Skoðun: Alþingiskosningar 2024

Kvikmyndagerð á Íslandi: Næstu skref
Kvikmyndagerð á Íslandi hefur vaxið og dafnað á undanförnum árum. Markviss skref hafa verið stigin til þess að styrkja umgjörð greinarinnar á grundvelli Kvikmyndastefnu til ársins 2030.

Sigurður Ingi og óverðtryggingin
Framsóknarflokkurinn boðar í kosningastefnuskrá „óverðtryggð lán á föstum vöxtum til langs tíma“ til að „auka fyrirsjáanleika“. „Markmiðið er að íslensk heimili geti tekið slík lán á hagstæðum kjörum, sem veitir þeim meiri fyrirsjáanleika“ segir Sigríður gervigreind flokksins. Eins á þetta að auka stöðugleika. Sama boðar Flokkur fólksins. Allt er það óútfært og allt og sumt. Hókus pókus.

Varnarveggur gegn vonbrigðum
Þessi pistill hefst á persónulegum nótum og er aðdragandi að stærra samhengi. Í gegnum tíðina hafa vinkonur mínar bent mér á sérstakan ávana sem ég hef: Að nefna sjaldan manneskjur sem ég hef verið að hitta á rómantískum nótum með nafni þeirra í samtölum við þær.

Flokkur fólksins vill efla byggð um land allt!
Það er sameiginlegur hagur allra landsmanna að halda landinu öllu í byggð svo það gangi upp verður að tryggja aðgang íbúa að fjölbreyttri grunnþjónustu óháð búsetu og efnahaga. Það verður að tryggja að allir landsmenn sitji við sama borð og hafi jöfn tækifæri. Það er grundvöllur þess að öflugt og fjölbreytt atvinnulífi sé til staðar á landsbyggðunum og að fólk velji sér þar framtíðar búsetu.

Barnaskapur Bjarna Ben; Fjölmargar þjóðir með meiri kaupmátt en við!
Bjarni Benediktsson, nú ekki minna en þrefalldur ráðherra, líka forsætisráðherra - þó að hann hafi fyrir nokkru talizt vanhæfur í ráðherradóm af Umboðsmanni Alþingis - skrifar grein hér á Vísi 15. nóvember undir fyrirsögninni: „Krónur, evrur og fullveldi“.

Gekk ég yfir sjó og land og ríkisstofnanir líka
Allir frambjóðendur voru spurðir: Hvaða skoðun hafið þið á sjókvíaeldi í Seyðisfirði? Sjá mínútu 37:30 í upptöku. Jens Garðar svaraði: “Það eru lög í landinu um fiskeldi. Það er búið að gera haf- og strandsvæðaskipulagið fyrir Austurland og þar á meðal Seyðisfjörð. Það kveður á um fiskeldi í Seyðisfirði. Við styðjum fiskeldi í Seyðisfirði“.

Getur þú fengið þá hjálp sem þú þarft ef andlega heilsan hrörnar?
Ég fæ ekki réttar greiningar fyrr en ég er 26 og 27 ára. Einhverf og með ADHD. Vá hvað lífið hefði verið léttara ef ég hefði bara fengið að vita þetta fyrr. Ég hefði getað sýnt mér skilning og mildi og fjölskyldan og skólakerfið hefði getað stutt mig með þá erfiðleika sem ég hafði, sem þóttust óeðlilegir að þeirra mati. Ég hefði ekki eytt fjórðung úr öld að hugsa með mér ,,Hvað er eiginlega að mér? Afhverju get ég ekki bara gert þetta eins og allir hinir? Hvernig fer annað fólk eiginlega að þessu? Ég hlýt bara að vera svona ömurleg..’’

Rödd friðar þarf að hljóma skærar
Í gær, 22. nóvember, voru 61 ár liðin frá því að John F. Kennedy var myrtur um hábjartan dag í Dallas. JFK var friðflytjandi sem talaði gegn vopnavæðingu, gegn herskárri útþenslustefnu hervelda, gegn afskiptum stórvelda af innanríkismálum annarra þjóða.

Nýja stjórnarskráin — Alþingi rjúfi stöðnunina með stjórnlagaþingi
„Að mínu mati hefur íslenska þjóðin beðið nógu lengi eftir nýrri stjórnarskrá,“ sagði Vigdís Finnbogadóttir fyrrum forseti Íslands árið 2018, þegar sex ár voru liðin frá þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá.

Nýtt fangelsi – fyrir öruggara samfélag
Nýtt öryggisfangelsi á Stóra-Hrauni mun valda straumhvörfum í fullnustumálum á Íslandi. Ég kynnti byggingu fangelsisins í vikunni en um er að ræða mikilvægt verkefni sem snertir okkur öll.

Ísland og orkuskiptin: Styðjum þróun á jarðhita og alþjóðlegt samstarf
Ein af sérstöðum Íslands er gnægð náttúruauðlinda sem hægt er að nýta til framleiðslu endurnýjanlegar orku- eitthvað sem margar þjóðir öfunda okkur af. Við höfum jarðhita, vatnsorku og vindorku sem við gætum nýtt í mun meiri mæli en gert er í dag. Það er ákaflega mikilvægt er að tryggja orkuöryggi bæði almennings og atvinnugreina með því að auka framboð af endurnýjanlegri orku.

Kominn tími á öðruvísi stjórnmál
Það er óhjákvæmilegt að horfast í augu við þá staðreynd að íslensk stjórnmál hafa á undanförnum áratugum einkennst af hugsunarhætti sem einblínir á eiginhagsmuni.

Miskunnsami nýmarxistinn
Til að geta hjálpað öðrum þarf maður sjálfur að vera aflögufær. Að halda öðru fram er veruleikafirring. Því hefur verið haldið fram að hælisleitendakerfið kosti okkur ekki krónu, því hælisleitendurnir muni vinna hér í áratugi og borga mikið í skatta á þeim tíma.

Skapandi skattur og skapandi fólk
Tónhöfundar eru möguleg fórnarlömb þeirra stjórnmálaflokka sem sjá atvinnulífinu í landinu allt til foráttu þegar því gengur vel og skilar afgangi á rekstri sínum. Það er allt í einu orðið glæpur að leggja á sig mikla vinnu, vera skapandi og leggja allt undir, sparifé sitt og dýrmætan tíma til að skapa hugverk eða vöru sem býr svo til verðmæti í íslensku samfélagi, bæði eiginlega og andlega.

Teppaleggjum ekki íslenska náttúru með vindorku
Ímyndaðu þér íslenska náttúru, óspillta og einstaka, teppalagða með hundruðum háreistra vindmylla. Þær gnæfa yfir dali og fjallshlíðar en skila þjóðinni takmörkuðum arði og valda miklum deilum. Þetta er ekki framtíðarsýn sem við viljum – og stjórnmálamenn þurfa að gera betur.

Kjósum á næsta kjörtímabili
Hreinn meirihluti kjósenda telur mikilvægt að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla á komandi kjörtímabili um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Alls segja 55% það mikilvægt , 21% í meðallagi mikilvægt en 24% lítilvægt. Þessi niðurstaða er mjög afgerandi.

Hlutverk flokksforingja stórlega ofmetið í kosningabaráttunni
Ólafur Þ. Harðarson prófessor emiritus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands segir hlutverk leiðtoga stjórnmálaflokkanna í öflun vinsælda flokkanna stórlega ofmetið. Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn bítist nú á um 30 prósenta fylgi hægriflokka á Íslandi en nái ekki út fyrir þann bergmálshelli.

Kosningaloforðið sem gleymdist?
Nýverið kynnti ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar nýja aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum gervigreindar.

Óframseljanlegt DAGA-kerfi
Hvað breytist/gerist með óframseljanlegt DAGA-kerfi sem fiskveiðistjórn?

Nýtanleg verðmætasköpun um allt land
Einn verðmætasti fyrirtækjakaupsamingur íslenskarar sögu átti sér stað fyrir ári síðan. Um var að ræða kaup á íslensku fyrirtæki sem að vinnur með fiskroð, ekki útgerðarfyrirtæki, fyrirtæki sem notar fiskroð úr íslenskum sjávarútvegi í sinni framleiðslu.

Geðrænn vandi barna og ungmenna
Geðhelbrigði ungra landsmanna hefur verið mikið í umræðunni í þessari kosningabaráttu sem nú er í hámarki og lýkur næstu helgi er Íslendingar ganga að kjörborðinu þann 30. nóvember næstkomandi.

Það er kominn verðmiði á fangelsið en hvað má ungmenni í alvarlegum vanda kosta?
Allir stjórnmálaflokkarnir hafa verið með yfirlýsingar fyrir þessar kosningar um að þeir ætli að taka á geðheilbrigðismálum barna og ungmenna. En ég hef ekki heyrt hvað á að gera til að ná þessu markmiði annað en að stórauka sálfræðiþjónustu, en er það nóg?

Hinn opni tékki samgöngusáttmálans – ljósastýring og Sundabraut
Flestu venjulegu fólki var væntanlega brugðið þegar samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins var uppfærður með viðauka í ágúst s.l. Gjörningurinn sýnir vel hve Sjálfstæðisflokkurinn, sem ræður ríkjum í nær öllum sveitarfélögum í kringum Reykjavík, hefur fjarlægst gildi sín.

Við þurfum stjórnmálamenn sem skilja mikilvægi stærstu atvinnugreinar landsins
Það er ómetanlegt að eiga leiðtoga í ríkisstjórn Íslands sem skilur mikilvægi ferðaþjónustunnar fyrir íslenskt samfélag sem og efnahag. Ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til ársins 2030, sem byggir á víðtækri samvinnu við hagaðila, er einstakt dæmi um það hvernig opinber stefnumótun getur stuðlað að raunverulegum árangri og framþróun atvinnugreinar.

Kallað eftir fyrirsjáanleika í opinberum framkvæmdum
Staða innviða á Íslandi kallar á tafarlausar aðgerðir. Forgangsraða þarf fjárfestingum í innviðum og tryggja fyrirsjáanleika í framkvæmdum til að mæta þörfum atvinnulífsins og samfélagsins. Samkvæmt skýrslu Samtaka iðnaðarins og Félags ráðgjafarverkfræðinga um ástand og framtíðarhorfur innviða hefur ófullnægjandi fjárfesting leitt til umfangsmikillar viðhaldsskuldar, sem metin er á 420 milljarða króna. Það verkefni bíður nýrrar ríkisstjórnar að bæta stöðu innviða svo að unnt verði að styðja við fjölbreytta verðmætasköpun og auka samkeppnishæfni landsins.

Sjálfstætt fólk
Núna þegar veturinn er genginn í garð, sumar og haustannir að baki, kosningar og aðventa framundan, leitar margt á hugann. Í orðræðu daganna hafa meðal annars komið fram hugmyndir um að þeir sem starfa sjálfstætt, sjá sér og sínum farborða og vinna samfélagi sínu, landi og þjóð gagn án þess að vera launþegar, ættu að greiða meiri gjöld, meiri skatt en nú er.

Óstjórn í húsnæðismálum
Óstjórn í húsnæðismálum Reykjavíkurborgar náði vonandi botninum á íbúafundi sem haldinn var í Rimaskóla í Grafarvogi þann 12.nóvember síðastliðinn. Þar opinberuðust enn og aftur vinnubrögð borgarmeirihlutans.

Arfur stjórnmálanna 2024
Ef við hugleiðum arfleifð stjórnmálanna núna þegar gengið verður til kosninga í lok nóvember þá er af mörgu að taka.

Kjósum rétt(indi) fyrir fatlað fólk!
Nú styttist í alþingiskosningar og þá fáum við tækifæri til þess að kjósa stjórnmálaflokka í næstu ríkisstjórn.

Frelsi er allra, ekki fárra útvaldra
Einhvern veginn var voða margt bannað á sokkabandsárum þess sem hér lemur lyklaborð.