagt hafa fordæmisgildi þegar kemur að möguleika blaðamanna til að fjalla um rannsókn sakamála og byggja á frásögn heimildarmanna.
Atli Már Gylfason, blaðamaður, var í Landsrétt í dag dæmdur til að greiða Guðmundi Spartakusi Ómarssyni 1,2 milljónir króna í miskabætur fyrir ummæli sem birtust í umfjöllun Atla í Stundinni.
Guðmundur Spartakus segist byggja brunna og setja upp girðingastaura í Paragvæ.
Guðmundur Spartakus Ómarsson er mættur í Landsrétt til þess að gefa þar skýrslu í meiðyrðamáli sem hann höfðaði gegn Atla Má Gylfasyni, blaðamanni, vegna umfjöllunar eftir hann sem birtist í Stundinni í desember 2016.
Landsréttur mun fjalla um mál Guðmundar Spartakusar gegn Atla Má Gylfasyni á nýju ári.
Þó að útvarpsstjóri standi með þeirri ákvörðun RÚV að greiða 2,5 milljónir til að ljúka meiðyrðamáli utan dómstóla ríkir enn megn óánægja með gjörninginn meðal fréttamanna. Trúnaðarákvæði var að frumkvæði RÚV og var óþarfi.
Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri segir RÚV fagna því að Sigmundur Ernir Rúnarsson hafi verið sýknaður í meiðyrðamáli sem Guðmundur Spartakus Ómarsson höfðaði gegn honum.
Aðalmeðferð í máli Guðmundar Spartakusar Ómarssonar gegn blaðamanninum Atla Má Gylfasyni hófst í dag.
Atli Már er krafinn um í það minnsta tíu milljónir króna í stefnu.
Páll Magnússon formaður allsherjarnefndar krefst viðbragða frá stjórn RÚV og/eða ráðherra.
Til stóð að samkomulagið yrði trúnaðarmál en í ljósi óska fjölmiðla var heimilað að upplýsa um fjárhæðina.
Vísir leitar til úrskurðarnefndar um upplýsingamál.
Vilhjálmur Vilhjálmsson lögmaður segir að málinu verði áfrýjað.
Lögreglan hefur yfirheyrt einstaklinga sem ekki hefur verið rætt við áður vegna málsins.
Blaðamaður fékk sér neyðarhnapp eftir að hafa byrjað að vinna úttekt á máli Friðriks.
Aðalvarðstjóri segir óupplýst mannshvörf með erfiðari málum á borði lögreglu. Allir sem horfið hafa sporlaust undanfarna áratugi eru karlmenn. Við rifjum upp nokkur mannshvörf og eitt mál þegar maður sneri aftur, öllum að óvörum, eftir 12 ára útlegð.
Íslendingurinn Guðmundur Spartakus, sem lögreglan í Paragvæ hefur leitað að í um tvö ár, er sagður valdamikill eiturlyfjasmyglari með starfsemi í Brasilíu og Mexíkó.
Talskona Interpol í Paragvæ segir Lögregluna á Íslandi gruna að íslenskur maður hafi orðið Friðriki Kristjánssyni, sem ekkert hefur spurst til síðan í apríl síðastliðnum, að bana í Suður Ameríku.
Íslenska lögreglan fékk í dag send öll gögn sem liggja fyrir hjá Interpol í Paragvæ um hvarf Friðriks Kristjánssonar, þrítugs manns sem ekkert hefur spurst til síðan í apríl. Bróðir Friðriks segir hvarfið hafa haft djúpstæð áhrif á fjölskylduna.
Vilborg Einarsdóttir, stjúpmóðir Friðriks Kristjánssonar, þrítugs Íslendings sem ekkert hefur spurst til síðan í apríl, var í viðtali við paragvæsku fréttastofuna ABC Color í gær.
LögreglumálLögregla leitar enn að Friðriki Kristjánssyni, sem talinn er hafa horfið í Suður-Ameríku fyrr á árinu. Ekkert hefur spurst til Friðriks síðan í apríl. Lögregla lýsti formlega eftir ábendingum um ferðir Friðriks fyrir fjórum vikum. Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn segir að nokkrar ábendingar hafi borist. „Það hefur eitthvað komið en ekki leitt til neins,“ segir hann.
Lögreglan lýsir eftir Friðriki Kristjánssyni sem hvarf í Suður-Ameríku fyrr á árinu. Ekkert hefur til hans spurst síðan í apríl síðastliðnum.
Lögreglan verst allra frétta varðandi mann sem lýst var eftir í Paragvæ af Interpol og fréttastofa RÚV greindi frá í gær. Vísir hafði samband við alþjóðadeild ríkislögreglustjóra vegna málsins sem aftur benti á lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Þar verjast menn frétta og bentu raunar aftur á alþjóðadeildina.
Alþjóðalögreglan Interpol leitar manns á fimmtugsaldri eftir að lögregla hér á landi óskaði eftir aðstoð.