Drápið á Ahmaud Arbery

Fær annan lífstíðardóm fyrir morðið á Arbery
Travis McMichael var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að fremja hatursglæp er hann myrti Ahmaud Arbery árið 2020 vegna litarháttar hans. Morðið framdi McMichael með tveimur öðrum karlmönnum en allir eru þeir hvítir en Arbery var svartur.

Morðingjar Arbery eiga yfir höfði sér annan lífstíðardóm
Þrír hvítir karlmenn, sem voru sakfelldir fyrir morðið á hinum 25 ára Ahmaud Arbery í Georgíu, hafa nú verið sakfelldir fyrir hatursglæp en kviðdómur í Brunswick komst að þeirri niðurstöðu að mennirnir höfðu brotið alríkislög með því að meina Arbery um að ganga um almenningsgötu vegna litarhafts hans.

Dómari hafnaði samkomulaginu við feðgana
Dómari í Bandaríkjunum hafnaði í gærkvöldi því að gert yrði samkomulag við feðgana Greg og Travis McMichael. Samkomulagið hefði falið í sér að þeir hefðu komist hjá réttarhöldum um það hvort það hafi verið hatursglæpur þegar þeir myrtu Ahmaud Arbery.

Móðir Arbery segir samkomulag við morð-feðgana vera svik
Saksóknari hefur boðið feðgunum Greg og Travis McMichael að gera samkomulag sem felst í því að þeir feðgar gætu komist hjá frekari réttarhöldum.

Feðgarnir eiga ekki rétt á reynslulausn
Feðgarnir Greg og Travis McMichael voru í dag dæmdir til að verja ævi þeirra í fangelsi. Dómari úrskurðaði að þeir ættu ekki rétt á reynslulausn eftir að þeir voru dæmdir fyrir að myrða hinn 25 ára gamla Ahmaud Arbery árið 2020. Nágranni þeirra og samverkamaður, William Bryan, mun hins vegar geta sótt um reynslulausn eftir þrjátíu ár.

Morðingjarnir hefðu líklega aldrei verið handteknir án myndbandsins
Feðgarnir Greg og Travis McMichael og nágranni þeirra William Bryan voru í gær dæmdir sekir um morð. Það er fyrir að hafa elt og setið fyrir hinum 25 ára gamla Ahmaud Arbery í febrúar í fyrra.

Þremenningarnir sakfelldir fyrir morðið á Ahmaud Arbery
Þrír hvítir karlmenn í Georgíu í Bandaríkjunum hafa verið sakfelldir fyrir hatursglæpi og morð, fyrir að hafa skotið hinn 25 ára gamla Ahmaud Arbery til bana vegna litarháttar hans.

„Dömur og herrar, notið almenna skynsemi“
Enginn af þremenningunum sem eltu og sátu fyrir Ahmaud Arbery höfðu tilefni til að framkvæma borgaralega handtöku eftir að þeir sáu blökkumanninn í hverfi þeirra í Brunswick í Georgíu í fyrra. Þeir ákváðu að elta hann „vegna þess að hann var blökkumaður á hlaupum eftir götum þeirra“.

Líkti samstöðufundi við aftöku án dóms og laga
Kevin Gough, verjandi eins mannanna sem sakaðir eru um að myrða Ahmaud Arbery, sagði samstöðufund sem haldin var fyrir utan dómshúsið í Brunswick í Georgíu vera álíka aftöku mannanna þriggja.

Sagði Arbery ekki hafa ógnað sér áður en hann miðaði á hann
Travis McMichael, sem skaut Ahmaud Arbery til bana, sagði við vitnaleiðslur í dag að Arbery hefði ekki ógnað sér á nokkurn hátt, áður en hann miðaði haglabyssu á hann. McMichael skaut Arbery í febrúar í fyrra eftir að hann skokkaði í gegnum hverfi sem McMichael bjó í.

Verjandi vill ekki fleiri svarta presta í dómsal
Verjandi eins mannanna sem sakaðir eru um að myrða Ahmaud Arbery sagði dómara málsins í gær að hann vildi ekki fleiri „svarta presta“ í dómsal. Það sagði hann eftir að Al Sharpton sat með fjölskyldu Arbery í salnum í fyrradag.

Ákæra saksóknara fyrir að hylma yfir með morðingjum
Fyrrverandi saksóknari í Georgíu í Bandaríkjunum hefur nú verið ákærður fyrir meðferð sína á drápi á óvopnuðum svörtum skokkara í fyrra. Konan er sökuð um að hafa haldið hlífiskildi yfir karlmönnunum sem eru ákærðir fyrir morðið á skokkaranum.

Vilja nota gömul brot Arbery í vörn meintra morðingja hans
Lögmenn feðganna Travis (35) og Gregory McMichael (65) hafa farið fram á að mega nota sakaskrá Ahmaud Arbery, 25 ára manns sem þeir eru sakaðir um að hafa myrt, í réttarhöldunum gegn þeim. Feðgarnir, auk William Bryan, eru hvítir og sátu fyrir Arbery, sem var svartur, þegar hann var úti að skokka og skutu hann til bana.

Ákærðir fyrir hatursglæp vegna morðsins á Ahmaud Arbery
Þrír hvítir karlmenn í Georgíu í Bandaríkjunum hafa verið ákærðir fyrir hatursglæp og tilraun til frelsissviptingar í tengslum við morðið á Ahmaud Arbery, svörtum skokkara, í fyrra. Feðgar sem eltu Arbery eru ákærðir fyrir að hafa myrt hann.

„Þegar hann gat ekki hlaupið lengur, þurfti hann að berjast“
Sérstakur málflutningur fór fram í vikunni og hefur vitnisburður mannanna þriggja sem hafa verið ákærðir vegna dauða Ahmaud Arbery varpað frekari ljósi á málið.

Morðingi svarta skokkarans sagður hafa kallað hann rasísku nafni
Sérstakur saksóknari sem rannsakar morðið á Ahmaud Arbery, svörtum skokkara, í Georgíu í Bandaríkjunum segir að einn mannanna sem voru handteknir vegna morðsins hafi kallað Arbery rasísku nafni eftir að hafa skotið hann með haglabyssu.

Maðurinn á bak við myndavélina ákærður
William Bryan Jr., maðurinn sem tók upp atburðarásina þegar hinn 25 ára gamli Ahmaud Arbery var myrtur í Georgíuríki í febrúar síðastliðnum, hefur verið ákærður fyrir aðild að morðinu.

Íhuga að ákæra feðgana fyrir hatursglæp
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna íhugar hvort kæra eigi feðgana Gregory og Travis McMichales fyrir hatursglæp.

Dómsmálaráðuneytið mun rannsaka hvernig lögreglan meðhöndlaði mál Arbery
Dómsmálaráðherra Georgíu hefur beðið Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna um að rannsaka hvernig lögreglan í Brunswick hélt á málið Ahmaud Arbery, sem skotinn var til bana þegar hann var úti að skokka í febrúar.

Feðgar sem skutu óvopnaðan skokkara handteknir
Saksóknarar í Georgíu hafa ákært feðga sem sakaðir eru um að hafa skotið óvopnaðan svartan mann í febrúar fyrir morð.

Skotinn til bana óvopnaður úti að hlaupa
Mikil reiði hefur gripið um sig í Bandaríkjunum eftir að svartur karlmaður var skotinn til bana í Georgíuríki í febrúar.