

Nú er formannskjör hafið í VR eins og kunnugt er. Sitjandi formaður sækist enn og aftur eftir endurkjöri þó að erindi hans í formannsstólinn sé satt að segja ekki mjög ljóst. Áhugasvið formannsins er þröngt og beinist nær eingöngu að húsnæðismálum og lífeyrissjóðsmálum. Enda þótt bráðar úrlausnir á húsnæðismarkaði séu sannarlega mjög brýnt verkefni þá þarf formaður í svo stóru stéttarfélagi eins og VR líka að gefa gaum að mörgu fleira.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir það ekki satt að Elvu Hrönn Hjartardóttur verði gert að segja upp hjá VR tapi hún í formannskosningum félagsins. Hún hafi sjálf tekið það skýrt fram að fyrra bragði að hún ætlaði að hætta skyldi hún tapa.
Miðlunartillaga í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins (SA) var samþykkt í dag. Formaður Eflingar segir að ekki hafi verið hægt að fara lengra. Deilan hafi ekki verið til einskis þar sem hún afhjúpaði „sjúka forherðingu“ gagnvart láglaunafólki á höfuðborgarsvæðinu.
Samkvæmt Elvu Hrönn Hjartardóttur, frambjóðanda til formanns VR, er grein með fyrirsögninni VR eða VG? sem ég skrifaði á sunnudaginn, „rógburður“ og „ærumeiðingar“.
Elva Hrönn Hjartardóttir sem býður sig fram til formennsku í VR gegn Ragari Þór Ingólfssyni sitjandi formanni segir félagið verða að taka á málum sem formaðurinn hafi sýnt lítinn áhuga. Formanns- og stjórnarkjör hefst í VR, fjölmennasta verkalýðsfélagi landsins, í fyrramálið og liggja niðurstöður fyrir á hádegi á miðvikudag eftir viku.
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og Elva Hrönn Hjartardóttir sem býður sig fram til embættis formanns ásamt honum mæta í beina útsendingu í Pallborðinu með Heimi Má Péturssyni fréttamanni klukkan tvö í dag. Kosning til formanns og stjórnar VR hefst á morgun.
Ég get hreinlega ekki orða bundist eftir rangfærslur og aðdróttanir Elvu Hrannar Hjartardóttur, sem er í framboði til formanns VR, í Silfri Egils sunnudaginn 5. mars.
Elva Hrönn Hjartardóttir frambjóðandi til formanns VR setti fram skoðun hér á Visi.is í morgun sem mig langar að bregðast við. Félagsmenn VR sem eru að nálgast 40 þúsund eru vissulega fjölbreyttur hópur og allt starf félagsins tekur mið af því.
VR er stærsta stéttarfélagið á Íslandi en í félaginu eru um 40.000 félagar á sex félagssvæðum víða um landið. Miðað við fjöldann má ætla að félagsfólkið sé allskonar, af öllum kynjum, kynhneigð og aldri, fatlað og ófatlað fólk, af fjölbreyttum uppruna og trú.
Ástráður Haraldsson settur ríkissáttasemjari gagnrýnir Stefán Ólafsson samninganefndarmann Eflingar harðlega fyrir trúnaðarbrot í tengslum við kjaraviðræður félagsins við Samtök atvinnulífsins. Hann segir opinber ummæli Stefáns geta sett viðræðurnar „út af teinunum."
Ekkert framboð barst til stjórnar stéttarfélagsins Eflingar fyrir utan lista sem trúnaðarráð samþykkti nýlega. Sá listi er sjálfkjörinn og hverfa Agnieszka Ewa Ziółkowska varaformaður og Ólöf Helga Adolfsdóttir ritari úr stjórninni.
Kristján Þórður Snæbjarnarson forseti ASÍ segir að gera megi ráð fyrir að Félagsdómur kveði upp dóm í máli sambandsins gegn Samtökum atvinnulífsins í vikunni. Verkbann tekur að öllu óbreyttu gildi hinn 2. mars næstkomandi.
Formenn félaga Alþýðusambands Íslands segja að sjaldan hafi varðstaða um sérhagsmuni birst landsmönnum eins skýrt og nú. Ríkisstjórninni hafi mistekist að leggja grunn að efnahagslegum og samfélagslegum stöðugleika.
Björn Snæbjörnsson mun láta af formennsku hjá stéttarfélaginu Einingu-Iðju á næsta aðalfundi félagsins. Hann hefur gegnt embætti formanns í 24 ár. Anna Júlíusdóttir tekur við formennsku félagsins.
Þó staðan sé um margt fordæmalaus eftir boðun verkbanns SA í kjardeilu Eflingar hefur margt verið sagt og margar fullyrðingar settar fram sem standast litla sem enga skoðun.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að ef Samtök atvinnulífsins komist að þeirri niðurstöðu að þau muni setja ótímabundið verkbann á tuttugu þúsund meðlimi Eflingar, vinnuafl höfuðborgarsvæðisins, sé það til marks um sturlun. Hún segir jafnframt að það ætti nú að vera öllum ljóst að Samtök atvinnulífsins vilji ekki og ætli ekki að gera kjarasamning við Eflingu.
Samtök atvinnulífsins segja Eflingu ekki hafa staðið rétt að verkfallsboðun og samtökunum hafi ekki borist tilkynning um verkfallið sem hefði átt að hefjast 28. febrúar. Verkfallið hafi ekki verið boðað með lögbundnum sjö sólarhringa fyrirvara og komi því ekki til framkvæmda.
Forseti ASÍ segir verkbann sem Samtök atvinnulífsins boða vera aðgerðir sem muni hafa gríðarlega mikil áhrif á samfélagið. Hann segir að honum lítist ekkert á það hvert kjaradeila SA og Eflingar er komin en að hann hafi þó fulla trú á að hægt verði að landa samningum.
Komi til verkbanns í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins mun Efling kalla saman Eflingarfólk til víðtækra mótmælaaðgerða gegn þeim vinnuveitendum sem beita munu verkbanni.
Formaður Eflingar segir það vera hörmulegt að horfa upp á verkbannsboðun Samtaka atvinnulífsins (SA). Hún segir engan samningsvilja vera til staðar hjá samtökunum. Henni þykir það líklegt að verkfallsboðanir sem 1.650 starfsmenn Eflingar hafa verið að greiða atkvæði um verði samþykktar.
Nú stendur yfir mikilvæg kjaradeila milli SA og Eflingar þar sem tekist er á um taxtahækkanir lágmarkslauna. Krafa Eflingar er að lágmarkstaxti verði 408 þúsund krónur á mánuði. Hvort sú krafa næst fram í þessari lotu liggur ekki fyrir þegar þessi grein er skrifuð en umræðan og harkan sem birst hefur í fjölmiðlum undanfarnar vikur vegna kröfugerðar Eflingar vekur upp spurningar um hvort þessi barátta er háð á réttum vígvelli.
Framkvæmdastjóri Íslandshótela segir að frestun verkfalla hafi afstýrt hættuástandi hér á landi. Hann bindur vonir við að það leysist úr kjaradeilunni um helgina en býr sig þó undir það versta.
Formaður Eflingar segir það hafa verið erfiða ákvörðun að fresta verkfallsaðgerðum stéttarfélagsins. Ákvörðunin sé þó útpæld og nú er búist við „raunverulegum kjarasamningsviðræðum“.
Verkfallsaðgerðum Eflingar hjá starfsmönnum Íslandshótela, Berjaya Hotels, Reykjavík Edition, Skeljungs, Samskipa og Olíudreifingu hefur verið frestað á meðan samningaviðræður Eflingar og SA halda áfram. Fulltrúar beggja aðila hafa fundað í húsnæði ríkissáttasemjara í kvöld og tókst að finna flöt til að halda viðræðunum gangandi.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, virðist ekki vera bjartsýnn á að samningafundur í deilu samtakanna og Eflingar í Karphúsinu í dag skili niðurstöðu í dag.
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir fordæmalausa stöðu vera komna upp á íslenskum vinnumarkaði. Hann ætlar ekki að biðja formann Eflingar afsökunar þrátt fyrir að hún hafi krafist þess í dag.
Landsréttur úrskurðaði í dag að Efling þurfi ekki að afhenda ríkissáttasemjara félagatal sitt. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að með þessu sé túlkun vinnulöggjafarinnar í uppnámi.
Kristján Þórður Snæbjarnason, forseti Alþýðusambands Íslands segist styðja Eflingu í kjarabaráttunni og hyggst mæta til verkfallsvörslu.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, varð við beiðni Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, um fund í Ráðherrabústaðnum, eftir að Eflingarfélagar mótmæltu fyrir utan ríkisstjórnarfund. Baulað var á Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra, þegar hann hélt af fundi ríkisstjórnarinnar. Sólveig Anna sagði að Bjarni hefði ekki þorað að mæta félagsmönnum Eflingar og flúið undan þeum.
Formaður Eflingar sakar lögmenn Samtaka atvinnulífsins um að hjálpa eigendum og yfirmönnum á Íslandshótelum við að stunda verkfallsbrot. Íslandshótel segja að um tilhæfulausar ásakanir sé að ræða og að gestir séu áreittir af forystufólki Eflingar.