
EM 2023 í körfubolta

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Ísland - Spánn 34-88 | Fjögurra lægða leikur hjá Íslandi
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tók á móti Spáni í lokaleik sínum í undankeppni EM 2023. Um erfitt verkefni fyrirfram var að ræða og það varð raunin. Spánverjar sigldu heim 34-88 sigri en það voru jákvæðir punktar í leik Íslands.

Umfjöllun: Ungverjaland - Ísland 89-49 | Engin miskunn í Miskolc
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta varð að sætta sig við fjörutíu stiga tap á móti Ungverjum í dag, 89-49, í næstsíðasta leik íslenska liðsins í undankeppni Evrópumótsins.

Sú reynslumesta ekki með í fluginu í dag
Benedikt Guðmundsson, landsliðsþjálfari kvenna í körfubolta, hefur neyðst til að gera eina breytingu á leikmannahópi sínum sem í dag ferðast til Ungverjalands.

Myndir frá mögnuðum sigri Íslands í Laugardalshöll
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta vann frækinn sigur á Rúmeníu í Laugardalshöll í dag, lokatölur 68-58. Hér að neðan má sjá myndir úr Laugardalshöllinni

„Frábær leikur en manni finnst samt eins og við hefðum getað gert betur á köflum“
Sara Rún Hinriksdóttir átti sannkallaðan stjörnuleik fyrir Ísland í dag þegar liðið lagði Rúmenínu í undankeppni Evrópumótsins. Sara endaði með tæpan helming stiga íslenska liðsins, 33 stig, 7 fráköst og 5 stoðsendingar. Hvernig leið Söru í leikslok?

„Langt síðan að íslenska liðið náði sigri svo að þetta gefur okkur öllum svo mikið“
Íslenska kvennalandsliðið vann góðan 10 stiga sigur á Rúmenum í Laugardalshöllinni í dag í undankeppni Evrópumótsins, lokatölur 68-58. Benedikt Guðmundsson þjálfari liðsins, tók undir að þetta hefði verið ansi jafn leikur og tók Söru Rún Hinriksdóttur og hennar frammistöðu sérstaklega út fyrir sviga.

Umfjöllun: Ísland - Rúmenía 68-58 | Sanngjarn sigur Íslands á Rúmeníu í jöfnum leik
Ísland tók á móti Rúmeníu í undankeppni Evrópumóts kvennalandsliða í Laugardalshöllinni í dag. Þetta var seinni leikur Íslands í þessum landsleikjaspretti, en sá fyrri tapaðist stórt 120-54, gegn sennilega sterkasta kvennalandsliði Evrópu þessa dagana, Spáni.

Elvar Már: Þeir vildu ekki selja mig
Elvar Már Friðriksson var stigahæsti leikmaður íslenska körfuboltalandsliðsins á síðasta ári og hann verður eldlínunni í kvöld þegar Ísland leikur sinn fyrsta heimaleik í undankeppni HM 2023.

Meira en eitt heilt ár á milli leikja íslenska kvennalandsliðsins í riðlinum
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tapaði í gær á móti Ungverjalandi í undankeppni EM og hefur nú leikið tvo fyrstu leiki sína í riðlinum. Það er aftur á móti mjög langt í næsta leik hjá íslensku stelpunum.

„Ég kvíði ekki fyrir framtíðinni.“
Benedikt Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands, var óánægður með 57 stiga tap gegn Ungverjum á heimavelli í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Ungverjaland 58-115 | Íslenska liðið sá aldrei til sólar
Ísland mátti þola stórt tap gegn Ungverjalandi í fyrsta heimaleik sínum í undankeppni EM 2023 í körfubolta kvenna í kvöld. Liðið stóð í Rúmeníu í Búkarest á fimmtudaginn var en mátti þola stórt tap í kvöld, lokatölur 58-115.

Ísland mætir Ungverjalandi á Ásvöllum á morgun | Ekki krafist hraðprófs
Það er frítt inn á leik íslenska kvennalandsliðsins á morgun gegn Ungverjalandi í undankeppni EuroBasket 2023. Leikurinn fer fram í Ólafssal á Ásvöllum. Körfuknattleikssamband Íslands, KKÍ, birti þetta á svæði sínu á facebook í dag.

Naumt tap íslensku stelpnanna í fyrsta leik
Íslenska kvennalandsliðið tapaði naumlega þegar liðið hóf leik gegn Rúmenum í undankeppni EuroBasket 2023. Lokatölur urðu 64-59.

Þingmannadætur í íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta
Körfuboltakonurnar Ásta Júlía Grímsdóttir og Dagný Lísa Davíðsdóttir eru staddar í Rúmeníu með íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta en fram undan er leikur í kvöld á móti Rúmeníu í undankeppni EuroBasket 2023.

Kallar á sautján ára stelpu til að koma inn fyrir Helenu
Helena Sverrisdóttir getur ekki spilað með íslenska körfuboltalandsliðinu í þessum landsleikjaglugga og því varð landsliðsþjálfarinn Benedikt Guðmundsson að gera breytingu á hópnum sínum.