Handbolti
284 285 286 287 288 289 290 291 292 … 293 ›
Þýskaland lagði Svía af velli Þjóðverjar unnu öruggan sigur á Svíum, 30-24, í vináttulandsleik í handbolta sem fram fór í Þýskalandi í dag. Þá höfðu Norðmenn betur gegn Dönum, 26-23. Handbolti 18.11.2006 18:22
Jón Þorbjörn á leið heim Það verða fleiri breytingar hjá Skjern á næsta ári fyrir utan að Aron Kristjánsson hættir að þjálfa liðið. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins leikur línumaðurinn Jón Þorbjörn Jóhannesson ekki með liðinu á næsta ári. Handbolti 16.11.2006 18:26
Enn tapar Wetzlar Wetzlar, lið Róbert Sighvatssonar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta, er enn án sigurs eftir stórt tap gegn Hamburg á útivelli í kvöld 36-23. Minden lá heima gegn Flensburg 32-26, Kiel lagði Kronau/Östringen 37-32 og Magdeburg skellti Dusseldorf 37-31 á útivelli. Handbolti 15.11.2006 22:25
Gummersbach mætir Medvedi Í dag var dregið í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í handbolta. Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í þýska liðinu Gummersbach mæta rússneska liðinu Medvedi og Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real mæta danska liðinu GOG. Leikið verður 2. og 10. desember. Handbolti 14.11.2006 14:08
Tap hjá Alfreð og Viggó Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar og Viggós Sigurðssonar töpuðu leikjum sínum í Meistaradeildinni í handbolta í dag, en það kom ekki að sök því Flensburg og Gummersbach eru bæði komin áfram í riðlum sínum í keppninni. Handbolti 11.11.2006 21:22
Fram lá fyrir Sandefjord Framarar eru úr leik í Evrópukeppninni í handbolta eftir 31-28 tap fyrir norsku meisturunum í Sandefjord á heimavelli sínum í dag. Jóhann Gunnar Einarsson og Sigfús Sigfússon skoruðu 5 mörk hvor fyrir Fram, sem þýðir að Fram vermir botnsætið í riðli sínum án sigurs. Handbolti 11.11.2006 18:18
Jafnt í hálfleik Staðan í leik Fram og Sandefjord í Meistaradeildinni í handbolta er jöfn 12-12 þegar flautað hefur verið til leikhlés. Markvörður norska liðsins hefur reynst Frömurum erfiður í fyrri hálfleiknum. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. Handbolti 11.11.2006 17:34
Fram - Sandefjord í beinni á Sýn Síðari leikur Fram og Sandefjord í Meistaradeild Evrópu í handbolta verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan 16:50 í dag. Fram bíður erfitt verkefni því norska liðið vann fyrri leikinn með tíu mörkum og leikurinn í dag ræður úrslitum um það hvort liðið kemst áfram upp úr riðlinum. Handbolti 11.11.2006 16:36
Alfreð er einn besti þjálfari heims Gengi Íslendingaliðsins Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í vetur hefur vakið verðskuldaða athygli enda var ekki búist við sérstaklega miklu af liðinu fyrir tímabilið. Miklar mannabreytingar áttu sér stað hjá félaginu og Alfreð Gíslason þjálfari sagði í viðtali við Fréttablaðið á dögunum að hann væri sáttur tækist liðinu að ná þriðja sæti í deildinni. Handbolti 9.11.2006 20:09
Góðir menn eru keyptir og þeir eiga að sýna það Birkir Ívar Guðmundssson, landsliðsmarkvörður Íslands í handbolta, kann vel við sig hjá þýska liðinu Lübbecke. Liðið hefur þó ekki farið vel af stað í þýsku deildinni í vetur og er í fallsæti eins og staðan er í dag. Handbolti 9.11.2006 20:09
Lék með Ciudad í kvöld ÓIafur Stefánsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, lék með liði sínu Ciudad Real á ný í Evrópukeppninni í kvöld eftir að hafa verið frá vegna meiðsla í özl síðustu vikur. Ólafur skoraði þrjú mörk í 32-25 sigurleik spænsku Evrópumeistaranna á Pick Szeged frá Ungverjalandi. Handbolti 4.11.2006 20:46
Logi og Ásgeir heitir Logi Geirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson, landsliðsmenn hjá þýska liðinu Lemgo, fóru fyrir sínu liði í Evrópuleik gegn Maccabi Rishon Le Zion í gærkvöldi og skoruðu báðir sex mörk. Handbolti 4.11.2006 10:42
Gummersbach lagði Fram Þýska liðið Gummersbach vann í kvöld auðveldan sigur á Fram í Meistaradeild Evrópu 38-29 en leikið var ytra. Íslenska liðið stóð ágætlega í atvinnumönnunum, en þýska liðið sigldi framúr á lokasprettinum og vann auðveldan sigur. Jóhann Gunnar Einarsson var markahæstur Framara með 9 mörk. Handbolti 2.11.2006 20:56
Gummersbach leiðir í hálfleik Gummersbach hefur forystu 19-14 gegn Fram þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna í Meistaradeild Evrópu. Þýska liðið var lengi að finna taktinn líkt og í fyrri leiknum og lenti undir 9-6, en hefur síðan hert tökin og hefur 5 marka forskot í hálfleik. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Handbolti 2.11.2006 20:10
Gummersbach - Fram í beinni í kvöld Leikur Gummersbach og Fram í Meistaradeildinni í handbolta verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:20. Forvitnilegt verður að sjá hvort íslenska liðið nær að standa í lærisveinum Alfreðs Gíslasonar líkt og í fyrri leiknum í Reykjavík á dögunum. Handbolti 2.11.2006 15:47
Króatar hrósuðu sigri Króatar sigruðu í dag á heimsbikarmótinu í handbolta með því að leggja Túnisa að velli 33-31 í rafmögnuðum úrlslitaleik þar sem úrslitin réðust í vítakeppni eftir framlengingu. Ljubo Vukic skoraði 7 mörk fyrir Króata í dag en markamaskínan Wissem Hmam skoraði 13 mörk fyrir Túnisa. Handbolti 29.10.2006 18:42
Auðveldur sigur hjá Flensburg Viggó Sigurðsson og lærisveinar hans í þýska liðinu Flensburg völtuðu yfir makedónsku meistarana í Metalurg Skopje 43-24 í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag og hafa því fullt hús í D-riðli eftir fjóra leiki. Jafnræði var með liðunum framan af, en góð rispa Flensburg um miðjan fyrri hálfleikinn gerði út um leikinn. Handbolti 19.10.2006 20:08
Kiel burstaði Hildesheim Tveir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Kiel burstaði Hildesheim á útivelli 34-25 eftir að hafa verið yfir 19-12 í hálfleik og þá vann Nordhorn góðan útisigur á Kronau/Östringen 25-22. Kiel er í öðru sæti deildarinnar með 15 stig, einu stigi á eftir lærisveinum Alfreðs Gíslasonar í Gummersbach. Handbolti 18.10.2006 21:20
Einar skoraði 6 fyrir Grosswallstadt Einn leikur fór fram í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Einar Hólmgeirsson var markahæstur í liði Grosswallstadt með sex mörk þegar liðið gerði jafntefli við Göppingen á heimavelli 27-27. Alexander Petersson skoraði 4 mörk fyrir Grosswallstadt. Sport 17.10.2006 22:59
Gummersbach vann Lubbecke Nokkrir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Gummersbach unnu góðan 37-31 útisigur á Lubbecke. Róbert Gunnarsson skoraði 6 mörk fyrir Gummersbach og Guðjón Valur Sigurðsson 5. Þórir Ólafsson skoraði 2 mörk fyrir Lubbecke en Birkir Ívar Guðmundsson kom ekki við sögu í leiknum. Sport 15.10.2006 17:46
Fram steinlá í Noregi Íslandsmeistarar Fram spiluðu sinn slakasta leik til þessa í Meistaradeildinni þegar liðið steinlá 35-26 fyrir norsku meisturunum í Sandefjord í dag. Guðjón Drengsson skoraði 6 mörk fyrir Framara, sem verma nú botnsætið í riðli sínum í keppninni. Handbolti 14.10.2006 18:34
Sandefjord - Fram í beinni á Sýn Leikur norsku meistaranna Sandefjord og Íslandsmeistara Fram í meistaradeild Evrópu verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn í dag. Útsending frá leiknum í Noregi hefst klukkan 16:45 og það kemur í hlut hins óviðjafnanlega Guðjóns Guðmundssonar að lýsa leiknum. Handbolti 14.10.2006 15:17
Guðlaugur Arnarsson til Gummersbach Alfreð Gíslason, þjálfari þýska úrvalsdeildarliðsins Gummersbach, hefur nú fengið fjórða íslendinginn í raðir sínar eftir að hann gekk frá lánssamningi á Fylkismanninum sterka Guðlaugi Arnarssyni. Sport 13.10.2006 18:04
Gummersbach lagði Celje Lasko Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Gummersbach unnu í kvöld afar mikilvægan sigur á sterku liði Celje í Meistaradeildinni í handbolta 34-31, eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik 16-14. Þá unnu Viggó Sigurðsson og félagar í Flensburg 34-29 sigur á Medwedi í sömu keppni. Handbolti 12.10.2006 20:06
Haukar mæta Paris Handball Í dag var dregið í í þriðju umferð Evrópukeppni félagsliða í handbolta og fá Haukar það verkefni að mæta franska liðinu Paris Handball og verður fyrri leikur liðanna spilaður í París 4. eða 5. næsta mánaðar. Í Áskorendakeppninni dróst Fylkir á móti liði St Gallen í Sviss, en fyrri leikurinn verður hér heima í byrjun næsta mánaðar. Handbolti 10.10.2006 14:26
Munurinn lá í sóknarnýtingunni Slæm nýting dauðafæra urðu Íslandsmeisturum Fram að falli í leik þeirra gegn Celje Lasko frá Slóveníu í Meistaradeildinni í handbolta í gær. Framarar komu heimamönnum í opna skjöldu með góðum leik en lokatölurnar, 35-24, voru of stórar miðað við gang leiksins. Handbolti 8.10.2006 20:19
Gummersbach á toppinn Gummersbach, lið Alfreðs Gíslasonar, endurheimti toppsætið í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær eftir að liðið vann Melsungen á heimavelli sínum í gær, 38-30. Liðið er nú komið með 14 stig eftir átta leiki, tveimur stigum meira en Hamburg og Nordhorn, en þau hafa leikið einum leik færra. Sport 8.10.2006 20:20
Stjarnan var tveimur sekúndum frá því að komast áfram Stjarnan vann króatíska liðið Medvescak Zagreb 28-22 í síðari viðureign liðanna í Evrópukeppni bikarhafa sem fram fór í Ásgarði í gær. Þessi sex marka sigur nægir þó Stjörnunni ekki þar sem Zagreb vann sjö marka sigur í fyrri leiknum. Handbolti 8.10.2006 20:20
Flensburg vann Viggó Sigurðsson og lærisveinar hans í Flensburg unnu þægilegan útisigur á Skopje frá Makedóníu í X-riðli Meistaradeildarinnar í gær, 37-29. Yfirburðir Flensburg voru töluverðir í leiknum og hafði liðið meðal annars 21-10 forystu í hálfleik en það slakaði nokkuð á undir lokin þegar Viggó leyfði minni spámönnum sínum að spreyta sig. Handbolti 8.10.2006 20:20
Krefjandi verkefni hjá Fram í Slóveníu Þrjú íslensk lið verða í eldlínunni í Evrópukeppni karla í handbolta í dag. Tveir leikir fara fram hér á landi en Íslandsmeistarar Fram leika í Slóveníu gegn Celje í F-riðli Meistaradeildarinnar. Sá leikur verður í beinni útsendingu á Sýn og hefst útsending 15.10. Fréttablaðið náði tali af Guðmundi Guðmundssyni, þjálfara Fram, þegar hann var á ferðalagi með liðinu í gær. Handbolti 7.10.2006 21:19