Fótbolti á Norðurlöndum

Kristianstad tapaði fyrir meisturunum
Heil umferð fór fram í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Kristianstad, lið Elísabetar Gunnarsdóttur, tapaði fyrir meisturum Linköping á útivelli, 3-0.

Liðið hans Sigurðar Jónssonar komið niður í fallsæti
Það hefur ekki gengið vel í síðustu leikjum hjá lærisveinum Sigurðar Jónssonar í sænska C-deildarliðinu Enköping. Sigurður tók við liðinu fyrir tímabilið og það spilar í Norra Svealand riðlinum.

Stefán Gíslason vill halda áfram að spila með Viking
Lánssamningur Stefáns Gíslasonar hjá norska liðinu Viking rennur út 1. ágúst næstkomandi og þá þarf hann að öllu óbreyttu að snúa aftur til danska liðsins Bröndby.

Gunnar Heiðar við Tipsbladet: Ég vil bara spila fótbolta
Gunnar Heiðar Þorvaldsson sat mikið á varamannabekknum á síðasta tímabili hjá bæði danska liðinu Esbjerg sem og enska liðinu Reading. Framtíð hans er í mikill óvissu og danska Tipsbladet spurði hann út í næstu skref.

Margrét Lára skoraði tvö í dag
Kristianstad vann í dag sigur á Örebro 3-1 og er komið í þriðja sæti sænsku kvennadeildarinnar. Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar liðið en Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvö mörk í leiknum.

Jafntefli hjá Árna Gauti (Odd Grenland) og Stefáni Loga (Lilleström)
Lilleström og Odd Grenland gerðu 2-2 jafntefli í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Björn Bergmann Sigurðarson fékk tækifæri til að skora sigurmark Lilleström í uppbótartíma en hitti ekki markið úr góðu færi.

Þórður Steinar og Símun skoruðu í grannaslag í Þórshöfn
HB og B36 gerðu í dag 2-2 jafntefli í færeysku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í miklum grannaslag en bæði lið eru frá Þórshöfn.

Katrín skoraði í stórsigri Kristianstad
Kristianstad vann í dag góðan 5-1 útisigur á Djurgården í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Katrín Ómarsdóttir skoraði eitt mark í leiknum, eftir sendingu frá Margréti Láru Viðarsdóttur.

Íslendingaliðið Brann búið að reka þjálfarann
Steinar Nielsen var í morgun rekinn frá Íslendingaliðinu Brann en gengi liðsins hefur engan veginn staðist væntingar á tímabilinu. Brann er sem stendur í 13. sæti norsku úrvalsdeildarinnar með 10 stig eftir tólf leiki.

Stefán Logi maður leiksins er Lilleström gerði jafntefli
Stefán Logi Magnússon var valinn maður leiksins hjá bæði Verdens Gang og Nettavisen þegar að Lilleström gerði 1-1 jafntefli við Brann á útivelli í norsku úrvalsdeildinni um helgina.

Margrét Lára skoraði tvö mörk fyrir Kristianstad í dag
Margrét Lára Viðarsdóttir tryggði Kristianstad 2-2 jafntefli á móti Jitex á útivelli í sænska kvennafótboltanum í dag þegar hún jafnaði leikinn 22 mínútum fyrir leikslok með sínu öðru marki í leiknum.

SönderjyskE hélt sæti sínu þrátt fyrir tap
SönderjyskE náði að halda sæti sínu í dönsku úrvalsdeildinni en lokaumferðin fór fram í dag. Liðið tapaði fyrir FC Köbenhavn 3-1 en það kom þó ekki að sök því önnur úrslit voru því hagstæð.

Ari Freyr Skúlason með þrennu í sigri Sundsvall
Ari Freyr Skúlason var í miklu stuði með Sundsvall í sænsku b-deildinni í dag þegar hann skoraði þrennu í 5-2 heimasigri liðsins á Syrianska. Með þessum þremur stigum komst Sundsvall-liðið upp í 2. sæti deildarinnar sem skilar sæti í Allsvenskan í haust takist Ara og félögum að halda því.

Birkir skoraði í fjórða leiknum í röð
Birkir Bjarnason skoraði í fjórða leik sínum í röð með norska úrvalsdeildarfélaginu Viking.

Markalaust hjá IFK Gautaborg
Íslendingaliðið IFK Gautaborg gerði í dag markalaust jafntefli við Örebro á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Markalaust hjá Örebro og Umeå
Einn leikur fór fram í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld en í honum gerðu Örebro og Umeå markalaust jafntefli.

Markalaust í Íslendingaslag
GAIS og IFK Gautaborg gerðu í kvöld markalaust jafntefli í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Indriði og Birkir skoruðu í sigri Viking
Þeir Indriði Sigurðsson og Birkir Bjarnason voru báðir á skotskónum þegar að Viking vann 4-2 sigur á Molde í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Tvö íslensk skallamörk í norska boltanum í gær - myndbönd
Bjarni Ólafur Eiríksson og Björn Bergmann Sigurðarson skoruðu báðir fyrir sín lið í norsku úrvalsdeildinni í gær og bæði mörkin voru skoruð með skalla. Bjarni Ólafur tryggði Stabæk 2-1 sigur á Brann en Björn Bergmann skoraði eitt þriggja marka Lilleström í 3-1 sigri á Strømsgodset.

Bjarni Ólafur tryggði Stabæk sigurinn í Íslendingaslag
Bjarni Ólafur Eiríksson tryggði Stabæk sigur á Brann, 2-1, í kvöld. Veigar Páll Gunnarsson spilaði allan leikinn í liði Stabæk líkt og Bjarni Ólafur.

Ólafur Ingi tryggði SönderjyskE sigur
Landsliðsmaðurinn Ólafur Ingi Skúlason var hetja SönderjyskE í danska boltanum í dag er hann skoraði eina mark leiks SönderjyskE og Esbjerg.

Björn Bergmann enn á skotskónum
Björn Bergmann Sigurðarson, leikmaður Lilleström, skoraði sitt þriðja mark í jafn mörgum leikjum er liðið sigraði Strömsgodset, 3-1, í norsku úrvalsdeildinni í dag.

Kristianstad fékk ítalska landsliðsmarkvörðinn
Búið er að leysa markvarðavandræði sænska úrvalsdeildarfélagsins Kristianstad sem Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar.

Theódór Elmar átti þátt í öllum fjórum mörkum IFK í kvöld
Theódór Elmar Bjarnason átti flottan leik með IFK Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld og var maðurinn á bak við 4-0 sigur liðsins á meisturunum í AIK. Theódór skoraði eitt mark og átti þátt í hinum þremur mörkum IFK.

Ólafur Ingi tryggði SønderjyskE sannkallaðarn sex stiga sigur
Ólafur Ingi Skúlason var hetja SønderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar hann skoraði sigurmark liðsins á útivelli í botnbaráttuslagnum við AGF. Ólafur skoraði markið á 88. mínútunni en SønderjyskE náði með því þriggja stiga forskoti á AGF sem situr áfram í fallsæti deildarinnar.

Björn Bergmann skoraði í öðrum leiknum í röð
Björn Bergmann Sigurðarson skoraði eitt marka Lillström í 3-2 sigri á Start í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld en Lilleström er í 4. sæti deildarinnar eftir þennan dramatíska útisigur.

Nú kom Hannes inn á og lagði upp jöfnunarmark Sundsvall
Hannes Þ. Sigurðsson lagði upp jöfnunarmark Sundsvall í 2-2 jafntefli á móti í Degerfors í sænsku b-deildinni í kvöld. Hannes kom inn á sem varamaður í leiknum alveg eins og þegar hann skoraði tvö mörk í sigri á Väsby United um síðustu helgi.

Birkir tryggði Viking sigur með glæsimarki
Birkir Bjarnason skoraði sigurmark Viking í 1-0 sigri á Haugesund í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Hann hefur þar með tryggt sínu liði fjögur stig í síðustu tveimur leikjum.

Newcastle hefur ekki áhuga á Sölva
Útsendari enska félagsins Newcastle á Norðurlöndunum, Ole Nielsen, segir að félagið hafi ekki áhuga á að fá Sölva Geir Ottesen í sínar raðir.

Davíð skoraði í tapleik
Davíð Þór Viðarsson skoraði eina mark Öster er liðið tapaði fyrir Brage, 3-1, á útivelli í sænsku B-deildinni í kvöld.