
Micah Garen

Loðnukreppan: Fleiri hvalir þýða meiri fiskur
Núverandi loðnuvertíð er ein sú versta í sögunni og sú stysta í sögu landsins. Hvarf litla, silfurlitaða fisksins hefur ekki einungis áhrif á sjávarútveginn, heldur einnig á lundastofninn sem er í útrýmingarhættu, þorskstofninn, sem og allt vistkerfi sjávar. Ástæðurnar eru ýmsar - allt frá loftslagsbreytingum til ofveiði.

Við erum ennþá hvalveiðiþjóð, hvenær ætlar ríkisstjórnin að grípa í taumana?
Á þrettándanum 6. janúar síðastliðinn janúar, daginn sem huldufólk heldur til fjalla, hætti Bjarni Benediktsson loks í stjórnmálum. Hann sá vissulega til þess að skilja eftir sig sviðna jörð með að gefa út fimm ára hvalveiðileyfi sem endurnýjast sjálfkrafa.

Útgáfa hvalveiðileyfa er samfélagslegt mein
Er til betra dæmi um spillingu Bjarna Benediktssonar og misheppnaðrar ríkisstjórnar hans en þá ákvörðun hans á síðustu stundu að gefa út hvalveiðileyfi á leiðinni út um dyrnar?

Af jöklum og hvölum
Þann 18. ágúst síðastliðinn hélt hópur fræðimanna, blaðamanna og göngufólks upp á jökulinn Ok til að minnast þess að fimm ár eru liðin frá því hann lést. Í Ágúst 2019 var settur upp minningarskjöldur til heiðurs Ok og þar voru orð Andra Snæs Magnasonar rituð.

Leyfið til að drepa langreyði - óforsvaranleg ákvörðun
Þann 1. júní var gert opinbert að skýrsla MAST yfir hvalveiðitímabilið 2023 sýndi ekki fram á tölfræðilega marktækan mun frá árinu 2022 þegar dauðatími hvala var metinn „óásættanlegur“ og fagráð um velferð dýra sem starfar á vegum MAST komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri til mannúðleg leið til að drepa stórhveli. Það hefði átt að vera nóg til að binda enda á alla von um endurnýjað veiðileyfi.

Verndun hvala á alþjóðlegum degi hafsins
Á þessu ári hefur okkur miðað heilmikið áfram í skilningi og virðingu okkar á hvölum. Höfðingi Maóra lýsti því yfir að hvalir hafi sömu réttindi og mannfólk. Maórar vinna ásamt Sameinuðu þjóðunum við að reyna að veita hvölum mannréttindi alls staðar í heiminum.

Jákvæð leið fram á við, fyrir hvali og lax
Ísland stendur nú frammi fyrir tveimur mikilvægum og umdeildum vistfræðilegum vandamálum - hvalveiðum og laxeldi í opnum kvíum. Í boði er þó jákvæð og náttúruleg lausn á báðum málum: Þangbúskapur.

Fundur NAMMCO í vikunni
Á þriðjudag mun ársfundur Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðsins (The North Atlantic Marine Mammal Commision, NAMMCO) fara fram í Reykjavík. Og enn og aftur verður hvalkjöt á boðstólnum.

Hvalveiðar í tölum
Skoðum aðeins reikningsdæmið á bak við beiðni Kristjáns Loftssonar fyrir tíu ára hvalveiðileyfi. Þá á ég ekki við töluna tíu sem er einfaldlega tvöföldun á fimm ára leyfi sem áður hafa verið gefin út. Það er nefnilega mikilvægt að benda á það að Kristján Loftsson verður orðinn níræður þegar þetta tíu ára leyfi rennur loks út.

Viðbrögð sem gæta meðalhófs
Hvernig má bregðast gegn sjötta skeiði fjöldaútrýmingar og gæta meðalhófs? Hvernig má bregðast gegn loftslagsvánni og þeirri staðreynd að við erum að fara yfir 1.5 gráður, og gæta meðalhófs?