
Olíuleit á Drekasvæði

Vilja leita að olíu ef stjórnvöldum er ekki alvara með orkuskiptum
Formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar segir það vilja einbeita sér meira að olíuleit á Drekasvæðinu ef stjórnvöldum sé ekki alvara með áformum um orkuskipti. Áform um græna orkuframleiðslu á Reyðarfirði séu á ís vegna orkuskorts.

Vill að hagkvæmni olíuleitar á Drekasvæðinu verði metin
Bæjarráð Fjarðabyggðar beinir því til stjórnvalda að meta að nýju hagkvæmni olíuleitar á Drekasvæðinu í ljósi þess að orkuskipti ganga hægar en gert var ráð fyrir. Þetta segir í bókun sem samþykkt var á bæjarráðsfundi í gær.

Gjaldþrot olíuleitarfélags upp á 12 milljarða
Gjaldþrotaskiptum á búi eignahlutafélagsins Lindir Resources er lokið, án þess að nokkuð fengist upp í tólf milljörða króna lýstar kröfur. Félagið ætlaði sér á sínum tíma stóra hluti í olíuiðnaði.

Segir Finnafjörð fastan í þagnarmúr ríkisstjórnar
Framgangur hugmynda um stórskipahöfn í Finnafirði við Langanes tafðist vegna covid-faraldursins. Áform um að taka upp þráðinn á ný eru sögð stranda á því að engin áheyrn fáist hjá íslenska ríkinu.

Orkuskiptin
Mannkynið hefur unnið ötullega að orkuskiptum um langt skeið. Allt frá því manninum tókst að hagnýta sér eldinn hefur orkumyndun þróast, en aldrei hraðar en nú.

Norsk stjórnvöld gefa út 53 ný olíuleitarleyfi
Norsk stjórnvöld hafa úthlutað 53 nýjum sérleyfum til leitar og vinnslu olíu á landgrunni Noregs. Á sama tíma er skýrt frá því að aldrei í sögunni hafi tekjur Norðmanna af olíu- og gasvinnslu verið eins miklar og á nýliðnu ári.

Íslenska olíuleitarfélagið Eykon Energy lagt niður
Eykon Energy ehf., það íslenska félag sem lengst stóð að olíuleit á Drekasvæðinu, er hætt starfsemi. Eigendur þess ákváðu í mars á þessu ári að slíta félaginu.

Stöðva stopula leit að olíu í lögsögu Íslands
Hálfrar aldar sögu olíuleitar við Ísland virðist lokið; leitar sem reyndist bæði stopul og árangurslítil. Í nýjum stjórnarsáttmála er því lýst yfir að fleiri leyfi til olíuleitar verði ekki gefin út.

Eldur sagður kveikja gullæði á Grænlandi
Gullæði á Grænlandi. Þannig hljómar fyrirsögn eins grænlensku fjölmiðlanna eftir að fréttir bárust um stóran gullfund fyrirtækis, sem Íslendingurinn Eldur Ólafsson stendur að.

Skrifar undir loftlagsmarkmið og stóreykur olíuleit á sama tíma
Norðmenn eru að stórauka olíuleit í Barentshafi á sama tíma og forsætisráðherra þeirra undirritar yfirlýsingar í Reykjavík um aðgerðir í loftlagsmálum.

Lífeyrissjóðirnir fjárfesti í grænum og sjálfbærum kostum
Einn skipuleggjenda Loftslagsgöngunnar sem verður farin í þriðja skipti um helgina segir að hluti fjárfestinga lífeyrissjóðanna ætti að vera sjálfbær.

Pólitíska ákvörðun þarf til nýs olíuleitarútboðs
Ekkert leyfi til olíuleitar er lengur í gildi í lögsögu Íslands eftir að Eykon hætti við að kæra afturköllun sérleyfis fyrirtækisins á Drekasvæðinu.

Eykon kærir Orkustofnun fyrir sviptingu Drekaleyfis
Eykon telur sviptingu olíuleitarleyfis á Drekasvæðinu vera lögbrot og hefur ákveðið að kæra ákvörðun Orkustofnunar.

Afturkalla leyfi Eykon til olíuleitar á Drekasvæðinu
Stofnunin telur fyrirtækið ekki hafa tæknilega né fjárhagslega getu til að takast á við kröfur og skilyrði leyfisins.

Segja líkur á arðbærri olíulind of litlar til að réttlæta frekari leit
Norska ríkisolíufélagið Petoro segist sammála því mati hins kínverska CNOOC að líkur á að finna arðbæra olíulind á Drekasvæðinu séu of litlar til að þær réttlæti frekari olíuleit.

Segir ný gögn um Drekasvæðið grunn að næsta olíuleitarútboði
Orkustofnun áætlar að kostnaður við olíuleit á Drekasvæðinu sé kominn yfir fimm milljarða króna, þar af eru fimmhundruð milljónir í leyfisgjöld til ríkisins.

Úthluta metfjölda sérleyfa en hætta við Drekasvæðið
Ákvörðun norskra stjórnvalda um að draga ríkisolíufélagið Petoro út úr olíuleit á Drekasvæðinu var tekin daginn eftir að inn í ríkisstjórnina kom nýr flokkur, sem eindregið hefur barist gegn því að Jan Mayen-svæðið yrði opnað til olíuleitar.

Sér ekki loftslagsmarkmið og olíuvinnslu ganga saman
Umhverfisráðherra telur það afar ólíklegt að ráðist verði í nýtt útboð vegna olíuleitar í tíð sitjandi ríkisstjórnar.

Neitar að hætta olíuleitinni og segir málið lykta af pólitík
Olíuleit á Drekasvæðinu gæti verið lokið eftir að kínverska ríkisolíufélagið CNOOC og norska ríkisolíufélagið Petoro ákváðu að skila inn sérleyfi sínu. Íslenska félagið Eykon vill halda áfram þótt Orkustofnun telji forsendur brostnar.

Fjórfalda fjárheimildir til olíuleitar á Drekasvæði
Olíuleit á íslenska Drekasvæðinu fjórfaldast að umfangi á næsta ári, miðað við fjárheimildir sem norska Stórþingið samþykkti fyrir helgi til ríkisolíufélagsins Petoro.

Ísland vegi skaðann af olíulekum á móti ábata af vinnslu á norðurslóðum
Fyrrverandi vísindaráðgjafi Baracks Obama segir að íslensk stjórnvöld ættu að kanna hvort þau búi yfir innviðum til að takast á við olíuslys áður en þau heimila vinnslu í Norður-Íshafinu.

Afturhaldssinninn sem ásælist olíuna við Íslandsstrendur
Líkt og margir vita – og eru uggandi yfir – þá hyggst fjárfestirinn Heiðar Guðjónsson, í ráðamakki með norsku og kínversku klappliði, bora eftir olíu á Drekasvæðinu.

Staðreyndir fyrir Hildi Knútsdóttur
Hildur Knútsdóttir sendir mér tóninn í Fréttablaðinu 6. júlí. Hún segir mig, samstarfsmenn mína, ásamt norsku og kínversku ríkisolíufélögunum skorta siðferði í græðgi okkar.

„Olíufundur gæti gjörbreytt Íslandi“
Í viðtali sem birtist í Viðskiptablaðinu þann 1. júlí síðastliðinn segir Heiðar Guðjónsson, hagfræðingur og fjárfestir, frá áformum Eykon Energy um að bora ekki eina heldur þrjár borholur á Drekasvæðinu til að freista þess að dæla upp olíu. Hann fullyrðir að ef olía finnist muni ríkið græða milljarða og enginn kostnaður muni falla á ríkissjóð. Við þetta er ýmislegt að athuga.

Bann við olíuvinnslu miðist við ísrönd en ekki heimskautsbaug
Evrópuþingið í Strassborg hafnaði í gær að styðja bann gegn allri olíuvinnslu norðan heimskautsbaugs, en slík samþykkt hefði getað snert áform Íslendinga á Drekasvæðinu.

Vilja einbeita sér að fjórfalt stærri olíulind en fundist hafi við Noreg
Stjórnarformaður Eykons segir menn vilja einbeita sér að CNOOC-leyfinu, sem gefi fyrirheit um fjórfalt stærri olíulind á Drekasvæðinu en fundist hafi við Noreg og Bretland.

Íslensk olía?
Olíuleit á Drekasvæðinu knýr fram spurningu: Olíuvinnsla ef olía finnst og er vinnanleg; já eða nei? Skúli Thoroddsen, lögfræðingur Orkustofnunar, svarar játandi í pistli í Fréttablaðinu 23.11.

Milljarðar í olíuleit á Drekanum
Fyrirtækin sem hafa leyfi til olíuleitar á Drekasvæðinu hafa þegar varið um þremur milljörðum króna til rannsókna. Í desember liggja fyrir niðurstöður mælinga beggja leyfishafa og framhald rannsókna skýrist.

Á að hætta olíuleit á Drekasvæðinu vegna umhverfis- og loftslagsmála?
Markmið Parísarsamkomulagsins er að halda hnattrænni hlýnun innan við 2°C miðað við tímabilið fyrir iðnbyltinguna. Miðað við þær aðgerðir sem þjóðir heims hafa boðað er þó ekki útlit fyrir að þau markmið náist nema gripið verði til róttækari aðgerða.

Stefna norska ríkinu til að stöðva olíuleit
Greenpeace hefur höfðað mál gegn norska ríkinu og telur að nýjustu útboð í Barentshafi brjóti gegn Parísarsáttmálanum og norsku stjórnarskránni.